Morgunblaðið - 03.06.2022, Blaðsíða 6
6 FRÉTTIR
Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 3. JÚNÍ 2022
www.kofaroghus.is - Sími 553 1545
TIL Á LAGER
Ítarlegarupplýsingarog teikningarásamtýmsumöðrumfróðleik
STAPI - 14,98 fm
Tilboðsverð
779.000kr.
25%
afsláttur
BREKKA34 - 9 fm
Tilboðsverð
489.000kr.
25%
afsláttur
NAUST - 14,44 fm
Tilboðsverð
539.000kr.
30%
afsláttur
VANTAR
ÞIGPLÁSS?
Afar einfalt er að reisa
húsin okkar. Uppsetning
tekur aðeins einn dag
TILBOÐÁGARÐHÚSUM!
Höskuldur Daði Magnússon
hdm@mbl.is
„Ég er þakklátur öllum þeim sem
hafa lagt okkur lið hérna í Guðrún-
artúni. Við kveðjum og þökkum
starfsfólki Pipars auglýsingastofu,
sem hefur skotið yfir okkur skjóls-
húsi þessa þrjá mánuði,“ segir
Sveinn Rúnar Sigurðsson, læknir
og forsprakki samtakanna Flotta-
fólk sem hafa skipulagt móttöku
fyrir flóttafólk frá Úkraínu.
Fá stærra húsnæði
í Vesturbænum
Í gærkvöldi var síðasti dagurinn
þar sem veittur var matur og þjón-
usta í Guðrúnartúni 8. Þar hefur
flóttafólkið frá Úkraínu getað
gengið að kvöldverði frá því það fór
að koma til landsins eftir innrás
Rússa í heimalandið. Hér eftir
verður sams konar þjónusta í boði
að Aflagranda 40 í Vesturbæ
Reykjavíkur en þar hefur Reykja-
víkurborg lagt samtökunum til hús-
næði.
„Þetta er stærra húsnæði en í
Guðrúnartúni og getur nýst okkur
undir stærri hópa og viðburði. Við
munum færa alla úthlutun í Nes-
kirkju og þar getur fólk frá Úkra-
ínu nálgast nauðsynjavörur, sér að
kostnaðarlausu. Við erum einmitt
með kennslustofur í húsnæði Nes-
kirkju og svo er fjölskyldumiðstöð-
in enn í Hátúni 2,“ segir Sveinn
Rúnar.
Ómetanlegar samverustundir
Mikil gleði var í kveðjukvöldverði
í Guðrúnartúni í gærkvöldi. Fyrr
um daginn var dagskrá í Fjöl-
skyldu- og húsdýragarðinum í boði
góðgerðarsamtakanna Einhorns,
sem einmitt hafa útvegað flótta-
mönnum fjöldann allan af íbúðum
að sögn Sveins Rúnars. Undir
kvöld hélt hersingin svo í
Guðrúnartúnið. „Við þökkuðum fyr-
ir með pítsuveislu og allir fengu ís
frá Valdísi. Svo tróð Bjarni töfra-
maður upp,“ segir Sveinn Rúnar.
Hann segir að þakklæti sé sjálf-
boðaliðum í Flottafólki efst í huga.
Vel hefur gengið að koma flótta-
fólki frá Úkraínu í vinnu og sam-
verustundirnar hafa verið ómetan-
legar. „Þetta hefur verið mest sótta
úrræðið fyrir flóttamenn á Íslandi.
Nú, þegar þessar hörmungar hafa
staðið yfir í þrjá mánuði, er gott að
eiga svona kvöldstund, þar sem við
getum sett áhyggjurnar aðeins til
hliðar og einbeitt okkur að því að
gleðjast yfir vorinu og öllu því sem
hefur áunnist.“
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Fjör „Þetta hefur verið mest sótta úrræðið fyrir flóttamenn á Íslandi,“ segir Sveinn. Góð stemmning var í gær.
Tárvot kveðjustund þar
sem allir fengu pítsu og ís
- Flottafólk flytur starfið úr Guðrúnartúni að Aflagranda
Veisla Frá pítsu- og ísveislunni í gær. Börnin voru kát með veitingarnar.
Höskuldur Daði Magnússon
hdm@mbl.is
„Kjarninn er sá hvort ÁTVR geti
byggt ákvarðanir um vöruúrval
verslana eingöngu á viðmiði um
framlegð af vörum og hætt sölu á
vörum sem njóta meiri eftirspurnar
neytenda. Í lögum um ÁTVR er ekki
minnst á framlegð og er þannig hald-
ið dýrari vörum að neytendum, eink-
um á landsbyggðinni þar sem vöru-
úrval er minna, og gera fyrirtækið
hagnaðardrifið,“ segir Jónas Fr.
Jónsson, lögmaður áfengisinnflytj-
andans Dista ehf.
Aðalmeðferð í máli Dista gegn
ÁTVR fór fram í Héraðsdómi
Reykjavíkur í gær. Fyrirtækið
stefndi stofnuninni og krafðist þess
að tvær ákvarðanir hennar um að
taka úr sölu bjórtegundir yrðu felld-
ar úr gildi. ÁTVR bar því við að um-
ræddar bjórtegundir skiluðu ekki
nægilegri framlegð en það taldi
Dista að stæðist ekki lög.
Fjórir starfsmenn ÁTVR voru
kvaddir fyrir héraðsdóm í gær, þau
Ívar J. Arndal, forstjóri ÁTVR, Sig-
rún Ósk Sigurðardóttir aðstoðarfor-
stjóri, Skúli Þ. Magnússon, sérfræð-
ingur á vörusviði, og Tinna Péturs-
dóttir, sérfræðingur á vörusviði.
ÁTVR tilkynnti Dista í janúar á
síðasta ári að bjórinn Faxe Witbier
væri felldur úr vöruúrvali ÁTVR og
innkaupum hans hætt. Sagt var að
vörutegundin hefði lokið lágmarks-
sölutíma í kjarnaflokki án þess að ná
tilskildum söluárangri og var í því
efni vísað til framlegðarskrár, segir í
stefnu málsins. Síðar sama ár barst
samskonar tilkynning varðandi bjór-
inn Faxe IPA.
Dista óskaði eftir rökstuðningi
fyrir þessum ákvörðunum og í svari
ÁTVR var rakið að mánaðarlega
væru teknar svokallaðar færslu-
ákvarðanir sem gætu falið í sér
ákvörðun um að fella vöru úr sölu-
flokki. Þannig skyldu 50 framlegðar-
hæstu vörutegundirnar í viðkomandi
flokki halda sæti sínu í kjarnasölu en
aðrar falla úr flokknum.
Í stefnu Dista kemur fram að væri
horft til eftirspurnar en ekki fram-
legðar, sem væri lögmætt viðmið,
var meiri eftirspurn eftir Faxe Wit-
bier heldur en fjórum öðrum bjór-
tegundunum sem þó voru áfram
seldar í kjarnaflokki eftir ákvörðun
ÁTVR. Í tilviki Faxe IPA hafi verið
meiri eftirspurn eftir honum heldur
en níu öðrum tegundum sem áfram
fengu sess í hillum Vínbúðanna. Í
stefnunni er bent á að orðið framlegð
komi ekki fram í lögum um ÁTVR.
Það hafi heldur ekki fundist við leit í
greinargerðum með lagasetning-
unni. Rök ÁTVR lúta hins vegar að
því að í vöruvalsreglugerð segi að
miða eigi við framlegð.
Auk þess að geta þess að árang-
ursviðmið um framlegð hafi ekki
lagastoð segir í stefnu Dista að slíkt
viðmið gangi beinlínis gegn hags-
munum neytenda með því að hampa
dýrari vöru. Er þar tekið dæmi af
stórum bjór sem kostar 309 í Ríkinu
og ber 42 króna framlegð á meðan
sambærilegur bjór kostar 399 krón-
ur og ber um 55 króna framlegð.
Dýrari bjórinn í dæminu þarf ein-
ungis að seljast í um 77% af því
magni sem ódýrari bjórinn þarf að
seljast til að fá forgang í dreifingu
hjá ÁTVR.
Búast má við niðurstöðu Héraðs-
dóms Reykjavíkur í málinu innan
fjögurra vikna.
Forstjóri ÁTVR kvaddur fyrir dóm
- Aðalmeðferð í máli innflytjenda gegn ÁTVR fór fram í héraðsdómi í gær - Kærði ákvörðun um að
taka tvær bjórtegundir úr sölu - Telja ekki lagastoð fyrir því að framlegð ráði vöruúrvali hjá ÁTVR
Morgunblaðið/Eggert
Málaferli Ívar J. Arndal, forstjóri ÁTVR, á leið í dómsal í héraðsdómi.
Þórður Már Jóhannesson fjárfestir og
Sólveig Pétursdóttir, fyrrverandi
dómsmálaráðherra, voru í gær sýknuð
af kröfu Lyfjablóms ehf. sem krafðist
samtals 2,3 milljarða króna í skaða-
bætur vegna háttsemi stjórnenda fjár-
festingarfélagsins Gnúps. Lyfjablómi
var gert að greiða Þórði og Sólveigu
hvoru fyrir sig 5 milljónir króna í máls-
kostnað.
Dómurinn var kveðinn upp í Hér-
aðsdómi Reykjavíkur en málið hafði
áður hlotið efnismeðferð fyrir héraðs-
dómi árið 2019. Þá voru Þórður og Sól-
veig sýknuð á grundvelli tómlætis og
fyrningarlaga.
Þeirri niðurstöðu var áfrýjað til
Landsréttar sem ómerkti dóm héraðs-
dóms þar sem ekki var talið unnt af
hálfu Þórðar og Sólveigar að haga
málatilbúnaði sínum þannig að sakar-
efni málsins yrði skipt, þ.e. um grund-
völl skaðabótaábyrgðar annars vegar
og fyrningu hins vegar, þar sem þau
atriði féllu verulega saman. Af þeim
sökum var dómur Héraðsdóms
Reykjavíkur árið 2019 ómerktur og
málinu vísað aftur í hérað.
Þórður hafði verið forstjóri félags-
ins Gnúps, en krafa var gerð á Sól-
veigu vegna dánarbús eiginmanns
hennar, Kristins Björnssonar, sem
hún situr í óskiptu. Kristinn hafði farið
fyrir fjárfestahópi fjögurra systkina
sem áttu félagið Björn Hallgrímsson
ehf. sem var einn af eigendum Gnúps,
en félagið dró nafn sitt af föður systk-
inanna. Eftir fall Gnúps var nafni
Björns Hallgrímssonar breytt í Lyfja-
blóm og höfðaði félagið málið gegn
Þórði og Sólveigu.
Héraðsdómur Reykjavíkur taldi
ósannað að Lyfjablóm ætti skaðabóta-
kröfu á hendur Þórði og Sólveigu.
Arnar Þór Stefánsson, lögmaður
Þórðar og Sólveigar, telur málatilbún-
að Lyfjablóms hafa verið með öllu til-
hæfulausan. Bendir hann á að for-
sendur dómsins séu í samræmi við
það. steinthors@mbl.is
Þórður og
Sólveig sýknuð
- Lyfjablómi gert að greiða 5 milljónir
Þórður Már
Jóhannesson
Sólveig
Pétursdóttir