Morgunblaðið - 11.05.2022, Síða 24
24 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 11. MAÍ 2022
Kristín Heiða Kristinsdóttir
khkmbl.is
„Mér fannst borga sig að hafa með
mér stórskotalið á svona tónleikum,
þá verður árangur betri, æfingar
færri og svo framvegis. Þetta er allt
saman fólk sem ég hef unnið með
áður,“ segir Þórir Baldursson, heið-
urslistamaður Kópavogsbæjar, sem
ætlar að halda stórtónleika í Salnum
í Kópavogi í kvöld, miðvikudags-
kvöld, á afmælisdegi Kópavogs-
bæjar.
Á efnisskrá eru splunkunýjar út-
setningar Þóris á vinsælum söng-
perlum en með honum kemur fram
öflugt lið íslenskra tónlistarmanna,
m.a. Sigurður Flosason, Jóel Páls-
son, Björn Thoroddsen og Einar
Scheving. Auk þess verða sérstakir
gestir þau Sigrún Eðvaldsdóttir,
Una Stefánsdóttir, Kristján Jó-
hannsson og Geir Ólafsson. Tónlist
úr ólíkum áttum mun hljóma á tón-
leikunum; djassstandardar, íslensk
og erlend dægurlög og fleira eftir
Gershwin, Nino Rota, Puccini,
Magnús Blöndal Jóhannsson og
Þóri sjálfan auk annarra höfunda.
Einnig hljóma nýjar útsetningar af
ástsælum eldri lögum.
Í tónlist í sextíu og fjögur ár
Í ljósi þess að Þórir hefur undan-
farin ár snúið sér nokkuð að djassi
og blús er ekki úr vegi að spyrja
hvort djassinn standi hjarta hans æ
nær með árunum.
„Nei, alls ekki. Ég er alæta á tón-
list, ég hrífst ekki síður af klassískri
tónlist en djassi og þótt mér finnist
voða gaman að djassi þá kann ég
líka vel að meta rapp. Þetta kemur
til af því að ég hef starfað við tónlist
í sextíu og fjögur ár og á þeim tíma
hef ég þurft að spreyta mig á alls
konar tónlist, sem er skemmtilegt,“
segir Þórir, sem er frægur fyrir að
fara fimum höndum um Hammond-
orgelið, en hann eignaðist sitt fyrsta
Hammond-orgel 1969, fyrir rúmum
fimmtíu árum.
„Orgelið sem ég spila á í dag
eignaðist ég haustið 1970. Samvistir
okkar Hammonds hafa verið góðar.
Ég hef tekið þetta orgel í sundur og
gert það upp nokkrum sinnum, ekki
alltaf af þörf heldur líka af forvitni,
af því ég er svo forvitinn um hvern-
ig græjur virka. Þetta er frábær
hönnun, enda er Hammond-orgel
enn vinsælasta hljómborð í heimi og
hefur verið alveg frá 1935, þegar
það kom fyrst fram. Í Hammond
eru tónskífur, aðeins stærri en
gamli túkallinn var, og þær snúast.
Ein skífa er fyrir hvern tón og skíf-
urnar eru níutíu talsins. Tónninn er
myndaður á segulmagni og rétt eins
og rafmagnsgítar er með pikköpp,
þá er Hammondorgel líka með pikk-
öpp fyrir hvern einasta tón. Öldur
eru á jaðri hverrar skífu sem líkir
eftir streng sem titrar. Þetta er það
sem gefur þessu hljóðfæri sinn ein-
staka hljóm.“
Á áttunda og níunda áratugnum
bjó Þórir í München og í Bandaríkj-
unum og hann segir að sér þyki
vænst um minninguna frá München
þar sem hann bjó í tæp átta ár.
„Ég vann þar sem sessjónmaður
og útsetjari og það var minn stökk-
pallur til að vinna með öllu því
heimsþekkta tónlistarfólki sem síð-
ar varð,“ segir Þórir, sem starfaði
sem útsetjari og upptökustjóri fyrir
m.a. Donnu Summer, Elton John,
Grace Jones og Giorgio Moroder.
„Donna var alveg indæl kona og
sömuleiðis Grace Jones, en ég hafði
minni afskipti af Elton John, hann
kom bara þegar við vorum búnir að
spila músíkina, til að syngja,“ segir
Þórir, sem flutti aftur heim til Ís-
lands fyrir rétt rúmum þrjátíu árum
og hefur starfað bæði sem tónlistar-
maður og kennari allar götur síðan.
„Þegar ég flutti heim fór ég beint
í það að kenna fyrir tónlistarskóla
FÍH, og kenndi þar í 27 ár. Ég var
byrjaður að spila djass með félögum
mínum í Gömmum, Birni Thorodd-
sen, Stefáni S. og fleirum, en þegar
ég fór að kenna djasspíanó fannst
mér ég þurfa að setjast á skólabekk
sjálfur. Í kringum djassinn er mjög
skemmtileg tónfræði og til að geta
kennt þarf maður að geta notað alla
frasa sem djassmúsíkantar nota,“
segir Þórir sem hefur í kennslunni
miðlað til fjölmargra tónlistar-
manna sem nú eru framarlega á
sínu sviði.
Hann segir hafa verið mjög gef-
andi að færa kunnáttu áfram til
nýrra kynslóða. „Kennslan getur
verið mjög lýjandi starf, en þegar
maður fær afburðanemendur þá er
það alveg æðislega gaman.“
Morgunblaðið/Eggert
Gaman Þórir á æfingu í gær í Salnum í Kópavogi með stórsveit sinni sem er skipuð úrvals tónlistarfólki.
Þórir er alæta á tónlist
- „Donna var alveg indæl kona og sömuleiðis Grace Jones,“ segir Þórir Bald-
ursson, sem hefur komið víða við á tónlistarferli sínum - Stórtónleikar í kvöld
„Í kringum heiminn á átta lögum“
er yfirskrift tónleika í Kefas Frí-
kirkjunni, Fagraþingi 2a, í kvöld,
miðvikudag, kl. 19.30. „Tónleikarn-
ir sýna afrakstur Erasmus+ sam-
starfsverkefnis nemenda Tónlistar-
skóla Kópavogs og tónlistarskólans
í Karlovy Vary í Tékklandi, þar
sem ferðast er um heiminn á vængj-
um tónlistarinnar með sjónaukann
stilltan á menningarauð innflytj-
enda, fjölbreytileika og jákvæð
áhrif innflytjenda á tónlist Íslands
og Tékklands,“ segir í tilkynningu,
en alls taka 20 tónlistarnemendur
og fjórir kennarar frá Karlovy
Vary þátt. „Erasmus+ samstarfs-
verkefni eru mikilvægur þáttur í
starfi Tónlistarskóla Kópavogs.“
Aðgangur er ókeypis.
Gleði Erasmus+-verkefni eru mikilvægur
þáttur í starfi Tónlistarskóla Kópavogs.
Í kringum heiminn
á átta lögum í dag
Gítarleikarinn
Andrés Þór fagn-
ar ásamt Nicho-
las Moreaux
kontrabassaleik-
ara og Magnúsi
Trygvasyni Eli-
assen trommu-
leikara útgáfu
plötunnar Here-
by með tón-
leikum á vegum Jazzklúbbsins Múl-
ans á Björtuloftum í Hörpu í kvöld,
miðvikudag, kl. 20. Platan, sem
kemur út í dag hjá norsku plötu-
útgáfunni Losen Records, inniheld-
ur tónlist sem sérstaklega var sam-
in fyrir tríóið og hljóðrituð síðasta
sumar í Stúdíó Sundlauginni. Miðar
fást í miðasölu Hörpu, harpa.is og
tix.is.
Fagna útgáfu
Hereby á Múlanum
Andrés Þór
Eitt af portrettunum sem Andy
Warhol gerði eftir kynningar-
myndum með Marilyn Morone,
verkið „Shot Sage Blue Marilyn“ frá
1964, var slegið hæstbjóðanda á
uppboði hjá Christie’s í New York á
mánudag fyrir 195 milljónir dala
með gjöldum, tæplega 26 milljarða
króna. Er það hæsta verð sem greitt
hefur verið fyrir myndlistarverk frá
20. öld á uppboði. Kaupandinn er
bandaríski galleristinn Larry Gag-
osian og er ekki vitað hvort hann
hafi fest kaup á verkinu fyrir annan.
Fyrra met fyrir verk frá 20. öld
var 179,3 milljónir dala sem voru
greiddar árið 2015 fyrir málverkið
„Les Femmes d’Alger (útgáfa O)“
eftir Pablo Picasso. Hæsta verð sem
áður hafði verið greitt fyrir verk eft-
ir Warhol var 105,4 milljónir dala
sem greiddar voru árið 2013 fyrir
verkið „Silver car crash (Double dis-
aster) (in 2 parts)“.
Málverkið sem selt var nú, „Shot
Sage Blue Marilyn“, er ekki stórt,
metri sinnum metri að stærð. Það er
eitt af fimm portrettum af Monroe
sem urðu fræg þegar kona að nafni
Dorothy Podher gekk inn á vinnu-
stofu Warhols árið 1964, tók skamm-
byssu úr veski sínu og skaut einu
skoti gegnum stafla af fimm por-
trettum í mismunandi litum sem
Warhol hafði málað af stjörnunni.
Árið 1994 var annað af þessum fimm
verkum, kallað „Rauð Marilyn“, selt
hjá Christie’s fyrir 3,6 milljónir dala.
Blaðamaður The Art Newspaper
segist hafa heimildir fyrir því að enn
eitt þessara verka, „Appelsínugul
Marilyn“, hafi verið selt bandaríska
safnaranum Ken Griffin beint fyrir
fjórum árum fyrir enn hærra verð,
eða 250 milljónir dala, um 33 millj-
arða króna.
„Shot Sage Blue Marilyn“ var
hluti af afar verðmætu safni sviss-
neskra systkina, Thomas og Doris
Ammann, sem nú var selt en verkin
úr safni þeirra seldust samanlagt
fyrir 317,8 milljónir dala, nærri 41
milljarð króna. Einnig voru til að
mynda boðin upp verk eftir Cle-
mente, Ryman, Giacometti, Cy
Twombly og Basquiat. Andvirðið
rennur allt til stofnunar sem styrkir
fátæk börn og ungmenni til
mennta.
Metverð fyrir Warhol
AFP/Angela Weiss
Dýrast Gestur skoðaði verk Andys Warhols, Shot Sage Blue Marilyn, hjá
Christie’s-uppboðshúsinu áður en það var boðið upp á mánudagskvöldið.
- Portrett af
Monroe dýrasta
20. aldar verkið
Mari Palo sópran og Maija Parko
píanóleikari koma fram á tónleik-
unum Vinaheimsókn frá Finnlandi í
röðinni Klassík í Vatnsmýrinni í
Norræna húsinu í kvöld, mið-
vikudagskvöld, kl. 20. Í tilkynningu
frá skipuleggjendum kemur fram
að þær séu „tvær þekktustu tónlist-
arkonur Finnlands“. Á efnisskrá
tónleikanna verða vögguvísur,
þjóðlög og lög sem tengjast nátt-
úrunni frá Finnlandi og Íslandi, eft-
ir Ralf Gothóní, Jón Leifs, Emil
Thoroddsen, Atla Heimi Sveinsson,
Erkki Melartin, Ilkka Kuusisto, Olli
Kortekangas and Jean Sibelius.
„Maija Parko útskrifaðist með
doktorsgráðu í píanóleik frá Sibeli-
usarakademíunni 2016. Hún er vel
þekkt fyrir óvenjulega þverfaglega
nálgun sína í tónleikahaldi. Maija
starfar sem píanókennari í Kirk-
konummi-tónlistarskólanum og við
Sibeliusarakademíuna. Mari Palo
er ein þekktasta sópransöngkona
Finnlands. Hún lauk mastersgráðu
í söng frá Sibeliusarakademíunni
og hefur sungið fjölmörg hlutverk
hjá Finnsku þjóðaróperunni. Hún
hlaut Pro Finlandia-orðuna árið
2019 fyrir listræn afrek sín.“
Vinaheimsókn frá Finnlandi í Vatnsmýri
Listrænar Mari Palo og Maija Parko.
Skáldsagan The
Netanyahus: An
Account of a
Minor and
Ultimately Even
Negligible
Episode in the
History of a Very
Famous Family
eftir Joshua
Cohen hreppti hin eftirsóttu banda-
rísku Pulitzer-verðlaun í sínum
flokki. Önnur skáldverk sem voru
verðlaunuð í ár eru ljóðabókin
frank: sonnets eftir Diane Seuss;
leikritið Fat Ham eftir James Ijam-
es; ævisagan Chasing Me to My
Grave: An Artist’s Memoir of the
Jim Crow South eftir Winfred Rem-
bert og skrásett af Erin I. Kelly og
sögulegu bækurnar Covered with
Night eftir Nicole Eustace og Cuba:
An American History eftir Ödu
Ferrer. Stjórn verðlaunanna veitti
úkraínskum blaðamönnum sérstök
verðlaun fyrir „hugrekki sitt, út-
hald og seiglu í því að fjalla heiðar-
lega um vægðarlausa innrás Pútíns
á land þeirra og áróðursstríð hans í
Rússlandi“, en með vönduðum
störfum sínum „heiðri þeir Úkraínu
og blaðamenn um allan heim“.
Cohen hreppti Pulitzer-verðlaunin