Morgunblaðið - 01.06.2022, Page 4

Morgunblaðið - 01.06.2022, Page 4
4 FRÉTTIR Innlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 1. JÚNÍ 2022 Lilja Hrund Ava Lúðvíksdóttir Steinþór Stefánsson Anton Guðjónsson Sveitarfélög á höfuðborgarsvæðinu munu mörg bregðast við hækkun fasteignamats með lækkun álagning- arprósentu fasteignaskatts. Ekki fengust svör frá þeim flokkum sem nú ræða meirihlutasamstarf í Reykjavík um hvort sú leið verði far- in þar þegar blaðamaður leitaði eftir svörum frá flokkunum í gærkvöldi. Heildarmat fasteigna á Íslandi hækkar að meðaltali um 19,9 prósent frá yfirstandandi ári og verður 12.627 milljarðar króna samkvæmt nýju fasteignamati Þjóðskrár Íslands fyrir árið 2023 sem greint var frá á þriðju- dag. Er þetta mesta hækkun fast- eignamats hér á landi frá hruni. „Framboð á íbúðarhúsnæði er minna en eftirspurnin. Við höfum heyrt í fjölmiðlum núna að það vanti fleiri íbúðir á markaðinn og það er spenna á markaðnum sem veldur auðvitað hækkun á verði,“ sagði Tryggvi Már Ingvarsson, framkvæmdastjóri fast- eigna Þjóðskrár, um málið. Af einstökum sveitarfélögum hækkar heildarfasteignamat mest í Hveragerðisbæ og Árborg, um rúm 32 prósent. Bragi Bjarnason, oddviti hreins meirihluta Sjálfstæðisflokks- ins í Árborg, segir sveitarstjórnina þar munu leita leiða til að koma til móts við íbúa í ljósi hækkunarinnar. „Þetta er rosalega hátt stökk í Ár- borg. Ný bæjarstjórn mun klárlega horfa til þess hvernig við getum kom- ið til móts við íbúana. Okkar stefnu- skrá var að skapa forsendur til þess að lækka álögur á íbúa og fyrirtæki og við munum skoða allt sem við get- um til að koma til móts við þetta,“ segir Bragi. Í Ölfusi hækkaði fasteignamat á sérbýli um 36 prósent og á fjölbýli um rúm 30 prósent. Elliði Vignisson sveitarstjóri segir að áfram verði álagningarhlutfall lækkað til að koma til móts við hækkanir á fasteignamati, líkt og verið hefur síðustu fjögur ár. „Við höfum verið að lækka álagning- arprósentuna í fasteignagjöldunum á móti. Fasteignagjöldin eru svolítið ósanngjarn skattur sem þarf að end- urskoða og við höfum verið að reyna að stemma stigu við að skattur á heimili fólks sé ráðandi í tekju- streyminu. Okkar stefna hefur verið að lækka fasteignagjöldin eftir því sem matið hefur hækkað,“ segir Elliði. Kraginn samstiga Ásdís Kristjánsdóttir, nýr bæjar- stjóri Kópavogs, segir að í málefna- sáttmála nýs meirihluta Kópavogs sé tiltekið að fasteignaskattar lækki til móts við frekari hækkun fasteigna- verðs. Þannig sé komið til móts við hækkun fasteignamats. Rósa Guðbjartsdóttir bæjarstjóri Hafnarfjarðar segir sömuleiðis að álagningarhlutfall fasteignagjalda verði lækkað í takt við hækkun fasteignamats líkt og hefur verið gert síðustu ár. „Það er líka kveðið á um það í málefnasamningnum okkar að halda álögum og gjöldum í lágmarki og reyna að lækka þau. Við munum gera það áfram – það verður vænt- anlega tekið tillit til verðbólgu en við munum koma til móts við þessa hækkun á fasteignamati,“ segir Rósa. Almar Guðmundsson, oddviti hreins meirihluta Sjálfstæðisflokks- ins í Garðabæ, segir það áfram stefnu flokksins í bæjarstjórn að lækka álög- ur á íbúa: „Við höfum undanfarin ár lækkað álagningarhlutfallið á móti þessari hækkun á stofninum og við ætlum að gera það áfram – það var alveg skýrt í stefnu okkar fyrir kosningar. Nú leggjum við þetta fyrir umræðu um fjárhagsáætlun fyrir 2023, að lækka hlutfallið þannig að sú hækkun sem verður á fasteignamati skili sér ekki í álagningunni til íbúa,“ segir Almar og bætir við: „Ásetningur okkar er að þetta hafi ekki áhrif á bæjarbúa.“ Þögull meirihluti Ekki náðist í Dag B. Eggertsson borgarstjóra vegna þessa né heldur Dóru Björt Guðjónsdóttur oddvita Pírata og Þórdís Lóa Þórhallsdóttir oddviti Viðreisnar var ekki laus til viðtals. Þá náðist ekki í Einar Þor- steinsson, oddvita Framsóknar í borginni, við vinnslu fréttarinnar. Hildur Björnsdóttir, oddviti Sjálf- stæðisflokksins í Reykjavík, er þeirr- ar skoðunar að lækka eigi álagning- arhlutfall á fasteignaskatta: „Þetta var eitt af stóru kosninga- málum okkar í baráttunni í borginni nú í vor – að lækka fasteignagjöldin. Eina skynsamlega viðbragðið við svona hækkun er að lækka álagning- arprósentuna til samræmis,“ segir Hildur. Bregðast við hækkun fasteignamats - Sveitarfélög ætla mörg að lækka álagningarhlutfall fasteignaskatta - Fasteignamat hefur ekki hækkað meira frá hruni - Leiðtogar meirihlutans og Framsóknarflokks í Reykjavík þöglir Morgunblaðið/Hákon Húsnæði í borginni Ekki náðist í fulltrúa þeirra flokka sem nú ræða meirihlutasamstarf í Reykjavík í gærkvöldi. lækka álagningarprósentu. Það er þó mismunandi á milli sveitarfélaga og tegunda fasteigna. Íbúðir hækka meira Mikill munur er á mati einstakra flokka fasteigna. Þannig hækkaði samanlegt mat íbúða á öllu landinu um 23,6% en atvinnuhúsnæði hækk- aði um 10,2%. Fasteignamat sum- arhúsa hækkaði um 20,3%. Ef litið er á íbúðamatið sést að íbúðir í sér- býli hækka um 23,6% á milli ára og fjölbýli um 21,6%. Íbúðamat á landsbyggðinni hækkar jafn mikið og á höfuðborg- arsvæðinu. Ef litið er á einstök sveitarfélög sést að íbúðarhús hækka mest í Fljótsdalshreppi, um 38,9%, og 36,6% í Sveitarfélaginu Árborg og Hveragerðisbæ. Íbúðar- húsnæði hækkar alls staðar í mati. Minnst þó í Dalvíkurbyggð, 6,2%, og í Hörgarsveit og Skútustaða- hreppi, um 8,5% í báðum sveitar- félögunum. Suðurland tekur fram úr Eins og fyrr segir hækkar heild- armat fasteigna, íbúða, atvinnuhús- næðis og sumarhúsa um 19,9% í nýju fasteignamati. Mesta hækkun- in er á Suðurlandi, 22,4%. Höfuð- borgarsvæðið kemur næst á eftir með 20,2%, síðan Vestfirðir, Suð- urnes, Norðurland eystra og Vest- urland með á bilinu 18 til rúmlega 19% hækkun. Minnsta hækkunin er á Austurlandi, 14,9%, og á Norður- landi vestra, 15,2%. Ef litið er til einstakra sveitar- félaga í heildarmatinu sést að matið hækkaði mest í Hveragerðisbæ, um 32,3%, litlu minna í Sveitarfélaginu Árborg og síðan 29,3% í Skorradals- hreppi. Minnsta hækkun er í Dal- víkurbyggð, eða um 8,1%, og 9,3% í Dalabyggð og Skútustaðahreppi. Við samanburð á sveitarfélögum á höfuðborgarsvæðinu sker í augu að matið á Seltjarnarnesi hækkaði aðeins um 15,3% þrátt fyrir að þar sé hátt hlutfall íbúðarhúsnæðis. Á hinn bóginn hækkaði fasteignamat í Garðabæ mest, um 24,1%. Matið í Reykjavík hækkaði næstminnst á milli ára, af sveitarfélögum höfuð- borgarsvæðisins, um 18,7%. Það kann að skýrast að hluta til af því að mikið atvinnuhúsnæði er í borginni og mat þess hækkaði aðeins um 10,2% á landinu í heild. Öll sveit- arfélögin í kringum Reykjavík, önn- ur en borgin og Seltjarnarnes, hækkuðu yfir 21%. Upplýsingar á vefnum Eigendur fasteigna geta eftir 15. júní fundið tilkynningu um fast- eignamat eigna þeirra á vefnum island.is. Á vef Þjóðskrár, skra.is, má fletta upp á breytingum á fast- eignamati milli ára. Geta eigendur fasteigna og aðrir kynnt sér breyt- ingar á einstökum eignum sem og þróun á milli ára eftir landsvæðum og mismunandi tegundum eigna. Mesta hækkunin í Hveragerði - Heildarmat fasteigna á landinu sem tekur gildi um næstu áramót hækkar um tæp 20% við endurmat - Íbúðamat hækkar meira eða um 23,6% - Fasteignamat atvinnuhúsnæðis hækkar aðeins um 10,2% 19,9% 23,6% 25,4% 21,6% 10,2% 20,3% Fasteignamat 2023* Hækkun fasteignamats eftir gerð fasteigna Heildarmat fasteigna á landinu Samanlagt mat íbúða á öllu landinu Íbúðir í sérbýli Íbúðir í fjölbýli Atvinnuhúsæði Sumarhús Hækkun fasteignamats eftir landshlutum *Fasteignamat 2023 miðast við verðlag fasteigna í febrúar 2022 og tekur gildi 31.desember 2022 Heimild: Hagstofa Íslands 19,9% hækkun heildar- mats frá 2022 25,4% hækkun fasteigna- mats íbúða í sérbýli Höfuðborgarsvæðið 20,2% Norðurland-Vestra 15,2% Norðurland-Eystra 18,8% Austurland 14,9% Suðurland 22,4% Vesturland 18,1% Vestfirðir 19,3% Suðurnes 18,8% SVIÐSLJÓS Helgi Bjarnason helgi@mbl.is Fasteignamat hefur hækkað mest á Suðurlandi á milli ára eða yfir 22%. Þegar litið er á einstök sveitarfélög sést að langmesta hækkunin er í Hveragerði og Sveitarfélaginu Ár- borg, liðlega 32%. Eru þetta einu sveitarfélög landsins þar sem hækkun er yfir 30%. Til saman- burðar má geta þess að hækkunin í Reykjavík nemur innan við 19%. Þjóðskrá Íslands endurmetur ár- lega langflestar fasteignir í landinu út frá nýjustu matsforsendum og byggir meðal annars á upplýsingum úr þinglýstum kaupsamningum. Má því telja að matið endurspegli hækkun söluverðs fasteigna á milli ára. Nýja fasteignamatið miðast við verðlag fasteigna í febrúar á þessu ári. Það tekur gildi 31. desember næstkomandi og gildir fyrir árið 2023. Gjöld gætu hækkað Heildarmat fasteigna á Íslandi hækkar um tæp 20%, nánar til tekið 19,9%, frá yfirstandandi ári. Heild- armatið er 12.627 milljarðar króna og á bak við það standa 213.785 eignir á fasteignaskrá. Þetta er margfalt meiri hækkun en sést hef- ur undanfarin ár. Þannig hækkaði matið um 7,4% á landinu öllu fyrir ári og þótti mörgum nóg um. Hækkun matsins hefur einkum þau áhrif á einstaklinga og fyrir- tæki að fasteignaskattur og fleiri fasteignagjöld hækka að óbreyttu. Mörg sveitarfélög hafa raunar dregið úr áhrifum hækkunar mats- ins á undanförnum árum með því að

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.