Morgunblaðið - 20.05.2022, Page 6
6 FRÉTTIR
Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 20. MAÍ 2022
Ómar Friðriksson
omfr@mbl.is
Ferðasumarið fer vel af stað í hóp-
ferðaflutningum og þéttbókað er í
ferðir yfir sumarmánuðina. For-
svarsmenn rútufyrirtækja eru prýði-
lega bjartsýnir á komandi mánuði.
Þórir Garðarsson, stjórnar-
formaður Gray Line, segist sjá mikla
aukningu í hópferðum. „Að ein-
hverju leyti skýrist það af því að það
er vöntun á bílaleigubílum og verðið
hjá þeim hefur farið upp. Þar af leið-
andi batnar samkeppnisstaða hóp-
ferðabílanna,“ segir hann.
Þórir segir útlitið í bókunum fyrir
sumarið ágætt og nokkuð vel bókað á
tímabilinu júní og alveg fram í sept-
ember. „Svipað heyri ég hjá flestum
mínum kollegum. Þetta fer hraðar af
stað en kannski bjartsýnustu menn
þorðu að vona eftir covid,“ segir
hann.
Þórir segir lykilatriði þessara um-
skipta að íslensk ferðaþjónustu-
fyrirtæki voru mjög dugleg á tíma
faraldursins að rækta sambandið við
viðskiptavini sína og tryggja að þeir
yrðu tilbúnir að koma til baka þegar
færi gæfist eins og nú sé að koma á
daginn.
Flestir ferðamennirnir koma frá
Bandaríkjunum og Evrópulöndum
en enn ber miklu minna á ferða-
mönnum frá Kína og öðrum Asíu-
löndum. Gengið hefur þokkalega að
ráða starfsfólk fyrir sumarið að sögn
hans.
Spurður hvort búast megi við
álíka miklum önnum og á árunum
fyrir faraldurinn segir Þórir erfitt að
segja fyrir um það, en ef eingöngu sé
litið á hásumarið, sérstaklega júlí og
ágúst, megi reikna með að fjöldinn
verði svipaður og var sumarið 2019.
„Allt á réttri leið“
„Það eru öll teikn á lofti um að
þetta verði líflegra en það hefur ver-
ið. Þetta er allt á réttri leið,“ segir
Hallgrímur Lárusson, forstjóri
ferðaþjónustufyrirtækisins Snæ-
land-Grímsson, sem er með stóran
flota hópferðabíla. Hallgrímur segir
bókunarstöðuna líta vel út og einnig
sé áhugavert að núna í maí og fram í
júní sé mikil hreyfing á Íslendingum,
sem lærðu betur að meta ferðalög
um eigið land á tímum faraldursins
og hafa áttað sig á því hvað ferða-
þjónustan um allt land hefur byggst
mikið upp og hefur upp á margt að
bjóða, auk þess sem nú virðist skóla-
krakkar loksins komast í allar sínar
vorferðir, ólíkt því sem var á tímum
covid.
Auk þjónustu hópferðabíla er
Snæland-Grímsson einnig ferða-
skrifstofa sem sérhæfir sig í að flytja
inn erlenda ferðamenn og segir Hall-
grímur útlitið gott í sumar og þétt-
bókað í júní, júlí og ágúst. Ekki sé þó
von á fjölda ferðamanna frá Kína í
sumar en aðeins hafi borið á ferða-
fólki frá Indlandi.
Líflegt ferðasumar fram undan
- Þétt bókað hjá rútufyrirtækjum í sumar - „Fer hraðar af stað en kannski bjartsýnustu menn þorðu
að vona,“ segir stjórnarformaður Gray Line - Flestir frá Bandaríkjunum og Evrópu
Morgunblaðið/Ómar
Ferðamenn við Strokk Reiknað er með að um 1,4 milljónir erlendra ferðamanna komi til Íslands á árinu.
„Það er ekkert launungarmál að
útlitið í dag er bara fínt þótt það
voki yfir okkur öllum ákveðnar
áhyggjur af gangi mála, sér-
staklega vegna stríðsins, en
bókunarstaðan er alveg ásætt-
anleg,“ segir Hlynur Elfar Þrast-
arson, framkvæmdastjóri Kúkú
Campers-ferðabílaleigunnar.
Hann telur ástæðu til bjartsýni
á komandi mánuði. Hlynur segir
að mest beri á bókunum Banda-
ríkjamanna og ferðamanna frá
Evrópulöndum. Minna sé um að
Íslendingar leigi bíla hjá Kúkú
Campers, „enda held ég að Ís-
lendingarnir hafi mikinn áhuga
á að fara utan núna eftir að hafa
verið mjög duglegir við að
ferðast innanlands undanfarin
ár. Við finnum alveg fyrir því að
það er minni ásókn af hálfu Ís-
lendinga.“ Fyrirtækið hefur til
umráða um það bil 400 ökutæki
eða campers-bíla og er megin-
starfsemin frá því í apríl og
fram í október eða nóvember.
Ástæða til
bjartsýni
KÚKÚ CAMPERS
Hagdeild Húsnæðis- og mannvirkja-
stofnunar (HMS) áætlar að byggja
þurfi 3.500-4.000 íbúðir árlega á
næstu fimm til tíu árum til að mæta
uppsafnaðri þörf og spá um fólks-
fjölgun í landinu.
Aftur á móti sé gert ráð fyrir að
aðeins tæplega 2.800 nýjar íbúðir
komi á markaðinn á þessu ári og rétt
rúmlega 3.000 íbúðir á því næsta.
Því sé ljóst að ekki sé verið að
byggja í takt við þörf og því líklegt
að uppsöfnuð íbúðaþörf muni aukast
sem geti leitt til áframhaldandi
óstöðugleika á húsnæðismarkaði.
Þetta er á meðal þess sem fram
kemur í nýrri skýrslu starfshóps
sem var skipaður af forsætisráð-
herra í febrúar og falið að fjalla um
hvernig auka mætti framboð á hús-
næði til að mæta uppsafnaðri og
fyrirsjáanlegri íbúðaþörf ólíkra hópa
til skemmri og lengri tíma, auk ann-
arra aðgerða til að bæta stöðu á hús-
næðismarkaðnum.
Starfshópurinn hefur skilað
skýrslunni og 28 tillögum um að-
gerðir til að taka á þessum vanda.
Segir í niðurstöðum skýrslunnar að
til þess að örva framboð á íbúðum
þurfi meðal annars að efla lang-
tímaáætlanagerð í húsnæðismálum,
samþætta skipulags- og bygging-
arferla, endurskoða tengda löggjöf,
tryggja uppbyggingu samgöngu-
innviða samhliða fjölgun íbúða, auka
húsnæðisöryggi leigjenda og lækka
byrði húsnæðiskostnaðar hjá efna-
minni leigjendum.
Starfshópurinn leggur m.a. til að
ríki og sveitarfélög geri með sér
samkomulag um heildstæða hús-
næðisáætlun fyrir landið allt, sem
væri skuldbindandi fyrir báða aðila
næstu fimm árin og stefnumarkandi
til næstu 10-15 ára. Þetta verði út-
fært í sérstökum rammasamningum
milli ríkis og sveitarfélaganna sem
taki mið af greindri þörf fyrir upp-
byggingu íbúða og að á fyrstu fimm
árum samningsins verði byggðar
4.000 íbúðir á ári að jafnaði og þar af
verði 35% eða um 1.400 íbúðir
byggðar með opinberum stuðningi
þannig að þær verði á viðráðanlegu
verði.
Hægt er að lesa skýrsluna á vef
stjórnarráðsins, stjornarrad.is.
Formenn Anna Guðmunda Ingvarsdóttir aðstoðarforstjóri HMS og Gísli
Gíslason fv. hafnarstjóri voru formenn starfshóps um húsnæðismál.
Byggja þarf 3.500 til
4.000 íbúðir árlega
- Starfshópur skilar 28 tillögum til úrbóta
Karlmaður á sextugsaldri var í gær
dæmdur í Héraðsdómi Reykjaness í
sex ára fangelsi fyrir kynferðisbrot
gegn fimm stúlkum á grunnskóla-
aldri. Maðurinn var sakfelldur fyrir
hluta þeirra brota sem hann var
ákærður fyrir, en hann er grunaður
um fleiri kynferðisbrot sem enn eru
til rannsóknar.
Þá var maðurinn einnig úrskurð-
aður í áframhaldandi gæslu-
varðhald í mánuð til viðbótar, sem
er sá frestur sem hann hefur til
áfrýjunar, en hann hefur setið í
gæsluvarðhaldi frá því í nóvember.
Maðurinn var ákærður fyrir
fjölda grófra kynferðisbrota gegn
stúlkunum, meðal annars nauðgun.
Voru sumar stúlkurnar sagðar hafa
sent manninum kynferðislegt mynd-
efni og hann þeim. Þá var hann
sagður hafa sent einni stúlkunni
kynlífshjálpartæki, undirföt, raf-
rettur, áfengi og fleira gegn því að
hún sendi honum myndefni í gegn-
um samskiptaforritið Snapchat.
Sex ára fangelsi fyrir kynferðisbrot gegn börnum
Morgunblaðið/Ómar
Héraðsdómur Reykjaness Maðurinn
hlaut sex ára fangelsi fyrir framferði sitt.