Morgunblaðið - 18.05.2022, Side 1
M I Ð V I K U D A G U R 1 8. M A Í 2 0 2 2
.Stofnað 1913 . 115. tölublað . 110. árgangur .
EKKI HRÆDD-
UR VIÐ SAM-
KEPPNI
NÝBYLGJA Á
CRUEL WORLD
MUN BOSTON
KOMAST ALLA
LEIÐ Í ÚRSLITIN?
HÁTÍÐ Í LA 24 SPENNAN EYKST Í NBA 22VIÐSKIPTI 12 SÍÐUR
Andrés Magnússon
andres@mbl.is
Óformlegar viðræður milli oddvita
borgarstjórnarflokka í Reykjavík
héldu áfram í gær, bæði með funda-
höldum og símtölum. Sem fyrr
hverfist umræðan mikið um Fram-
sókn, hvort hún vilji fremur horfa til
hægri eða vinstri.
Hildur Björnsdóttir, oddviti sjálf-
stæðismanna, átti langan fund með
Einari Þorsteinssyni, oddvita Fram-
sóknar, í gær og segja kunnugir að
hann hafi verið árangursríkur til
þess að glöggva sig á stöðu og mögu-
legum samstarfsflötum. Af fasi Hild-
ar var ljóst að hún var hæstánægð
með fundinn.
Morgunblaðið hefur heimildir fyr-
ir því að hún hafi átt fleiri fundi með
borgarfulltrúum annarra flokka í
gær. Ekki þó fulltrúa Samfylkingar.
Af samtölum við ýmsa borgarfull-
trúa að dæma er staðan enn þá gal-
opin og fátt hægt að útiloka umfram
það sem leiðir af yfirlýsingum Pí-
rata, Sósíalista og Vinstri grænna.
Þannig segir Samfylkingarfólk sam-
starf við Sjálfstæðisflokk langsótt,
en vill þó ekki hafna því fortakslaust.
Af hinum eiginlegu samtölum og
þreifingum oddvitanna er fátt að
frétta, staðan viðkvæm og enginn vill
láta hafa neitt eftir sér. Sumir fót-
gönguliðarnir kvarta jafnvel undan
því að lítið sé að frétta frá forystunni.
Þó er um það talað að fallist sé á
það á öllum stöðum að breytinga sé
þörf í borginni, en víðtæka sátt þurfi
um stærstu málaflokkana. Fram-
sóknarmenn telja að það sé vel
mögulegt, undir sinni stjórn.
Sagt er að innan Samfylkingar séu
ýmsir farnir að ókyrrast, m.a. vegna
þess að þeir telja að samningar við
Framsókn geti reynst erfiðir og dýr-
ir, sé það samstarf eini kosturinn.
Af þeim sökum hefur þrýstingur
aukist á Dag B. Eggertsson borg-
arstjóra um að opna á samtal við
Sjálfstæðisflokkinn, en hann hefur
til þessa ekki viljað taka símann frá
Hildi. »2, 10 og 12
Meirihlutaþreifingar
milli flestra flokka
- Óformlegar viðræður halda áfram - Biðlað til Framsóknar
Borgarstjórn Hildur Björnsdóttir
hefur ekki slegið af eftir kosningar.
Ákvörðun Bankasýslu ríkisins um að
takmarka þátttöku í útboði á 22,5%
hlut ríkisins á Íslandsbanka við hæfa
fjárfesta, án viðbótar skilyrðis um
lágmarkstilboð, fól ekki í sér brot
gegn jafnræðisreglu. Auk þess voru
fullnægjandi ráðstafanir gerðar af
hálfu Bankasýslunnar til að tryggja
jafnt aðgengi hæfra fjárfesta að út-
boðinu í lagalegu tilliti.
Þetta er niðurstaða í lögfræðiáliti
sem Logos lögmannsþjónusta vann
fyrir Bankasýsluna og Viðskipta-
Moggi hefur undir höndum.
Bankasýslan fól Logos að leggja
mat á það hvort jafnræðis hefði verið
gætt við sölumeðferð eignarhlutar-
ins í Íslandsbanka, eftir að gagnrýni
hafði komið fram, meðal annars frá
þingmönnum, um að svo hefði ekki
verið. Sem kunnugt er hefur salan
hlotið mikla gagnrýni í þjóðfélags-
umræðu undanfarið.
Í áliti Logos er farið ítarlega yfir
aðdraganda sölunnar, fyrirkomulag
og kynningu á henni sem og helstu
ákvarðanir í tengslum við útboðið.
Einnig er vísað til þeirra lagareglna
og lögskýringargagna sem helst hafa
þýðingu og jafnframt tekin afstaða
til þeirra álitaefna sem fyrir liggja.
Nánar er fjallað um málið í Við-
skiptaMogganum í dag.
Segja gætt að
jafnræðisreglu
- Logos vann álit fyrir Bankasýsluna
Morgunblaðið/Eggert
Álit Fulltrúar Bankasýslunnar á
fundi fjárlaganefndar í lok apríl.
Þjóðhátíðardagur Noregs, 17. maí, var haldinn
hátíðlegur í gær, en löng hefð er fyrir því hér á
landi að þeir Norðmenn sem búsettir eru hér á
Íslandi komi saman og haldi upp á daginn. Þau
Gunnar Bjarki Hjörleifsson og Malene Mykle-
bust settust niður á Fjallkonunni í gær ásamt
hundinum Baldri eftir hátíðahöldin, og nutu þau
þess að sólin ákvað að skarta sínu prúðasta í til-
efni þjóðhátíðardagsins.
Morgunblaðið/Eggert
Haldið upp á þjóðhátíðardag Norðmanna í sólinni
Endurvinnslufyrirtækið Pure North
hefur samið við tvö sveitarfélög um
tilraunaverkefni til þriggja ára um
flokkun og skil á endurvinnanlegum
úrgangi. Fleiri sveitarfélög hafa
sýnt verkefninu áhuga en það geng-
ur út á að íbúar flokki sjálfir úrgang-
inn, skili á móttökustöð fyrir-
tækisins og fái greitt fyrir. Þar með
myndist viðlíka hvati og gefist hefur
vel við skil á drykkjarumbúðum.
„Hugmyndin er að fyrstu fimm
móttökustöðvarnar verði reistar í
september og við erum þegar byrjuð
að huga að næstu fimm stöðvum,“
segir Sigurður Halldórsson, for-
stjóri fyrirtækisins.
„Kerfið í dag er þannig að það
kostar þig lítið að vera sóði. Með
þessu móti fær fólk umbun fyrir að
flokka eftir kúnstarinnar reglum.
Þeir sem ekki gera það þurfa að
borga meira,“ segir forstjórinn. »4
Móttökustöð Pure North stefnir að
því að reisa stöðvar um allt land.
Borga
fólki fyrir
að flokka
- Tilraunaverkefni í
endurvinnslu kynnt