Morgunblaðið - 18.05.2022, Page 20
20 DÆGRADVÖL
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 18. MAÍ 2022
60 ÁRA Albert Þór ólst upp í
Reykjavík en býr í Kópavogi. Hann er
viðskiptafræðingur (cand. oecon.) að
mennt frá Háskóla Íslands og er með
meistaragráðu í fjármálum fyrir-
tækja. Albert Þór starfar við fjármál
og fjárfestingar.
MAKI Elín Þórðardóttir, f. 1963,
rekstrarhagfræðingur og fjármála-
stjóri Árvakurs.
BÖRN Sara Margrét, f. 1986, Aron
Þórður, f. 1996, og Agla María, f. 1999.
FORELDRAR Jón Líndal Bóasson, f.
1942. d. 2019, vélstjóri og járnsmiður,
og Sigrún Karlsdóttir, f. 1943, fv.
fulltrúi og húsmóðir. Búsett í Reykja-
vík.
Albert Þór Jónsson
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl ,
Hrútur Hreinsaðu hugann og reyndu að
komast eitthvað í burtu. Taktu upp hansk-
ann fyrir vin sem stendur höllum fæti og
mundu að aðgát skal höfð í nærveru sál-
ar.
20. apríl - 20. maí +
Naut Viss atburður mun hafa djúp áhrif á
þig og gera þér ókleift um skeið að sjá
hlutina í réttu ljósi. Gefðu umhverfi þínu
meiri gaum.
21. maí - 20. júní 6
Tvíburar Bjartsýni þín og framtakssemi
eru smitandi og því vilja allir vera í návist
þinni í dag. Búðu í haginn fyrir næsta
haust.
21. júní - 22. júlí 4
Krabbi Óklárað verkefni dregur ósjálfrátt
úr þér allan kraft. Ekki setja þig á háan
hest.
23. júlí - 22. ágúst Z
Ljón Þú ert frekar viðkvæm/ur núna.
Reyndu að blanda meira geði við fólk, það
hjálpar. Segðu hlutina hreint út.
23. ágúst - 22. sept. l
Meyja Eitthvað veldur þér áhyggjum í dag
og óróleiki gerir vart við sig. Þú hefur
samt ekkert að óttast. Morgundagurinn
verður frábær.
23. sept. - 22. okt. k
Vog Láttu þér ekki bregða þótt aðrir
kunni ekki að meta frumleika þinn og nýj-
ungagirni. Fylgdu leiðbeiningum, þú þarft
ekki að finna upp hjólið aftur.
23. okt. - 21. nóv. j
Sporðdreki Leggðu gamla hluti til hliðar
og haltu á vit framtíðarinnar. Hrósaðu þér
fyrir dugnaðinn sem í þér býr.
22. nóv. - 21. des. h
Bogmaður Þér finnst eitthvað að þér
þrengt í vinnunni. Ef þú finnur fyrir minni-
máttarkennd ýttu henni þá frá þér. Stilltu
væntingum í hóf.
22. des. - 19. janúar @
Steingeit Af hverju ættir þú að flýta þér
þegar þú veist ekki hvert þú ert að fara?
Hægðu á þér, slappaðu af eða hreinlega
stoppaðu.
20. jan. - 18. febr. ?
Vatnsberi Það er ekki við aðra að sakast
þótt þú sjáir ekki út úr augum vegna
vinnuálags. Veltu því fyrir þér hvar þú vilt
vera eftir fimm ár.
19. feb. - 20. mars =
Fiskar Þú þarft á allri þinni þolinmæði að
halda í samskiptum við einstakling í dag.
Hóf er best í öllu. Einhver heillar þig í
kvöld.
áhuga á félagsmálum og var meðal
annars í 12 ár gjaldkeri Skipstjóra-
og stýrimannafélagsins Öldunnar í
Reykjavík. Hann kom að stofnun
Félags skipstjórnarmanna árið
2004, en það félag var stofnað í kjöl-
far sameiningar margra stýri-
2017 sem sérfræðingur í sjótrygg-
ingum. Eftir að hann hætti hjá VÍS
hóf hann störf hjá Félagi skip-
stjórnarmanna og hefur starfað þar
sem framkvæmdastjóri síðan í
janúar 2019.
Árni hefur alltaf haft mikinn
Á
rni Sverrisson fæddist
18. maí 1962 á Siglu-
firði og ólst þar upp.
„Það var ævintýri lík-
ast, leiksvæðin voru
bryggjurnar, fjörurnar, yfirgefnir
bátar og braggar sem áður voru
heimili síldarverkafólks, þar var
ýmislegt brallað. Á sumrin var með-
al annars veitt á stöng í sjónum eða
í Hólsánni. Á veturna var ég mikið
á skíðum öll bernsku- og unglings-
árin og tók þátt í flestum skíða-
mótum.“
Á Siglufirði snerist lífið um
sjávarútveg og vaknaði snemma
áhugi Árna á öllu sem sneri að sjó
og fiski, hann byrjaði að gella 13
ára, fór að vinna í saltfiski hjá Páli
Gíslasyni 14 ára, vann á vöktum í
SR loðnubræðslunni 15 ára og byrj-
aði þá einnig til sjós, fyrsta túrinn á
Degi SI. Árni byrjaði að fara afleys-
ingatúra á togaranum Sigluvík
sumarið sem hann var 16 ára.
Árið 1984 lauk Árni stúdentsprófi
frá Fjölbrautaskólanum á Sauðár-
króki, eftir það lá leiðin til Reykja-
víkur í Tækniskóla Íslands. Árni út-
skrifaðist sem útgerðartæknir 1985,
en þaðan lá leiðin í viðskiptafræði í
HÍ. Hann hóf nám í Stýrimanna-
skólanum á hraðferð þegar hann
var á þriðja ári í viðskiptafræðinni
og ákvað að hætta því og ná sér í
skipstjórnarréttindi. Öll námsárin
var Árni meira og minna til sjós á
hinum ýmsu skipum og bátum, t.d.
togurunum Sigluvík SI, Sigurey SI,
Ými HF, Viðey RE, Hjörleifi RE,
Elliða AK, Keflvíking KE og fleiri
skipum.
Árni hefur alltaf haft mikinn
áhuga á öllu er lýtur að sjávar-
útvegi, hann var mörg ár stýrimað-
ur og skipstjóri á hafrannsókna-
skipum, síðast frá 2000 til 2004 á
rannsóknaskipinu Árna Friðriks-
syni RE. „Árin hjá Hafrannsókna-
stofnun voru ákaflega áhugaverð og
lærdómsrík, að kynnast öllu því vís-
indafólki sem þar vann var ómet-
anlegt.“ Árni ákvað að hætta til sjós
árið 2004, þegar honum bauðst
framkvæmdastjórastaða hjá Scan-
mar á Íslandi, þar var hann í fjögur
ár til 2008 er hann réð sig til VÍS,
þar sem hann starfaði frá 2008 til
manna- og skipstjórafélaga um land
allt. Félag skipstjórnarmanna fer
nú með samningsrétt fyrir alla skip-
stjórnarmenn á Íslandi. Árni hefur
setið í fjölmörgum ráðum, nefndum
og stjórnum fyrir sjómenn, er með-
al annars í stjórn sjómannadags-
ráðs, er þar varaformaður fyrir
tímabilið 2022-2024. Árni gekk í
Oddfellow-stúkuna Baldur nr. 20
IOOF, í febrúar árið 2009. „Það var
mikið gæfuspor, þar hef ég kynnst
mörgum góðum mönnum og eigin-
konum þeirra.“
Í gegnum tíðina hafa áhugamálin
breyst hjá Árna, veiðin átti hug
hans allan í mörg ár, bæði stang-
veiði og skotveiði, auk þess átti
hann um árabil strandveiðibát með
föður sínum. Einnig átti hann mót-
orhjól, ferðahjól sem hann komst á
um fjöll og firnindi eftir slóðum og
vegum.
Þegar Árni var 50 ára fékk hann
golfsett í afmælisgjöf frá konu sinni.
„Nú má segja að helstu áhugamálin
séu fjölskyldan, golfið, Oddfellow-
starfið og vinnan. Já, ég lít á vinn-
una sem áhugamál, því ég hef alltaf
Árni Sverrisson framkvæmdastjóri – 60 ára
Fjölskyldan Gunna Bogga, börn, tengdabörn og barnabörn á jólum 2021. Árni er bak við myndavélina.
Fékk snemma áhuga á sjómennsku
Hjónin Árni og Gunna Bogga á
Hamarsvelli í Borgarfirði.
Afmælisbarnið Árni er í Odd-
fellow-stúkunni Baldri nr. 20 IOOF.
Til hamingju með daginn
Akureyri Arnór Dan Einarsson fædd-
ist 31. október 2021 kl. 19.18 á Sjúkra-
húsinu á Akureyri. Hann vó 4.626 g og
var 53 cm langur. Foreldrar hans eru
Einar Sigurðsson og Alexía María
Gestsdóttir.
Nýr borgari