Morgunblaðið - 20.05.2022, Qupperneq 24

Morgunblaðið - 20.05.2022, Qupperneq 24
24 DÆGRADVÖL MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 20. MAÍ 2022 –– Meira fyrir lesendur NÁNARI UPPLÝSINGAR um auglýsingapláss: Berglind Bergmann Sími: 569 1246 berglindb@mbl.is fylgir Morgunblaðinu þriðjudaginn 21. júní 2022 Auglýsendur athugið SÉRBLAÐ B A BLAÐ 40 ÁRA Freysteinn er Ísfirðingur en býr í Reykjavík. Hann kláraði rafbassanám við Tónlistarskóla FÍH og lærði á kontrabassa við Konunglega tónlistarháskólann í Haag og útskrif- aðist með BM-gráðu í tónlist. Frey- steinn vinnur við tónlist og sem stuðn- ingsfulltrúi í Sæmundarskóla. Hann hefur einnig tekið að sér einkatíma í rafbassaleik. Í fyrra gaf Freysteinn út plötuna Lokun sem varð að byrjun með eigin tónsmíðum og önnur plata er á leiðinni. Fyrsta lagið af þeirri plötu kemur út 9. júní. FJÖLSKYLDA Systur Freysteins eru Ólöf Hildur Gísladóttir, f. 1978, Thelma Elísabet Hjaltadóttir, f. 1978, Lilja Gísladóttir, f. 1983, og Aðalheiður Bára Hjaltadóttir, f. 1996. Foreldrar Freysteins eru Gísli Jónsson, f. 1957, ráðgjafi, búsettur í Búlgaríu, og Guð- björg Kristjana Ólafsdóttir, f. 1957, búsett á Spáni. Freysteinn Gíslason Stjörnuspá 21. mars - 19. apríl , Hrútur Þú ert mjög hænd/ur að vissri manneskju, en sambandið hefur breyst. Mundu að þú getur ekki vænst þess að aðrir sýni þér örlæti nema þú gerir það sama. 20. apríl - 20. maí + Naut Þér finnst sumar persónulegar skoðanir starfsfélaga þinna út í hött og því skaltu passa þig á hvað þú segir. Leit- aðu nýrra leiða til að gleðjast. 21. maí - 20. júní 6 Tvíburar Allt er á fleygiferð í dag og upp- lýsingar berast úr mörgum áttum í einu. Opnaðu þig fyrir vini, til þess eru þeir. 21. júní - 22. júlí 4 Krabbi Velgengni í fjármálum og ásta- málum kemur og fer. Eitthvað mikið er í uppsiglingu í vinnunni. Sumir skilja ekkert fyrr en skellur í tönnum. 23. júlí - 22. ágúst Z Ljón Þú átt einkar auðvelt með að laða aðra til samstarfs við þig og átt að not- færa þér það. Þú átt það til að setja fólk á stall, reyndu að hætta því. 23. ágúst - 22. sept. l Meyja Það er einhver spenna í þér og hætt við að þú látir það bitna á fólkinu í kringum þig. Einbeittu þér að aðalatrið- unum í hverju máli fyrir sig. 23. sept. - 22. okt. k Vog Þetta er góður dagur til samskipta við aðra og þá sérstaklega systkini þín. Þig langar til að víkka sjóndeildarhring- inn. 23. okt. - 21. nóv. j Sporðdreki Taktu tillit til þess sem vinir þínir segja. Þú verður á ferð og flugi næstu viku. Mundu að hvíla þig. 22. nóv. - 21. des. h Bogmaður Festa þín gerir það að verkum að enginn reynir að andmæla þér. Þig langar að stækka við þig húsnæði, leggðu hausinn í bleyti. 22. des. - 19. janúar @ Steingeit Þú átt ekki í vandræðum með að segja hlutina afdráttarlaust. Temdu þér jákvæðni og þú munt ná árangri sem þú hélst ómögulegan. 20. jan. - 18. febr. ? Vatnsberi Erfiðleikar hafa svo sann- arlega látið á sér kræla upp á síðkastið. Hafðu augun opin fyrir nýjum tækifærum. 19. feb. - 20. mars = Fiskar Þú lendir í deilum við vinnufélaga. Slíkt er enginn heimsendir. Taktu þig saman í andlitinu og horfðu svo fram á veginn. ýmsu stjórnmálavafstri, m.a. verið kosningastjóri. „Það er kannski sérstakt hvað ég hef lítið verið í hefðbundinni vinnu. Ég hef ekki verið fastráð- inn launamaður nema í svona 3-4 ár hjá Máli og menningu og Eddu útgáfu á allri starfsævinni. Annars hef ég alltaf verið í allskonar lausamennsku, stjórnmálastörfum eða eigin rekstri og frelsið á vel við mig þótt öryggið sé lítið.“ Margrét hefur skrifað fjölmarg- ar bækur, ýmist ein eða í félagi við myndhöfunda. Fyrstu útgefnu skrifin voru þó ýmsar fræðigreinar um barnabækur. Síðar varð hún barnabókahöfundur sjálf en frá 2006 hafa komið út átta bækur fyrir börn og ungt fólk. Hún hefur þrisvar hlotið Fjöruverðlaunin, fengið Barnabókaverðlaun Reykja- víkurborgar, Íslensku barnabóka- verðlaunin og Barnabókaverðlaun Guðrúnar Helgadóttur en þau M argrét Tryggvadótt- ir fæddist 20. maí 1972 í Reykjavík, en ólst upp í Kópa- vogi, fyrst í Lund- arbrekku en svo í Grænahjalla en foreldrar hennar voru frum- byggjar á báðum stöðum. „Að öðru leyti er ég alin upp í Hjálp- arsveit skáta og það viðhorf sem þar sveif yfir vötnum hefur haft afgerandi áhrif á mig. Þar gildir rík samhjálp en það skiptir líka máli að vera sterkur einstaklingur sem bugast ekki þegar á reynir. Það var gott veganesti. Annað sem mótaði mig líka var áhugi foreldra minna á menningu, sérstaklega myndlist. Ég var alltaf í myndlist- arnámi og reyndar tónlistarnámi líka en mamma kenndi líka mynd- mennt og starfrækti eiginlega lít- inn myndlistarskóla fyrir krakk- ana í hverfinu í kjallaranum. Auk þess sóttu þau allar myndlistar- sýningar og ég fór oft með.“ Margrét gekk í Digranesskóla, varð stúdent frá Verzlunarskóla Íslands 1992 og lauk BA-prófi úr almennri bókmenntafræði frá Há- skóla Íslands 1997. Hún stundaði einnig nám í íslensku í HÍ 1998. Margrét lauk MA-gráðu í menn- ingarstjórnun 2016 frá Háskól- anum á Bifröst. Frá 1997 hafa störf Margrétar að mestu snúist um bækur með einum eða öðrum hætti. Hún hefur skrifað fræðigreinar um barna- bækur, starfað sem stundakennari hjá Námsflokkum Reykjavíkur og víðar 1998-2000, barnabóka- gagnrýnandi DV 1997-2000. Hún rak Gallerí Fold í Kringlunni 1997-2008 með eiginmanni sínum. Hún var ritstjóri og síðar myndrit- stjóri hjá Máli og menningu og Eddu útgáfu 2000-2003 og var sjálfstætt starfandi myndritstjóri, textagerðarmaður og þýðandi, einkum barnabóka, 2003-2009. Margrét var alþingismaður 2009- 2013 fyrir Borgarahreyfinguna, síðar Hreyfinguna og varaþing- maður fyrir Samfylkinguna 2018- 2019. Frá 2013 hefur Margrét sinnt ritstörfum, myndritstjórn og hlaut hún síðasta vor fyrir spennu- söguna Sterk. Verk hennar hafa þrisvar verið tilnefnd til Íslensku bókmenntaverðlaunanna. Síðasta sunnudag hlaut hún Vorvinda, við- urkenningu IBBY á Íslandi fyrir störf sín í þágu barnamenningar. Þá skrifaði hún bókina Útistöður um reynslu sína á Alþingi. Mar- grét hefur auk þess skrifað ýmsar greinar í tímarit, blöð og vefrit og stundað þýðingar, einkum á barna- bókum. Margrét sat í stjórn CISV á Ís- landi 2003-2009, hefur setið í stjórn Gunnarsstofnunar frá 2021, í lista- og menningarráði Kópa- vogs frá 2019, í stjórn RÚV frá 2022 og hefur setið í stjórn Rithöf- undasambands Íslands frá 2017 og verið varaformaður frá 2022. „Áhugamálin renna oft saman við vinnuna en fyrir utan bók- menntir, menningu og listir hef ég mikinn áhuga á útivist og hreyf- ingu, einkum samgönguhjólreiðum, og hjóla flesta daga ársins til vinnu. Ég á reyndar frekar erfitt með að sitja aðgerðalaus og kyrr. Sjónvarpsgláp hentar mér t.d. alls ekki. Mér finnst ómissandi að skapa eitthvað á hverjum degi. Ég fæ mikla útrás fyrir sköpunargleð- ina í störfum mínum en líka í eld- húsinu. Besti tími dagsins er oft að elda eitthvað guðdómlegt og borða það með mínu besta fólki. Mér finnst líka ómissandi að hafa hund á heimilinu, það gerir allt betra. Nú er það hún Hnota, 1½ árs gömul brún labradortík, sem passar upp á okkur. Þá höfum við reynt að ferðast töluvert og loks er það hægt aftur. Árið 2008 bjó fjölskyldan t.d. nokkra mánuði í Kína og svo skiptum við oft á húsnæði við fjölskyldur í öðrum löndum á meðan við vorum með krakka. Við höfum reyndar ekki hætt okkur í slíkt síðan ég varð eftir heima, óvænt kjörin á þing og var húsnæðislaus á meðan eiginmaður og synir fóru til Spán- ar. En þennan mánuðinn er ég í La Rochelle í Frakklandi og mun verja afmælisdeginum við skriftir en markmiðið er að skrifa 2.000 Margrét Tryggvadóttir, rithöfundur, myndritstjóri og fv. alþingismaður – 50 ára Fjölskyldan Elmar, Margrét, Jóhann og Hans á Kínamúrnum vorið 2008. Margverðlaunaður rithöfundur Afmælisbarnið Margrét og Hnota nokkurra vikna gömul. Snorri Snorrason er 60 ára í dag. Hann tekur á móti símtölum og býður upp á kaffi heima hjá sér á Sauðár- króki. Helst vill hann þó fá sms þar sem hann fær aldrei sms. Snorri er í símaskránni. Árnað heilla 60 ára Til hamingju með daginn

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.