Morgunblaðið - 01.06.2022, Síða 2
2 FRÉTTIR
Innlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 1. JÚNÍ 2022
COSTA DEL SOL
FJÖLSKYLDAN SAMAN Í SÓL
09. - 20. JÚNÍ
MYRAMAR FUENGIROLA 3*
ÍBÚÐ MEÐ 1 SVEFNHERBERGI
VERÐ FRÁ97.500 KR
Á MANN M.V. 2 FULLORÐNA OG 2 BÖRN
VERÐ FRÁ 147.500 KR. Á MANN M.V. 2 FULLORÐNA
09. - 20. JÚNÍ
ALUASUN HOTEL 4*
HERBERGI MEÐ HÁLFU FÆÐI
VERÐ FRÁ136.900 KR
Á MANN M.V. 2 FULLORÐNA OG 2 BÖRN
VERÐ FRÁ 153.500 KR. Á MANN M.V. 2 FULLORÐNA
INNIFALIÐ Í VERÐI, FLUG, GISTING, INNRITAÐUR FARANGUR OG HANDFARANGUR. BÓKAÐU ÞITT SÆTI Á UU.IS
H
Á
LFT
FÆ
Ð
I
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Andrés Magnússon andres@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is
Viðskipti Gísli Freyr Valdórsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Winkel Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf.
Kyrrstæðar mannverur, brynju-
klæddar og ögrandi, sem standa
andspænis varnarlausum, kynlaus-
um fígúrum, sem bjóða valdinu birg-
inn. Þetta eru andstæðurnar í
Brynjum, útilistaverki Steinunnar
Þórarinsdóttur myndhöggvara sem
sett hefur verið upp á torginu fram-
an við Hallgrímskirkju á Skóla-
vörðuholti.
Verkið verður til sýnis í allt sum-
ar og er hluti af Listahátíð í Reykja-
vík. Hátíðin, sem hefst í dag, stend-
ur til 19. júní og byggist á langri
sögu þar sem leiðarljósið er að
kynna kraumandi stefnur og
strauma í kúnstverki heimsins fyrir
fólki.
Hugmyndina að verkinu Brynjum
fékk Steinunn þegar hún dvaldi í
New York fyrir nokkrum árum. Í
Metropolitan-listasafninu veitti hún
eftirtekt brynjum; herklæðum sem
eru tákn valds og ofbeldis. Steinunn
er með þekktari myndlistarmönnum
Íslendinga, verk sín hefur hún sýnt
víða um lönd og Brynjurnar bæði í
New York og Kaupmannahöfn
Brynjur
bjóða valdi
birginn
Morgunblaðið/Hákon
Heimili landsins áttu eignir upp á
tæplega 8.500 milljarða króna um
seinustu áramót og jukust eignir
þeirra um 10,6% á síðasta ári.
Fasteignaeigendum fjölgaði um
3.455 í fyrra skv. skattframtölum
en skuldir heimila hér á landi voru
í lok síðasta árs 2.615 milljarðar
króna og hækkuðu þær um 9,9% á
milli ára.
Þessar upplýsingar koma fram í
samantekt fjármálaráðuneytisins
upp úr gögnum ríkisskattstjóra um
álagningu opinberra gjalda á ein-
staklinga, sem birt var í gær.
Framteljendum fjölgaði um
5.056 á seinasta ári og töldu fram
rúmlega tvö þúsund milljarða
króna í skattskyldar tekjur. 234
þúsund einstaklingar þurfa að
greiða álagðan tekjuskatt og fækk-
aði þeim um tæp 1.600 á milli ára.
Fram kemur að bæði tekjuskatts-
og útsvarsstofn landsmanna hækk-
aði um 7,2% í fyrra. „Í fyrsta sinn
var heimilt að draga frá tekju-
skatts- og útsvarsstofni gjafir og
framlög til skráðra almannaheilla-
félaga. Samtals nýttu 20.473 ein-
staklingar þetta úrræði og drógu
416 [milljónir kr.] frá tekjuskatts-
og útsvarsstofni sínum. Þá er frá-
dráttur vegna kaupa á hlutabréfum
samtals 348 [milljónir kr.] sem er
227 [milljóna kr.] hækkun frá fyrra
ári,“ segir í samantektinni.
Söluhagnaður þrefaldast
Í ljós kemur samkvæmt fram-
tölum að 28.673 fjölskyldur sem
töldu fram fjármagnstekjur fá á
sig samtals 38,6 milljarða kr.
álagðan fjármagnstekjuskatt.
Hækkaði hann í fyrra um 73% á
milli ára. Fjölskyldum sem gert er
að greiða fjármagnstekjuskatt
fjölgaði um 3.278 frá fyrra ári og
greiðir hver fjölskylda að meðaltali
1,3 milljónir kr. í fjármagnstekju-
skatt, sem er 53% hækkun frá
árinu á undan. Uppgefnar
fjármagnstekjur jukust töluvert
þar sem þær hækkuðu í fyrra um
65 milljarða kr. og voru samtals
181 milljarður, sem er 57% hækk-
un.
„Mest er hækkunin í söluhagnaði
sem tæplega þrefaldast milli ára
og nemur 74,4 [milljörðum kr.] og
er stærsti einstaki liður fjármagns-
tekna. Söluhagnaður hlutabréfa er
69,6 [milljarðar kr.] en annar sölu-
hagnaður nemur 4,8 [milljörðum
kr.]. Fjöldi fjölskyldna sem höfðu
hagnað af sölu hlutabréfa er 9.718
og eykst um 6.737 á milli ára.“
Greiðslur barnabóta verða 13,7
milljarðar vegna tekna í fyrra,
vaxtabætur lækka um 13,1% milli
ára.
Eignir heimilanna jukust um 10,6%
- Fjármagnstekjuskattur hækkaði um 73% - 20 þúsund nýttu frádrátt vegna gjafa og framlaga
Kristján Jónsson
kris@mbl.is
Framkvæmdastjóri leigubifreiða-
stöðvarinnar BSR segir ekki veita af
því að fjölga leyfum til bifreiðaaksturs
eins og fyrirhugað er.
Innviðaráðherrann Sigurður Ingi
Jóhannsson hefur ákveðið að fjölga
atvinnuleyfum til leigubifreiða-
aksturs um hundrað á höfuðborgar-
svæðinu og Suðurnesjum samkvæmt
tilkynningu frá ráðuneytinu á dögun-
um.
Fram hefur komið á undanförnum
vikum og mánuðum að leigubifreiðum
á höfuðborgarsvæðinu gangi illa að
anna eftirspurninni eftir að lífið á Ís-
landi komst í eðlilegra horf eftir
heimsfaraldurinn.
Ekki liggur fyrir hvenær leyfunum
hundrað verður úthlutað eða hvort
nógu margir sæki um þau yfirleitt. Í
heimsfaraldrinum skiluðu margir
leigubílstjórar inn leyfum og fundu
sér annað starf. Nýlega úthlutaði
Samgöngustofa aftur á móti 45 leyf-
um og því ættu viðskiptavinir að finna
fyrir einhverri fjölgun leigubíla.
„Við á BSR fögnum því bara að
leyfum sé fjölgað og þessu sé haldið í
jafnvægi þannig að bílstjórarnir hafi
nóg að gera og viðskiptavinirnir fái
góða þjónustu. Þannig viljum við hafa
það,“ sagði Guðmundur Börkur Thor-
arensen, framkvæmdastjóri BSR,
þegar blaðamaður bar undir hann
yfirlýsinguna frá ráðuneytinu um
ákvörðun ráðherra. Guðmundur hafði
í vetur kallað eftir því að leyfum yrði
fjölgað.
„Það veitti ekki af þessum hundrað.
Ég hafði áður komið fram í fjölmiðl-
um og sagt að það þyrfti 150 til 200
leyfi. Þetta er svolítið seint í rassinn
gripið því sumarið er komið og ferða-
mennirnir eru komnir,“ sagði Guð-
mundur Börkur.
Ekki veitir af
úthlutun leyfa
- Svolítið seint í rassinn gripið
Morgunblaðið/Unnur Karen
Leigubíll BSR fagnar fleiri leyfum.