Morgunblaðið - 20.05.2022, Qupperneq 8

Morgunblaðið - 20.05.2022, Qupperneq 8
8 FRÉTTIR Innlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 20. MAÍ 2022 Rauðarárstígur 12-14, sími 551 0400 · www.uppbod.is Vefuppboð nr. 119 Uppboð nr. 119 fer fram í Fold uppboðshúsi Rauðarárstíg mánudaginn 23. maí kl. 18.30 G eo rg G uð n i Forsýning verka stendur til 23. maí, OPIÐ ALLA HELGINA LOKSINS! UPPBOÐ Í SAL! Þorvaldur Skúlason Léttar veitingar í boði á uppboðsdegi Örn Arnarson, fjölmiðlarýnir Viðskiptablaðsins, fjallar um ýmislegt kosningatengt í pistli sín- um í gær og vekur meðal annars athygli á góðum árangri sér- framboðsins Vina Kópavogs. Örn segir: „Fjölmiðlar hafa ekki gefið þeirri staðreynd gaum í eftirmálum kosninganna að þarna var afl á ferð sem berst gegn þéttingu byggðar – og einnig þéttingu sem nauðsynlegt er að ráðast í vegna fyrirhugaðrar borgarlínu eins og í tilfelli Hamraborgar. Þrátt fyrir að fjölmiðlar verði seint sakaðir um skort á áhuga á borgarlínunni verður ekki sagt að þeir fjalli jafnt um alla þætti málsins. Þannig má gera ráð fyrir að áformin muni leiða til töluverðrar röskunar á ýmsum svæðum á höfuðborgar- svæðinu og gera má ráð fyrir að íbúar í nágrenni þeirra svæða hafi sterkar skoðanir á þeim málum öll- um.“ - - - Stjórnvöld í Kópavogi munu ef- laust taka eftir þeim skila- boðum sem í þessu felast og Örn bendir á. En skilaboð voru víðar send um þéttingu byggðar og borg- arlínu sem ástæða er fyrir kjörna fulltrúa að hlusta á. - - - Helsti þéttingarflokkur Reykja- víkur, Samfylkingin, missti mikið fylgi og þéttingarmeirihlut- inn féll kylliflatur. Flokkar sem lýstu vilja til að brjóta nýtt land undir byggð, sem fer ekki saman við borgarlínuátrúnaðinn að sögn hinna rétttrúuðu, bættu við sig. - - - Talsmenn borgarlínu, launaðir sem aðrir, hafa reynt að túlka niðurstöðurnar á annan hátt, en til þess þarf auðvitað töluverða túlk- unarblindu, meðvitaða eða ekki. Örn Arnarson Skilaboðin og túlkunarblindan STAKSTEINAR Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://mbl.is/mogginn/leidarar/ Flestir þekkja hversu erfitt getur verið að fá raunverulegan frið frá vinnunni þegar fólk er í frí. Kannanir sýna að mjög margt fólk skoðar vinnutengda tölvupósta daglega með- an það er í fríi. Ný herferð Íslands- stofu miðar að því að gera upplifun ferðamanna af Íslandi sem besta með því að minnka áreiti af vinnunni í frí- inu. Þetta ætlar Íslandsstofa að gera með því að fá hesta til að svara tölvu- póstum sem ferðamenn fá á meðan þeir eru í fríi. „Þjónustan nefnist Úthestaðu póstinum þínum (e. Out- horse your email), og snýst um að bjóða fólki að útvista svörun tölvu- pósta til íslenskra hesta,“ segir í til- kynningu. Með aðstoð risavaxins lyklaborðs sem var sérsmíðað fyrir hófa hafa íslenskir hestar skrifað svör sem ferðamenn geta nýtt sér fyrir sjálfvirka svörun. Hestar svara tölvu- póstum fyrir fólk Fótafimi á lyklaborði Svör við tölvupóstum skrifuðu Hrímnir frá Hvammi, Hekla frá Þorkelshóli og Litla-Stjarna frá Hvítárhóli. Hér má sjá Heklu. Vel virðist ganga hjá stúdentum að fá vinnu um þessar mundir og ættu margir þeirra að vera komnir með störf í sumar. Fyrirtæki og stofnanir byrja gjarnan að leita að starfskröftum í sumarstörf í mars- mánuði ár hvert. „Eins og staðan er núna eru 52 störf auglýst. Það má orða það þannig að markaðurinn sé umsækjendavænn eins og er. Ég tel að stúdentar geti valið úr störf- um um þessar mundir. Það er alla vega mín tilfinning að leitað sé að mannauði og mörg störf séu í boði,“ sagði Jónína Kárdal, verk- efnisstjóri Tengslatorgs Háskóla Íslands, þegar Morgunblaðið setti sig í samband við hana. Tengsla- torg er samstarfsvettvangur Há- skóla Íslands og atvinnulífsins. Vel gengið að ráða „Aftur á móti veit ég að það hef- ur gengið mjög vel að ráða. Ég hef fengið mjög jákvæðar fréttir af því. Fyrirtæki og stofnanir byrj- uðu í mars að leita fyrir sér bæði varðandi sumarstörf og framtíðar- störf. Í júní mun Háskóli Íslands útskrifa um tvö þúsund manns. Mörg þeirra eru komin með vinnu en einnig gætu mörg verið að huga að framhaldsnámi,“ sagði Jónína. Eins og þekkt er geta sumar- störf leitt af sér frekari tækifæri fyrir viðkomandi þegar vel gengur. „Mér sýnist vera nokkuð um það að auglýst séu sumarstörf sem geti orðið að hlutastarfi eða fullu starfi ef vel gengur. Það er já- kvætt að því leyti að nemandinn er þá að hagnýta sína þekkingu.“ kris@mbl.is Mörg störf í boði fyrir stúdenta í sumar - Geta valið úr störf- um - 52 störf skráð í boði sem stendur Morgunblaðið/Kristinn Sumarvinna Markaðurinn er sagð- ur umsækjendavænn í sumar.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.