Morgunblaðið - 18.05.2022, Qupperneq 8

Morgunblaðið - 18.05.2022, Qupperneq 8
8 FRÉTTIR Innlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 18. MAÍ 2022 295 Vinnuvettlingar PU-Flex Öflugar Volcan malarskóflur á frábæru verði frá 365 Glærir ruslapoka Ruslapokar 120L Ruslapokar 140L Sterkir 10/50stk 1.995 Strákústar mikið úrval Öflug stungu- skófla Garðverkfæri í miklu úrvali Hakar, hrífur, járnkarlar, kínverjar, sköfur, skröpur, fíflajárn, fötur, balar, vatnstengi, úðarar, stauraborar......... Léttar og góðar hjólbörur með 100 kg burðargetu 999Barna- garðverk- færi frá 395 Ruslatínur frá 295 Úðabrúsar í mörgum stærðum frá 995 Smáratorgi 1, 201 Kóp., s. 588 6090, vl@verkfaeralagerinn.is Verkfæralagerinn Mán.-fös. kl. 9-18, lau. kl. 10-17, sun. kl. 12-16 Garðslöngur í miklu úrvali Hrífur Greinaklippur frá 585 Burstar framan á borvél 3 stk. Mikið úrval af garðstömpum Fötur í miklu úrvali frá1.495 Laufhrífur Björn Bjarnason ræðir meiri- hlutamyndun í borginni á vef sínum og segir einu leiðina „til að skipt verði um forystu í Reykjavík- urborg er að þar verði myndaður D+B+F+C meirihluti, það er sjálf- stæðismanna, framsóknarmanna og fulltrúa Við- reisnar og Flokks fólksins. Meiri- hlutastjórn af þessu tagi er einnig í sam- ræmi við vilja flestra kjósenda í borginni: Sjálfstæð- isflokkurinn er stærstur og þar með sigurvegarinn, Framsóknarflokk- urinn vann mest á í kosningunum, Við- reisn er í grunninn hægrisinnaður flokkur og sömu sögu er að segja um Flokk fólksins. - - - Það er ekki unnt að rökstyðja að meirihlutaaðild Samfylkingar að kosningunum loknum sé í sam- ræmi við vilja kjósenda eða slíkur meirihluti sé til marks um þátta- skil. - - - Samfylking og Píratar taka höndum saman og Sósíalistar eiga samleið með þeim í andstöðu við Sjálfstæðisflokkinn. Útilokunar- menningin (slaufunarmenningin) er hluti stjórnmálastefnu þessara flokka, angi alþjóðlegrar sveiflu meðal vinstrisinna.“ - - - Augljóst er að borgarbúar vildu ekki óbreyttan eða lítt breytt- an meirihluta í borginni, enda kol- féll hann. En það lýsir vel viðhorfi þeirra sem voru í fallna meirihlut- anum að oddviti Pírata skuli nú telja sig eiga erindi í borgar- stjórastólinn og láti sér detta í hug að Framsókn hyggist leiða hana þangað í endurreistum meirihluta. Jafnvel útilokunarmenningin getur ekki þvingað fram slíka niðurstöðu. Dóra Björt Guðjónsdóttir Ómenningin STAKSTEINAR Einar Þorsteinsson Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://mbl.is/mogginn/leidarar/ Í fornleifarannsókn, sem gerð var vegna kirkjubyggingar í Grímsey, kom í ljós líklegur kirkjugarðsvegg- ur suðvestarlega í kirkjustæðinu. Kirkjugarðsveggurinn bar þess merki að hafa verið viðhaldið um aldaskeið og er að líkindum í grunn- inn frá miðöldum eða fyrr. Samkvæmt upplýsingum frá Örnu Björgu Bjarnadóttur, verkefnis- stjóra kirkjubyggingarinnar í Grímsey, sást einnig innan kirkju- garðs móta fyrir talsverðum fjölda af gröfum. Í kjölfar þessa fundar var ákveðið að hnika kirkjubyggunni ei- lítið til þannig að ný kirkja stæði utan þessa gamla kirkjugarðs og komast þannig hjá raski á honum. Í stæði kirkjunnar fannst einnig mikill öskuhaugur. Yngstu lög hans eru líklega frá 18.-19. öld en einnig fannst talsvert af eldri öskuhaugi sem gæti verið frá miðöldum og er vonast til að greining á beinum og gripum úr haugnum geti veitt upp- lýsingar um sögu eyjarinnar en þetta er í fyrsta sinn sem fornleifa- uppgröftur fer fram í Grímsey. Minjastofnun Íslands fór fram á að fornleifarannsókn yrði gerð áður en framkvæmdir við kirkjuna hæf- ust. Fornleifafræðingar frá Forn- leifastofnun Íslands hafa því verið við rannsóknir í eyjunni í rúma viku. Miðaldaminjar fundust í Grímsey - Nýrri kirkju hefur verið hnikað til svo gömlum kirkjugarði verði ekki raskað Ljósmynd/Hildur Gestsdóttir Grímsey Fornleifafræðingar rannska kirkjustæðið í Grímsey. Halldór Jónsson, verkfræðingur og fyrrverandi forstjóri Steypustöðvarinnar, lést á Landspítala – háskólasjúkrahúsi í gærmorgun, 84 ára að aldri. Halldór fæddist í Reykjavík 3. nóv- ember 1937, sonur hjónanna Jóns Ólafs Ágústssonar Bjarna- son raforkuverkfræð- ings og Elísabetar Halldórsdóttur fót- snyrtifræðings. Halldór lauk stúdentsprófi frá Menntaskólanum í Reykjavík 1957 og verkfræðiprófi frá TH í Stutt- gart í Þýskalandi 1962. Hann fékk atvinnuflugmannsréttindi og blind- flugsréttindi 1978 og sprengi- réttindi 1990. Halldór starfaði sem verkfræð- ingur hjá Almannavörnum 1962- 1963, hjá Verkfræðistofu Bárðar Daníelssonar 1963 og hjá Al- mannavörnum og námsbraut á vegum þeirra í Bandaríkjunum 1963-1964. Hann var tæknilegur framkvæmdastjóri Steypustöðv- arinnar hf. í Reykjavík frá 1964 og forstjóri og í stjórn fyrirtækisins frá 1967 til 2002. Þá var hann framkvæmdastjóri Raftækja- sölunnar hf. með öðrum frá 1967. Þá stofnaði hann ásamt öðrum Steypustöð Suðurlands hf., Surtsey hf., Aðal- braut hf., Námuna hf. og útibú frá Steypustöðinni í Grindavík. Eftir starfslok hjá Steypu- stöðinni starfaði hann sem sjálf- stæður verktaki, m.a. fyrir Kópa- vogsbæ. Halldór var lengi fulltrúi í ráðgjafarnefnd Rann- sóknarstofnunar byggingariðn- aðarins og sat í stjórn hennar. Hann var fulltrúi í Steinsteypu- nefnd, í stjórn Verslunarráðs Ís- lands og stjórn Verktakasam- bands og VFÍ. Halldór var for- maður fulltrúaráðs Sjálfstæðis- félaganna í Kópavogi frá 1986 til 2003 og í flokksráði Sjálfstæðis- flokksins. Hann gaf um tíma út blaðið Sám fóstra og skrifaði reglulega greinar og pistla í blöð og á blog.is. Eftirlifandi eiginkona Halldórs er Steinunn Helga Sigurðardóttir. Börn þeirra eru Þorsteinn, Jón Ólafur, Pétur Hákon og Karen Elísabet. Andlát Halldór Jónsson

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.