Morgunblaðið - 03.06.2022, Qupperneq 1

Morgunblaðið - 03.06.2022, Qupperneq 1
F Ö S T U D A G U R 3. J Ú N Í 2 0 2 2 .Stofnað 1913 . 129. tölublað . 110. árgangur . FRÍTT KAFFI ALLAN HRINGINN *Kaffi frá vinum okkar í Te & Kaffi er á öllum stöðvum Orkunnar fyrir utan á Seyðisfirði, Hvolsvelli og í Ólafsvík. Þú færð frítt kaffi í sumarfríinu með Orkulyklinum. Kynntu þér staðsetningar á orkan.is/afslattur/* Orkan — fyrir ferðalagið HEIMILDAR- MYNDIR OG VERK Í VINNSLU KVEÐJA OG HEILSA JAFNTEFLI GEGN ÍSRAEL Í ÞJÓÐADEILD ÚR GUÐRÚNARTÚNI 6 FYRSTA STIGIÐ Í HÚS 26SKJALDBORG 28 Baldur Arnarson baldura@mbl.is Um þúsund manns hafa verið ráðn- ir til starfa hjá Isavia, Airport Associates og Icelandair á Kefla- víkurflugvelli fyrir sumarið. Það er tugprósenta fjölgun milli ára. Brynjar Már Brynjólfsson, mannauðsstjóri móðurfélags Isavia, segir um 700 manns hafa starfað hjá félaginu á Keflavíkurflugvelli um síðustu áramót. Síðan hafi verið ráðnir um 300 sumarstarfsmenn. Samanlagt verði um 950 starfs- menn í sumar en þeir voru um 700 í fyrrasumar. Það er 36% fjölgun milli ára. Sigþór Kristinn Skúlason, for- stjóri Airport Associates, segir fyrirtækið hafa ráðið 170 manns undanfarið. Því munu um 370 starfa hjá því í sumar, en starfsmenn voru um 250 í fyrrasumar. „Ég met stöðuna þannig að innan tveggja ára verðum við aftur komin í svipaða stærð og sumarið 2018 og þá með 600-700 starfsmenn. Það held ég að sé raunhæft markmið,“ segir Sigþór Kristinn um stöðuna. Hjá Icelandair fengust þær upp- lýsingar að fyrirtækið hefði ráðið um 1.200 manns fyrir sumarið. Alls muni 3.600 starfa hjá því í sumar, en starfsmenn voru 2.500 í fyrra- sumar. Af þessum 1.200 sem voru ráðnir í sumar, væru um 500 á jörðu niðri. Þúsund störf á vellinum - Isavia, Airport Associates og Icelandair ráða fólk á Keflavíkurflugvöll í sumar MRáða þúsund manns … »12 Staðfest hefur verið að meinvirkt af- brigði ISA-veirunnar sem getur valdið blóðþorra í laxi hefur greinst í sýnum úr laxi á tveimur kvíabólum Ice Fish Farm í Berufirði, það er Hamraborg og Svarthamarsvík. Fiski verður slátrað upp úr kvíunum og fjörðurinn hvíldur. Þegar því verki lýkur hefur þurft að slátra nokkrum milljónum laxa, úr öllum kvíum fyrirtækisins á helstu eldis- svæðunum, Reyðarfirði og Beru- firði. Fyrirtækið vinnur nú að áætl- unum um eldi á næstu árum. Kvía- bólin verða rekin sjálfstætt og stefnt er að því að hefja bólusetningu gegn ISA. Jens Garðar Helgason aðstoð- arforstjóri segir að sýkingin setji strik í reikning fyrirtækisins en ver- ið sé að setja út mikið af seiðum þannig að slátrun ætti að komast á gott skrið seinni hluta næsta árs. »4 Morgunblaðið/Eggert Berufjörður Unnið við laxeldið. Slátrað úr kvíabólum á Austfjörðum Mikið var um dýrðir í Bretlandi í gær, þegar há- tíðahöld í tilefni af 70 ára valdaafmæli Elísabetar 2. Bretadrottningar hófust með veglegri her- og flugsýningu í miðborg Lundúna. Elísabet stóð á svölum Buckingham-hallar meðan á herlegheitunum stóð ásamt Kamillu, hertogaynju af Cornwall, Karli Bretaprins, Katr- ínu og Vilhjálmi af Cambridge og barnabarna- börnum sínum, þeim Loðvík, Karlottu og Georg. Fylgdust þau með flugsýningunni af miklum áhuga, en talið er líklegt að þetta verði síðasti stórviðburðurinn í valdatíð Elísabetar. »2 og 13 AFP/Jonathan Brady Flugsýning til heiðurs Bretadrottningu _ „Við teljum að út frá náttúru- verndarsjónarmiðum yrði þetta rask talsvert minna en við sam- bærilegar framkvæmdir víða ann- ars staðar,“ segir Elías Jónatans- son, orkubússtjóri Orkubús Vest- fjarða, um hugsanlega virkjun í Vatnsfirði. Orkubúið gerir nú frumáætlanir um virkjun í Vatns- firði, þótt rannsóknarleyfi hafi enn ekki fengist. Telur Elías að virkj- un í firðinum gæti haft mjög já- kvæð áhrif á raforkuöryggi á Vestfjörðum. »10 Gera frumáætlun um virkjun í Vatnsfirði

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.