Morgunblaðið - 18.05.2022, Qupperneq 11

Morgunblaðið - 18.05.2022, Qupperneq 11
FRÉTTIR 11Erlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 18. MAÍ 2022 Álfheimum 74, 104 Rvk, sími 568 5170 Verið velkomin Túnikur • Vesti • Kjólar Peysur • Bolir • Jakkar Blússur • Buxur • Pils SUMAR- VÖRUR Vinsælu velúrgallarnir Nýjir litir - Stærðir S-4XL Einnig stakar velúrbuxur í svörtu, gráu og dökkbláu Kristján H. Johannessen khj@mbl.is Alls eru yfir 100 þúsund manns á lista yfir horfna einstaklinga í Mexíkó. Mannréttindasamtök þar í landi kalla eftir tafarlausum aðgerð- um stjórnvalda til að bregðast við stöðunni en glæpahópar eru sagðir bera ábyrgð á ástandinu. Frétta- veita AFP greinir frá. Haldið hefur verið utan um tölur yfir horfna einstaklinga í Mexíkó frá árinu 1964. Eru þeir nú alls 100.012 og eru flestir þeirra karlmenn, eða 75 prósent. Undanfarin 16 ár hefur mikil stígandi verið í tilkynningum um horfið fólk og helst það í hendur við aukna fíkniefnaneyslu í landinu. Ólýsanlegur harmleikur Sameinuðu þjóðirnar hafa varað við þessari þróun og sagt ljóst að glæpahópar beri ábyrgð á örlögum þessa fólks. Segir AFP yfirvöld í Mexíkó hafa takmarkaða getu og áhuga til að rannsaka mannshvörfin. Ættingjar hinna horfnu hafa því ósjaldan myndað leitarhópa. Slíkir hópar hafa meðal annars fundið jarðneskar leifar fólks sem myrt hefur verið á afskekktum stöðum. Í mörgum tilfellum hefur reynst ómögulegt að bera kennsl á viðkom- andi. Þá eru yfirvöld í Mexíkó með um 37 þúsund lík í sínum geymslum sem enginn veit deili á. Mannrétt- indasamtök segja þessa tölu þó að líkindum enn hærri. Er ástandinu í Mexíkó, að sögn Sameinuðu þjóðanna, best lýst sem „mannlegum harmleik af gríðarlegri stærðargráðu“. AFP Sorg Móðir sýnir mynd af 15 ára gömlum syni sínum sem er horfinn. Yfir 100 þúsund á lista yfir horfna - Reyna að greina yfir 37.000 lík Einræðisherra Norður-Kóreu, Kim Jong-un, hefur svo gott sem skellt ríki sínu í lás til að reyna að sporna við útbreiðslu kórónuveiru, en fréttaveita AFP greinir frá því að veikin fari nú sem eldur í sinu yfir landið. Hafa Sameinuðu þjóðirnar nú lýst yfir þungum áhyggjum vegna stöðunnar. Ljóst má vera að innviðir ríkisins eru á engan hátt færir um að ráða við hraða útbreiðslu kórónuveiru, bólusetningar séu nær óþekktar og mikill skortur á nauðsynlegum tækjabúnaði og aðstöðu. Á einni viku hafa borist tilkynningar um mikla „hitaveiki“ hjá 1,5 milljónum manns og eru 56 sagðir látnir. Gera má ráð fyrir því að raunverulegar tölur séu talsvert hærri. Meðfylgjandi er áróðursljósmynd af einræðisherranum í apóteki. Öllu skellt í lás vegna „hitaveiki“ AFP Kristján H. Johannessen khj@mbl.is Hvíta-Rússland hefur sent herlið upp að landamærum Úkraínu í norðri. Er það gert í kjölfar nýlegrar heræfingar þar í landi, en að sögn varnarmálaráðuneytis Bretlands er meðal annars um að ræða loftvarna- sveitir, stórskotalið og eldflauga- kerfi af ýmsum gerðum. Viðvera þessara sveita veldur því að Úkra- ínumenn eiga erfitt með að slaka á vörnum landsins í norðurhlutanum til að styrkja hersveitir sínar annars staðar, s.s. í héraðinu Donbass. Í upphafi innrásarstríðs Rúss- landsforseta var talið að hersveitir Hvíta-Rússlands hefðu einnig farið yfir landamærin Rússum til stuðn- ings. Fljótlega kom þó í ljós að svo var ekki. Rússneskum hersveitum var hins vegar leyft að stunda eld- flaugaárásir frá Hvíta-Rússlandi. Var meðal annars gríðaröflugum Iskander-flaugum skotið þaðan þeg- ar rússneskur landher sótti í átt að Kænugarði og Chernihiv. Eins fékk flugher Rússlands að ráðast á skot- mörk frá Hvíta-Rússlandi. Segir varnarmálaráðuneytið þeim leyft að stunda árásir frá Hvíta- Rússlandi í þeirri von að Moskvu- valdið telji það nægan stuðning. For- seti Hvíta-Rússlands vilji síður þurfa að veita Moskvuvaldinu beina hern- aðaraðstoð, enda myndi slíkt kalla á hörð viðbrögð Vesturlanda. Yfirgnæfandi stuðningur Finnska þingið samþykkti í gær aðildarumsókn að Atlantshafsbanda- laginu (NATO). Af þeim 200 sem eiga sæti á þingi samþykktu 188 að- ildarumsóknina. Svíþjóð hefur sömu- leiðis ákveðið að sækja um aðild. Búist er við því að fulltrúar Finn- lands og Svíþjóðar haldi í dag til höfuðstöðva NATO í Brussel til að undirrita formlega umsókn um aðild. Forsætisráðherra Svíþjóðar, Magdalena Andersson, segist gleðj- ast yfir því að ríkin tvö sæki sameig- inlega um aðild að varnarbandalag- inu. „Það gleður mig að við fetum nú sömu slóð og saman mun okkur tak- ast þetta,“ hefur AFP eftir henni. Á morgun, fimmtudag, munu for- seti Finnlands, Sauli Niinistö, og Andersson forsætisráðherra funda með Joe Biden Bandaríkjaforseta í Hvíta húsinu vegna komandi NATO- aðildar. Þar verður meðal annars til umræðu umsóknarferlið og staða öryggismála í Evrópu, að því er segir í tilkynningu frá Hvíta húsinu. Utanríkisráðherra Rússlands, Sergei Lavrov, segir aðild Finnlands og Svíþjóðar engu skipta. Ríkin hafi árum saman æft með herjum NATO sem gert hafa ráð fyrir aðgengi að landsvæðum þeirra í átökum. Truflandi viðvera við landamærin - Hersveitir Hvíta-Rússlands koma í veg fyrir liðstyrk í Donbass - Svíþjóð og Finnland ætla í NATO AFP Félagar Forsetarnir Vladimír Pútín og Alexander Lukasjenkó sjást hér ásamt yfirmanni rússnesku geimferðastofnunarinnar Roscosmos. Rússar hafa nú slakað á öryggis- kröfum í framleiðslu ökutækja þar í landi. Er þannig t.a.m. ekki lengur gerð krafa um loftpúða í bílum. Ástæðan er sögð efnahagsþving- anir Vesturlanda vegna innrásar Moskvuvaldsins í Úkraínu, en þær hafa leitt til mikils skorts á ýmsum tækjabúnaði og bílaíhlutum. Hinn 12. maí sl. ákvað Moskvu- valdið að slaka á öryggiskröfum. Er því nú heimilt að framleiða öku- tæki án loftpúða, ABS-bremsu- kerfis og ELR-öryggisbelta. Að sama skapi er slakað á þeim kröf- um sem snúa að útblæstri öku- tækja. Eru þær nú á pari við þær reglur sem giltu árið 1988. RÚSSLAND Rússabílar komnir aftur til ársins 1988

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.