Morgunblaðið - 20.05.2022, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 20.05.2022, Blaðsíða 11
FRÉTTIR 11Innlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 20. MAÍ 2022 Bláu húsin v/Faxafen • Sími 553 7355 Sumar 2022 Glæsileg sundföt frá Vefverslun selena.is Kristján Jónsson kris@mbl.is Willum Þór Þórsson heilbrigðs- ráðherra tók í gær fyrstu skóflu- stungu að nýju bílastæða- og tækni- húsi (BT-húsi) ásamt Pétri Guðmundssyni stjórnarformanni Eyktar og Run- ólfi Pálssyni for- stjóra Landspít- ala. Þá tóku fulltrúar starfs- manna, þær Rannveig Rún- arsdóttir frá LSH og Þórana Elín Dietz frá HÍ, einnig skóflustungu að húsinu samkvæmt fréttatilkynningu frá Nýja Land- spítalanum. Hið nýja bílastæða- og tæknihús verður um 19.000 fermetrar að stærð með um 500 bílastæði. Auk þess verða um 200 hjólastæði í hús- inu en einnig 200 bílastæði í bíla- kjallara við meðferðarkjarnann fyr- ir sjúklinga og aðstandendur. „Það er ánægjulegt að enn bæt- ast við byggingar sem eru á fram- kvæmdastigi hér í þessari mikil- vægu uppbyggingu við nýjan Landspítala. Vel hefur tekist til hér við framkvæmdir á svæðinu og bíla- stæða- og tæknihúsið er áfangi á þessari vegferð, að nýjar byggingar hér á svæðinu myndi eina heild,“ segir Willum Þór. Átta hæða bygging Bílastæða- og tæknihúsið verður um 19.000 fermetrar að stærð og er í raun átta hæðir, fimm hæðir ofan- jarðar og þrjár hæðir neðanjarðar. Bílastæða- og tæknihús (BT-húsið) mun rúma stæði fyrir 510 bíla. Í húsinu verður hjólageymsla fyrir 200 reiðhjól. Hönnunarhluti verk- efnisins hófst í september á síðasta ári og til stendur að afhenda húsið til notkunar í september 2024. Áætlaður kostnaður á þriggja ára hönnunar- og framkvæmdatíma er 3,7 milljarðar króna. Gert er ráð fyrir að bíla- og hjólastæði svæðisins verði nægj- anleg til framtíðar miðað við fram- tíðarspár. Einnig er verið að byggja bíla- kjallara undir Sóleyjartorgi, sam- bærilegan bílakjallara Hörpu, sem er á tveimur hæðum. Þar verða 200 bílastæði, ætluð sjúklingum og gestum. Þar verður gott aðgengi beint inn í spítalann samkvæmt því sem fram kemur í tilkynningunni. Úr bíla- stæða- og tæknihúsinu verður einn- ig hægt að ganga á milli húsa eftir göngum. Rafmagn tryggt á spítalanum Tæknihluti hússins verður mikil- vægur. Þar verður tæknirými fyrir varaaflsvélar Landspítalans þannig að tryggt sé að rafmagn verði fyrir hendi á öllu svæðinu ef truflanir verða á afhendingu rafmagns og það sama gildir um búnað fyrir varakyndingu ef skortur verður á heitu vatni. Einnig verður þar kæli- kerfi spítalans, loftinntök og öll loft- ræsing innan spítalans, sama hvaða hús það eru, sem skiptir verulegu máli í starfseminni. Verktakafyrirtækið Eykt annast framkvæmdina. „Eftir alútboð var samið við Eykt um bæði hönnun og verkframkvæmd og markar því dagurinn eitt af mörgum mikil- vægum skrefum í hraðri uppbygg- ingu hér við Hringbraut,“ segir Gunnar Svavarsson, fram- kvæmdastjóri Nýs Landspítala. Morgunblaðið/Árni Sæberg Skóflustunga Rannveig Rúnarsdóttir, Willum Þór Þórsson, Pétur Guðmundsson og Þórana Elín Dietz í gær. Mannvirkið Teikning af bílastæða- og tæknihúsi Nýja Landspítalans. Fyrstu skóflustungur teknar - 19 þúsund fermetra bílastæða- og tæknihús - Kostnaðurinn við verkið áætlaður 3,7 milljarðar - Bílastæði fyrir 510 bifreiðar - Önnur tvö hundruð fyrir sjúklinga og gesti undir Sóleyjartorgi Gunnar Svavarsson

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.