Morgunblaðið - 01.06.2022, Page 8
8 FRÉTTIR
Innlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 1. JÚNÍ 2022
Álfheimum 74, 104 Rvk, sími 568 5170
Verið velkomin
Vesti • Kjólar Peysur
Bolir • Jakkar • Blússur
Buxur • Pils
SUMAR-
VÖRUR
Vinsælu velúrgallarnir
Nýjir litir - Stærðir S-4XL
Einnig stakar velúrbuxur
í svörtu, gráu og dökkbláu
Fjölmiðlarýnirinn Örn Arnarson
á Viðskiptablaðinu tók eftir því
„að um kvöldmatarleytið á kjördag
hafi verið birt eftirfarandi frétt á
kosningaþræði sem
blaðamenn á Vísi
spunnu fram á taln-
ingarnóttina:
- - -
Þó nokkur munur
er á fylgi flokkanna í Reykjavík
á kjörfundi og utan kjörfundar.
- - -
Sjálfstæðisflokkurinn hlaut til að
mynda 28,5 prósent atkvæða
sem greidd voru utan kjörfundar en
aðeins 23 prósent á kjörfundi.
- - -
Kjósendur Samfylkingarinnar
voru sömuleiðis líklegri til að
kjósa fram í tímann en munurinn
var þó aðeins tvö prósent.
- - -
Kjósendur Sósíalistaflokks Ís-
lands eru þeir líklegustu til að
mæta á kjördag en flokkurinn hlaut
átta prósent atkvæða sem greidd
voru á kjörfundi en fimm prósent ut-
an.
- - -
Páll Hilmarsson sérfræðingur hjá
Gagnaþjónustu Reykjavíkur
deilir tölfræðinni á twitter-síðu
sinni.“
- - -
Erni þykir þetta merkilegt enda
bendi það til að lög og reglur
hafi verið sveigð og segir að sé þessi
frásögn rétt stangist verknaðurinn
á við ákvæði kosningalaga.
- - -
Og hann nefnir sérstaklega darr-
aðardansinn uppblásna um
meintar brotalamir á talningu at-
kvæða í Norðvesturkjördæmi.
- - -
Af hverju er þessi þögn um þetta
mál?
Hver veit það sem
enginn veit?
STAKSTEINAR
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
Varðskipið Óðinn fékk nýtt haffæri í fyrradag
og fór í prufusiglingu í gærmorgun frá Reykja-
vík. Siglt var upp í mynni Hvalfjarðar í blíðunni.
„Þetta gekk mjög vel. Við prófuðum vélar og
búnað og héldum æfingar,“ sagði Magni Ósk-
arsson skipherra. Fimmtán voru í áhöfn í sigl-
ingunni í gær og var boðið upp á mat í hádeginu.
Sama áhöfn ætlar að sigla Óðni til Grindavíkur
um sjómannadagshelgina 12. júní.
Það var mikið þrekvirki að koma varðskipinu
aftur á skipaskrá. Magni sagði að sjálfboðaliðar
hefðu lagt fram um 15.000 vinnustundir við að
gera skipið sjóklárt á ný. gudni@mbl.is
Varðskipið Óðinn
er orðið haffært
Ljósmynd/Jón Páll Ásgeirsson
Reykjavíkurborg mun á þessu ári
verja allt að 100 milljónum króna
til að bæta aðstöðu á svonefndum
Austurheiðum. Þar eru undir
svæði við Rauðavatn og heiðarlönd
þar norður af. Nú stendur meðal
annars til að merkja gönguleiðir,
merkja, bæta og fjölga stígum og
útbúa leiksvæði, svo sem í Lyngdal
við Rauðavatn. Í svonefndri Skál,
sem stundum er nefnd Paradísar-
dalur og er beint norður af Hádeg-
ismóum þar sem Morgunblaðið er
til húsa, verður aðstaða fyrir
hunda og eigendur þeirra bætt.
Stígur að svæðinu verður breikk-
aður og aðrir stígar lagfærðir.
Settir verða upp bekkir, sett verða
upp auglýsingaskilti og gönguleiðir
merktar.
Gert verður leik- og dvalarsvæði
í skógarstíl í nálægð við Rauðavatn
með tilheyrandi bekkjum, borðum,
leiktækjum og grillaðstöðu. Gerður
verður aðgengilegur stígur frá
bílastæðinu að nýja dvalarsvæðinu
og út frá því eru fjölbreyttar stíga-
tengingar.
Útivistarsvæðið Austurheiðar er
alls um 930 hektara svæði sem nær
yfir austurheiðarnar að mestu,
Hólmsheiði, Grafarheiði og Reyn-
isvatnsheiði. Innan svæðisins eru
Rauðavatn, Reynisvatn og Langa-
vatn að hluta. Verkefnið er í sam-
ræmi við samþykkt aðalskipulag
Reykjavíkurborgar og styður við
stefnu borgarinnar um að efla lýð-
heilsu og gera öll útivistarsvæði
fólki aðgengileg. sbs@mbl.is
Austurheiðar nýtt úti-
vistarsvæði Reykjavíkur
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Paradísardalur Útbúin verður aðstaða fyrir fólk með hunda sína á göngu.