Morgunblaðið - 03.06.2022, Side 2

Morgunblaðið - 03.06.2022, Side 2
2 FRÉTTIR Innlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 3. JÚNÍ 2022 Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Andrés Magnússon andres@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is Viðskipti Gísli Freyr Valdórsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Winkel Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf. Hólmfríður María Ragnhildardóttir hmr@mbl.is 70 ára krýningarafmæli Elísabet- ar II Bretadrottningar var haldið í gær. Af því tilefni efndi breska sendiráðið í Reykjavík og sendi- herrann Bryony Mathew til garð- veislu, sem fór fram í Höfuðstöð- inni í Elliðaárdalnum. Margmenni var í veislunni en sendiherrar frá fjölmörgum sendi- ráðum á Íslandi létu sjá sig. Voru veigar og matur í boðinu, meðal annars sérstakur hátíðarbúð- ingur. Þá var lifandi tónlist spiluð fyrir gestina og breski þjóðsöng- urinn, God Save The Queen, meðal annars sunginn. Mathew nýtti tækifærið þegar hún ávarpaði gestina og rifjaði upp opinbera heimsókn Breta- drottningar til Íslands sumarið 1990. Drottningin kom til landsins í einkaþotu en Vigdís Finnboga- dóttir, þáverandi forseti Íslands, tók á móti henni. Veisluhöld vegna krýningarafmælis Elísabetar II Bretadrottningar í Elliðaárdal Blásið til garðveislu í Elliðaárdal Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Kristján Jónsson kris@mbl.is Nýtt kjörtímabil hjá sveitarstjórn Strandabyggðar virðist hefjast með óvenjulegum hætti. Fimm fráfarandi fulltrúar í sveitarstjórn Stranda- byggðar sendu frá sér harðorða ályktun í vikunni. Höfðu þau verið kjörin í persónukjöri í kosningunum 2018, þar sem ekki voru framboðs- listar í kjöri til sveitarstjórnar í Strandabyggð í það skipti. Segjast þau hafa setið undir ásökunum und- anfarið um brot á samþykktum, reglum og lögum. „Hitt eigum við svo öll sameigin- legt, nú í lok kjörtímabils, að við göngum löskuð frá borði. Við höfum setið undir ásökunum, dylgjum og rógburði. Vegið hefur verið með þeim hætti að mannorði okkar og æru, að ekki verður við unað. Við krefjumst nánari skýringa. Nýkjör- inn oddviti Strandabyggðar og leið- togi T-listans í sveitarstjórn hefur sagt opinberlega og ítrekað að við höfum tekið ákvarðanir sem „stang- ast á við sveitarstjórnarlög, sam- þykktir Strandabyggðar og siðaregl- ur Strandabyggðar“. Einnig hefur hann talað um „sérhagsmunagæslu sveitarstjórnarfulltrúa og vara- manna“ og greint frá „óheppilegum og óæskilegum tengingum þeirra við styrkúthlutanir og aðra ráðstöfun fjármagns eða eigna sveitarfé- lagsins“. Sérstaklega hefur hann í þessu sambandi nefnt „alls kyns styrkút- hlutanir til safna og fyrirtækja sem tengjast sveitarstjórnarfulltrúun- um.“ Eins hefur nýkjörinn oddviti borið fram ásakanir um að við höfum tekið ónefndar eignir sveitarfélagsins traustataki og tekið „ákvörðun um að gefa þær einstaklingum sem tengjast fulltrúum í sveitarstjórn beint,“ segir meðal annars í ítarlegri yfirlýsingu, en undir hana skrifa: Jón Gísli Jónsson, Guðfinna Lára Hávarðardóttir, Ásta Þórisdóttir, Pétur Matthíasson og Jón Jónsson. Uppsögnin ólögmæt Þar er átt við Þorgeir Pálsson, fyrrverandi sveitarstjóra. Honum var sagt upp fyrir ári en með hann í oddvitasætinu fékk Strandabanda- lagið 57% atkvæða í kosningunum í síðasta mánuði. Héraðsdómur Vest- fjarða dæmdi í apríl uppsögn Þor- geirs ólögmæta og sagði hana hafa verið án efnislegra skýringa. Morgunblaðið hafði samband við Þorgeir í gær og spurði hvort hann hygðist bregðast við yfirlýsingu fimmmenninganna. Þorgeir gaf ekki kost á viðtali um þetta viðfangsefni og sagðist vera að leika sér með krökkunum í Ungmennafélaginu Geislanum. Í yfirlýsingunni setur sveitar- stjórnarfólkið fráfarandi fram spurningar í sjö liðum og fer fram á að þær verði teknar fyrir á fyrsta fundi nýrrar sveitarstjórnar. Sá fundur er á dagskrá hinn 14. júní. Hörð átök í pólitíkinni á Hólmavík Morgunblaðið/Árni Sæberg Strandabyggð Hitnað hefur í kolunum í bæjarmálunum á Hólmavík. - Fimm fráfarandi sveitarstjórnarmenn í Strandabyggð segja farir sínar ekki sléttar - Óska eftir því að ásakanir um ýmiss konar brot verði teknar fyrir á fyrsta fundi nýrrar sveitarstjórnar um miðjan júní Jón Jónsson Þorgeir Pálsson Logi Sigurðarson logis@mbl.is „Þetta snýst ekki bara um varnar- garða, hvort þeir verði settir upp eða af hverjum, heldur snýst þetta um það að við erum á óróatímabili á Reykjanesskaga sem hófst í byrjun árs 2020,“ segir Björn Oddsson hjá al- mannavörnum. Björn hélt erindi í gær um sögu óróatímabila á Reykjanesskaga, á fundi almannavarna og bæjaryfir- valda Grindavíkur um uppbyggingu á varnargörðum vegna eldgosahættu sem ríkir þar. Björn segir að almannavarnir vinni nú að því að búa fólk og kerfið undir að takast á við tímabil óróa sem muni líklega vera viðvarandi næstu áratugi. Fannar Jónas- son, bæjarstjóri Grindavíkur, segir mikilvægt að ríkis- valdið taki ákvörð- un um uppbygg- ingu varnarmann- virkja á Reykja- nesskaga og fjár- magni fram- kvæmdirnar þegar að þeim kemur. „Það má segja að stóra verkefnið sé hjá ríkisvaldinu. Við treystum á það og teljum okkur vita að það verði staðið vel að því og stutt við bakið á Suðurnesjamönnum og íbúum þessa svæðis,“ segir Fannar. Hann segir ekki of seint að grípa til aðgerða og nú horfi yfirvöld á stóra samhengið hvað varðar nýtt óróa- tímabil á Reykjanesskaga. Forvarnaraðgerðir Starfshópurinn Varnir mikilvægra innviða kynnti í gær almannavörnum og bæjaryfirvöldum Grindavíkur til- lögur að varnarmannvirkjum á Suð- urnesjum, í ljósi þeirrar eldvirkni sem er þar. Ari Guðmundson, byggingarverk- fræðingur hjá Verkís, leiddi hópinn. Hann segir að tillögurnar fjalli líka um gerð viðbragðsáætlana, svo allir séu á sömu blaðsíðu ef eldgos verður. Ari bætir því við að í raun sé boltinn nú hjá almannavörnum og stjórnvöld- um sem ákveði hver næstu skref verði. „Við erum að tala um að fara í for- varnaraðgerðir, byggja þessa garða fyrir atburði en ekki í miðjum atburði. Það er mikill greinarmunur þar á. Þá er hægt að vinna með þessa varnar- garða út frá betra efni, keyra að betra efni og hægt að þjappa það betur þannig að þetta verði sterkbyggðara mannvirki,“ segir Ari. Búa fólk undir áratuga óróatímabil - Fundað um stöðuna á Reykjanesskaga í gær - Stóra verkefnið er hjá ríkisvaldinu - Bæjarstjórinn telur að vel verði stutt við Suðurnesjamenn - Þarf að byggja garðana áður en atburðirnir eiga sér stað Björn Oddsson Fannar Jónasson Ari Guðmundsson

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.