Morgunblaðið - 24.05.2022, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 24.05.2022, Blaðsíða 24
24 DÆGRADVÖL MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 24. MAÍ 2022 50 ÁRA Sigurlaug ólst upp í Nýjabæ undir Vestur-Eyjafjöllum en býr í Hrafnagilshverfi í Eyja- fjarðarsveit. Hún er búfræðingur að mennt frá Hvanneyri og vinnur á eggjabúinu Gæðaegg á Hrana- stöðum í Eyjafjarðarsveit. Hún er í Lionsklúbbinum Sif. „Áhuga- málin mín eru hestar, veiðar, að vera innan um fólk og ættfræði. Ég þarf alltaf að vita hvaðan fólk kemur og hvert það er að fara.“ FJÖLSKYLDA Sigurlaug er í sambúð með Guðmundi Erni Ólafssyni, f. 1957, altmuligtmanni. Dóttir þeirra er Herborg Hanna, f. 2014. Börn Sigurlaugar eru Kol- finna, f. 1997, Sighvatur Helgi, f. 2000, og Garðar Karl, f. 2003, Ólafsbörn. Börn Guðmundar eru Halldór, Linda, Magni, Óli og Guðmundur Jökull. For- eldrar Sigurlaugar eru Kolbrún Valdimarsdóttir, f. 1933, d. 2021, og Leifur Einarsson, f. 1933, d. 2014, bændur í Nýjabæ. Sigurlaug Hanna Leifsdóttir Stjörnuspá 21. mars - 19. apríl , Hrútur Ekki hafa neinar áhyggjur þó að þú sért ekki alveg með á nótunum í dag. Ekki láta aðra fara í þínar fínustu. 20. apríl - 20. maí + Naut Láttu það eftir þér að dekra svolítið við sjálfa/n þig. Láttu lítið fara fyrir þér næstu daga, þannig kemstu hjá rifrildum sem geisa í nærumhverfinu. 21. maí - 20. júní 6 Tvíburar Notaðu daginn til þess að fara yfir reikninga. Einhver vill ganga í augun á þér, því þarftu að vera með opin augun og taka eftir. 21. júní - 22. júlí 4 Krabbi Forðastu ónauðsynleg fjárútlát í dag. Leitaðu ráða hjá öðrum ef með þarf, það veit enginn allt ef þú heldur það. Góðar líkur eru á ferðalagi fljótlega. 23. júlí - 22. ágúst Z Ljón Þú ert ekki til stórræðanna fyrri part dags en munt bæta það upp seinnipartinn. Taktu til hendinni heima, þú sérð ekki eftir því. 23. ágúst - 22. sept. l Meyja Þú þarft að vera á varðbergi svo þú missir ekki af tækifærum sem dúkka upp. Þér bregður við skilaboð sem þú færð en verður fljót/ur að jafna þig. 23. sept. - 22. okt. k Vog Þú færð endalaust af góðum hug- myndum og ættir að skrifa þær niður. Ein- hver reynir að gera þér til geðs en þú ert ekki sannfærð/ur um að það dugi. 23. okt. - 21. nóv. j Sporðdreki Svo virðist sem þú hafir ekki komið öllum þínum persónulegu málum í höfn. Orka þín fer þverrandi, gerðu allt til að viðhalda henni. 22. nóv. - 21. des. h Bogmaður Það er allt á fullu í hausnum á þér og þú hefur hundrað lausnir við öllum vandamálum. Nýr fjölskyldumeðlimur reyn- ir að heilla þig upp úr skónum. 22. des. - 19. janúar @ Steingeit Greiðvikni sem þú hefur sýnt öðrum í fortíðinni kemur þér til góða núna. Haltu vissu fólki í vissri fjarlægð. Þú færð skemmtilegar fréttir í dag. 20. jan. - 18. febr. ? Vatnsberi Ef þú bara opnar augun sérðu fegurðina allt í kringum þig. Hugsaðu fram í tímann í dag, það borgar sig stundum. 19. feb. - 20. mars = Fiskar Gættu þess að láta hlutina ekki fara svo í taugarnar á þér að þú farir að skeyta skapi þínu á saklausum aðilum. Þú veist að þú ert sólarmegin í lífinu. störfum og uppbyggingu reglunnar. Árið 2011 stofnaði Garðar ásamt syni sínum, Jóni Ágústi, Leigufélagið Bestlu og síðar Byggingarfélagið Bestlu sem eru í dag í eigu Jóns Ágústs Garðarssonar. „Ég var að kaupa mér íbúð á Torrevieja á Spáni, en ég varð fyrir Félags blikksmíðaeigenda um árabil, einnig var hann stjórnarmaður í framkvæmdastjórn Vinnuveitenda- sambands Íslands, Landssambandi iðnaðarmanna og Sambandi málm- og skipasmiða. Hann hefur einnig verið félagi í Oddfellow-reglunni síðan 1978 og tekið þátt í ýmsum G arðar Erlendsson fædd- ist 24. maí 1942 í Reykjavík. Hann ólst upp í Klepps- og Voga- hverfi þangað til árið 1952 þegar fjölskyldan fluttist bú- ferlum til Málmeyjar á Skagafirði. „Sá harmleikur átti sér stað að hús fjölskyldunnar brann á Þorláks- messu sama ár og neyddumst við því að flytjast aftur til Reykjavíkur. Ég var sendur í sveit 7 ára gamall að Sandhóli í Ölfusi og var þar sjö sum- ur og einn vetur, hjá heiðurshjón- unum Þorláki Sveinssyni og Ragn- heiði Runólfsdóttur, sem voru mér eins og aðrir foreldrar.“ Garðar var ungur mjög virkur í íþróttum og stundaði bæði glímu og sund af kappi. Glíman varð þó á end- anum hans aðalíþrótt og hefur hann keppt á ófáum stórmótum bæði inn- an- og utanlands. Hann þurfti að hætta glímuiðkun vegna meiðsla en tók þá við dómarastarfi og hefur hann verið A-dómari síðustu áratugi. Einnig átti hann sæti í stjórn Glímu- sambands Íslands. Garðar hefur hlotið alþjóðlega viðurkenningu fyrir störf í þágu íþróttarinnar, og hlauti viðurkenninguna Master frá Al- þjóðasamtökum þjóðlegra íþrótta- og bardagalista. Þegar Garðar var 15 ára gamall gerðist hann blikksmíðalærlingur hjá eiginmanni frænku sinnar, ári áður en hann var gjaldgengur í lær- lingsnámið. Hann stofnaði sína eigin blikksmiðju, Blikk og Stál hf., ásamt m.a. frænda sínum Valdimari Jóns- syni árið 1962, aðeins 20 ára gamall. Tveimur árum seinna fékk hann meistarapróf í blikksmíði. Blikksmiðjan var lengi vel stærsta blikksmiðja landsins þar sem komið var að byggingu margra stórra og merkra mannvirkja á Íslandi. Í dag heitir fyrirtækið Ísloft Blikk- og stálsmiðja ehf, og er Garðar einn af eigendum blikksmiðjunnar. Garðar hefur alla ævi verið virkur við uppbyggingu í blikksmíða iðn- greininni, með því að styrkja nám lærlinga, verið virkur við innflutning á nýjum og tæknilegum vélum sem og iðkað félagsstörf í greininni. Hann gegndi m.a. hlutverki formanns tjóni á lögbýli mínu, Heiðarbrún í gamla Holtahreppi, en þar tók þakið af 22. febrúar í miklum óveðurshvelli. Hluti af þakinu fauk út að Rauðalæk sem er um tvo km frá Heiðarbrún. Sem betur fer var ég ekki staddur þar, ætlaði að vera þarna en for- sjónin tók í taumana. Núna er ég í smá stríði við tryggingafélagið um hvort um altjón sé að ræða. Annars hef ég verið að spila brids með A- meðdómurum mínum. Ég er ekki lengur að skipta mér af neinum rekstri, núna er ég að hugsa um sjálfan mig og vera með afkom- endum mínum. Ég er vel ríkur af þeim.“ Fjölskylda Fyrrverandi eiginkonur Garðars eru Bjartey Friðriksdóttir, f. 6.8. 1943, fyrrverandi skrifstofudama; Ragnhildur Ágústsdóttir, f. 9.11. 1953, fyrrverandi bankastarfsmaður, og Hrafnhildur K. Kristjánsdóttir, f. 28.1. 1951, fyrrverandi bankastarfs- maður. Börn Garðars og Bjarteyjar eru 1) Hjalti Garðarsson, f. 22.10. 1960, for- Garðar Erlendsson, blikksmíðameistari og fyrrverandi framkvæmdastjóri – 80 ára Með börnunum Garðar, lengst til vinstri, ásamt börnunum sínum í aldursröð frá vinstri. Forsjónin tók í taumana Afmælisbarnið Garðar Erlendsson. 16 ára Nýbyrjaður í blikksmíði. Til hamingju með daginn Akureyri Eyjólfur Júlíus Einarsson fæddist 6. október 2021 kl. 5.47. Hann vó 4.154 g og var 54 cm langur. For- eldrar hans eru Einar Ómar Eyjólfsson og Ingibjörg Ósk Helgadóttir. Nýr borgari –– Meira fyrir lesendur NÁNARI UPPLÝSINGAR um auglýsingapláss: Berglind Bergmann Sími: 569 1246 berglindb@mbl.is fylgir Morgunblaðinu þriðjudaginn 21. júní 2022 Auglýsendur athugið SÉRBLAÐ B A BLAÐ

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.