Morgunblaðið - 11.05.2022, Page 20
20 DÆGRADVÖL
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 11. MAÍ 2022
40 ÁRA Elke er frá Norderstedt í Schles-
wig-Holstein í Þýskalandi, en fluttist til Ís-
lands árið 2007 og býr í Gíslastaðagerði á
Völlum, N-Múl. Hún er sérkennari og
tónmenntakennari að mennt frá Flensburg
í Þýskalandi og starfar sem sérkennari í
Fellaskóla í Fellabæ. Elke spilar á trompet í
Lúðrasveit Fljótsdalshéraðs og er einnig í
Sinfóníuhljómsveit Austurlands. „Áhuga-
mál mín eru tónlist, ég sauma mikið og mér
finnst gaman að fara í göngu.“
FJÖLSKYLDA Elke er í sambúð með
Michael Gottschlich, f. 1978. Hann er tölvu-
fræðingur að mennt en vinnur sem bifvéla-
virki hjá Bílaverkstæði Austurlands. Börn
þeirra eru Thea Sóley, f. 2009, Emma Sól-
rún Lynn, f. 2011, Davíð Logi, f. 2014, og
Antonía Sunneva, f. 2017. Foreldrar Elke
eru Harald Schnabel, f. 1953 og Barbara
Schnabel, f. 1953, búsett í Norderstedt.
Elke Angelika Schnabel
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl ,
Hrútur Kjörorð dagsins er samvinna svo
nú er að láta hendur standa fram úr erm-
um. Ekki orsaka ósætti vegna smámuna til
þess að sneiða hjá stærri vandamálum.
20. apríl - 20. maí +
Naut Einhver sér sér hag í því að láta hlut-
ina líta þannig út að þér hafi orðið á ein-
hver mistök. Axlaðu þá ábyrgð sem er þín
og láttu svo eðlisávísunina ráða.
21. maí - 20. júní 6
Tvíburar Þú gerir átak í því að styrkja
stuðningsnetið. Sýndu öðrum tillitssemi og
umburðarlyndi og þú munt fá þá framkomu
endurgoldna þúsundfalt.
21. júní - 22. júlí 4
Krabbi Þegar verkefnaskráin er orðin
svona hlaðin eins og hjá þér er nauðsynlegt
að raða hlutunum upp í forgangsröð.
23. júlí - 22. ágúst Z
Ljón Ef þú vilt að fólki líði vel nálægt þér
skaltu gæta orða þinna og hafa aðgát í
nærveru sálar. Segðu hvað þér finnst en
ekki reyna að þröngva skoðunum þínum
upp á aðra.
23. ágúst - 22. sept. l
Meyja Þú hefur jákvæð áhrif á samstarfs-
menn þína með því að sýna þeim vinsemd
og umhyggju. Með þessu styrkir þú líka
persónuleika þinn.
23. sept. - 22. okt. k
Vog Þér finnst sál þín og einhvers sem þú
ert hrifinn af mætast í dag. Samskipti
skapa ekki bara frið, heldur felast í þeim
bestu augnablik lífsins.
23. okt. - 21. nóv. j
Sporðdreki Gerðu þér far um að vera jafn
praktískur og þú ert tilfinninganæmur.
Komdu skikki á líf þitt og veittu þínum nán-
ustu meiri tíma og athygli.
22. nóv. - 21. des. h
Bogmaður Vertu á tánum gagnvart þeim
tækifærum sem þér kunna að opnast.
Gættu þess að hafa fólk í kringum þig sem
fyllir þig andagift.
22. des. - 19. janúar @
Steingeit Betur sjá augu en auga svo þú
skalt fagna því er þínir nánustu benda þér á
eitthvað sem skiptir máli fyrir þig. Mæltu
þér mót við einhvern í kaffi eða mat.
20. jan. - 18. febr. ?
Vatnsberi Einhverjir möguleikar virðast á
ferðalagi en ljóst að þú þarft að hafa öll
spjót úti til þess að af því verði.
19. feb. - 20. mars =
Fiskar Þú ert fullur hugmynda og sérð ekki
hlutina í réttu ljósi. Gættu að fjárhagsstöðu
þinni og reyndu að hafa hana í lagi.
B
jarki Lúðvíksson fædd-
ist 11. maí 1972 á Akra-
nesi og átti heima þar
fyrst um sinn. Svo
flutti fjölskyldan í Þor-
lákshöfn eftir Vestmannaeyjagosið
og þaðan til Reykjavíkur og síðan í
Kópavog. Fjölskyldan flutti síðan
aftur á Akranes í desember 1979.
Bjarki gekk í Brekkubæjarskóla
og svo í Grundaskóla þegar hann
hóf starfsemi 1981. „Ég fór í við-
skiptafræði í Fjölbrautaskóla Vest-
urlands en komst fljótt að því að
það hentaði mér ekki.“ Hann flutti
norður á Akureyri 1995 og fór í
grafíska hönnun við Myndlistaskól-
ann á Akureyri og útskrifaðist vorið
1999.
Eftir útskrift flutti Bjarki til
Reykjavíkur og hóf störf á Hvíta
húsinu auglýsingastofu og starfar
þar í dag. Hann er hönnuður og „art
director“ á Hvíta húsinu. „Á Hvíta
húsinu hef ég fengið að hanna
„logo“ og útlit og staðla fyrir fjöl-
breyttan hóp kúnna. Ég hef kynnst
mörgu skemmtilegu, orkumiklu og
skapandi fólki þar í gegnum tíðina.“
Bjarki hefur meðal annars unnið
verkefni fyrirVestmannaeyjar sem
kallast Visit Vestmannaeyjar og
hann gerði skjaldarmerkið fyrir
Suðurnesjabæ. Hann hefur unnið
fyrir Samtökin 78 og stuðnings-
félögin Sorgarmiðstöðina og
Bjarkahlíð, einnig verkefni fyrir
hópinn Opnum Skálafell og Stöð
2000 fyrir Stöð 2. Meðal fyrirtækja
og félaga sem Bjarki hefur einnig
unnið fyrir eru Actavis, Íslands-
banki/Glitnir, Arion banki, Kjarn-
inn, Ímark, Isavia, Tern Systems,
Félag atvinnurekenda, Nauthóll,
Brú lifeyrisfélag og margt fleira.
„Nýjustu verkefnin hjá mér eru
Terra og núna síðast Bílaumboðið
Hekla og OK, áður Opin kerfi, sem
er á teikniborðinu núna í sumar.“
Merki Bjarka hafa ýmist fengið
viðurkenningar eða verðlaun hjá
Ímark og á erlendum keppnum og
fengið birtingar í erlendum bókum.
Ber þá helst að nefna verkefnin fyr-
ir Samtökin 78, Actavis, Tern
systems og Isavia.
„Áhugamál mín fyrir utan vinn-
Bjarki Lúðvíksson, grafískur hönnuður – 50 ára
Margar viðurkenningar að baki
Afmælisbarnið Bjarki hefur sérhæft sig í að hanna merki, eða lógó, og gengið vel á þeim vettvangi.
Á Hveravöllum
Bjarki ásamt yngsta
barninu, Lenu Björk.
Til hamingju með daginn
Akranes Jaki Hrafn Eiðsson fæddist
10. mars 2022 kl. 23.25 á Akranesi.
Hann vó 3.714 g og var 51 cm langur.
Foreldrar hans eru Áslaug Jóna
Rafnsdóttir og Eiður Daði Bjarkason.
Nýr borgari
Smiðjuvegur 76
200 Kópavogur
414 1000
Baldursnes 6a
603 Akureyri
414 1050
Austurvegur 69
800 Selfoss
414 1040
tengi@tengi.is
tengi.is
Hjónin Rannveig og Bjarki
í Landmannalaugum.