Morgunblaðið - 01.06.2022, Síða 1
M I Ð V I K U D A G U R 1. J Ú N Í 2 0 2 2
.Stofnað 1913 . 127. tölublað . 110. árgangur .
RÉÐU 75
NÝJA Í FAR-
ALDRINUM
LOVÍSA Á LEIÐ
Í DÖNSKU ÚR-
VALSDEILDINA
ALLT UM HIÐ
UNDURFAGRA
AUSTURLAND
TIL RINGKØBING 23 FERÐALÖG 16 SÍÐURVIÐSKIPTAMOGGINN
Fyrirséð var að fasteignamat
myndi hækka verulega á þessu ári
og er „eina skynsamlega við-
bragðið“ að lækka álagningar-
prósentu fasteignaskatts, að mati
Hildar Björnsdóttur, oddvita Sjálf-
stæðisflokksins í Reykjavík. Engin
svör bárust um fyrirætlanir flokk-
anna sem nú eiga í meirihluta-
viðræðum þar þegar Morgunblaðið
leitaði viðbragða.
Mörg önnur sveitarfélög á höfuð-
borgarsvæðinu, t.a.m. Kópavogur,
Hafnarfjörður og Garðabær, ætla
að bregðast við hækkun fasteigna-
mats með lækkun álagningar-
prósentu fasteignaskatts.
Heildarmat fasteigna á Íslandi
hækkar um 19,9% frá yfirstandandi
ári og verður 12.627 milljarðar
króna, samkvæmt nýju fasteigna-
mati Þjóðskrár Íslands fyrir árið
2023. Hækkunin er sú mesta eftir
efnahagshrunið árið 2008. Er hún
umtalsvert meiri en sú sem var til-
kynnt fyrir ári þegar fasteignamat
hækkaði um 7,4% á landinu.
Eins og áður segir er ekki skýrt
hvernig þeir flokkar sem nú eiga í
meirihlutaviðræðum í Reykjavík líta
á málið. Hildur er aftur á móti
þeirrar skoðunar að lækka eigi
álagningarhlutfall á fasteignaskatta:
„Þetta var eitt af stóru kosninga-
málum okkar í baráttunni í borginni
nú í vor – að lækka fasteignagjöldin.
Það var náttúrlega fyrirséð að fast-
eignamat myndi hækka mikið og
þessi hækkun sem var kynnt í [gær]
er meira að segja langt umfram
spár,“ segir Hildur um málið. „Eina
skynsamlega viðbragðið við svona
hækkun er að lækka álagningar-
prósentuna til samræmis. Það kost-
ar ekki meira að þjónusta fasteigna-
eigendur þó að matið hækki.“ »4
„Eina skynsam-
lega viðbragðið“
- Ekkert heyrst frá viðræðuflokkum
Sól logaði í gluggum Dómkirkjunnar þegar
hún var máluð í upphafi viku. Dómkirkjusöfn-
uðurinn ber ábyrgð á rekstri og viðhaldi kirkj-
unnar en hún er friðuð rétt eins og safnaðar-
heimili hennar. Dómkirkjan var vígð árið 1796
en hún var fyrsta byggingin sem reist var
eftir Þóri Stephensen. Bendir Þórir á að tæpri
öld síðar hafi alþingishúsið verið reist en það
stendur við hlið Dómkirkjunnar.
sérstaklega með tilliti til þess að Reykjavík
skyldi verða höfuðstaður Íslands, að því er
fram kemur í bókinni Sögu Dómkirkjunnar
Morgunblaðið/Eggert
Merkri byggingu haldið við
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Flugumferð á Keflavíkurflugvelli í
maí var 9% umfram spá í vor sam-
kvæmt bráðabirgðatölum sem Isavia
tók saman fyrir Morgunblaðið.
„Við gerum ráð fyrir að um 490
þúsund farþegar hafi farið um Kefla-
víkurflugvöll í nýliðnum maímánuði
samkvæmt bráðabirgðatölum okkar
sem á eftir að yfirfara,“ segir Guð-
mundur Daði Rúnarsson, fram-
kvæmdastjóri viðskipta og þróunar
hjá Isavia, um flugumferðina.
84% af fjöldanum í maí 2019
„Það er um 9% meira en uppfærð
farþegaspá, sem gefin var út fyrir
tæpum mánuði, gerir ráð fyrir og
tæplega 84% endurheimt frá far-
þegafjöldanum í maí 2019. Það þarf
að fara aftur til október 2019 til að
finna mánuð þar sem farþegar um
Keflavíkurflugvöll voru fleiri. Það
stefnir því í að endurheimt heildar-
fjölda farþega í ár verði um eða yfir
þeim 5,7 milljónum sem við áætlum í
farþegaspánni enda skynjum við
mikla jákvæðni hjá viðskiptavinum
okkar og ferðaþjónustunni allri með
framhaldið,“ segir Guðmundur.
Minnir á uppgangsárin
Haldi ferðamönnum áfram að
fjölga umfram spár mun það hafa
mikil áhrif á vinnumarkaðinn.
Unnur Sverrisdóttir forstjóri
Vinnumálastofnunar segir stöðuna á
vinnumarkaði minna á fyrstu árin í
uppgangi ferðaþjónustunnar. Stofn-
unin spái því að atvinnuleysi haldi
áfram að minnka og verði 3,9% í
september en það var 4,5% í apríl.
Sömu sögu má segja um verslun
en Andrés Magnússon fram-
kvæmdastjóri SVÞ segir það mikla
áskorun að manna störf í verslun.
Þá eru iðngreinarnar á siglingu og
segir Ingólfur Bender aðalhagfræð-
ingur SI í samtali við Viðskipta-
Moggann að vegna skorts á vinnuafli
verði erfitt að viðhalda vextinum.
Flugumferð í Keflavík
hefur aukist umfram spár
- Vöxtur í maí 9% umfram spá - Spenna á vinnumarkaði
Morgunblaðið/Eggert
Í Leifsstöð Nærri hálf milljón
farþega fór um völlinn í maí.