Morgunblaðið - 18.05.2022, Side 23

Morgunblaðið - 18.05.2022, Side 23
ég kæmi aftur, eða hvort ég yrði sami leikmaður. Myndi ég spila fót- bolta aftur? Nú er ég hinsvegar komin aftur og búin að sýna þeim að þetta er vel hægt.“ Fann á ákveðnu augnabliki að ég var komin aftur Ertu sami leikmaður, ertu orðin 100 prósent sátt við formið? „Hvað æfingar varðar er ég það, en hinsvegar hef ég ekki síðustu vik- ur fengið þær mínútur í leikjum sem ég hefði viljað fá. En á æfingunum finn ég það algjörlega. Til að byrja með fann ég klikk hér og þar, en á ákveðnu augnabliki fann ég að ég væri ég sjálf á ný. Vissulega tapaði ég aðeins sjálfri mér á meðan ég var ólétt. Ég var bú- in að vera í atvinnumennsku í tólf ár og allt í einu var ég ekki að spila fót- bolta. Ég var ekki með liðinu, var ekki í klefanum og missti aðeins tök- in á sjálfri mér. Ég var heima á Ís- landi þó ég búi ekki þar og hugsaði stundum hvað ég væri að gera. En auðvitað var ég ófrísk og þurfti bara að finna mig aftur, finna rétta takt- inn á ný. Fyrstu vikuna sem ég æfði með liðinu í janúar var ég ekkert eðlilega hæg. Andlega var ég tilbúin, ég vissi nákvæmlega hvað ég vildi gera við boltann og hvað ég ætti að gera við boltann, en líkaminn fylgdi ekki al- veg með. Það var ótrúlega skrýtið. Um það bil tveimur vikum seinna man ég að ég hringdi í Árna eftir æf- ingu og sagði: Nú er þetta komið, nú er líkaminn farinn að fylgja með.“ Grindin og bakið í lagi Fyrsti leikur Söru eftir fæð- inguna var gegn Dijon í frönsku deildinni 18. mars, rétt rúmum fór- um mánuðum eftir fæðingu Ragnars Franks. „Ég var sett inn á í hálfleik gegn Dijon og hjá mér var stórt spurning- armerki hvernig ég myndi bregðast við. Ég vissi með sjálfri mér hvernig ég ætlaði að gera þetta og þegar til kom leið mér ótrúlega vel á vell- inum, bæði andlega og líkamlega. Eftir þessa upplifun sé ég ekkert standa í vegi fyrir því að konur í fremstu röð eignist börn og komi til baka.“ Hún kvaðst vera sátt við hvernig sér hefði gengið eftir að hún sneri aftur á völlinn. „Já, ég get ekki sagt annað. Ég hafði áhyggjur af því að fá einhvers konar bakslög og þau komu vissu- lega. Ég tognaði til dæmis í kálfa en hef aldrei áður þurft að glíma við tognanir á ferlinum. En það var ekki vegna óléttunnar sjálfrar, heldur vegna langrar fjarveru. Rétt eins og þegar um meiðsli er að ræða. Ég fann ekkert til í grindinni eða bakinu sem ég hafði óttast mest, sem var ákveðinn sigur á þessum tímapunkti þar sem ég var komin aftur óvenju snemma.“ Breytt staða fyrir þriðja úrslitaleik Meistaradeildar Eins og fram kom í Morgun- blaðinu í gær fer Sara frá Lyon eftir tímabilið en gæti áður orðið bæði Evrópumeistari og franskur meist- ari með liðinu. Lyon mætir Barce- lona í úrslitaleik Meistaradeild- arinnar á laugardaginn og spilar síðan tvo síðustu leikina í deildinni undir lok maí þar sem því nægir stig til að verða meistari. „Það leggst að sjálfsögðu vel í mig að vera á leið í minn þriðja úrslita- leik í Meistaradeildinni, sem er draumur allra. Við mætum Barce- lona sem er eitt besta lið heims og vann keppnina í fyrra. Allir vilja taka þátt í þessum leik. Nú er mín staða breytt og ég veit ekki hvort ég kem til með að spila. Ég er ekki með eins fasta stöðu í liðinu og áður, en er eftir sem áður mjög meðvituð um að vera hluti af þessum hóp sem fer í úrslitaleikinn, þó ég muni ekki spila í 90 mínútur að þessu sinni. Ef ég fæ einhverjar mínútur í úrslitaleiknum mun ég gera allt sem í mínu valdi stendur til að vinna þennan titil á ný,“ sagði Sara Björk Gunn- arsdóttir. lið með firnasterkan varnarleik, þannig að ekki má búast við að leikir liðanna muni einkennast af mikilli stigaskorun. Jayson Tatum hefur verið frábær hjá Boston það sem af er úr- slitakeppninni. Hann lék betur en bæði Kevin Durant og Giannis Ante- tokounmpo í tveimur fyrstu umferð- unum, sem skóp sigur Boston í þeim leikseríum. Honum tókst það, þrátt fyrir að vera hundeltur af bestu varn- arleikmönnum deildarinnar, svo sem Durant og Bruce Brown hjá Brook- lyn Nets og Antetokounmpo og Jrue Holiday hjá Milwaukee. Boston-liðið fór í gang um miðja deildarkeppnina eftir erfiða byrjun. Síðan þá hefur Celtics verið besta lið- ið í NBA og aðalsmerki liðsins hefur verið hversu jafnir leikmennirnir í því eru. Litlu skiptir hver er meiddur hverju sinni, ávallt kemur maður í manns stað. Hjá Miami hefur Jimmy Butler leikið firnavel það sem af er. Sterkur varnarleikur Heat gerði stór- stjörnum Atlanta Hawks og Phila- delphia 76ers lífið erfitt í tveimur fyrstu umferðunum. Tatum og Butler verða lykilleik- menn í þessari leikseríu en erfitt er að veðja gegn Boston hér. Slíkur hef- ur árangur liðsins verið undanfarna fjóra mánuði. Þessi leiksería fer eflaust í sex eða sjö leiki. Erfitt verður að stöðva Doncic Veðbankar hér vestra telja Golden State Warriors nú sigurstranglegri í úrslitarimmu Vesturdeildarinnar gegn Dallas Mavericks, eftir að Dall- as kom öllum á óvart í stórsigrinum gegn Phoenix á sunnudag. Slóveninn Luka Doncic hefur, það sem af er, verið besti leikmaðurinn í úrslitakeppninni og það er ávallt erf- itt að veðja gegn liði í úrslitakeppn- inni sem virðist vera með óstöðvandi leikmann. Doncic þurfti aðeins smá aðstoð í stigaskoruninni gegn Phoe- nix og þegar hann fékk hana eftir töp- in í fyrstu tveimur leikjunum gegn Phoenix, gat lið Suns lítið gert til að stöðva ruðning Mavericks. Þjálfarar Golden State munu ef- laust reyna að nota tvo varnarmenn gegn Doncic eins mikið og þeir geta - nákvæmlega það sem þjálfarar Phoe- nix reyndu - til að neyða aðra leik- menn Dallas að taka skotin í sókninni. Doncic tókst þó á endanum að leysa þann vanda gegn Phoenix. Í sókninni mun Golden State einnig reyna að hagnýta sér veikleika Doncic í vörn, en hæð hans mun gera það erfitt. Golden State hefur þó Draymond Green á sínum snærum. Hann hefur sýnt það í gegnum árin að hann óttast engan andstæðing og Doncic ekki heldur. Fyrir utan þetta þarf Dallas einnig að eiga við þá Stephen Curry og Klay Thompson, þannig að hlut- irnir gerast ekkert auðveldari fyrir Dallas. Almennt hefur Golden State betri leikmannahóp og liðið hefur næga reynslu af því að vinna leikseríur seint í úrslitakeppninni undanfarin ár. Því er erfitt að veðja gegn Golden State hér en Warriors verða að eiga svar við Doncic ef þeir ætla sér sigur. ÍÞRÓTTIR 23 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 18. MAÍ 2022 _ Knattspyrnumaðurinn Emil Páls- son fór í hjartastopp í annað sinn er hann æfði með FH í síðustu viku. Emil fór fyrst í hjartastopp í leik með Sogndal í Noregi í nóvember á síðasta ári. „Ég er mjög svekktur því ég hélt að þetta myndi ekki gerast aftur. Í fyrra skiptið var ég glaður að vera á lífi en núna er ég sorgmæddur. Ég var á góðum stað og tilbúinn að byrja í fótbolta aftur,“ sagði Emil við TV2 í Noregi. Hann viðurkenndi að vera að íhuga að leggja skóna á hilluna. „Þeg- ar þetta gerist tvisvar er erfitt að halda áfram. Það er hins vegar stutt síðan þetta gerðist og ég get því lítið sagt um það núna,“ sagði hann. _ Handknattleiksmaðurinn Hergeir Grímsson hefur samið við Stjörnuna. Kemur hann til félagsins frá Selfossi þar sem hann hefur leikið allan fer- ilinn. Hergeir, sem er 25 ára gamall, hefur verið lykilmaður hjá Selfyss- ingum undanfarin ár og skoraði hann 70 mörk í 22 leikjum í Olísdeildinni á leiktíðinni. Þá hefur hann verið valinn íþróttakarl Árborgar tvö ár í röð. Her- geir átti sinn þátt í að Selfoss varð Ís- landsmeistari árið 2019 undir stjórn Patreks Jóhannessonar, sem þjálfar nú Stjörnuna. _ Magnús Öder Einarsson, leik- maður karlaliðs Fram í handknattleik, gekkst í fyrradag undir aðra aðgerð á öxl á innan við einu ári. Handbolti.is greindi frá í gær. Magnús fór einnig í aðgerð á öxl síðastliðið haust og eftir að hann fór úr axlarlið í leik með Fram fyrir tæplega tveimur mánuðum síðan varð það ljóst að hann þyrfti að fara undir hnífinn að nýju. Í samtali við Handbolta.is kvaðst Magnús reikna með því að það muni taka hann fjóra til sex mánuði að jafna sig að fullu eftir aðgerðina. _ Argentínski knattspyrnumaðurinn Ángel Di María mun ganga í raðir Ju- ventus frá París SG í sumar á frjálsri sölu. Goal.com greindi frá því í gær að Di María hafi samþykkt eins árs samning við ítalska félagið. Di María kom til Parísarfélagsins fyrir sjö árum og hefur unnið til fjölmargra titla með liðinu á þeim tíma. Hann er hins vegar samningslaus eftir leiktíðina og hefur ákveðið að róa á önnur mið. Di María hefur skorað 55 mörk í 196 deild- arleikjum með PSG og leikur vænt- anlega sinn síðasta leik fyrir liðið í lokaumferð frönsku 1. deildarinnar um næstu helgi. _ Íslenska kvennalandsliðið í íshokkí hóf í gær keppni í B-riðli 2. deildar heimsmeistaramótsins í Zagreb í Kró- atíu með 10:1-stórsigri á Suður-Afríku. Silvía Björgvinsdóttir skoraði þrennu fyrir Ísland og Hilma Bergsdóttir skoraði tvö mörk. Einnig komust Sigrún Árna- dóttir, Bryn- hildur Hjalte- sted, Sunna Björgvins- dóttir, Katrín Björns- dóttir og Gunnborg Jóhannsdóttir á blað hjá íslenska liðinu. Ísland á næst leik gegn Tyrklandi í B- riðlinum. Fer hann fram á morgun. Eitt ogannað Jason Daði Svanþórsson, kant- maður úr Breiðabliki, var besti leikmaðurinn í sjöttu umferð Bestu deildar karla í fótbolta að mati Morgunblaðsins og hann hefur þar með fengið þá útnefn- ingu í tveimur umferðum í röð. Jason fékk tvö M í fyrrakvöld þegar Breiðablik lék Íslands- og bikarmeistara Víkings grátt og var eini leikmaðurinn sem fékk þá einkunn í 6. umferðinni. Jason er ennfremur í liði umferðarinnar hjá Morgunblaðinu í annað skipt- ið í röð og þeir Rodrigo Gómez úr KA og Damir Muminovic úr Breiðabliki eru einnig valdir í annað sinn. 6 . umferð í Bestu deild karla 2022 Hversu oft leikmaður hefur verið valinn í lið umferðarinnar 23-4-3 Haraldur Björnsson Stjarnan Theódór Elmar Bjarnason KR Jason Daði Svanþórsson Breiðablik Oliver Sigurjónsson Breiðablik Davíð Snær Jóhannsson FH Daníel Hafsteinsson KA Fred Saraiva Fram Rodrigo Gómez KA Damir Muminovic Breiðablik Vuk Oskar Dimitrijevic FH Daníel Laxdal Stjarnan 2 2 2 Jason bestur í sjöttu umferð Víðir Sigurðsson í Lyon vs@mbl.is „Ég stefni að því að verða móðir, ekki strax samt, en Sara er mér mikil fyrirmynd. Það er ótrúlegt að við séum á leið í úrslitaleik í Meist- aradeildinni og hún sé að berjast um sæti í lið- inu, aðeins nokkrum mánuðum eftir að hún eignaðist Ragnar. Vonandi tekst mér að fara í gegnum það, þegar þar að kemur, eins vel og Sara hefur gert,“ sagði Catarina Macário, landsliðskona Bandaríkjanna og leikmaður franska stórliðsins Lyon, við Morgunblaðið eft- ir kynningu á heimildarmyndinni „Do Both“ sem Puma birti í gær og fjallar um Söru Björk Gunnarsdóttur, æfingar hennar meðan hún var ófrísk og endurkomu hennar á knatt- spyrnuvöllinn á hæsta stigi íþróttarinnar. Sara er að sumu leyti betri en áður „Sara er ótrúleg, ég hef sjaldan kynnst manneskju sem leggur jafn hart að sér og er eins og fram kemur í myndinni fyrsti leik- maður Lyon sem eignast barn og snýr aftur á völlinn. Hún er um leið frábær samherji sem hefur gríðarleg áhrif á alla í kringum sig. Sara er leiðtogi og gengur á undan með góðu for- dæmi á öllum sviðum,“ sagði Macário, sem skoraði tvö mörk fyrir Bandaríkin í sigrinum á Íslandi í She Believes-bikarnum í Texas í febr- úarmánuði og hefur skorað 21 mark fyrir Lyon í vetur, átta þeirra í Meistaradeildinni. Spurð hvort Sara hefði sýnt á undanförnum vikum að hún væri orðin jafngóð og hún var fyrir barnsburðinn svaraði Macário hiklaust: „Já, svo sannarlega og ég tel að hún sé meira að segja að sumu leyti enn betri fótboltakona en hún var áður en hún eignaðist barnið. Ég held að hún sé enn meðvitaðri um líkamann og einbeittari en áður, og hún er með allt á hreinu hvernig hún eigi að sameina það að vera leik- maður í þessum gæðaflokki og móðir Ragnars. Það er magnað að fylgjast með því.“ Macário viðurkenndi að það hefði verið óvænt og skrýtið að frétta af því í apríl á síð- asta ári að Sara væri ófrísk og myndi ekki spila með liðinu næsta árið eða svo. Hæ, ég er ófrísk „Þetta var skrýtið. Í þessu starfsumhverfi heyrirðu sjaldan einhvern segja: „Hæ, ég er ófrísk.“ Þetta var ákveðið áfall fyrir okkur á þeirri stundu, en um leið voru þetta yndislegar fréttir. Sumar okkar nánast grétu því við vor- um svo hamingjusamar fyrir hennar hönd. Nú væri nýr stuðningsmaður á leiðinni, lítil og sæt viðbót við hópinn okkar. En um leið höfðum við auðvitað áhyggjur. Hvernig ætlaði hún að leysa þetta? En hún og Árni eiga einstakt sam- band, hann er frábær persónuleiki og um- hyggjusamur faðir og unnusti og við sáum að ef einhverjir gætu þetta þá væru það þau tvö.“ Macário kvaðst afar undrandi á því að Sara hefði verið byrjuð að spila á ný strax um miðj- an mars. „Já, ég var steinhissa og við vorum það allar. Konur eru ólíkar og erfitt að bera þær saman, en að hún skuli vera þegar byrjuð að spila á þessu getustigi og sé að berjast um sæti í liði sem er á leið í úrslitaleik Meistaradeildarinar er algjörlega ótrúlegt,“ sagði Catarina Mac- ário. Sara er mér mikil fyrirmynd Morgunblaðið/Víðir Sigurðsson Öflug Catarina Macário hefur skorað 21 mark fyrir Lyon á keppnistímabilinu. - Hefur gríðarleg áhrif á alla í kringum sig

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.