Morgunblaðið - 01.06.2022, Side 23

Morgunblaðið - 01.06.2022, Side 23
ÍÞRÓTTIR 23 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 1. JÚNÍ 2022 _ Eiður Smári Guðjohnsen var í gær orðaður við starf yfirmanns knatt- spyrnumála hjá gríska félaginu AEK frá Aþenu, í netmiðlinum Gazetta.gr. Eiður lék með AEK tímabilið 2011-12 en þá var Arnar Grétarsson einmitt yfirmaður knattspyrnumála hjá félag- inu. AEK hafnaði í fimmta sæti grísku úrvalsdeildarinnar á nýliðnu tímabili. _ Knattspyrnusamband Evrópu, UEFA, skýrði frá því í gær að Karim Benzema, franski sóknarmaðurinn hjá Real Madrid, hefði verið valinn besti leikmaður Meistaradeildar karla tíma- bilið 2021-22. Þá hefði samherji hans Vinícius Junior verið valinn efnilegasti leikmaðurinn. Benzema fór á kostum í Meistaradeildinni og skoraði 15 mörk fyrir Real Madrid og Vinícius skoraði sigurmarkið gegn Liverpool í úrslita- leiknum í París síðasta laugardags- kvöld. _ Orri Freyr Gíslason, fyrrverandi leikmaður Vals, fékk ekki leikheimild í Sviss til að spila með Kadetten í úr- slitakeppninni um svissneska meist- aratitilinn í handknattleik. Aðalsteinn Eyjólfsson þjálfari Kadetten staðfesti þetta á netmiðlinum handbolti.is í gær. Orri tók fram skóna eftir þriggja ára hlé og hóf æfingar með Kadetten fyrir skömmu en félagið taldi að hann yrði strax löglegur þar sem hann var hvergi samningsbundinn. Svo reyndist ekki vera. _ Króatíski knattspyrnumaðurinn Ivan Perisic gekk í gær til liðs við enska félagið Tottenham og samdi við það til tveggja ára. Hann var laus allra mála hjá Inter Mílanó á Ítalíu en þar lék hann frá 2015 og varð ítalskur meistari með liðinu 2021, þá undir stjórn Antonios Contes, núverandi knattspyrnustjóra Tottenham. Perisic var lánaður til Bayern München tíma- bilið 2019-20 og varð þá Evrópumeist- ari með félaginu. Hann er 33 ára kant- maður og hefur skorað 32 mörk í 113 landsleikjum fyrir Króatíu. _ Enska knattspyrnusambandið sekt- aði í gær Frank Lampard, knatt- spyrnustjóra Everton, um 30 þúsund pund fyrir ummæli hans í fjölmiðlum eftir ósigur gegn Liverpool, 2:0, í ensku úrvalsdeildinni á Anfield í apríl. Lampard var mjög óhress þegar lið hans fékk ekki vítaspyrnu og sagði eft- ir leikinn: „Þetta var vítaspyrna en maður fær ekki slíkt á Anfield. Ef þetta hefði verið Mohamed Salah fyrir fram- an The Kop hefði eflaust verið dæmt víti.“ _ Patrik Sigurður Gunnarsson, landsliðsmarkvörður í fótbolta, hefur verið sakaður um svindl með félagsliði sínu Viking í Noregi. Er hann sakaður um að gera markið sitt minna er liðið leikur á heima- velli. Norski mið- ilinn segir Patrik hafa fært stang- irnar inn á við í síð- ustu tveim- ur leikjum, eftir að aðstoðardóm- arinn hafði skoð- að markið og gefið samþykki um að allt væri með felldu. Lands- liðsmaðurinn neitaði í samtali við Aftonbladet að um svindl af ásettu ráði væri að ræða. Eitt ogannað DANMÖRK Jóhann Ingi Hafþórsson johanningi@mbl.is „Það er svolítið síðan ég frétti af áhuga frá þeim og þetta er búið að vera í bígerð en það var ekkert ljóst fyrr en í dag. Þetta er búið að liggja í loftinu í smátíma,“ sagði Lovísa Thompson, landsliðskona í hand- bolta, í samtali við Morgunblaðið eftir að hún gekk í raðir danska fé- lagsins Ringkøbing frá Val. „Í fyrsta lagi er liðið í dönsku úr- valsdeildinni og svo er þetta góður þjálfari sem ég hef heyrt mjög góða hluti um. Ég átti gott spjall við hann sem lét mér lítast vel á þetta verk- efni. Þá er þetta líka félag þar sem ég tel mig geta bætt mig og fengið einhverjar mínútur líka. Ég hefði kannski getað farið í eitthvert betra lið en ekki fengið að spila. Ég hefði þá æft með betri leikmönnum en ekki fengið mínútur. Það er þvílíkur plús að fá mínútur. Þessi ákvörðun var sambland af þessu öllu,“ sagði Lovísa um þá ákvörðun að semja við Ringkøbing. Ólust upp hjá Gróttu Landsliðsmarkvörðurinn Elín Jóna Þorsteinsdóttir, sem er uppal- in hjá Gróttu eins og Lovísa, gekk í raðir Ringkøbing fyrir síðustu leik- tíð. Þá lék Hrafnhildur Skúladóttir á sínum tíma undir stjórn þjálfarans Jespers Holmris hjá SK Aarhus og þær bera honum vel söguna. „Ég hef heyrt góða hluti frá Elínu Jónu og svo hef ég rætt við forráða- menn félagsins og þetta lítur út eins og jákvætt og skemmtilegt skref. Ég hef heyrt að þetta sé mikill handboltabær og mikið líf í kringum boltann þarna. Í Danmörku er handboltinn líka stór og það skiptir miklu máli. Þetta var allt býsna já- kvætt hjá Elínu. Hún talaði um að þjálfarinn væri góður og hann þjálf- aði Hröbbu Skúla líka og hún talaði vel um hann. Þetta er flott umhverfi fyrir unga leikmenn til að þroskast líka. Deildin heima er ekki hátt skrifuð og þetta er góður staður fyr- ir íslenska leikmenn til að taka næsta skref. Maður sér t.d. þvílíkan mun á Söndru [Erlingsdóttur] eftir að hún fór til Danmerkur. Leikstíll- inn hennar er öðruvísi, hún hefur bætt sig mikið og núna er hún á leiðinni í efstu deild í Þýskalandi.“ Fyrsta skrefið til að ná lengra Danska deildin er töluvert sterk- ari en sú íslenska og Lovísa viður- kennir að það verði mikil áskorun að taka skrefið til frændþjóðarinnar. „Mér líst þokkalega á þessa áskorun og ég held að það geti orðið spennandi að henda sér í djúpu laugina. Ég veit ekki beint við hverju ég á að búast en það verður áhugavert að komast í umhverfi þar sem ég sé fram á að komast nær þessum leikmönnum. Þegar maður spilar á móti þessum leikmönnum gæti maður fundið fyrir því að mað- ur gæti farið aðeins lengra. Að spila í þessari deild er fyrsta skrefið í því. Hvort sem það gengur vel eða illa þá verður þetta rosalega lærdóms- ríkt. Ég er búin að vinna að því að komast út að spila frá því ég var krakki. Ég er mjög þakklát að fá tækifæri til þess. Þau hjá Val hafa verið skilningsrík. Þau vilja allt fyrir mig gera og ég er mjög þakklát að hafa fengið þann stuðning,“ sagði hún. Lovísa hefur í áraraðir verið einn besti leikmaður deildarinnar heima, þrátt fyrir ungan aldur. Hún var rétt skriðin yfir fermingaraldur þegar hún var í aðalhlutverki í Ís- landsmeistaraliði Gróttu og hefur hún verið í fremstu röð á Íslandi síð- an. Hún telur sig geta bætt sig sem leikmann á nýjum vettvangi. Lærðu á meðan þær voru úti „Ég er spennt að sjá hvernig það þróast. Ég veit ekki alveg við hverju ég á að búast. Ég held að um leið og ég kemst í umhverfi þar sem ég er að fara að æfa með betri leik- mönnum þurfi ég virkilega að hafa fyrir öllu og um leið ætti maður að taka framförum. Ég á margt eftir ólært og ég finn það þegar ég er að spila alþjóðlega leiki. Líkamlegur styrkur, hraði og allt það líka. Um leið og ég kemst í umhverfi þar sem er spilað á hærra stigi þá kemst maður vonandi sjálfkrafa í það mynstur. Ég vona að ég geti nýtt mér það. Maður sér leikmenn eins og Rut [Jónsdóttur] og þessar stelp- ur sem fóru ungar út, þær búa yfir rosalega flottum eiginleikum sem þær lærðu á meðan þær voru úti. Ég vonast til að þróast sem leik- maður og umhverfið skiptir rosa- lega miklu máli,“ sagði Lovísa. Lovísa hefur áður fengið tækifæri til að taka skrefið út í atvinnu- mennsku, en vildi bíða eftir rétta augnablikinu. Hún tók sér hlé frá handbolta í lok síðasta árs og telur að ögrun og áskorun sé það sem hún þarfnast á ferlinum á þessum tíma- punkti. „Ég er að útskrifast úr háskóla núna og ég er búin að vera lengi á Íslandi að spila í svipuðu umhverfi. Ef ég ætla að þróast og bæta mig sem leikmaður þá tel ég þetta hafa verið réttasta skrefið. Ef ég ætlaði að vera áfram í Val, sem hefði verið frábært, þá væri ég enn þá í þæg- indarammanum mínum. Ég er að fara út til að ögra sjálfri mér og prófa eitthvað nýtt. Pásan sem ég tók fyrir áramót var af því að ég var komin með nóg af handbolta því ég var alltaf í sama hjólfarinu. Ég var komin með leiða á handbolta og að vera í sömu rútínunni. Ég vil ekki staðna og því ætla ég að demba mér í djúpu laugina,“ sagði Lovísa Thompson. Fer út til að ögra sjálfri mér - Lovísa Thompson samdi við Ringkøb- ing - Dembir sér í djúpu laugina - Á margt eftir ólært - Mjög þakklát Val Morgunblaðið/Árni Sæberg Danmörk Lovísa Thompson hefur gert samning við danska úrvalsdeildar- félagið Ringkøbing. Hún kemur til félagsins frá Val. Miðasalan fyrir heimaleiki íslenska karlalandsliðsins í fótbolta gegn Albaníu og Ísrael í Þjóðadeild UEFA fer hægt af stað. Ísland leikur við Ísrael ytra ann- að kvöld og svo heimaleiki gegn Albaníu 6. júní og Ísrael 13. júní í Þjóðadeildinni. Þess á milli mætir Ísland San Marínó í æfingaleik. Ísland leikur í B-deild keppn- innar í fyrsta skipti eftir tvö tímabil í A-deild. Sigurvegarinn í riðlinum fer upp í A-deild. Ekkert lið fellur, þar sem Rússum hefur verið vikið úr keppni. Miðasalan fer hægt af stað Morgunblaðið/Unnur Karen Laugardalsvöllur Miðasalan fyrir leiki Íslands í júní fer hægt af stað Handknattleikskonan Sigríður Hauksdóttir er komin til liðs við Val frá HK og hefur samið við Hlíðar- endafélagið til tveggja ára. Sigríður lék ekkert á síðasta tímabili eftir að hafa eignast barn en hún er vinstri hornamaður og á að baki 21 A-landsleik fyrir Íslands hönd. Hún skoraði 69 mörk í 14 leikjum með HK í úrvalsdeild tíma- bilið 2020/21. Móðir hennar og amma eru tvær af bestu handboltakonum Íslands- sögunnar, þær Guðríður Guðjóns- dóttir og Sigríður Sigurðardóttir. Sigríður skiptir úr HK í Val Morgunblaðið/Eggert Valur Landsliðskonan Sigríður Hauksdóttir er gengin í raðir Vals. Martin Hermannsson landsliðs- maður í körfuknattleik gæti misst af öllu næsta keppnistímabili í kjölfar þess að hann sleit krossband í hné í leik með Valencia gegn Baskonia í úrslitakeppninni á Spáni í fyrra- kvöld. Það reyndist lokaleikur Val- encia, sem tapaði einvíginu 1:2, og gæti hafa verið lokaleikur hans með félaginu. Martin kom til Valencia sumarið 2020 og gerði þá svokallaðan 2+1- samning, þ.e. samning til loka tíma- bilsins 2021-22 með möguleikanum á framlengingu til eins árs. Meiðsli hans eru líka áfall fyrir ís- lenska landsliðið sem hefði væntan- lega notið hans í mikilvægum leikj- um í undankeppni HM í júlí og ágúst. Ísland á raunhæfa möguleika á að komast á HM 2023. Sú keppni fer fram í Japan, Indónesíu og á Fil- ippseyjum haustið 2023 og Ísland mætir Hollandi í byrjun júlí og síðan Georgíu, Spáni og Úkraínu eða Norður-Makedóníu í ágúst. Morgunblaðið/Árni Sæberg Krossband Körfuknattleiksmaðurinn Martin Hermannsson verður frá keppni næstu mánuðina eftir að hann sleit krossband í leik með Valencia. Allt næsta tímabil farið hjá Martin? - Sleit krossband í hné í fyrrakvöld

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.