Morgunblaðið - 24.05.2022, Page 12

Morgunblaðið - 24.05.2022, Page 12
12 FRÉTTIR Viðskipti | Atvinnulíf MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 24. MAÍ 2022 HURÐIR Tunguháls 10, 110 Reykjavík, sími 567 3440, vagnar@vagnar.is, vagnar.is • Stuttur afhendingartími • Hágæða íslensk framleiðsla • Val um fjölda lita í RAL-litakerfinu • Vindstyrktar hurðir Bílskúrs- og iðnaðarhurðir Iðnaðarhurðir Iðnaðarhurðir með gönguhurð Bílskúrshurðir Hurðir í trékarma Tvískiptar hurðir Smíðað eftir máli Fyrsta flokks þjónusta og ráðgjöf STUTT BAKSVIÐ Þóroddur Bjarnason tobj@mbl.is Marinó Örn Tryggvason, forstjóri Kviku banka, segir í samtali við Morgunblaðið að samningur sem Kvika gerði um kaup á ákveðnum hluta af færslu- hirðingarsamn- ingum sameinaðs félags Valitors og Rapyd, sé að hans mati, einn sá besti sem bankinn hafi gert. Fjárhags- lega sé hann gríðarlega hag- kvæmur fyrir bankann. „Samn- ingurinn opnar á mikil tækifæri í framtíðinni. Því tel ég að þetta geti orðið einn besti samningur sem við höfum gert á undanförnum árum,“ segir Marinó. Eins og lesa má um á vef Sam- keppniseftirlitsins var markaðs- hlutdeild sameinaðs félags allt að 75%. Með sölunni til Kviku fer hún marktækt niður fyrir 50%. Marinó segir að á undanförnum árum hafi Kvika markvisst unnið að því að fjölga og byggja upp tekjustoðir félagsins og þessi samn- ingur sé enn ein varðan á þeirri leið. „Umhverfi fjármálafyrirtækja er að breytast og stefna Kviku er að vera virkur þátttakandi í þeim breytingum. Þessi samningur mun gera það að verkum að við verðum í einstakri stöðu til þess að bjóða fyrirtækjum upp á áhugaverðar lausnir og auka samkeppni í greiðslumiðlun og í annarri fjár- málaþjónustu.“ Tilkynnt 1. júlí 2021 Sala Arion banka á færsluhirð- ingu Valitors til Rapyd, sem til- kynnt var upphaflega um 1. júlí 2021, var samþykkt í gær af Sam- keppniseftirlitinu. Það var gert með því skilyrði að að Rapyd selji ákveðinn hluta af færsluhirðingar- samningum sameinaðs félags til Kviku banka, eins og hér hefur verið greint frá. Fyrirvarar samkomulagsins telj- ast þó enn sem komið er ekki að fullu uppfylltir þar sem formlegt samþykki Fjármálaeftirlits Seðla- banka Íslands á kaupunum liggur ekki fyrir. Væntur hagnaður Arion banka vegna sölunnar, að frádregn- um sölukostnaði, er áætlaður um fimm milljarðar króna, eins og fram kemur í tilkynningu frá Arion. Í tilkynningu Kviku banka vegna kaupanna kemur fram að markaðs- hlutdeild Kviku á færsluhirðingar- markaði á Íslandi, eftir að bankinn tekur yfir samningana, verði sterk og muni gera bankanum kleift að keppa af krafti á markaðnum. Áhrif samningsins á eiginfjár- grunn Kviku eru hverfandi og gert er ráð fyrir að áhrif á afkomu árs- ins 2022 verði lítil. Þá er gert ráð fyrir að samningurinn hafi þau áhrif að afkoma bankans fyrir skatta verði 200-300 m.kr. betri frá og með árinu 2023. Einn besti samningur Kviku - Kvika kaupir ákveðinn hluta af færsluhirðingarsamningum sameinaðs félags Valitors og Rapyd - Markaðshlutdeild úr 75% í 50%- Áhrif samningsins á eiginfjárgrunn Kviku eru hverfandi Marninó Örn Tryggvason. Hagnaður » Væntur hagnaður Arion af sölunni er um 5 ma. kr. » Páll Gunnar Pálsson, for- stjóri Samkeppniseftirlitsins, segir á vef eftirlitsins að virk samkeppni á greiðslukorta- og greiðsluþjónustumörkuðum skipti miklu máli og hafi áhrif á verð vöru og þjónustu til neyt- enda á Íslandi.Morgunblaðið/Árni Sæberg Samkeppni Markaðshlutdeild Kviku á færsluhirðingarmarkaði styrkist. « Thelma Kristín Kvaran, stjórnenda- ráðgjafi og meðeigandi hjá Intellecta, var á dögunum kjörin formaður FKA Framtíðar, en um er að ræða deild inn- an Félags kvenna í atvinnulífinu (FKA). Í nýja stjórn voru einnig kjörnar þær Anna Björk Árnadóttir, framkvæmda- stjóri og eigandi Eventum ehf., Árdís Ethel Hrafnsdóttir, framkvæmdastjóri og eigandi Möntru ehf. og Akkúrat ehf., Bergrún Lilja Sigurjónsdóttir, mann- auðs- og skrifstofustjóri hjá Jiko, Kar- lotta Halldórsdóttir, samskiptastjóri hjá Húsnæðis- og mannvirkjastofnun, Sig- ríður Inga Svarfdal Þorkelsdóttir, sölu- og markaðsstjóri hjá YAY ehf., og Sólveig Ragnheiður Gunnarsdóttir, stjórnenda- og fjármálaráðgjafi hjá Sólveig ehf. Ný stjórn FKA Framtíðar kjörin á aðalfundi Bandaríska tölvufyrirtækið Apple hefur sagt nokkrum framleiðendum sínum að það vilji auka framleiðslu utan Kína, m.a. vegna harðra tak- markana þar í landi vegna faraldurs- ins. Þetta segja heimildarmenn bandaríska dagblaðsins The Wall Street Journal (WSJ). Apple framleiðir lítinn hluta af vörum sínum í Indlandi og í Víetnam en nú beinir fyrirtækið athygli sinni þangað í auknum mæli. Meira en 90% af Apple vörum, eins og iPhone símum, iPad spjaldtölvum og MacBook fartölvum, eru framleidd af verktökum í Kína. Sagt er í blaðinu að það, hve Apple er háð Kína um framleiðsluna, skapi pólitíska áhættu vegna alræðisstjórnarinnar í landinu og árekstra við Bandaríkin. Hefur mikil áhrif Allar breytingar sem Apple, verð- mætasta fyrirtæki á markaði í Banda- ríkjunum, gerir í þessum efnum gæti haft áhrif á önnur vestræn fyrirtæki í svipuðum hugleiðingum, samkvæmt frétt WSJ. Þessar vangaveltur hafa orðið há- værari í ár eftir að stjórnvöld í Kína létu vera að gagnrýna Rússa fyrir innrás þeirra í Úkraínu og vegna harðra aðgerða í sumum kínverskum borgum vegna faraldursins. Talsmaður Apple vildi ekki tjá sig um málið við WSJ en forstjóri Apple, Tim Cook, sagði í apríl sl., spurður um aðfangakeðju fyrirtækisins, að keðjan væri sannarlega alþjóðleg og vörurn- ar væru framleiddar hvarvetna. Þá sagði hann að fyrirtækið væri í sífellu að reyna að besta [aðfangakeðjuna]. Apple horfði til þess að dreifa fram- leiðslunni frá Kína áður en faraldur- inn byrjaði árið 2020. Þær áætlanir runnu út í sandinn vegna veirunnar. Núna er fyrirtækið, samkvæmt WSJ, að segja verktökum hvert þeir ættu að horfa hvað varðar uppbyggingu nýrra verksmiðja. Útgöngubann í kínversku borginni Shanghai og öðrum borgum í landinu vegna faraldursins hafa skapað flöskuhálsa í aðfangakeðju margra vestrænna fyrirtækja. Apple varaði við því í apríl sl. að vöxtur faraldurs- ins í Kína gæti dregið úr sölu um átta milljarða dala á núverandi ársfjórð- ungi. Ekki mátt ferðast til Kína Vegna ferðatakmarkana Kínverja hefur Apple ekki getað sent stjórn- endur og verkfræðinga inn í landið sl. tvö ár. Því á fyrirtækið erfitt með að skoða verksmiðjur með eigin augum. Rafmagnsleysi á síðasta ári skaðaði einnig orðspor Kína sem áreiðanlegs framleiðslulands, eins og segir í frétt WSJ. Vilja framleiða meira utan Kína - Apple framleiðir meira en 90% af vörum sínum í Kína - Pólitísk áhætta AFP Tækni Stórfyrirtækið Apple er mjög háð framleiðslufyrirtækjum í Kína. « Bandaríska kaffihúsakeðjan Star- bucks mun á næstu vikum loka öllum 130 útsölustöðum sínum í Rússlandi og ljúka þar með um 15 ára sögu sinni í landinu. Um 2.000 starfsmenn starfa fyrir Starbucks í Rússlandi og munu þeir frá greitt í sex mánuði. Starbucks bætist þannig í hóp al- þjóðlegra stórfyrirtækja sem ýmist hafa nú þegar eða ætla sér að yfirgefa Rúss- land og hætta þar starfsemi. Í síðustu viku var tilkynnt að skyndibitakeðjan McDonald‘s myndi loka veitingastöðum sínum í landinu eftir 30 ára rekstrar- sögu en þeir eru í dag um 850 og um 62.000 manns starfa fyrir keðjuna. Þó er sá munur á að McDonald‘s á nær alla sína veitingastaði en rekstur Starbucks fer fram í gegnum vörumerkjasamn- inga, þannig að unnið er að því að selja McDonald‘s-staðina til innlendra aðila. Starbucks ætlar líka að fara frá Rússlandi 24. maí 2022 Gengi Kaup Sala Mið Dollari 130.94 Sterlingspund 163.29 Kanadadalur 102.4 Dönsk króna 18.61 Norsk króna 13.496 Sænsk króna 13.201 Svissn. franki 134.73 Japanskt jen 1.0233 SDR 176.0 Evra 138.5 Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 172.28 Hagnaður Orku- veitu Reykjavík- ur nam á fyrsta fjórðungi þessa árs um 6,8 millj- örðum króna, en hann var 5,9 milljarðar á sama tíma í fyrra. Tekjur Orkuveitunnar námu á tíma- bilinu tæplega 15,7 milljörðum króna, og jukust um 14% á milli ára. Til viðbótar við Orkuveitu Reykja- víkur eru Veitur, Orka náttúrunn- ar, Ljósleiðarinn og Carbfix innan samstæðunnar sem árshlutareikn- ingurinn tekur til. Samkvæmt efnahagsreikningi námu eignir samstæðunnar um 421 milljarði í lok tímabilisins og eigin- fjárhlutfall var um 52%. Stór hluti raforkusölu Orku nátt- úrunnar er tengdur heimsmarkaðs- verði á áli, sem hefur hækkað nokk- uð á liðnum misserum eins og fram kom í fréttaskýringu Morgun- blaðsins í síðustu viku. Verð á áli fyrstu þrjá mánuði þessa árs var 50% hærra en á sama tíma í fyrra. Bjarni Bjarnason, forstjóri Orku- veitunnar, segir í tilkynningu að Orkuveitan finni fyrir hækkandi vöxtum þar sem félagið hafi aukið vægi íslensku krónunnar í fjár- mögnun. Þá sé mikilvægt að gæta hagsýni og þannig megi draga úr líkum á því að verð hækki til heim- ila. Tekjur OR hækka um 14% á milli ára Bjarni Bjarnason

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.