Morgunblaðið - 20.05.2022, Qupperneq 10

Morgunblaðið - 20.05.2022, Qupperneq 10
10 FRÉTTIR Innlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 20. MAÍ 2022 Síðumúli 16 I 108 Reykjavík I Sími 580 3900 I fastus.is fastus.is WEXIÖDISK, COMENDA OG HOBART UPPÞVOTTAVÉLAR ÖFLUGUR LIÐSAUKI Í ELDHÚSIÐ WEXIÖDISK Vandaðar og öflugar vélar fyrir þá sem vilja það besta COMENDA Ódýrari kostur - öflug og góð vél fyrir stærri eldhús HOBART Frábær fyrir minni eldhús, kaffistofur o.fl. Nánari upplýsingar veitir sölufólk okkar í síma 580 3900 Helgi Bjarnason helgi@mbl.is Aftur er farið að skipa út möl og sandi frá bryggjunni á Horni í Hornafirði. Höfnin lokaðist um tíma vegna sands sem safnaðist fyrir undir bryggjunni en nú er búið að dýpka aftur. Eigandi Horns sem stendur fyrir útflutn- ingnum þurfti sjálfur að greiða kostn- að við dýpkunina og fær engar endur- greiðslur frá ríkinu eins og hafnir sveitarfélaga fá. Litlahorn ehf., fyrirtæki Ómars Antonssonar, eiganda jarðarinnar Horns á Stokksnesi, hefur í mörg ár staðið fyrir útflutningi á sandi og möl úr fjörunni. Töluvert var selt af svartri möl til fyrirtækis í Arizona í Bandaríkjunum sem notuð var í bland við annað grjót í klæðningar innan á sundlaugar. Þau viðskipti féllu niður vegna óæskilegra efna sem blönduðust saman við og Ómar telur að hafi verið skemmdarverk. Aðrir kaupendur hafa verið að byggja markaðinn upp að nýju. Farmur fer út í næstu viku og reiknar Ómar með að seld verði sjö þúsund tonn á þann markað í ár, svip- að magn og fyrri kaupandi tók, og að aukning verði á næsta ári. Allir úti í garði Mikið af grófri perlumöl er flutt út, nú aðallega til Hollands, en þar er hún notuð í beð og garða. Ómar segir að útflutningur á þeirri vöru hafi aldrei verið meiri en í kórónuveiru- faraldrinum. Allir hafi verið að vinna í görðum sínum á þeim tíma. Einnig er nokkuð selt innanlands. Ómar framleiðir steypuefni og segir að búast megi við auknum viðskiptum því nú eigi að fara að byggja nýja brú yfir Hornafjarðarfljót. Efnið er flutt út frá bryggjunni á Horni. Hún lokaðist um tíma vegna sandburðar. Ómar segir að efni hafi gengið úr Austurfjörutanganum og farið inn undir bryggjuna og efni sem dælt var úr Hornafjarðarhöfn í vetur sé einnig að hringsóla um fjörðinn. Sanddæluskipið Dísa frá Björgun hreinsaði höfnina. Þótt það hafi ekki verið mikið verk kostaði það hann 10 milljónir króna. Segir Ómar að hafn- arsjóður Hornafjarðar, sem lét dýpka þar á sínum tíma, þegar hann kom sér þar upp bryggju, hafi hingað til neitað að greiða þennan kostnað. Hann segir mikið órættlæti í reglum um greiðslu kostnaðar við hafnar- gerð. Nefnir að ef sveitarfélög eða hafnarsamlög standi fyrir fram- kvæmdum greiði ríkið 80% af kostn- aði en ekkert þegar einstaklingar eða hlutafélög eigi hlut að máli. Bætir hann því við að sveitarfélagið sé kom- ið í samvinnu við fyrrverandi starfs- mann sinn um að gera námu á Mýr- um, vestan Hornafjarðar, og ætli að nota höfnina til að skipa út efninu. Það verði því gert með aðstöðu sem ríkið hafi greitt 80% af. „Höfnin er að fara í mikla fram- kvæmd, láta fjarlægja rif sem er fyrir utan innsiglinguna. Það gæti kostað 300 milljónir og ríkissjóður borgar. Ég þyrfti eiginlega að fara fram á það að bæjarfélagið fái ekki oftar styrk til hafnarframkvæmda til að koma í veg fyrir óheiðarlega samkeppni,“ segir Ómar. Skipað út frá höfninni á Horni - Útflutningur á sandi og möl hafinn aftur frá Stokksnesi - Notað í sundlaugar í Ameríku og garða í Hollandi - Útflytjandinn kostaði sjálfur dýpkun og fær engan stuðning frá ríki eða sveitarfélagi Útflutningur Möl og sandi skipað út í flutningaskip frá höfninni í landi Horns. Allt að 100 metra skip sem rista ekki meira en sex metra geta athafnað sig. Hátíð var í Sambíóunum Álfa- bakka nýverið þegar starfsfólk Slökkviliðsins á höfuðborgarsvæð- inu mætti á sérstaka forsýningu á teiknimyndinni Eldhuga. Myndin segir frá 16 ára stelpu sem dreymir um að sinna slökkvi- starfi eins og pabbi, en mætir ekki skilningi og dulbýr sig sem strák og slæst í hóp slökkviliðsmanna sem reyna að stöðva brennuvarg í New York. Fjölmargt starfsfólk slökkviliðsins, fjölskyldur þeirra og vinir mættu til að sjá Eldhuga og sumir komu í slökkviliðsgall- anum. Einnig komu slökkvi- og sjúkrabílar og fengu allir að skoða bílana bæði að innan og utan. Eld- hugi kemur í Sambíóin í dag, 20. maí. Gaman Slökkviliðsmenn, bíll og krakkar á forsýningu myndarinnar. Mættu í fullum skrúða á Eldhuga Margir ferðamenn koma við á Stokksnesi. Í landi Horns er heilt víkingaþorp sem komið var upp vegna áforma við að taka upp kvikmynd sem átti að gerast á víkinga- tímanum. Ekki hefur orðið neitt úr þeirri mynd en þorp- ið raunar eitthvað verið notað við kvikmyndagerð og ferðafólk er forvitið um fyrirbærið. Ómar hefur fest kaup á víkingaskipi og ætlar að koma því fyrir á tjörn við víkingaþorpið. Skip þetta, víkingaskipið Drakar, var smíðað í Bras- ilíu 2007 eftir teikningum af Gauksstaðaskipinu í Nor- egi. Skipið var keypt hingað til lands á árinu 2015 í þeim tilgangi að sigla með ferðafólk en eitthvað minna varð úr því en efni stóðu til. Það hefur legið við bryggju í Kópavogi undanfarin ár. Draugaskipið birtist skyndi- lega við Bessastaði í lok október á síðasta ári, hafði losnað og rekið þangað, og sökk síðan í höfninni fyrr á þessu ári. Sér á yfirbyggingu þess eftir þessa hrakn- inga, að sögn Ómars. Skipið er of breitt fyrir brýr á leiðinni austur. Því ósk- aði Ómar eftir aðstoð bæjarins við að draga skipið sjó- leiðina. Bauðst hann til að greiða útlagðan kostnað vegna ferðar lóðsbátsins í þetta verkefni en það hafi ekki fengist í gegn. „Það er engin tilfinning fyrir þessu þótt bæjarfélagið lifi að stærstum hluta á ferðamann- inum,“ segir Ómar. Ekki liggur fyrir hvernig hann kemur víkingaskipinu að Horni. Víkingaskip við þorpið STOKKSNES Kópavogshöfn Víkingaskipið er illa farið eftir veturinn.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.