Morgunblaðið - 03.06.2022, Qupperneq 10

Morgunblaðið - 03.06.2022, Qupperneq 10
10 FRÉTTIR Innlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 3. JÚNÍ 2022 Smiðjuvegi 34 • gul gata Kópavogi • biljofur@biljofur.is Viðgerðir // Bilanagreining // Varahlutir // Smurþjónusta Sérhæfð þjónusta fyrir Rótgróið fyrirtæki, starfrækt frá 1992 544 5151 tímapantanir Helgi Bjarnason helgi@mbl.is Hugsanleg Vatnsdalsvirkjun í Vatnsfirði mun hafa mjög jákvæð áhrif á raforkuöryggi á Vestfjörðum. Hún hefði tiltölulega lítil umhverfis- áhrif, að mati orkubússtjóra Orku- bús Vestfjarða. Umsókn fyrir- tækisins um rannsóknarleyfi er í vinnslu hjá Orkustofnun. Forsenda þess að orkukosturinn verði tekinn til umfjöllunar hjá verkefnisstjórn rammaáætlunar er þó að friðlýsing- arskilmálum Vatnsfjarðarfrið- lands verði breytt. Miklar umræð- ur hafa verið um mögulegar leiðir til að bæta raf- orkuöryggi íbúa og fyrirtækja á Vestfjörðum. Fjórðungurinn stenst ekki samanburð við aðra hluta landsins að því leyti. Unnið hefur verið að at- hugun og undirbúningi nokkurra virkjana og þeim möguleika að styrkja Vesturlínu til að fá meiri orku inn á svæðið. Athuganir sem gerðar hafa verið, svokölluð kerfis- greining, benda til að einn besti kosturinn fyrir afhendingaröryggið og styrk kerfisins sé að virkja í ná- grenni Mjólkárvirkjunar. Greiningin var unnin á vegum Landsnets að beiðni Orkubús Vestfjarða. Elías Jónatansson orkubússtjóri segir að tenging Vatnsdalsvirkjunar í Vatnsfirði við flutningskerfið sé að- eins um 20 kílómetrar. Með 20 MW grunnvirkjun þar og með því að framkvæma áform Landsnets um hringtengingar þaðan og um sunn- an- og norðanverða Vestfirði væri hægt að draga úr straumleysis- tilfellum á þéttbýlisstöðum um 90%. Slík grunnvirkjun gæti kostað um 10 milljarða króna og komist í gagnið í lok árs 2028. Elías bætir því við að með því að auka afl virkjunarinnar í 30 MW, án mikillar viðbótarfram- leiðslu, væri hægt að stýra kerfinu þannig að ekki þyrfti að grípa til keyrslu olíuknúins varaafls þótt tengingin við landskerfið rofnaði í einhverjar vikur. Virkjun með auknu afli væri því hjálpleg í lofts- lagsbókhaldi landsins. Umfang lóna lítið Orkubú Vestfjarða sótti um rann- sóknarleyfi vegna Vatnsdalsvirkj- unar um mitt síðasta ár. Elías segir að Orkustofnun sé að leita umsagna. Bendir hann á að Orkustofnun hafi áður veitt fyrirtækinu leyfi til rann- sókna í friðlandinu. Það var vegna Helluvirkjunar en hún er miklu minni og reyndist ekki hagkvæm. Þótt rannsóknarleyfi sé ekki feng- ið hafa starfsmenn Orkubúsins skoð- að orkukostinn lauslega á grundvelli þeirra gagna sem liggja fyrir. Tvö vötn á hálendinu myndu breytast í miðlunarlón virkjunarinnar og þar verður gerð stífla. Elías segir að vissulega yrði vatni safnað í uppi- stöðulónið en það myndi ekki ná yfir mikið meira svæði en vötnin gera nú þegar. Vatninu yrði veitt í stöðvar- hús sem staðsett verður innarlega í Vatnsdal, nálægt þar sem Austurá fellur niður. Val sé um það að byggja stöðvarhúsið inni í hlíðinni eða byggja fallegt hús þar sem fram- leiðsla á grænni orku yrði sýnileg gestum og gangandi. Þá þarf að styrkja vegslóða sem liggur úr Vatnsfirði og lengja hann að stöðv- arhúsinu með nýjum vegi. Enginn slóði verður hins vegar lagður úr Vatnsfirði og upp á efra virkjunar- svæðið, að lónunum. Aðkoman að þeim verður eftir núverandi línuvegi Vesturlínu og viðbótarslóðum þar uppi. Lítil áhrif á umhverfið Spurður um áhrif á friðlandið seg- ir Elías að umhverfisáhrif yrðu lítil á láglendi. Hins vegar yrði rask á landi ofan við 250 metra yfir sjávar- máli við byggingu stíflu og stækkun lóna og styrkingu og lengingu veg- slóða en það sjái enginn neðan úr dalnum. Hann bætir því við að svæð- ið sé þegar raskað vegna raflína sem þar liggi yfir. Elías bendir á að lagn- ing nýs vegar um Dynjandisheiði hafi þegar valdið mun meira raski en búast megi við í Vatnsdal. „Við telj- um að út frá náttúruverndar- sjónarmiðum yrði þetta rask tals- vert minna en við sambærilegar framkvæmdir víða annars staðar.“ Þegar Vatnsfjörður var friðaður var farin sú leið að friða alla jörðina sem er í eigu ríkisins. Elías segir að tilgangurinn hafi fyrst og fremst verið að friða birkiskóginn, surtar- brandsgil og fleiri þætti utar með firðinum. Virkjun muni ekki raska neinu í því efni. Í lögum um rammaáætlun er ákvæði um að ekki skuli taka til mats orkukosti á friðlýstum svæð- um nema beinlínis sé kveðið á um það í friðlýsingarskilmálum að virkjanir séu heimilar. Þau lög voru sett árið 2011 en friðlýsingarskil- málarnir samþykktir 36 árum fyrr. Ekki var kveðið á um heimild til virkjunar í þeim þótt áform hafi ver- ið uppi eins og kom í ljós á næstu ár- um þegar unnið var að ýmsum rann- sóknum vegna hugsanlegrar virkjunar. Elías segir heimilt samkvæmt lögum að aflétta kvöðum í friðlýs- ingarskilmálum ef ríkir almanna- hagsmunir krefjist. Telur hann að svo hátti til með Vatnsdalsvirkjun þegar litið sé til orkuöryggis Vest- fjarða og möguleika á orkuskiptum á næstu árum og áratugum. Þótt friðlýsingarskilmálum yrði breytt er það engin trygging fyrir því að verkefnisstjórn rammaáætl- unar gefi grænt ljós á virkjun í Vatnsdal. Einnig á eftir að vinna umhverfismat og fá önnur nauðsyn- leg leyfi. Knúið á um Vatnsdalsvirkjun - Orkubú Vestfjarða gerir frumáætlanir um virkjun í Vatnsfirði þótt rannsókn- arleyfi hafi enn ekki fengist - Breyting á friðlýsingarskilmálum er forsenda Vatnsdalsvirkjun Útrennsli Hólmavatns verður stíflað. Kemur stíflan þvert yfir, fyrir miðri mynd. G ru n n ko rt /L o ft m yn d ir eh f. Hugmyndir um Vatnsdalsvirkjun H ei m ild :O rk u b ú V es tf ja rð a Flókavatn Hólmavatn Þrýstipípa (neðanjarðar) Mjólkárlína Stöðvarhús Aðkomu- og frárennslisgöng V a t n s d a lu r Va tn sd al sv at n Lón Stífla Lagfæring á vegi Nýr vegur Háspennulína Elías Jónatansson Erna Kristín Blöndal skrifstofu- stjóri hefur verið skipuð í embætti ráðuneytisstjóra mennta- og barna- málaráðuneytisins. Erna tekur við af Páli Magnússyni en hann fer til starfa hjá fastanefnd Íslands í Genf, að því er kemur fram í tilkynningu. Hann hefur gegnt embættinu frá árinu 2019. Í Genf mun Páll starfa á sviði mál- efna barna, m.a. við að efla al- þjóðlegt samstarf íslenskra stjórn- valda hvað varðar velferð og réttindi barna, en einnig á sviði alþjóða- vinnumála og alþjóðaheilbrigð- ismála, m.a. með eflingu tengsla við Alþjóðavinnumálastofnunina (ILO) og Alþjóðaheilbrigðismálastofn- unina (WHO). Á sínum tíma komst kærunefnd jafnréttismála að þeirri niðurstöðu að Lilja Dögg Alfreðsdóttir, þáver- andi menntamálaráðherra, hefði brotið jafnréttislög með ráðningu Páls, í stað þess að ráða Hafdísi Helgu Ólafsdóttur í starfið. Héraðs- dómur Reykjavíkur hafnaði kröfu Lilju um að úrskurður kærunefndar jafnréttismála yrði ógiltur. Erna skip- uð og Páll til Genfar Erna Kristín Blöndal Páll Magnússon Í nýliðnum maí lönduðu alls 611 bátar samtals 3.672 tonnum og afli hefur aldrei verið meiri frá upphafi strand- veiða árið 2009, segir á vef Landssambands smábátaeigenda, LS. Þar af var þorskur 3.293 tonn, sem er aukning um 699 tonn milli ára. Þann 30. maí sl. var landað alls 373 tonnum, sem er dagsmet. Fyrra metið var 28. júní í fyrra, 367 tonn. Á öllum svæðum jókst afli milli ára. Hlutfallslega mest á svæði D um 46% og munar þar mest um góð- an ufsaafla. Áætlað aflaverðmæti, 1.347 milljónir, er mikil hækkun frá síðasta ári þegar afli í maí gaf um 755 milljónir, segir á vef LS. Metafli í maí á strandveiðum Vel gekk að veiða í maímánuði. Framsóknarflokkur, Samfylking og Bein leið hafa myndað nýjan meiri- hluta í Reykjanesbæ og mun sá meirihluti taka við á bæjarstjórnar- fundi 7. júní nk. Kjartan Már Kjart- ansson hefur verið endurráðinn bæj- arstjóri. „Helstu áhersluatriði nýs meiri- hluta eru að viðhalda kröftugri upp- byggingu og horfa til framtíðar. Mikil fólksfjölgun og breytt sam- félagsmynstur kallar á aukna þjón- ustu og hraða uppbyggingu innviða. Brýnt er að mæta þeirri þörf en í senn að tryggja áfram trausta fjár- málastjórn,“ segir í tilkynningu. Meirihlutinn, sem er hinn sami og var á síðasta kjörtímabili, muni leiða mikilvæg verkefni í góðu samstarfi við fulltrúa allra flokka og íbúa. Íbúar í Reykjanesbæ eru nú um 20.600 og hefur fjölgað um 5.000 á fimm árum. Fólk af erlendum upp- runa er þar áberandi og segir meiri- hlutinn fjölmörg tækifæri liggja í stóru fjölmenningarsamfélagi. Kraftur í uppbyggingu og horft verður til framtíðar - Sami meirihluti áfram í Reykjanesbæ - Fjölmenning Reykjanesbær F.v.: Sverrir Bergmann Magnússon, Guðný Birna Guð- mundsdóttir, Friðjón Einarsson, Halldóra Fríða Þorvaldsdóttir, Valgerður Björk Pálsdóttir, Díana Hilmarsdóttir og Bjarni Páll Tryggvason.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.