Morgunblaðið - 20.05.2022, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 20.05.2022, Blaðsíða 22
22 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 20. MAÍ 2022 Smáauglýsingar Sumarhús Sumarhús – Gestahús – Breytingar .Framleiðum stórglæsileg sumarhús í ýmsum stærðum. .Tökum að okkur stækkun og breytingar á eldri húsum. .Smíðum gestahús – margar útfærslur. .Sjáum um almennt viðhald á sumarhúsum og sólpöllum. .Setjum niður heita potta og smíðum palla og skjólveggi. Áratugareynsla – endilega kynnið ykkur málið. Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn, sími 892-3742 og 483-3693, www.tresmidjan.is Bílar Club Car Tempo 2020 Bíll í toppstandi og nýinnfluttur. Nýir 8V rafgeymar og allur yfirfarinn. Kr. 1.480.000 Hægt að fá myndir sendar í tölvupósti. Sími 8971928 / hb@a7.is Raðauglýsingar Félagsstarf eldri borgara Árskógar 4 Smíðastofa með leiðb. kl. 9-16. Leikfimi með Milan kl. 10. Hádegismatur kl. 11.30-12.30. Kaffisala kl. 14:45-15.30. Heitt á könnunni. Allir velkomnir. Sími: 411-2600. Boðinn Pílukast kl. 9:00. Sundlaugin er opin frá kl. 13:30-16:00. Félagsmiðstöðin Hæðargarði 31 Kaffisopi og spjall kl. 8:30-11:00. Thai Chi kl. 9:00-10:00. Handverks- og sölusýning kl. 10:00-15:30. Hádegismatur kl. 11:30-12:30. Bjarni Hall spilar og syngur kl. 13:15. Upplestrarhópur Soffíu kl. 14:00. Samsöngur með Sönghóp Hæðargarðs kl. 15:00. Síðdegiskaffi kl. 14:30-15:30. Garðabær 9.00 Pool-hópur í Jónshúsi. 10.00 Gönguhópur frá Jónshúsi. 13.00-15.00 Félagsvist í Jónshúsi. 13.00-16.00 Smiðjan opin, allir velkomnir Gerðuberg Búkollulaut opnar að venju kl. 08:30. Inni- og útifjör með Höllu Karen kl. 09:30. Við förum í ferðalag á Selfoss, að skoða nýja miðbæinn, fara í mathöllina og njóta lífsins í botn kl. 11:30. Bútasaumurinn verður á sínum stað frá kl. 13:00. Gerðuberg Opin vinnustofa í Búkollulaut frá kl. 8:30, heitt á könnunni. Leikfimihópur frá kl. 10:00 Hið vinsæla prjónakaffi frá kl. 10-12:00. Kóræfing kl.13:00. Allir velkomnir. Hraunsel Billjard kl. 8-16. Línudans kl.10:00. Bridge kl. 13:00. Hvassaleiti 56-58 Morgunkaffi og spjall frá 8:30-10:30. Handavinna - opin vinnustofa frá kl. 10:00. Bridge kl. 13:00. Hádegismatur kl. 11:30 – 12:30, panta þarf fyrir hádegi deginum áður. Korpúlfar Borgum Pílukast í Borgum kl. 9:30. Gönguhópar frá Borgum og inni í Egilshöll.Tveir styrkleikaflokkar svo að allir finna göngu við sitt hæfi kl. 10:00. Bridge kl. 12:30. Hannyrðahópur kl. 12:30. Fríða Rún Þórðardóttir næringarfræðingur heldur fyrirlestur um holla næringu og farsæla öldrun kl. 13:00. Góða helgi. Gleðin býr í Borgum. Samfélagshúsið Vitatorgi Heitt á könnunni - Föstudagshópur í handverksstofu kl. 10:30-11:30 - Vinnustofa - Lokaður hópur kl. 12:30- 14:00. Opin handavinnustofa kl. 14:30-16:00 BINGÓ er svo á sínum stað inni í matsal kl. 13:30-14:30 og síðan er vöfflukaffið strax að loknu BINGÓI kl.14:30-15:30. Allar nánari upplýsingar í síma 411-9450. Allir hjartanlega velkomnir til okkar :) Seltjarnarnes Skólabraut: Kaffikrókur frá kl. 9.00. Sumarsalsa í salnum kl. 11.00. Söngur og samvera kl. 13.00. Kaffi á eftir. Öll dagskrá í salnum niður í næstu viku, þ.e. jóga/leikfimi, handavinna og botsía vegna uppsetningar handverkssýningarinnar sem verður dagana 26.-28. maí, en þar sýnum við afrakstur vetrarins í öllu handverki og frá þeim námskeiðum sem verið hafa í gangi í vetur. alltaf - allstaðar mbl.is ✝ Helgi Sigurðs- son fæddist 22. maí 1937. Hann lést 6. maí 2022 á hjúkrunar- heimilinu Seltjörn. Foreldrar hans voru Sigurður Jón Jónsson skipstjóri, f. 12. febrúar 1899, og Margrét Ottadóttir, f. 3. september 1901. Bróðir Helga er Jón Otti tæknifræðingur, f. 26. nóvember 1934. Helgi kvæntist konu sinni Erlu Þórisdóttur, f. 22 apríl 1941, hinn 25. mars 1961. Börn þeirra eru: 1) Þórir Helgi, maki Jóhanna Margrét Guðjónsdóttir. 2) Sigurður Grétar, maki Ólöf Marin Úlf- arsdóttir. 3) Héðinn Þór, maki Elín Fanney Hjaltalín. 4) Unn- ur, maki Sveinn Bjarki Tóm- asson. Barnabörnin eru 12 og fimm langafabörn. Að lokinni hefðbundinni skólagöngu og landsprófi gekk Helgi í Samvinnuskólann og í framhaldi hélt hann til Englands og stundaði nám við Fircroft College í Birmingham og Cooperative Insurance So- ciety í Manchester. Helgi hóf störf hjá Samvinnutryggingum ungur að árum eða 1951, fyrst kvæði var ávallt að þeir fiska sem róa og gerum betur næst. Einnig sat hann í stjórn Körfuknattleiksráðs Reykja- víkur og í stjórn Körfuknatt- leikssambands Íslands 1966- 69. Helgi gekk til liðs við Flug- björgunarsveitina ungur að árum og sat þar í stjórn um tíma, en hann hafði óbilandi áhuga á flugvélum og allt sem að þeim sneri. Bjó hann á Þorragötu síðustu ár ævi sinn- ar þar sem hann gat fylgst með flugtökum og lendingum endalaust. Á síðustu árum sín- um hitti hann gamla Flug- björgunarfélaga í Lávarða- deildinni á laugardögum þar sem rifjaðar voru upp sögur frá gamla tímanum. Helgi var virkur félagi í Lionsklúbbinum Nirði en árið 1986 gekk hann til liðs við Oddfellowregluna. Eftir að Helgi lét af störfum sinnti hann fjölskyldu og áhugamálum sínum sem voru fjölmörg, s.s. laxveiði, garð- yrkja, listmálun og golf. Fóru þau Erla víða, bæði hérlendis og erlendis, í golfferðir með góðum vinum og fjölskyldu. Í listmálun sinni málaði hann árum saman myndir sem tengdust náttúrunni og útivist. Fuglalífið kringum golfvöllinn var mjög oft nærtækt við- fangsefni í myndum hans. Jarðarförin hefur farið fram í kyrrþey. sem sendill en eft- ir nám í Samvinnu- skólanum og í Englandi byrjaði hann sem fulltrúi í brunadeild Sam- vinnutrygginga í nokkur ár en síðar sem forstöðumað- ur skrifstofuumsjón- ar. Árið 1974 færði hann sig yf- ir í Líftryggingarfélagið And- vöku sem aðstoðarfram- kvæmdastjóri. Hann og kona hans Erla stofnuðu innflutn- ingsfyrirtækið Helgi Sigurðs- son árið 1965 sem síðar varð heildverslunin Engey. Til að byrja með var megináherslan lögð á kvenfatnað en síðar bættist við barnafatnaður og barnavörur. Helgi var einn stofnenda körfuknattleiksdeildar KR 1956 og var þar kosinn í stjórn og síðar formaður frá 1959 til 1964. Á þessum KR- árum var hann einnig þjálfari. Hans áhersla var á að byggja upp gott starf yngri flokka bæði karla og kvenna til fram- tíðar og óhætt er að segja að sá grunnur hafi skilað góðum árangri. Það gekk brösuglega til að byrja með en hans við- Það eru stór kaflaskil í mínu lífi nú þegar ég kveð besta pabba í heimi. Það er margt sem kemur til sem gerir hann að besta pabba sem ég gat nokkurn tímann eignast. Hann gaf mér tíma þegar ég þurfti, hann hvatti mig áfram og stóð þétt við hliðina á mér í þeim verkefnum sem ég stóð í. Pabbi var óspar á hrós, ást og umhyggju og sýndi mér traust þegar ég þurfti á að halda. Fjölskyldan var alltaf númer eitt og honum var umhugað um að öllum liði vel og var fljótur að bjóða fram krafta sína ef á þurfti að halda. Hann pabbi var ríkur því hann átti mömmu og okkur fjögur systkinin, sjaldan var hann í eins miklu stuði og þegar við vorum öll saman á góðri stund. Ég er svo þakklát fyrir margt í fari pabba. Pabbi var mikill húmoristi og gleðigjafi, hann málaði svo fallegar myndir og var mikill sögumað- ur. Þeir fiska sem róa átti hann til að segja, en alla tíð var honum umhugað um að fólk setti sér markmið, hvort sem það tengdist andlegum eða veraldlegum gæðum og að það væri nauðsynlegt að eiga sér drauma. „I have a dream …“ Þessa fleygu setningu var pabba tamt að grípa í, það er allt hægt … við þurfum bara að trúa. Og ég trúi því að nú sért þú, pabbi minn, á góðum stað þar sem þér líður vel og sköpunarkraftur þinn og manngæska fá að blómstra enn á ný. Ég trúi því að ég hafi átt besta pabba í heimi. Minning þín er falleg og góð og mun lifa með mér. Takk elsku besti pabbi. Þín dóttir, Unnur. Þakklæti er mér efst í huga nú þegar elskulegur tengda- faðir minn Helgi Sigurðsson er látinn. Í þau 33 ár sem við höf- um átt samleið hefur hann alltaf staðið með mér. Þegar við Þórir giftum okkur tók hann utan um mig, horfði djúpt í augun mín og sagði: „Við stöndum alltaf saman.“ Hann meinti það sem hann sagði þá og alltaf. Hann Helgi var stór og myndarlegur maður, hvar sem hann kom var tekið eftir hon- um. Alltaf var hann glaður, geislandi og vel tilhafður. Hann hafði gaman af því að vera innan um fólk, gat verið hrókur alls fagnaðar þar sem það átti við. Hann talaði gjarn- an mikið og sagði sögur. Hon- um var margt til lista lagt, gat spilað á píanóið eftir eyranu. Átti auðvelt með að mála myndir bæði með vatnslitum og olíu. Hann undi sér vel í garðinum sínum innan um blóm, runna og tjörnina sína með fiskunum. Fyrst og og fremst var hann fjölskyldumaður, hugsaði vel um alla, börnin sín, tengda- börnin og barnabörnin fengu ómælda athygli hans. Hann hafði alltaf tíma og þolinmæði til að setjast niður og spjalla og átta sig á því hvað hver og einn var að sýsla. Fjölmargar sögur sagði hann frá því hvernig var að alast upp á Bárugötunni með fullorðnum foreldrum og ömmu. Hve hátt loftvarnaf- lauturnar gullu í kyrrðinni þegar verið var að prófa þær á stríðsárunum. Eftirminnilegur var göngutúrinn okkar um þetta svæði Reykjavíkur þar sem hann þekkti hvert hús. Hann gaf sér tíma, stoppaði víða og sagði okkur sögur af sér og vinum sínum í hverfinu. Honum varð einnig tíðrætt um það þegar hann og Jón Otti bróðir hans byggðu sér saman hús í Safamýrinni. Allt þetta var uppspretta af skemmtilegum sögum og minningum. Oft leitaði hugur- inn síðustu ár á þessa gömlu staði og fannst honum notalegt að komast í bíltúr um gömlu hverfin sín. Þá gátum við hæg- lega rifjað upp þær sögur sem hann hafði sagt okkur. Ljóm- aði þá minn maður. Í gegnum árin nutum við fjölskyldan þess að ferðast með Helga og Erlu innanlands sem utan. Ógleymanleg er síð- asta Akureyrarferðin okkar í síðsumarsveðri dag eftir dag. Honum varð tíðrætt um birt- una, umhverfið og fallegu trén í Leyningshólum. Þetta lang- aði hann til að fanga á striga. Tengdaforeldrar mínir voru samheldin hjón, unnu saman í einu og öllu öll sín rúmlega 60 hjúskaparár. Ást og umhyggja þeirra hvors fyrir öðru var nánast áþreifanleg. Síðastliðið ár var Helga erfitt en með ást, umhyggju og þrautseigju var hann eins lengi heima og unnt var. Þegar komið er að leiðarlok- um vil ég þakka frá mínum dýpstu hjartarótum þá um- hyggju, ræktarsemi og ómælda vináttu sem mér og minni fjölskyldu hefur verið sýnd alla daga. Þín Jóhanna Margrét. Eftir þrautagöngu kvaddir þú að lokum. Þín verður sárt saknað en á sama tíma hlýnar manni að hugsa til allra minn- inganna í gegnum áratugina þrjá sem ég haft þann heiður að kalla þig minn afa. Ég er fyrsta afabarnið þitt og alltaf blundaði í mér smá eigingirni og stolt að búa að þeim titli. En öllum þessum árum síðar hefur afkomendum fjölgað mjög og arfleifðin sem þú skil- ur eftir er demantsskreytt frá- bæru fólki. Þegar þetta er rit- að sit ég með Richard Clayderman á fóninum og minningafjársjóðurinn hellist yfir mig, allt í einu er ég mættur á Einimelinn í dyra- karminn að fylgjast með þér erindast í garðinum. Þú áttir gríðarlegan þátt í að móta mig, golfið, ræðumennska, flugið og áhugi á þjóðfélags- málum til að tína eitthvað til. Krían sem ég fékk frá þér eft- ir fyrsta fuglinn úti á Nesvell- inum. Málverkið eftir þig af sama velli sem ég mun varð- veita alla tíð. Heimsóknirnar á Þorragötuna eftir flug hjá mér þar sem stóru mál líðandi stundar voru brotin til mergj- ar með ykkur ömmu. Ég kveð þig með gríðarlegu þakklæti fyrir allt sem þú hefur kennt mér, áhugann sem þú kveiktir, genalottóið sem ég vann í, nafnið sem ég fékk og þann hafsjó af minningum sem munu fylgja mér ævilangt. Takk afi. Ingólfur Helgi Héðinsson. Síðustu dagar hafa verið furðulegir því stórt skarð var höggvið í fjölskylduna þann 6. maí þegar afi kvaddi okkur í hinsta sinn. Afi var þeim hæfi- leika gæddur að vera alltaf umvafinn gleði, með bros á vör og hafði lag á því að láta fólk- inu í kringum sig líða vel í ná- vist sinni. Ein af mínum fyrstu minn- ingum er frá 60 ára afmæli afa. Veislan var haldin í Eng- ey á Hverfisgötunni og upp úr þurru birtist lúðrasveit sem afi hafði pantað án samráðs við ömmu enda hefði amma líklega verið fljót að tala hann frá þessari ákvörðun. Veislu- gestir marseruðu í skrúð- göngu undir glymjandi tónum lúðrasveitarinnar með meist- arann afa í broddi fylkingar. Afi elskaði að gleðja og fíflast og ekki síst stríða ömmu sem var venjulega hógværari en hann sjálfur. Afi og amma tóku ákvörðun um sextugt að selja fyrirtækið sitt og njóta lífsins. Það var mér mikil lukka að þau væru alltaf til staðar eftir skóla og gáfu sér tíma í spjall, samveru og hlátrasköll. Afi hlúði vel að garðinum og var iðulega úti í bláa vinnugallanum þegar ég kom í heimsókn með skóla- töskuna á bakinu. Honum var umhugað um fuglana í Vest- urbænum og á hverju ári keypti hann nokkra gullfiska sem lifðu góðu lífi í tjörninni á Einimelnum. Fiskunum var skilað pattaralegum í gælu- dýrabúðina á haustin og sagð- ist hann ætla að kaupa þá aftur að ári! Ást afa á fuglum og fiskum gerði það að verkum að ást hans á köttum sem vöndu komu sína í garðinn var ekki mikil. Hann var fljótur að stökkva út og fæla kettina í burtu sem kipptu sér lítið upp við hann. Eitt sinn var hann búinn að setja gaddavír efst á girðinguna sem umkringdi garðinn og sýndi mér hvar vatnsbyssurnar væru geymdar hlaðnar af vatni í arinstofunni. Já, afi háði alvöru stríð við ketti Vesturbæjar með mis- jöfnum árangri. Afi og amma hafa alltaf ver- ið mjög hvetjandi og heimsins bestu stuðningsmenn í öllum þeim verkefnum sem ég hef tekið mér fyrir hendur. Það var gott að eiga afa og ömmu að þegar ég komst ekki inn í læknisfræðina í fyrstu tilraun. Þeim hefur alltaf tekist að láta mér líða eins og ég sé best og klárust í heimi þó á móti blási og þegar inntökubréf frá Læknadeild Háskóla Íslands barst ári seinna var það mitt fyrsta verk að bruna heim til ömmu og afa á Einimel og segja þeim gleðifréttirnar með tárin í augunum. Amma og afi voru einstakt teymi sem tókst að koma sér upp stórri og samheldinni fjöl- skyldu sem hefur dýrkað þau og dáð í gegnum tíðina. Virð- ing, aðdáun og ást á milli þeirra ætti að vera öllum til eftirbreytni. Þau hafa ávallt sett fólkið sitt í fyrsta sæti og hafa uppskorið eins og þau hafa fallega og vandlega sáð. Jákvæðni afa, hlýja, gleði, hlát- ur og fíflagangur mun lifa með mér í hjartanu þar til yfir lýk- ur. Elsku afi! Þín verður sárt saknað um ókomna tíð. Ég hlakka til að segja strákunum mínum ótal sögur af þér í framtíðinni. Ég veit einnig um einn lítinn sem hefur nú örugg- lega þegar tekið glaður á móti þér með útbreiddan faðminn. Þið passið hvor upp á annan þangað til að tími okkar hinna kemur og þá sláum við upp humarveislu a la afi Helgi! Þín, Erla Þórisdóttir yngri. Í dag kveð ég afa Helga með sorg í hjarta en góðar og dýr- mætar minningar um hann munu lifa áfram. Það sem ein- kenndi afa var stóra brosið hans, hlýleiki og hans opni faðmur sem tók ávallt á móti mér þegar ég kom í heimsókn bæði á Einimelinn og á Þorra- götuna. Afi var rólegur maður að eðlisfari en honum þótti fátt skemmtilegra en að halda upp á afmæli eða veislur og var hann alltaf sá sem tók á móti manni í dyragættinni með sitt stóra og fallega bros. Að fá pönnukökur, vel sykraðar eða með jarðar- berjasultu og rjóma í kaffitím- anum eða vínarbrauð með morgunkaffinu var okkar uppá- halds enda bæði miklir sælker- ar. Afi var alltaf svo stoltur af okkur barnabörnunum og er hann sá sem hvatti mig hvað mest áfram í mínu námi í hjúkr- unarfræðinni. En þegar heilsu hans fór að hraka hittumst við í ófá skipti í dagvistuninni á Sel- tjörn en sjálf vann ég þar sam- hliða námi. „Nei, ert þú hér“ var setning sem hann sagði oft þegar ég laumaði mér til hans og birtist óvænt hjá honum til að eiga notalega stundir saman á Seltjörn. Þar eyddum við mörgum stundum við gluggann beint á móti Esjunni og mál- uðum saman myndir og rædd- um þá oft um litasamsetningu og hvenær færi að koma tími á kaffisopa. Elsku afi, takk fyrir allar stundirnar sem við áttum sam- an. Ég mun sakna þín og mun halda minningu þinni á lofti um ókomna tíð. Þín afastelpa, Þórdís. Elsku afi kvaddi okkur 6. maí síðastliðinn. Það sem ein- kenndi afa var eintóm gleði og hamingja, hann tók alltaf á móti mér með opnum örmum og hlýlegu brosi. Það voru ófáar stundirnar sem við afi áttum við eldhús- borðið á Einimelnum en afa þótti fátt skemmtilegra en að fá barnabörnin í heimsókn því þá var sko von á ömmupönnsum. Við ræddum um heima og geima, hann sagði sögur frá sínum fyrri árum og hafði mik- inn áhuga á framtíðarplönum mínum. Það var enginn jafn hvetjandi og afi sem vildi meina að ég gæti auðveldlega sigrað heiminn eða eins og hann sagði ítrekað: „Mundu þetta alltaf: I have a dream!“ Afi var mikill golfari á sínum seinni árum og var hann dug- legur að draga mig með sér á völlinn. Það var alveg sama hvernig gekk, öll höggin voru mögnuð að hans mati. Þrátt fyrir veikindin undanfarin ár hélt afi sínum persónuleika, hann var alltaf svo kátur og stoltur af okkur barnabörnun- um. Elsku afi, ég á eftir að sakna þín mikið, allra samverustund- anna, bílferðanna og ekki síst hvatninganna. Þín Margrét. Helgi Sigurðsson

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.