Morgunblaðið - 01.06.2022, Qupperneq 21

Morgunblaðið - 01.06.2022, Qupperneq 21
DÆGRADVÖL 21 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 1. JÚNÍ 2022 Hólshraun 3 · 220Hafnarfjörður · Símar: 555-1810, 565-1810 · Netfang: veislulist@veislulist.is · www.veislulist.is Skútan Sjá verð og verðdæmi á heimasíðu okkar www.veislulist.is Fagnaðir Næst þegar þið þurfið pinnamat, smurt brauð eða tertur fyrir útskriftina eða annan mannfagnað, hafðu þá samband og fáðu tilboð í sal okkar og veitingarnar þínar. PINNAMATUR Veislur eru okkar list! Bjóðum uppá fjölda tegundapinnamats og tapasrétta Pinna- og tapasréttir eru afgreiddir á einnota fötum, klárt fyrir veisluborðið. „SEM STENDUR ER BEST AÐ VIÐ HÖLDUM ÞÉR ÚR KASTLJÓSINU – OG KOMUM ÞANNIG Í VEG FYRIR AÐ ÞÚ UNGIST ÚT.“ „ÉG HELD AÐ VIÐ SÉUM BÚNIR AÐ TÝNA SLÓÐINNI.“ Ferdinand Hrólfur hræðilegi Grettir ... að ganga saman arm í arm. Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann BÍÓMYND KVÖLDSINS ER… „RISABLÓÐSUGUIGLAN… OG HVERNIG ENDAR ÞAÐ NÚ? GEGN SKAÐABÓTA- LÖGMANNINUM“ ÉG BÆTTI VIÐ ÞEYTTUM RJÓMA! NEI, Í RAUN EKKI… ENN BETRA! KLÚÐUR EHF. ALMANNATENGLAR VÁ, HELGA! SNILLINGUR ERTU! FROÐAN Á BJÓRNUM SEM ÞÚ HELLTIR ER SÚ FLOTTASTA SEM ÉG HEF SÉÐ! aftur til Akureyrar þar sem þau bjuggu alla tíð, lengst af á Brekkunni. Foreldrar Margrétar voru hjónin Ólafur Sigurðsson kaupmaður og fyrrverandi formaður íþróttafélags- ins Vals, f. 17.12. 1907, d. 27.8. 1960, og Lára Hannesdóttir húsmóðir, f. 27.9. 1910, d. 25.3. 1957. Þau bjuggu alla tíð í Reykjavík. Börn Hreins og Margrétar eru: 1) Lára, kennari og náms- og starfs- ráðgjafi, Kópavogi, f. 9.7. 1964, hún er gift Erlingi S. Jóhannssyni, prófessor við HÍ. Börn þeirra eru Agnes, sjúkraþjálfari í Reykjavík, f. 17.6. 1990, í sambúð með Sveini G. Sveins- syni, barn þeirra er Lára Björk, f. 10.7. 2021; Jóhann, viðskiptafræð- ingur, Reykjavík, f. 18.11. 1994, í sambúð með Heklu Sól Þrast- ardóttur; Þóra, nemi, Kópavogi, f. 25.1. 2002. 2) Ólafur byggingafræð- ingur, Akureyri, f. 15.4. 1967, hann er kvæntur Sigurbjörgu Maríu Ísleifs- dóttur tannsmið. Börn þeirra eru Símon Hreinn, nemi á Akureyri, f. 23.1. 1989, börn hans eru Nathan Óli, f. 21.1. 2016 og Embla Nótt, f. 8.8. 2017; Margrét Ída nemi í Reykjavík, f. 18.1. 1999, í sambúð með Pétri Magnúsi Péturssyni; Ásdís Jana, nemi í Reykjavík, f. 28.10. 2001. 3) Guðni, framkvæmdastjóri, Hafn- arfirði, f. 6.12. 1971, hann er kvæntur Þóreyju Þöll Vilhjálmsdóttur flug- freyju, f. 6.12. 1971. Börn þeirra eru Alma Guðrún, nemi í Hafnarfirði, f. 10.11. 1994, í sambúð með Kristni Inga Guðjónssyni; Eva Margrét, nemi í Hafnarfirði, f. 10.11. 1994; Vera Mekkín, nemi í Hafnarfirði, f. 2.1. 2006, kærasti hennar er Enok Atli Reykdal; Elí Jökull, f. 22.12. 2011. 4) Hans, sagnfræðingur, Reykjavík, f. 18.2. 1980. Bróðir Hreins er Hjörtur Pálsson, f. 5.6. 1941, prestur og cand. mag. í íslensku í Kópavogi. Foreldrar Hreins voru Páll Ólafs- son, f. 27.11. 1908, d. 15.1. 1982, iðn- verkamaður á Akureyri, og Hulda Guðnadóttir, f. 10.4. 1913, d. 11.11. 2002, saumakona á Akureyri. Vinkona Hreins er Anna Gréta Baldursdóttir, fyrrverandi verslunar- eigandi. Hreinn Pálsson Kristjana Guðlaugsdóttir húsfreyja á Litlu-Tjörnum og víðar Páll Jónsson bóndi á Litlu-Tjörnum í Ljósavatnsskarði og víðar Ólafur Pálsson bóndi á Sörlastöðum Guðrún Ólafsdóttir húsfreyja á Sörlastöðum í Fnjóskadal Páll Ólafsson iðnverkamaður á Akureyri Guðný Jónsdóttir húsfreyja á Sörlastöðum Ólafur Guðmundsson bóndi á Sörlastöðum Guðrún B. Guðnadóttir húsfreyja í Jarlsstaðaseli Þórsteinn Þórsteinsson bóndi í Jarlsstaðaseli í Bárðardal Guðni V. Þórsteinsson bóndi á Melum og víðar í Fnjóskadal Jakobína K. Ólafsdóttir húsfreyja á Melum og víðar í Fnjóskadal Hildur H. Jóhannesdóttir húsfreyja í Grímshúsum Ólafur Guðnason bóndi í Grímshúsum í Aðaldal Ætt Hreins Pálssonar Hulda Guðnadóttir saumakona á Akureyri Á Boðnarmiði hefur Sigurlín Hermannsdóttir það fyrir satt að fíflauppskeran sé sérlega mikil þetta árið: Kima þjóðlífs þekki og skil. Um þetta skrifa og segi fíflum gengur flest í vil á fögrum sólardegi. Ingólfur Ómar Ármannsson sagði á mánudag: „Nú fer að stytt- ast í að rigni“: Glóey varma gefur mér gróður skrælir allan. Hitabrækjan búin er að brenna á mér skallann. Hallmundur Kristinsson staddur fyrir norðan: Veðráttuna vil ég ekki niðra. Vart er þetta svo sem illa meint. Efalaust er rok og rigning syðra, en ráðum beitt til þess það fari leynt. Guðmundur Arnfinnsson horfir út á voginn: Ljómar árdags geisla glóð gyllir bárur smáar. Hvítur már um fjarðar flóð flýtur á gárum sjávar. Og hér yrkir Guðmundur um sjó- slys: Tvo þrasgjarna kokka ég þekki, og þeir voru uppi’á dekki, en duttu á kaf í dimmblátt haf, þegar kastaðist með þeim í kekki. Enn segir Guðmundur: „Svo kvað Epíkúros: Vinur minn góður kneyfðu af krús þinni öl, kættu sál þína, meðan áttu þess völ. Lifðu í dag og gleymdu gærdagsins kvöl, gríptu hverja ánægjustund, sem er föl. Philip Vogler Egilsstöðum svar- aði: Frá er líður föl er stund fallin gleymsku í því gleður ekki lengi lund né líkar fyllerí. Fyrir hálfum mánuði eða svo orti Hólmfríður Bjartmarsdóttir og sagði „Ósköp ætlar seint að hlýna í ár“: Nú er mér á kjúkum kalt og kvarta, enda gamalt hró. en brennivínið bætir allt bara það sé drukkið nóg. En það var komið annað hljóð í strokkinn á sunnudag: Nú lifnar allt sem ekki kól eins og vera ber. Loks er rauðgul sumarsól sést á Fiskasker Halldór Blöndal halldorblondal@simnet.is Vísnahorn Af fíflum og rauðgulri sumarsól

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.