Morgunblaðið - 01.06.2022, Page 13

Morgunblaðið - 01.06.2022, Page 13
13 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 1. JÚNÍ 2022 Tjörn Þoka læddist eftir Reykjavíkurtjörn og veitti henni allt að því dulrænt yfirbragð. Þó að sólin hafi legið í felum stærstan hluta dags í gær var hlýtt í veðri og spókaði fólk sig í miðbænum. Hákon Um það verður ekki deilt að ástand á hús- næðismarkaði, ekki síst á höfuðborg- arsvæðinu, er óvið- unandi. Markaðurinn er í ójafnvægi, hvort heldur litið er til fram- boðs og eftirspurnar íbúða til eignar eða leigu. Í raun er val- frelsi fólks í húsnæðis- málum skert. Þeir sem vilja kaupa neyðast til að leigja og þeir sem vilja fremur leigja eru þvingaðir til skuld- setningar og kaupa á íbúð. Að eiga þak yfir höfuðið er ein af grunnþörfum okkar allra. Húsnæð- isöryggi skiptir ekki minna máli en að hafa sæmilega vinnu. Það skiptir því alla miklu að húsnæðismarkaðurinn sé heilbrigður – að jafnvægi sé á hverjum tíma milli framboðs og eft- irspurnar. Hér skal það látið liggja á milli hluta hvaða ástæður eru fyrir þeim augljósa vanda sem glímt er við. Eins og svo oft áður vilja fæstir kannast við ábyrgðina en eru tilbúnir til að grafa djúpt í gamlar kistur í þeirri von að þar finnist verkfæri sem auð- velda lausn vandans. Kannski er það vegna mikilvægis húsnæðismark- aðarins sem margir stjórnmálamenn eiga erfitt með að sætta sig við að lög- máli framboðs og eftirspurnar verður ekki breytt í sölum Alþingis, í ráð- húsum eða við samningaborð aðila vinnumarkaðarins. Ekki frekar en þyngdarlögmálinu. Fyrsta skrefið að leiguþaki Fyrir Alþingi liggur stjórnarfrumvarp þar sem m.a. er lögð sú skylda á leigusala að skrásetja alla leigusamn- inga í opinberan gagna- grunn á vegum Hús- næðis- og mannvirkja- stofnunar. Leigusala verður einnig skylt, nái frumvarpið fram að ganga, að afskrá samn- inga og skrá sérstaklega ef breyt- ingar verða á leiguverði á leigutím- anum sem ekki hafa verið tilgreindar í leigusamningi frá upphafi. Ef leigu- sali verður ekki við þessari skyldu, eru lagðar á hann stjórnvaldssektir. Þannig er í raun aðkoma ríkisins að gerð leigusamninga gerð að skilyrði fyrir gildi þeirra og breytingum sem kunna að verða gerðar á leigutím- anum. Ríkið er sem sagt að taka að sér sérstakt eftirlitshlutverk með gerð einkaréttarlegra samninga milli frjálsra einstaklinga. Markmið frumvarpsins er að tryggja að upplýsingar ríkisvaldsins um leigumarkaðinn séu sem réttastar á hverjum tíma. Hægt sé að fylgjast með ýmsu á leigumarkaði, ekki síst þróun leiguverðs. Tekið er fram í greinargerð að þeim upplýsingum, sem safnast í hinn opinbera gagn- grunn Húsnæðis- og mannvirkj- astofnunar við lögþvingaða skráningu allra leigusamninga, sé ætlað að verða grundvöllur frekari breytinga á húsaleigulögum á kjörtímabilinu, til að bæta húsnæðisöryggi og rétt- arstöðu leigjenda. Undirliggjandi virðist því miður vera löngunin að koma á verðlagsþaki á leigu – leigu- þaki. Líklega er mikið til í því að leigu- markaðurinn á Íslandi sé í mörgu van- þroskaður. Ástæða þess er ekki skort- ur á opinberu eftirliti, heldur fremur skortur á hentugum byggingarlóðum og íþyngjandi reglum. Opinber skrán- ingarskylda breytir litlu fyrir stór leigufélög (gæti raunar aukið sam- keppnisforskot þeirra) en getur haft verulega neikvæð áhrif á einstaklinga. Samkvæmt tölum Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar er stærsti hluti leigjenda í húsnæði í eigu einstaklinga eða tæp 42%. Þetta hlutfall hefur hækkað úr 35% árið 2018. Næst á eftir koma leigjendur sem leigja af ætt- ingjum og vinum eða 18%. Hlutfall einkarekinna leigufélaga mælist um 10%, óhagnaðardrifinna um 4,6%, sveitarfélaga 10,2% og stúdentagarða 8,6%. Frumvarpið mun fyrst og síðast hafa áhrif á 60% leigumarkaðarins – einstaklinga sem leigja út íbúð til óskyldra eða ættingja. Auknar skyld- ur, aukin skriffinnska samhliða víð- tækri upplýsingaöflun ríkisins um ástand leiguhúsnæðis, (m.a. með ljós- myndun sem skal skila inn í gagna- grunninn), og hætta á sektum mun draga úr vilja fólks til að leggja út í þann leiðangur að leigja út húsnæði. Það svarar ekki lengur kostnaði og fyrirhöfnin er of mikil. Fjölmargir taka því líklega ákvörðun um að hætta útleigu íbúða – framboðið dregst sam- an og verð hækkar. Það kemur fyrst og síðast niður á þeim sem þurfa eða vilja vera á leigumarkaði. Við getum sagt að afleiðingin verði lítið sýnidæmi um hvað gerist ef verð- lagshöft verða innleidd á leiguverð en krafa um leiguþak er undirliggjandi í málflutningi margra. Skilvirk leið til að eyðileggja borg Nóbelsverðlaunahafinn Gunnar Myrdal, sem oft er sagður arkitekt hugmyndafræði sænskra jafnaðar- manna í velferðarmálum, hélt því fram að þak á leiguverð sé eitt skýr- asta dæmið um vonda stjórnarstefnu í mörgum vestrænum löndum. Assar Lindbeck, landi Myrdals og einn áhrifamesti hagfræðingur Svíþjóðar í áratugi, var sannfærður um að oft sé leiguþak skilvirkasta leiðin til að eyði- leggja borg fyrir utan loftárásir. Sem sagt: Andstaða hagfræðinga við að koma á leiguþaki er þvert á hugmyndafræði og er kannski eitt af því fáa sem sameinar þá. Þak á leigu- verð er afleit hugmynd. Góður hugur snýst upp í andhverfu sína; dregur úr gæðum íbúðarhúsnæðis, framboðið minnkar, eftirspurn eykst og skort- urinn verður meiri. Hér verður ekki gert lítið úr því að góður ásetningur sé að baki, þegar barist er fyrir því að setja þak á leigu. Viljinn til að standa þétt við bakið á þeim sem lakast standa er ríkur. En lækningin verður verri en sjúkdóm- urinn – þetta hefur sagan ítrekað sýnt og sannað. Tilraunir hins opin- bera til að stýra verðlagi enda alltaf með ósköpum og valda meiri skaða en glímt er við. Verðþak á vöru og þjón- ustu leiðir óhjákvæmilega til skorts. Framboðið dregst saman en eftir- spurn eykst. Þetta leystu ráðamenn í löndum sósíalista með biðröðum og skömmtunum. Gömul skilgreining á muninum milli sósíalisma og mark- aðsbúskapar er kaldhæðin en einföld og skiljanleg: Undir skipulagi sósíal- ismans þarft þú að bíða eftir brauð- inu. Undir skipulagi markaðs- búskapar, með öllum sínum göllum, bíður brauðið eftir þér. Hið öfugsnúna við leiguþak, sem ætlað er að verja þá sem hafa úr minnstu að spila, er að það þjónar oft- ar en ekki þeim sem betur eru settir. Hálaunafólk á leigumarkaði nýtur þess að verðþak sé í gildi á sama tíma og láglaunafólk á í erfiðleikum að finna hentugar íbúðir. Framboð íbúða dregst saman; eigendur leigu- húsnæðis hætta að leigja út, þar sem það svarar ekki kostnaði og fjárfestar beina fjármunum í önnur, arðbærari verkefni. Gæðum húsnæðis hrakar, þar sem viðhald íbúða í útleigu situr á hakanum. Sú hætta er raunverulega fyrir hendi að stjórnvöld grípi til ráðstaf- ana og lagasetningar sem gerir slæmt ástand verra, eða eins og segir: Vegurinn til glötunar er oft varðaður góðum ásetningi. Eftir Óla Björn Kárason » Tilraunir til að stýra verðlagi enda alltaf með ósköpum og valda meiri skaða en glímt er við. Verðþak á vöru og þjónustu leiðir til skorts. Óli Björn Kárason Höfundur er alþingismaður Sjálfstæðisflokksins. Vond staða gerð verri Alþjóðlegi mjólkur- dagurinn er haldinn 1. júní ár hvert. Herferð- inni var hrundið af stað af Matvæla- og land- búnaðarstofnun Sam- einuðu þjóðanna til að viðurkenna og leggja áherslu á mikilvægi mjólkur og mjólkur- afurða. Mjólk er heil- fæða og næringarríkari en flestir aðrir drykkir þar sem hún inniheldur öll nauðsynleg næring- arefni sem við þurfum og er hún hlað- in næringarefnum eins og prótíni, A- vítamíni, B1, B2, B12 og D, kalíum og magnesíum, og er talin miklu næring- arríkari en flestir aðrir drykkir. Mjólk er mikilvægur hluti af daglegu mataræði okkar, hvort sem það er í kaffi- eða tebollann okkar, í þeyting- inn eða ísinn, því mjólkin hefur fjöl- breytta notkunarmöguleika, þó að mínu mati njóti hún sín best ein og sér. Mjólk er enn helsti kalkgjafinn Mataræði er einn af veigamestu áhrifaþátt- um heilsu en samkvæmt tölum Alþjóða- heilbrigðismálastofn- unarinnar (WHO) um sjúkdómabyrði fyrir Ís- land er mataræði einn megináhættuþáttur sjúkdóma hér á landi. Samkvæmt upplýsingum frá Land- læknisembættinu hafa landskannanir á mataræði Íslendinga verið fram- kvæmdar frá 1990. Upplýsingarnar sem fást úr landskönnun á mataræði eru mikilvægar til að vinna að heilsu- eflingu og forvörnum gegn lang- vinnum sjúkdómum, t.d. sykursýki 2. Þá nýtast niðurstöðurnar á margan hátt fyrir landsmenn í næringarlegu tilliti og fyrir matvæla- og fæðu- öryggi þjóðarinnar. Eftir Gunnar Þorgeirsson »Mjólk er enn helsti kalkgjafinn í matar- æði Íslendinga. Mjólk- urkýr af íslenska kúa- kyninu framleiða nánast alla mjólk á neytenda- markaði á Íslandi. Gunnar Þorgeirsson Höfundur er formaður Bændasamtaka Íslands. Til hamingju með daginn landsmenn Í mars sl. var birt ný landskönnun á mataræði Íslendinga sem náði yfir tímabilið 2019-2021. Þar kemur fram að mjólkurneysla hefur minnkað frá síðustu könnun en neysla á ostum aukist. Breyting hefur orðið á hvaða tegundir drykkjarmjólkur eru not- aðar, þar sem neysla á nýmjólk hefur aukist frá síðustu könnun en neysla á fituminni mjólkurvörum dregist sam- an. Líklega má rekja þetta til bæði covid og ketó þar sem landsmenn þurftu að halda kósíkvöld á nærri því hverjum degi með kertaljós og osta og árin þar á undan voru allir lands- menn á ketó. Aftur á móti er það mikið áhyggju- efni hjá fiskveiði- og landbúnaðarþjóð að joðneysla hefur minnkað um 20% að meðaltali frá síðustu landskönnun sem var gerð 2018, og er minnst í yngsta aldurshópi kvenna vegna minni mjólkurneyslu og lítillar fisk- neyslu í þeim aldurshópi. Það er nauðsynlegt að tryggja nægjanlegt magn af joði á meðgöngu þar sem þetta næringarefni er mikilvægt fyrir fósturþroska og þroska barnsins eftir fæðingu. Samkvæmt landskönnun- inni eru mjólk og mjólkurvörur enn helstu kalkgjafarnir en meðalneysla á kalki fer minnkandi á milli ára sem rekja má til minni mjólkurneyslu en kalk er uppistöðuefni beina og tanna en 99% af kalki líkamans er að finna í beinum og tönnum. Undirstaðan í fæðuhringnum kemur frá íslenskum bændum Hér á landi eru um 25 þúsund mjólkandi kýr sem skiluðu 6.336 kg nyt að meðaltali, sem eru einar mestu meðalafurðir frá upphafi vega og sjötta árið í röð sem þær ná yfir 6.000 kg eftir árskú. Mjólkurkýr af íslenska kúakyninu framleiða því nánast alla mjólk á neytendamarkaði á Íslandi og þá er lítilsháttar framleitt af geita- mjólk. Íslenskir bændur skila því sannanlega sínu til að viðhalda lífi og góðri heilsu landsmanna en vitað er að prótínið í mjólk inniheldur helstu amínósýrurnar sem þarf til að byggja upp vefi og gera við skemmdar frum- ur í líkama okkar. Mjólk er full af prótínum og er hún uppspretta B- vítamína, en það er sérstaklega B-12-vítamín sem tryggir heilbrigða starfsemi heilans og taugakerfisins. Þá inniheldur mjólk mikið magn af B3-vítamíni sem hjálpar fólki að við- halda stöðugri þyngd og bæta orku- notkun. Kostir þess að neyta mjólkur og mjólkurvara eru því óumdeildir. Í tilefni dagsins og fyrir heilsuna: Til hamingju landsmenn, fáið ykkur mjólk!

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.