Morgunblaðið - 24.05.2022, Side 11
FRÉTTIR 11Innlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 24. MAÍ 2022
Sigurður Bogi Sævarsson
sbs@mbl.is
„Ég mun standa með öllum góðum
tillögum sem fram verða bornar í
bæjarmálum, rétt eins og ég mun
alltaf hafna óráðsíu og öfgum. Til
þess að tryggja velferð sem best
þurfa félagslegar lausnir alltaf að
vera ráðandi, enda þótt einkamark-
aðurinn geti vissulega og á stundum
leyst ákveðin viðfangsefni,“ segir
Brynjólfur Ingvarsson, sem á dög-
unum var kjörinn fulltrúi Flokks
fólksins í bæjarstjórn Akureyrar.
Hann er áttræður að aldri og því elsti
kjörni sveitarstjórnarmaður landsins,
eftir því sem næst verður komist.
Brynjólfi finnst aldurinn þó engin
fyrirstaða, enda sé heilsan góð.
Handleggur gripinn
Í bæjarstjórnarkosningunum fékk
Flokkur fólksins 12,1% greiddra at-
kvæða á Akureyri. Góðan árangur
þakkar Brynjólfur því að fólkið sem
að framboðinu stóð náði vel saman og
málefnin skýr. Í umræðum fyrir
kosningar lét Brynjólfur meðal ann-
ars málefni eldri borgara til sín taka.
„Ég veit að margt af eldra fólkinu
hér í bænum telur sig afskipt og er
vonsvikið yfir því að fá ekki þá þjón-
ustu frá bænum sem því ber, svo sem
í húsnæðismálum. Ég svaraði því
kalli um að fara í framboð; rétti fram
fingurinn og þá var allur handlegg-
urinn gripinn. Framvindan öll var
mjög hröð,“ segir bæjarfulltrúinn.
Brynjólfur er Norðlendingur í húð
og hár – ekkjumaður og faðir fimm
uppkominna sona. Er geðlæknir og
starfaði sem slíkur í áratugi við
Fjórðungssjúkrahúsið á Akureyri,
eða fram til 2012. Í starfi og áherslum
þar var fagfólk áfram um að þjónusta
við sjúklinga væri í tengslum við
grasrótina, hið almenna samfélag og
þær bjargir sem þar bjóðast.
„Þessi stefna okkar átti ekki upp á
pallborðið alls staðar og var faglega
umdeild. Við Sigmundur heitinn Sig-
fússon yfirlæknir héldum hins vegar
okkar striki og náðum ágætum ár-
angri,“ segur Brynjólfur. Frá þessu
segir hann meðal annars í sögu sinni,
Guðfaðir geðveikinnar á Akureyri,
sem kom út á síðasta ári.
Sem læknir í samskiptum við
marga segist Brynjólfur hafa kynnst
vel aðstæðum fjölda fólks – oft bágum
– og viti því hvar úrbóta sé þörf.
Öllum bjóðist tækifæri
„Geðlækningar og stjórnmál ganga
fyrst og fremst út á samskipti við fólk
og eru að því leyti náskyld störf.
Hvort tveggja kallar á að þú sért
áfram um að hjálpa fólki og finna
lausnir sem skapa betra samfélag. Já
og eftir hálfa öld sem læknir hér í bæ
veit ég veit ég að einangrun, búseta í
ófullnægjandi húsnæði, fátækt, vímu-
efnanotkun og fleira slíkt er veruleiki
margra hér á Akureyri. Margir lifa
við þær aðstæður að heilsan gefur
eftir. Á bak við sölu á fíkniefnum til
ungs fólks eru glæpamenn sem lög-
reglan er alltaf skrefi á eftir. Allt
þetta getum við kallað jaðarmenn-
ingu og ungur hefði ég sagt að orsök
þess alls væri kapítalisminn. Árin og
reynslan hafa sagt mér að slík ein-
földun gengur ekki upp,“ segir Brynj-
ólfur og heldur áfram:
„Samfélag nútímans er flókið en til
þess að skapa á hverjum tíma bestu
útgáfu þess er lausnin að taka hug-
myndir, hverja úr sinni áttinni, og
bræða saman í eina stefnu. Með slíkt
að leiðarljósi vænti ég góðs samstarfs
við öll þau sem ásamt mér hafa nú
verið kjörin í bæjarstjórn. Stundum
er sagt að norræna módelið svo-
nefnda sé besta samfélagsgerð í
heimi, sem vel kann að vera rétt. En
svo má taka málin lengra og benda á
kosti íslensks bæjarfélags af mátu-
legri stærð, eins og til dæmis hér á
Akureyri, þar sem íbúarnir standa
saman að því að skapa samfélag þar
sem öllum bjóðast tækifæri og vel-
ferðin er tryggð. Auðvitað verður
slíkt aldrei gert og tryggt fullkom-
lega, en allar aðstæður eru fyrir
hendi svo gera megi góða hluti.“
Spennandi lærdómur
Gengur, syndir og fer flesta daga á
hestbak. Þannig lýsir Brynjólfur
Ingvarsson sinni daglegu rútínu –
sem hann telur að mörgu leyti út-
skýra að heilsa sín sé góð. Því sé ekk-
ert annað í stöðunni nú en að setja sig
inn í mál og koma þar með tillögur
sem bætt geti bæjarbraginn. „Kunn-
ugir segja mér að kjörtímabilið þurfi
til þess að komast sæmilega inn í
hlutina og skilja hvernig kerfið virk-
ar. Þetta verður því bara spennandi
lærdómur – og vonandi tekst mér að
koma góðu til leiðar í störfum mínum
í bæjarstjórn.“
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Akureyringur Félagslegar lausnir séu alltaf ráðandi, segir Brynjólfur Ingvarsson um stefnu sína og sjónarmið.
Áttræður í bæjarstjórn
- Brynjólfur á Akureyri - Geðlæknir í stjórnmál - Ná-
skyld verkefni - Leita bestu hugmynda - Flókið samfélag
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
„Í fyrsta lagi er Henry David Thor-
eau einn helsti rithöfundur banda-
rískrar bókmenntasögu. Í öðru lagi
þá vekur það áhuga okkar hjá
Snorrastofu að hann hafði mikinn
áhuga á ritum
Snorra Sturlu-
sonar, bæði kon-
ungasögum í
Heimskringlu og
goðafræðinni í
Snorra-Eddu og
svo hafði hann
líka áhuga á Vín-
landssögunum,“
segir Bergur
Þorgeirsson, for-
stöðumaður
Snorrastofu, um alþjóðlega ráð-
stefnu um Henry Davið Thoreau,
rithöfund og heimspeking, sem hald-
in er í Reykholti dagana 25. til 27.
maí.
Bergur segir að Snorrastofa hafi
áhuga á að skoða hvernig unnið hafi
verið úr bókmenntaarfi Snorra í
gegnum aldirnar. Thoreau sé mikil-
vægur í því tilliti. Rannsóknir á því
hvernig Thoreau nýtti fornbók-
menntir Íslendinga séu hins vegar
takmarkaðar og erfitt að halda ráð-
stefnu um það efni. Thoreau kom
víða við, til dæmis í umhverfis-
málum, og var þekktur fyrir kenn-
ingar sínar um borgaralega óhlýðni.
Þess vegna og vegna hnattrænnar
hlýnunar eru umhverfismálin í
brennidepli á ráðstefnunni.
Segir Bergur að kjarnaspurning
ráðstefnunnar sé: Hvernig finnum
við sjálfbæra leið fram á við og getur
Thoreau hjálpað okkur í því efni?
Náttúruvernd í forgrunni
Höfuðrit Thoreaus er bókin Wal-
den sem talið er lykilverk á sviði
náttúruheimspeki og náttúru-
verndar. Hún kom út hér á landi
2017. Í fyrirlestrum íslenskra fram-
sögumanna verður meðal annars
fjallað um Ísland í stóru samhengi
umhverfismála, um höfuðritið Wal-
den og um Thoreau og náttúru-
skynjun.
Bergur bendir á að Thoreau sé
einn þeirra manna sem fóru að ræða
um náttúruna út frá vistfræði áður
en það hugtak varð til. Á ráðstefn-
unni sé vistfræðileg þróun skoðuð í
samhengi við tímann.
Ekki er fjallað sérstaklega um
borgaralega óhlýðni sem Thoreau er
þekktur fyrir en Bergur segir að það
verði vafalaust nefnt í fyrirlestrum.
Hann bendir á að margir stjórn-
málamenn hafi notað eða misnotað
þetta hugtak, meðal annars í
tengslum við umræðu um bús-
áhaldabyltinguna svokölluðu. Segir
hann um þetta að Thoreau hafi unn-
ið að því að smygla þrælum frá Suð-
urríkjum Bandaríkjanna til Kanada
um 19. öldina og lagt sig í hættu við
það.
Búist er við tæplega 60 þátttak-
endum frá 10 löndum á ráðstefnuna.
Bergur bendir þó á að hún sé öllum
opin án endurgjalds og ekki þurfi að
skrá sig. „Fjölbreytt erindi eru á
ráðstefnunni og ég tel að hún geti
orðið býsna skemmtileg,“ segir
Bergur.
Rætt um höfund
og hugsjónamann
- Ráðstefna um Henry David Thoreau
Ljósmynd/Guðlaugur Óskarsson
Snorrastofa Thoreau-ráðstefnan
er haldin í Reykholti síðar í vikunni.
Henry David
Thoreau
Félagsráðgjafa-
félag Íslands skor-
ar á íslensk stjórn-
völd að hafa
mannúðarsjón-
armið í fyrirrúmi í
ákvörðunum hvað
varðar móttöku
flóttafólks sem og
við lagasetningu
hvað þetta varðar.
Áskorun þessi
kemur í kjölfar fyrirhugaðrar brott-
vísunar á u.þ.b. 300 umsækjendum
um alþjóðlega vernd úr landi, en
aldrei áður hefur staðið til að vísa
jafn mörgum úr landi og sumir
þeirra hafa dvalið hér á landi í meira
en tvö ár.
Félagið hvetur því stjórnvöld til
að endurmeta stöðu þess fólks sem
til stendur að vísa úr landi með tilliti
til 74. gr. útlendingalaga og horfa til
þess hvort veita eigi dvalarleyfi á
grundvelli mannúðarsjónarmiða.
Skorað á stjórnvöld
vegna brottvísunar
Flóttafólk Mót-
mæli á Austurvelli.
Allt að
75%
afsláttur
Praxis og 7days
flytja í Garðabæ
24. og 25. maí, opið kl. 14-18
Nú 7.900
Nú 9.730
Tveggja daga
lagerhrein n
...Þegar þú vilt þægindi
Vinnukjólar
40%
afsláttur
Klossar
30%
afsláttur
Bonito ehf. | Sími 691 0808 | praxis.isLíkaðu við okkur - Praxis á Íslandi
Nú 2.900