Morgunblaðið - 24.05.2022, Qupperneq 26
26 ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 24. MAÍ 2022
Besta deild kvenna
ÍBV – Þór/KA ........................................... 5:4
Keflavík – Þróttur R ................................ 1:2
KR – Afturelding...................................... 1:0
Stjarnan – Selfoss .................................... 3:1
Staðan:
Þróttur R. 6 4 1 1 13:8 13
Valur 5 4 0 1 17:3 12
Selfoss 6 3 2 1 8:5 11
Stjarnan 6 3 1 2 12:9 10
ÍBV 6 3 1 2 10:8 10
Breiðablik 5 3 0 2 11:3 9
Keflavík 6 2 1 3 7:7 7
Þór/KA 6 2 0 4 10:16 6
Afturelding 6 1 0 5 7:15 3
KR 6 1 0 5 3:24 3
Þýskaland
Umspil, seinni leikur:
Hamburger SV – Hertha Berlín ............. 0:2
_ Hertha vann 2:1 samanlagt og heldur
sæti sínu í efstu deild.
Danmörk
B-deild, úrslitakeppnin:
Fredericia – Horsens .............................. 0:4
- Aron Sigurðarson lék í 73 mínútur með
Horsens og lagði upp mark.
Nyköbing – Lyngby................................. 1:1
- Sævar Atli Magnússon kom inn á hjá
Lyngby á 70. mínútu og Frederik Schram
var varamarkvörður. Freyr Alexandersson
þjálfar liðið.
Staðan fyrir lokaumferðina:
Horsens 63, Lyngby 60, Hvidovre 56, Hels-
ingör 55, Fredericia 50 , Nyköbing 32. Hor-
sens og Lyngby eru komin í úrvalsdeildina.
Svíþjóð
B-deild:
Örebro – Eskilstuna ................................ 1:0
- Axel Óskar Andrésson lék allan leikinn
með Örebro sem er í fimmta sæti.
Noregur
B-deild:
Ranheim – Start....................................... 2:2
- Bjarni Mark Antonsson lék ekki með
Start vegna meiðsla.
Bandaríkin
Orlando Pride – Chicago........................ 2:4
- Gunnhildur Yrsa Jónsdóttir lék fyrstu 67
mínúturnar með Orlando.
LA Galaxy – Houston Dynamo .............. 0:3
- Þorleifur Úlfarsson skoraði þriðja mark
Houston og var skipt af velli á 70. mínútu.
50$99(/:+0$
Þorleifur Úlfarsson skoraði sitt
fyrsta mark í bandarísku MLS-
deildinni í knattspyrnu í fyrrinótt
þegar lið hans Houston Dynamo
lagði hið þekkta lið Los Angeles
Galaxy á útivelli, 3:0. Þorleifur var í
annað sinn í byrjunarliði Dynamo í
fyrstu þrettán umferðunum og
skoraði markið með skemmtilegum
tilþrifum á 62. mínútu. Þorleifur,
sem er 21 árs sóknarmaður, kom til
Dynamo frá Breiðabliki í vetur en
lék fram að því aðallega með Vík-
ingi í Ólafsvík og Augnabliki í
fyrstu og þriðju deild.
Fyrsta mark
Þorleifs í MLS
Ljósmynd/Jón Helgi Pálmason
Skoraði Þorleifur Úlfarsson í leik
með Breiðabliki í fyrrasumar.
Kristján Örn Kristjánsson, lands-
liðsmaður í handknattleik, er einn
þriggja leikmanna sem tilnefndir
eru í kjöri á bestu örvhentu skytt-
unni í franska handboltanum í vet-
ur. Kristján hefur átt mjög gott
tímabil með Aix sem er í þriðja
sæti, á eftir París SG og Nantes,
þegar fjórar umferðir eru eftir.
Kristján hefur skorað 126 mörk
fyrir Aix og er fjórtándi marka-
hæsti leikmaður 1. deildarinnar.
Um leið er Kristján einn af þeim 29
sem koma til greina í kosningu á
besta leikmanni deildarinnar.
AFP
Aix Kristján Örn Kristjánsson hefur
skorað 126 mörk á tímabilinu.
Kristján í hópi
þeirra bestu
ÍBV – ÞÓR/KA 5:4
0:1 Sandra María Jessen 8.
0:2 Sandra María Jessen 20.
0:3 Tiffany McCarty 28.
1:3 Kristín Erna Sigurlásdóttir 40.
2:3 Olga Sevcova 45.
3:3 Ragna Sara Magnúsdóttir 51.
3:4 Tiffany McCarty 70.
4:4 Hanna Kallmaier 77.
5:4 Selma Björt Sigursveinsdóttir 90.
MM
Sandra María Jessen (Þór/KA)
M
Júlíana Sveinsdóttir (ÍBV)
Ameera Hussen (ÍBV)
Kristín Erna Sigurlásdóttir (ÍBV)
Olga Sevcova (ÍBV)
Saga Líf Sigurðardóttir (Þór/KA)
Tiffany JMcCarty (Þór/KA)
Rautt spjald: Saga Líf Sigurðardóttir
(Þór/KA) 75.
Dómari: Guðmundur Ingi Bjarnason – 7.
Áhorfendur: 202.
KR – AFTURELDING 1:0
1:0 Marcella Barberic 87.
M
Björk Björnsdóttir (KR)
Rasamee Phonsongkham (KR)
Margaux Chauvet (KR)
Hildur Lilja Ágústsdóttir (KR)
Marcella Barberic (KR)
Ólína Ágústa Valdimarsdóttir (KR)
Christina Clara Settles (Aftureldingu)
Hildur K. Gunnarsdóttir (Aftureldingu)
Dómari: Guðgeir Einarsson – 8.
Áhorfendur: 212.
KEFLAVÍK – ÞRÓTTUR 1:2
0:1 Murphy Agnew 22.
1:1 Dröfn Einarsdóttir 60.
1:2 Freyja Karín Þorvarðardóttir 90.
M
Dröfn Einarsdóttir (Keflavík)
Samantha Leshnak (Keflavík)
Silvia Leonessi (Keflavík)
Caroline Van Slambrouck (Keflavík)
Murphy Agnew (Þrótti)
Sóley María Steinarsdóttir (Þrótti)
Freyja Karín Þorvarðardóttir (Þrótti)
Sæunn Björnsdóttir (Þrótti)
Elísabet Freyja Þorvaldsdóttir (Þrótti)
Dómari: Gunnar Freyr Róbertsson – 8.
Áhorfendur: 210.
STJARNAN – SELFOSS 3:1
1:0 Heiða Ragney Viðarsdóttir 18.
1:1 Miranda Nild 50.
2:1 Jasmín Erla Ingadóttir 65.
3:1 Katrín Ásbjörnsdóttir 88.
M
Sædís Rún Heiðarsdóttir (Stjörnunni)
Betsy Hassett (Stjörnunni)
Jasmín Erla Ingadóttir (Stjörnunni)
Chanté Sandiford (Stjörnunni)
Ingibjörg Lúcía Ragnarsd. (Stjörnunni)
Brenna Lovera (Selfossi)
Sif Atladóttir (Selfossi)
Dómari: Ásmundur Þór Sveinsson – 7.
Áhorfendur: 143.
_ Liðsuppstillingar, gul spjöld, viðtöl og
greinar um leikina – sjá mbl.is/sport/fot-
bolti.
BESTA DEILDIN
Víðir Sigurðsson
vs@mbl.is
Þróttur er í efsta sæti Bestu deildar
kvenna í fótbolta eftir dramatískan
sigur í Keflavík í gærkvöld, 2:1. Val-
ur gæti náð efsta sætinu á ný í kvöld
en þá leika Íslandsmeistararnir við
bikarmeistara Breiðabliks í sann-
kölluðum stórleik á Kópavogsvelli.
Þróttarkonur eru hinsvegar
komnar í þá stöðu að þær verða efst-
ar að sjöttu umferðinni lokinni, vinni
Breiðablik sigur á Val í kvöld, og það
er stór áfangi í uppbyggingu liðsins í
Laugardalnum. Þróttur náði sínum
besta árangri í fyrra, þriðja sætinu.
Freyja Karín Þorvarðardóttir, 18
ára Norðfirðingur, skoraði sigur-
markið með laglegum skalla rétt
fyrir leikslok. Freyja var marka-
drottning 2. deildar í fyrra þegar
hún skoraði 22 mörk fyrir Fjarða-
byggð/Hött/Leikni, meistaralið
deildarinnar.
_ Murphy Agnew skoraði sitt
fjórða mark í þremur leikjum með
Þrótti þegar hún kom liðinu yfir í
fyrri hálfleiknum í Keflavík. Dröfn
Einarsdóttir jafnaði fyrir heimakon-
ur með laglegu skallamarki.
Keflavíkurliðið hefur hikstað eftir
góða byrjun í vor og aðeins náð í eitt
stig og skorað tvö mörk í síðustu
fjórum leikjum.
Stjarnan stöðvaði Selfoss
Selfyssingar urðu síðasta lið
deildarinnar til að tapa leik og urðu
að sætta sig við ósigur gegn Stjörn-
unni í Garðabænum, 3:1.
Stjörnukonur eru þar með í fjórða
sætinu í hnífjafnri toppbaráttunni
og komnar með tíu stig en þetta var
þriðji sigur þeirra í fyrstu sex um-
ferðunum.
_ Heiða Ragney Viðarsdóttir,
miðjumaður Stjörnunnar, lék sinn
100. leik í efstu deild og hélt upp á
það með því að koma Garðabæjarlið-
inu yfir, 1:0, á 18. mínútu. Hennar
þriðja mark í þessum 100 leikjum.
_ Taílenska landsliðskonan Mir-
anda Nild jafnaði með sínu fyrsta
marki fyrir Selfyssinga, laglegu
skallamarki.
_ Jasmín Erla Ingadóttir skoraði
sitt fjórða mark í deildinni í vor þeg-
ar hún kom Stjörnunni í 2:1 með lag-
legu skoti um miðjan síðari hálfleik.
_ Katrín Ásbjörnsdóttir innsigl-
aði síðan sigur Stjörnunnar með
þriðja marki sínu á tímabilinu.
Ótrúlegur sigur ÍBV
Varamaðurinn Selma Björt
Sigursveinsdóttir tryggði ÍBV ótrú-
legan sigur á Þór/KA, 5:4, á Há-
steinsvelli með sigurmarki í uppbót-
artíma en Akureyrarliðið hafði
komist í 3:0 á fyrstu 28 mínútum
leiksins.
ÍBV var með markatöluna 5:4 eft-
ir fimm fyrstu leikina og tvöfaldaði
hana því í 10:8 í þessum eina leik.
Þetta var fyrsti heimasigur Eyja-
liðsins sem lyfti sér upp í efri hluta
deildarinnar.
_ Sandra María Jessen skoraði
tvö fyrstu mörk leiksins fyrir Þór/
KA og Tiffany McCarty skoraði
fyrstu mörk sín fyrir Akureyringa
þegar hún kom þeim í 3:0 og síðan í
4:3 seint í leiknum.
_ Ragna Sara Magnúsdóttir,
varnarmaður ÍBV, skoraði sitt
fyrsta mark í efstu deild, í 46. leikn-
um, þegar hún jafnaði, 3:3, í byrjun
síðari hálfleiks.
_ Saga Líf Sigurðardóttir hjá
Þór/KA fékk rauða spjaldið þegar
liðið var yfir, 4:3, og verður í banni í
næsta leik.
Fyrsti sigur KR án þjálfara
Bandaríski framherjinn Marcy
Barberic tryggði KR sín fyrstu stig
með því að skora sigurmarkið á 87.
mínútu, 1:0, í nýliðauppgjörinu gegn
Aftureldingu á Meistaravöllum.
Jóhannes Karl Sigursteinsson
hætti störfum sem þjálfari KR sólar-
hring fyrir leikinn og þeir Gunnar
Einarsson og Arnar Páll Garð-
arsson stýrðu liðinu til bráðabirgða í
gærkvöld.
Sigurinn galopnar möguleikana
fyrir KR sem hefði setið aleitt eftir á
botninum með tapi en eftir sem áður
er staða beggja nýliðanna erfið þeg-
ar þeir hafa lokið þriðjungi leikja
sinna á Íslandsmótinu.
Freyja kom
Þróttarkonum
í toppsætið
Ljósmynd/Sigfús Gunnar
Ofsakátar Gleði Eyjakvenna var ósvikin í gærkvöld eftir að þær unnu upp
þriggja marka forskot Þórs/KA og sigruðu 5:4 í ótrúlegum leik.
- Átján ára Norðfirðingur skoraði
sigurmarkið á 90. mínútu í Keflavík
Morgunblaðið/Eggert
Umkringdar Jasmín Erla Ingadóttir og Heiða Ragney Viðarsdóttir sem báð-
ar skoruðu fyrir Stjörnuna með stóran hóp Selfyssinga í kringum sig.
_ Knattspyrnuþjálfarinn Freyr Alex-
andersson stýrði liði Lyngby upp í
dönsku úrvalsdeildina í gærkvöld þeg-
ar lið hans gerði jafntefli, 1:1, við Ny-
köbing á útivelli í næstsíðustu umferð
úrslitakeppni B-deildarinnar. Lyngby
er í öðru sæti fyrir lokaumferðina, fjór-
um stigum á undan Hvidovre, og þar
með komið upp. Sævar Atli Magn-
ússon kom inn á sem varamaður hjá
Lyngby í leiknum. Aron Sigurðarson
er líka kominn upp með liði Horsens
en hann lagði upp eitt mark í 4:0 sigri
liðsins gegn Fredericia á útivelli. Hor-
sens er þremur stigum á undan
Lyngby fyrir síðustu umferðina en þá
ræðst hvort þeirra vinnur deildina.
_ Handknattleikskonan Katla María
Magnúsdóttir er komin aftur til liðs
við Selfyssinga eftir tvö ár í Stjörn-
unni. Hún hefur samið við félagið til
þriggja ára en Selfoss tryggði sér í vor
sæti í úrvalsdeildinni á ný eftir fjög-
urra ára fjarveru.
_ Spænski miðjumaðurinn Thiago
missir nær örugglega af úrslitaleik Liv-
erpool gegn Real Madrid í Meist-
aradeildinni á laugardagskvöldið en
Jürgen Klopp, knattspyrnustjóri Liver-
pool, skýrði frá því í gær. Thiago
meiddist á sunnudaginn.
_ Manuel Neuer, einn besti knatt-
spyrnumarkvörður heims um árabil,
framlengdi í gær samning sinn við
Bayern München til sumarsins 2024.
Eitt
ogannað