Morgunblaðið - 18.05.2022, Qupperneq 21
DÆGRADVÖL 21
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 18. MAÍ 2022
Malbikstöðin ehf • 516 0500 • tilbod@malbikstodin.is • malbikstodin.is
„MIKIÐ RÉTT – ÉG ÆTTI AÐ SLEPPA
ÞÉR. ÉG ER ÖNNUM KAFINN.“ „HALLDÓR, ÉG HRINGI ÚR BÍLNUM.“
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... að sakna hennar.
Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann
HVERNIG HEFURÐU
ÞAÐ Í DAG, GRETTIR?
UH…
HVERNIG GET ÉG SVARAÐ
ÞESSU ÁN ÞESS AÐ LENDA Í
LÆKNISSKOÐUN?
Á ÉG AÐ SEGJA ÞÉR
BRANDARA? KAUPTU
ÞÉR STANDARA!
ÉG KANN
EKKI AÐ META
HÓTFYNDNI!
haft gaman af vinnunni. Ég skipti
bara um vinnu ef hún hættir að
vera skemmtileg og krefjandi. Ég
er að rembast við að bæta mig í
golfinu, er í Nesklúbbnum á Sel-
tjarnarnesi, við hjónin höfum mikið
gaman af því að vera saman í golfi
með því góða fólki sem í klúbbnum
er. Nú veiði ég bara í góðra vina
hópi, einn til tvo túra á ári á stöng
og skýt rjúpu í jólamatinn, sú veiði
nægir mér. Svo hef ég gaman af því
að glamra á píanóið heima hjá mér.“
Fjölskylda
Eiginkona Árna er Guðrún Björg
Magnúsdóttir, f. 23.5. 1957, skrif-
stofustjóri hjá JS Gunnarssyni ehf.
Þau gengu í hjónaband 25.4. 1996,
bjuggu lengst af við Hjarðarhaga í
Reykjavík, en síðustu ár í Stóra-
gerði. Foreldrar Guðrúnar voru
hjónin Magnús Árnason, f. 3.7.
1919, d. 31.12. 1999, bakari, og Sig-
ríður Guðmundsdóttir, f. 5.5. 1917,
d. 28.12. 2005, húsmóðir.
Börn Árna og Guðrúnar eru 1)
Karin Kristjana Hindborg, f. 19.1.
1982, snyrtifræðingur og eigandi
Nola.is, gift Friðrik Runólfssyni
kerfisfræðingi, synir þeirra eru
Styrmir, f. 8.3. 2011, Sölvi, f. 4.10.
2012, og Úlfur Skuggi, f. 19.7. 2018;
2) Kristinn, f. 19.7. 1990, tæknimað-
ur hjá Vodafone, í sambúð með
Oddnýju Sigmundsdóttur
verslunarkonu, sonur þeirra er
Máni Snær, f. 9.12. 2020.
Systkini Árna eru Björn, f. 26.2.
1954, rafmagnstæknifræðingur, bú-
settur í Stykkishólmi; Ingibjörg, f.
21.11. 1957, ritari hjá Orkuveitu
Reykjavíkur; Júlía Linda, f. 12.10.
1963, hárskeri og kennari, búsett í
Vogum við Hofsós; Sveinn, f. 22.3.
1969, sjúkraþjálfari á Sauðárkróki.
Foreldrar Árna eru hjónin Sverr-
ir Sveinsson, f. 5.7. 1933, fyrrver-
andi veitustjóri og Auður Björns-
dóttir, f. 16.2. 1936, fyrrverandi
stuðningsfulltrúi. Þau eru búsett á
Siglufirði.
Árni
Sverrisson
Jónína Anna Jósafatsdóttir
húsfreyja í Gröf
Sigfús Hansson
bóndi í Gröf á Höfðaströnd,
Skagafirði
Ingibjörg Sigfúsdóttir
húsfreyja og saumakona á Siglufirði
Sveinn Jónsson
bifreiðarstjóri í Reykjavík
Sverrir Sveinsson
fv. veitustjóri á Siglufirði
Sigurbjörg Sveinsdóttir
húsfreyja á Torfastöðum
Jón Egilsson
bóndi á Torfastöðum í Fljótshlíð
Margrét Friðriksdóttir
húsfreyja á Dalvík,
Ólafsfirði og Siglufirði
Halldór Jónsson
bóndi og hákarlaformaður á
Dalvík, Ólafsfirði og Siglufirði
Júlía Jónína Halldórsdóttir
húsmóðir og verkakona á Siglufirði
Björn Þórðarson
skipstjóri á Siglufirði
Þórunn Ólafsdóttir
húsfreyja á Siglufirði
Þórður Guðni Jóhannesson
trésmiður á Sauðárkróki
Ætt Árna Sverrissonar
Auður Björnsdóttir
fv. stuðningsfulltrúi á Siglufirði
Magnús Halldórsson rifjar upp
gömul sannindi um pólitíkina:
Hún er slóttug, hún er þver,
hljóð úr barka digur.
Þegar fylgi þrotið er,
það er varnarsigur.
Magnús Geir Guðmundsson yrkir:
Í kosningum kappið og fumið,
með kraftmestu skjálftum var numið.
Þar hálf þjóðin keypti
og hrátt í sig gleypti
Helvítis Framsóknarskrumið!
Ægir Breiðfjörð Jóhannsson
skrifar: „Þessi varð til í síðustu
viku, en þar sem ég er gamall Vest-
mannaeyingur þá þorði ég ekki, af
öryggisástæðum, að setja hana inn
fyrr en núna.“
Á frétta lygum fæ ég leið
fari menn að kjósa.
Oft var þörf en núna neyð
nú má fara að gjósa.
Ingólfur Ómar Ármannsson er í
sólskinsskapi:
Veröld ljómar drungi dvín
daga rómum langa.
Söngvar óma, sólin skín
sumarblómin anga.
Davíð Hjálmar Haraldsson yrkir:
Léttir til og loft er blátt.
Ljómar sólin.
Nú er meira grænt en grátt
gras um hólinn.
Ísa leysir. Ástin vex.
Út um víkur
fuglar stunda fjörugt sex.
Fiðrið rýkur.
Þó að finni fóturinn
forna sporið
eins og nýtt í sérhvert sinn
samt er vorið.
Það er fallegt á vorin í Mývatns-
sveit. Friðrik Steingrímsson skrif-
aði á sunnudag: „Við hjónin sátum
úti á palli áðan í góða veðrinu og ég
tók nokkur lög á nikkuna“:
Ég nikku tók með nokkrum stæl
og nótur sló ég fínar,
og frúin hlýddi fjarska sæl
á feilnóturnar mínar.
Vigfús M. Vigfússon skrifar við
fallega mynd af ginflösku úti í gró-
andinni: „Limran er form fyrir því-
líkar tilraunir“:
Sem andrými í augnabliks tónhiki
og alsýn í leiftrandi sjónbliki;
á gulaldinsgrein
vex ginflaska ein
þar sem trén eru vökvuð með tóniki.
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Um vorið, gróandina
og pólitíkina