Morgunblaðið - 11.05.2022, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 11.05.2022, Blaðsíða 23
KRAFTLYFTINGAR Gunnar Egill Daníelsson gunnaregill@mbl.is Kraftlyftingakonan Sóley Margrét Jónsdóttir náði frábærum árangri á Evrópumeistaramótinu í kraftlyft- ingum í Plzen í Tékklandi um síð- ustu helgi. Sóley vann til verðlauna í öllum greinum sem hún keppti í, alls fernra verðlauna. Hún hreppti silf- urverðlaun í samanlögðum árangri í +84 kg flokki með því að lyfta 280 kg í hnébeygju, 185 kg í bekkpressu og 210 kg í réttstöðulyftu, samanlagt 675 kg, og bætti þar með eigið Ís- landsmet í samanlögðu um tíu kg. Með þessum árangri vann hún með sannfærandi hætti til gull- verðlauna í hnébeygju, vann brons- verðlaun í bekkpressu og silf- urverðlaun í réttstöðulyftu. Auk þess setti hún Íslandsmet í bekk- pressu og „single lift“ bekkpressu, sem er þegar einungis er keppt í bekkpressu á keppnisdegi öfugt við þegar keppt er á þrílyftumóti, þ.e. öllum þremur greinunum á keppn- isdegi. „Ég er bara mjög sátt með árangurinn á mótinu. Ég get ekki sagt annað,“ sagði Sóley í samtali við Morgunblaðið. Hin norska Hildeborg Hugdal hrósaði sigri samanlagt með því að lyfta 688 kg og sló í leiðinni heims- met í bekkpressu. Því vantaði Sól- eyju aðeins 13 kg upp á krækja í gullverðlaunin fyrir samanlagðan árangur. Hvað hefði mátt betur fara svo að Sóley hefði getað skákað Hugdal? „Ég náði ekki upp bekknum í ann- arri tilraun, sem var 185 kg. Hefði það farið upp hefði ég reynt við hærri þyngd í þriðju tilraun, þar sem ég reyndi aftur við 185 kg og náði því þá upp. En ég var nátt- úrlega alls ekki að búast við því að ég yrði 13 kílóum frá henni. Ég er mjög ánægð með að hafa náð að vera svona nálægt,“ sagði hún. Heimsmetið stendur enn Hnébeygjan hefur löngum verið sterkasta grein Sóleyjar enda vann hún til gullverðlauna í greininni um helgina og á enn heimsmet í stúlkna- flokki, U18 ára, í greininni, sem er 265,5 kg, Það met setti hún árið 2019. „Já, það er mín langsterkasta grein.“ Hún telur hins vegar þörf á bætingum í réttstöðulyftu. „Það er klárlega réttstöðulyftan sem ég þarf að bæta, hún er langveikasta greinin hjá mér. Ég vann samt silfur í henni en hún er veikasta greinin mín per- sónulega,“ útskýrði Sóley. Hún er enn aðeins tvítug, verður 21 árs í næsta mánuði, og verður því áfram gjaldgeng í flokk U23 ára og yngri um nokkurt skeið. „Það er keppt í U18, U23 og síðan fullorð- insflokki. Ég er náttúrlega undir 23 ára en ég keppti samt í fullorðins flokki á þessu móti um helgina. Heimsmetið í U23 ára í hnébeygj- unni er 290 kg núna þannig að stefn- an er sett á að ná því markmiði. Ég hef út þetta ár og tvö ár í viðbót þannig að það mun klárlega fara upp,“ sagði Sóley ákveðin. EM var upphitun Næst á dagskrá hjá henni eru heimsleikarnir sem fara fram í Birmingham í Alabama-ríki í Banda- ríkjunum næstkomandi júlí. „Ég ætla að ná mínum bætingum á því móti. Mótið um helgina var í raun- inni smá upphitun fyrir það þó þetta hafi náttúrlega ekki beint verið upp- hitun,“ sagði Sóley og hló við. „Stefnan var alltaf sett á að vera í mínu besta formi fyrir þessa heims- leika í júlí.“ Spurð hver markmið hennar um bætingar á heimsleikunum eru sagði hún: „Ef ég mun vera í góðu standi mun ég klárlega reyna við heimsmet U23 ára í hnébeygjunni og síðan er ég ekki langt frá í bekknum þar heldur, heimsmetið í U23 er 205 kg.“ Eftir heimsleikana ráðgerir Sóley að taka þátt á einu móti til viðbótar á árinu, heimsmeistaramótinu sem fer fram í Viborg í Danmörku í nóv- ember. Þegar talið barst að lokum að markmiðum hennar til langs tíma litið sagðist Sóley stefna ótrauð að því að verða best í heimi. „Það er al- gjörlega markmiðið að verða heims- meistari í fullorðinsflokki. Það er langtímamarkmiðið. Það mun al- gjörlega takast, ekki spurning.“ Markmiðið hjá mér er að verða heimsmeistari - Sóley Margrét Jónsdóttir fékk silfrið á Evrópumeistaramótinu í Plzen Ljósmynd/úr einkasafni Tékkland Sóley Margrét Jónsdóttir með verðlaunapeningana eftir Evrópumótið í Plzen um síðustu helgi. ÍÞRÓTTIR 23 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 11. MAÍ 2022 _ Íslandsmeistarinn Aron Snær Júl- íusson er efstur eftir fyrsta hring á Rewell Elisefarm Challenge-mótinu í Höör í Svíþjóð í gær en mótið er hluti af Nordic Golf-mótaröðinni. Aron lék fyrsta hringinn í gær á 67 höggum, fimm höggum undir pari. Er hann jafn Svíanum Hannes Rönneblad í topp- sæti mótsins. Axel Bóasson er einu höggi frá þeim félögum og er því jafn nokkrum í þriðja sæti á fjórum höggum undir pari. Þar á eftir koma Bjarki Pét- ursson og nokkrir aðrir kylfingar á þremur höggum undir pari. _ Körfuknattleiksmaðurinn Nemanja Knezevic hefur gert samning við Hött og mun hann leika með liðinu á næstu leiktíð. Hann kemur til félagsins frá Vestra. Knezevic lék alla 22 leiki Vestra á leiktíðinni og skoraði í þeim 12 stig, tók 12 fráköst og gaf þrjár stoðsendingar að meðaltali í leik. Vestri féll hins vegar úr deild þeirra bestu og Höttur fór upp upp í efstu deild. _ Knattspyrnufélagið Leiknir úr Reykjavík hefur fengið Stjörnumann- inn Kristófer Konráðsson að láni út yfirstandandi leiktíð. Kristófer hefur leikið 23 leiki í efstu deild með Stjörn- unni _ Knattspyrnusamband Evrópu, UEFA, tilkynnti í gær breytingar á fyr- irkomulagi Meistaradeildar Evrópu í karlaflokki. Breytingarnar munu taka gildi árið 2024 sem þýðir að keppnin verður með óbreyttu sniði næstu tvö tímabil. Eftir það fá 36 lið þátttökurétt í stað 32 sem til þessa hafa komist í riðlakeppnina. Liðin munu öll spila átta leiki gegn átta mismunandi mót- herjum. Þau átta lið sem fá flest stig komast beint í 16-liða úrslit en liðin sem enda í 9. til 24. sæti spila eina umferð, heima og heiman, um að kom- ast þangað. Svipað fyrirkomulag verð- ur tekið upp í Evrópudeildinni og Sam- bandsdeildinni. _ Þjóðverjar hafa tilkynnt að upphafs- leikur Evrópumóts karla árið 2024 fari fram á Allianz-leikvanginum í Münch- en að kvöldi 14. júní. Þýskaland mun spila þann leik en langt er í að mót- herjarnir liggi fyrir því undankeppni EM fer öll fram á árinu 2023. _ Bandaríska knattspyrnukonan Cyera Hintzen er komin aftur til Vals eftir að hafa leikið með Perth Glory í áströlsku atvinnudeildinni í vetur. Hintzen kom til Vals í júlí á síðasta ári og spilaði síðustu tíu leikina í úrvalsdeild- inni þar sem hún skoraði fjögur mörk, en auk þess skor- aði hún tvö mörk í 3:1-sigri Vals á Zürich í Meist- aradeild Evr- ópu. Hintzen lék níu leiki með Perth Glory í ástr- ölsku deildinni og skoraði í þeim fimm mörk. Eitt ogannað Stephen Curry varð í fyrrinótt fyrstur allra til að skora 500 þriggja stiga körfur í úrslitakeppni NBA. Það gerði hann um leið og hann átti stórleik með Golden State Warriors í sigri á Memphis Grizz- lies, 101:98, í undanúrslitum Vest- urdeildarinnar. Curry skoraði 32 stig í leiknum og átti átta stoðsend- ingar. Golden State komst með sigrinum í 3:1 í einvíginu og þarf því aðeins einn sigur í viðbót. Í Austurdeildinni jafnaði Boston metin við meistarana í Milwaukee, 2:2, með útisigri, 116:108. Curry í 500 og staða liðsins góð AFP 500 Stephen Curry átti stórleik gegn Memphis í fyrrinótt. Sveindís Jane Jónsdóttir, landsliðs- kona í knattspyrnu, skrifaði í gær undir nýjan samning við þýska meistarafélagið Wolfsburg. Samn- ingurinn gildir til ársins 2025 og er um eins árs framlengingu að ræða. Wolfsburg keypti Sveindísi af Keflavík í árslok 2020 og lánaði hana til Kristianstad í Svíþjóð tíma- bilið 2021. Hún kom síðan til Wolfs- burg um síðustu áramót og varð um helgina þýskur meistari með liðinu. Sveindís hefur leikið 14 mótsleiki með Wolfsburg og skorað í þeim þrjú mörk. Framlengdi hjá Wolfsburg AFP/Tobias Schwarz Stekkur Sveindís Jane Jónsdóttir í háloftunum gegn Barcelona. Þórdís Hrönn Sigfúsdóttir, kantmaður úr Val, var besti leikmaðurinn í þriðju umferð Bestu deildar kvenna í fótbolta að mati Morgunblaðsins. Þórdís Hrönn fékk tvö M fyrir frammistöðu sína í sigri Vals gegn Keflavík á Hlíðarenda í fyrrakvöld, 3:0. Tveir aðrir leikmenn fengu tvö M í einkunn í þriðju umferðinni. Það voru Elísa Viðarsdóttir, samherji Þórdísar hjá Val, og Arna Eiríksdóttir, sem reyndar er Valsari líka en er í láni hjá Þór/KA og lék mjög vel í 2:1 sigri Akureyrarliðsins gegn Aftureldingu. Úrvalslið þriðju umferðar er hér fyrir ofan. Samantha Leshnak, mark- vörður Keflvíkinga, er sú eina sem er valin í annað sinn á þessu tímabili. 3. umferð í Bestu deild kvenna 2022 Hversu oft leikmaður hefur verið valinn í lið umferðarinnar 23-4-3 Samantha Leshnak Keflavík Andrea Rut Bjarnadóttir Þróttur Viktorija Zaicikova ÍBV Kristín Þóra Birgisdóttir Afturelding Barbára Sól Gísladóttir Selfoss Birta Georgsdóttir Breiðablik Melina Ayres Breiðablik Elísa Viðarsdóttir Valur Arna Eiríksdóttir Þór/KA Þórdís Hrönn Sigfúsdóttir Valur Haley Thomas ÍBV 2 Þórdís best í þriðju umferð

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.