Morgunblaðið - 11.05.2022, Side 22

Morgunblaðið - 11.05.2022, Side 22
22 ÍÞRÓTTIR MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 11. MAÍ 2022 Norski framherjinn Erling Braut Haaland mun ganga í raðir Man- chester City frá Dortmund í sumar. Félagið staðfesti í gær að það hefði náð samkomulagi við framherjann magnaða og skrifar hann undir fimm ára samning. Haaland hefur farið á kostum með Dortmund og skorað 85 mörk í 88 leikjum með liðinu. Faðir hans, Alf Inge Haaland, lék með City í upphafi aldar. Dortmund hefur fengið Karim Adeyemi frá RB Salz- burg til að taka við markaskor- uninni af Norðmanninum. Haaland í fót- spor föður síns AFP Markahrókur Erling Braut Haaland á að skora mörk í Manchester. Knattspyrnumaðurinn Daníel Finns Matthíasson er genginn til liðs við Stjörnuna frá Leikni í Reykjavík. Hann er 21 árs gamall miðjumaður og var lykilmaður í Leiknisliðinu sem náði áttunda sæti í úrvalsdeild- inni á síðasta ári. Hann lék 20 af 22 leikjum liðsins og skoraði tvö mörk. Daníel lék sinn fyrsta leik með 21- árs landsliði Íslands þegar það mætti Kýpur í undankeppni EM í mars. Hann spilaði þrjá fyrstu leiki Leiknis í vor en var ekki með þegar liðið gerði markalaust jafntefli við Víking á sunnudagskvöldið. Daníel kominn í Stjörnuna Ljósmynd/Þórir Tryggvason Stjarnan Daníel Finns Matthíasson er kominn til Garðabæjarfélagsins. HANDBOLTINN Guðmundur Tómas Sigfússon Jóhann Ingi Hafþórsson ÍBV tryggði sér sæti í úrslita- einvígi Íslandsmóts karla í hand- bolta með 34:27-heimasigri á Haukum í fjórða leik liðanna í Vestmannaeyjum í gærkvöldi. ÍBV vann einvígið 3:1 og mætir Íslands- og bikarmeisturum Vals í úrslitum. Leikurinn var í járnum í fyrri hálfleik en ÍBV lagði grunninn að sigrinum með góðri byrjun í seinni hálfleik. Þegar lítið var eftir fóru Haukar að hengja haus, ÍBV gekk á lagið og vann að lokum sannfær- andi sigur. Ásgeir Snær Vignisson og Arnór Viðarsson skoruðu fimm mörk hvor fyrir ÍBV og þeir Kári Krist- ján Kristjánsson og Elmar Erl- ingsson fjögur hvor. Kári var kampakátur er hann ræddi við Morgunblaðið eftir leik. „Við náðum að dreifa spilinu bet- ur en Haukar. Menn urðu þreyttir hinum megin og við náðum að dreifa spiltímanum betur. Menn eins og Ásgeir Snær og Arnór klára stóran hluta leiksins. Við er- um líka með Elmar frábæran í stóru hlutverki og Robbi er kóng- urinn í vörninni. Það var mjög gott hvernig við kláruðum þetta,“ sagði línumaðurinn stóri og stæðilegi. Með smá pílu í maganum Kári viðurkennir að honum hafi ekki liðið vel allan leikinn, þrátt fyrir að ÍBV hafi unnið með sjö mörkum að lokum. „Það var alveg tvisvar eða þrisvar sem maður fékk í magann. Þeir minnkuðu nið- ur í þrjú mörk og síðan voru 10 mínútur eftir og þetta bara fjögur mörk. Það getur mikið gerst á 10 mínútum og maður var með smá pílu í maganum. Við ætluðum að gera betur en við gerðum á Ásvöll- um,“ sagði hann og hrósaði Sveini Jose Riveira í leiðinni en Sveinn kom sterkur inn á línuna þegar leið á leikinn. Þrátt fyrir að Valur hafi verið gríðarlega sannfærandi í úrslita- keppninni hingað til er Kári bratt- ur fyrir úrslitaeinvígið. „Nú förum við í heitan pott og spilum rólegar níu holur, allir að koma sér í gang og ná sér góðum. Valur er lið sem keyrir ótrúlega mikið og við áttum okkur á því. Þeir eru deildarmeist- arar og bikarmeistarar. Þeir eru liðið til að vinna en við erum að fara í úrslit og þetta verður ekkert eitthvað að gera sitt besta. Við ætlum bara að vinna helvítis Ís- landsmeistaratitilinn,“ sagði Kári Kristján. Hjá Haukum var Stefán Rafn Sigurmannsson markahæstur með fimm mörk og þeir Adam Haukur Baumruk, Brynjólfur Snær Brynj- ólfsson og Tjörvi Þorgeirsson með fjögur mörk hver. Fyrsti leikur úrslitaeinvígisins er í Origo-höllinni á Hlíðarenda fimmtudaginn 19. maí. Ætlum að vinna titilinn - ÍBV mætir Valsmönnum í úrslitum Ljósmynd/Sigfús Gunnar Kraftur Línumaðurinn kraftmikli Kári Kristján Kristjánsson í dauðafæri í leiknum gegn Haukum í Vestmannaeyjum í gærkvöldi. Ísak Snær Þorvaldsson, sóknarmaður Breiðabliks, var besti leikmaðurinn í fjórðu umferð Bestu deildar karla í fótbolta að mati Morgunblaðsins. Ísak skoraði tvö mörk fyrir Breiðablik, í þriðja sinn í fyrstu fjórum leikjunum, þegar Kópavogsliðið vann fyrrum félaga Ísaks í ÍA, 5:1 á Akranesi á laug- ardaginn. Ísak hefur þrisvar fengið tvö M í fyrstu fjórum umferðum deildarinnar og hann var eini leikmaður deildarinnar sem fékk þá einkunn í fjórðu um- ferðinni. Hann er jafnframt fyrstur til að vera valinn þrisvar í lið umferð- arinnar á tímabilinu. Þá eru þeir Hólmar Örn Eyjólfsson úr Val, Ívar Örn Árnason úr KA og Gísli Eyjólfsson úr Breiðabliki allir valdir í lið umferð- arinnar í annað skipti. 4 . umferð í Bestu deild karla 2022 Hversu oft leikmaður hefur verið valinn í lið umferðarinnar 23-4-3 Steinþór Már Auðunsson KA Felix Örn Friðriksson ÍBV Ísak Snær Þorvaldsson Breiðablik Einar Karl Ingvarsson Stjarnan Nacho Heras Keflavík Gísli Eyjólfsson Breiðablik Matthías Vilhjálmsson FH Brynjar Hlöðversson Leiknir R. Hólmar Örn Eyjólfsson Valur Kristinn Steindórsson Breiðablik Ívar Örn Árnason KA 2 2 2 3 Ísak bestur í fjórðu umferð Mjólkurbikar kvenna 2. umferð: Fjarð/Hött/Leiknir – Völsungur............. 4:0 England Aston Villa – Liverpool ............................ 1:2 Staðan: Manch. City 35 27 5 3 89:21 86 Liverpool 36 26 8 2 89:24 86 Chelsea 35 19 10 6 70:31 67 Arsenal 35 21 3 11 56:42 66 Tottenham 35 19 5 11 60:40 62 Manch. Utd 37 16 10 11 57:56 58 West Ham 36 16 7 13 57:46 55 Wolves 35 15 5 15 35:34 50 Brighton 36 11 14 11 38:42 47 Crystal Palace 35 10 14 11 46:42 44 Aston Villa 35 13 4 18 48:49 43 Brentford 36 12 7 17 44:52 43 Newcastle 36 11 10 15 40:61 43 Leicester 34 11 9 14 49:56 42 Southampton 36 9 13 14 41:61 40 Everton 34 10 5 19 37:56 35 Burnley 35 7 13 15 32:49 34 Leeds 35 8 10 17 39:74 34 Watford 35 6 4 25 32:70 22 Norwich City 35 5 6 24 22:75 21 Spánn Barcelona – Celta Vigo ............................ 3:1 Valencia – Real Betis ............................... 0:3 Granada – Athletic Bilbao ....................... 1:0 Staða efstu liða: Real Madrid 35 25 6 4 73:30 81 Barcelona 36 21 9 6 68:36 72 Sevilla 35 17 14 4 51:29 65 Atlético Madrid 35 19 7 9 60:41 64 Real Betis 36 18 7 11 60:40 61 Real Sociedad 35 15 11 9 34:34 56 Villarreal 35 14 11 10 55:34 53 Athletic Bilbao 36 13 13 10 41:35 52 _ Real Madrid er meistari. 0-'**5746-' Olísdeild karla Undanúrslit, fjórði leikur: ÍBV – Haukar ....................................... 33:27 _ ÍBV vann einvígið 3:1 og mætir Val í úr- slitum. Noregur Undanúrslit, annar leikur: Nærbo – Elverum ................................ 24:34 - Orri Freyr Þorkelsson skoraði 5 mörk fyrir Elverum en Aron Dagur Pálsson komst ekki á blað. _ Staðan er 2:0 fyrir Elverum. E(;R&:=/D Spánn Valencia – San Pablo Burgos............. 84:70 - Martin Hermannsson lék ekki með Val- encia vegna meiðsla. _ Valencia er í þriðja sæti og á einn leik eft- ir. Zaragoza – Andorra ...................(frl.) 80:83 - Tryggvi Snær Hlinason skoraði 4 stig og tók 8 fráköst fyrir Zaragoza á 19 mínútum. _ Zaragoza er í 17. sæti af 18 liðum og á einn leik eftir. Úrslitakeppni NBA Austurdeild, undanúrslit: Milwaukee – Boston ......................... 108:116 _ Staðan er 2:2. Vesturdeild, undanúrslit: Golden State – Memphis.................... 101:98 _ Staðan er 3:1 fyrir Golden State. >73G,&:=/D Þjóðverjinn Antonio Rüdiger, varn- armaður enska knattspyrnuliðsins Chelsea, er búinn að semja við spænska stórliðið Real Madrid að sögn hins áreiðanlega blaðamanns Fabrizios Romanos. Romano segir Rüdiger semja við Real til ársins 2026 og að allt sé frágengið á milli hans og félagsins. Rüdiger sem- ur við Real KNATTSPYRNA Besta deild karla: Hásteinsvöllur: ÍBV – KR ........................ 18 Kópavogur: Breiðablik – Stjarnan...... 19.15 Hlíðarendi: Valur – ÍA ......................... 19.15 Dalvíkurvöllur: KA – FH..................... 19.15 1. deild kvenna, Lengjudeildin: Kórinn: HK – Fjölnir ................................ 18 Árbær: Fylkir – Tindastóll .................. 19.15 Grindavík: Grindavík – Haukar .......... 19.15 Kaplakriki: FH – Víkingur R .............. 19.15 HANDKNATTLEIKUR Umspil kvenna, annar úrslitaleikur: Austurberg: ÍR – HK (0:1) .................. 19.30 Í KVÖLD! Liverpool jafnaði Manchester City á stigum í toppsæti ensku úrvals- deildarinnar í fótbolta með 2:1- útisigri á Aston Villa er liðin mættust á Villa Park í gærkvöldi. Liverpool lenti undir eftir að- eins þrjár mínútur þegar Douglas Luiz skoraði af stuttu færi eftir að Alisson í marki Liverpool varði frá honum. Aðeins þremur mín- útum síðar var Joël Matip búinn að jafna í 1:1 með svipuðu marki og reyndust það einu mörk fyrri hálfleiks. Liverpool var töluvert sterkara liðið í seinni hálfleik og að lokum skoraði Sadio Mané huggulegt sig- urmark með skalla á 65. mínútu eftir fyrirgjöf frá Luis Díaz. Liver- pool hefur oft spilað betur, en að því er ekki spurt undir lok tíma- bils þegar mikið er undir. Manchester City getur náð þriggja stiga forskoti á toppnum á nýjan leik er liðið leikur við Wolv- es í kvöld. Liverpool á eftir að leika við Southampton og Wolves á meðan City spilar við West Ham og Aston Villa í tveimur síðustu leikjum sínum. AFP Sigurmarkið Sadio Mané fagnar sigurmarkinu á Villa Park í Birmingham í gærkvöldi ásamt fyrirliðanum Jordan Henderson og Diogo Jota. Endurkomusigur Liverpool á Villa

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.