Morgunblaðið - 03.06.2022, Side 13

Morgunblaðið - 03.06.2022, Side 13
FRÉTTIR 13Erlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 3. JÚNÍ 2022 æs ap e um og vers unum HÁREYÐINGASPREY fyrir viðkvæma húð Fljótleg og þægileg leið til að losna við hárin t Her Kanada sakaði í gær kínverska flugherinn um að hafa teflt öryggi flugmanna sinna í hættu í alþjóðlegri lofthelgi skammt undan landamær- um Norður-Kóreu. Kanadískar orrustuþotur voru sendar til Japan árið 2019 til þess að aðstoða við að framfylgja refsiað- gerðum Sameinuðu þjóðanna gegn Norður-Kóreu. Sagði í yfirlýsingu Kanadahers að flugher Kína hefði margoft ekki fylgt alþjóðlegum reglum um flug- öryggi, og hefðu flugmenn þeirra flogið mjög nálægt kanadísku orr- ustuþotunum. „Þessi samskipti eru ófagmannleg og/eða tefla í tvísýnu öryggi hermanna,“ sagði í yfirlýs- ingu Kanadamanna. Þá kom fram að í nokkrum þess- ara tilfella hefðu kanadísku áhafn- irnar þurft að víkja snögglega af leið sinni til að forðast árekstur við kín- verska orrustuþotu. Þá hafi kínversku þoturnar nokkr- um sinnum reynt að neyða þær kan- adísku af leið sinni með því að fljúga svo nálægt að áhafnir þeirra voru „vel sýnilegar“. Í yfirlýsingunni sagði að slík atvik ættu sér sífellt oftar stað, og að þau hefðu verið nefnd í samskiptum ríkjanna. Melanie Joly, utanríkis- ráðherra Kanada, sagði að hún hefði þungar áhyggjur af þessu máli, en einungis eru um sex vikur liðnar frá því að Kínverjar og Kanadamenn tóku aftur upp eðlileg milliríkja- samskipti. Mikil spenna ríkti á milli ríkjanna í kjölfar þess að Meng Wanzhou, ein af stjórnarmönnum Huawei, var handtekin í Kanada vegna framsals- beiðni frá Bandaríkjamönnum. Handtóku Kínverjar í kjölfarið tvo Kanadamenn, Michael Kovrig og Michael Spavor, og héldu í fangelsi. AFP Styr Kínversk J-15-þota býst til lendingar á flugmóðurskipi 2018. Saka Kínverja um hættulega hegðun - Flogið of nálægt orrustuþotum Stefán Gunnar Sveinsson sgs@mbl.is Úkraínuher hét því í gær að hann myndi berjast til hinstu stundar um borgina Severodonetsk, þrátt fyrir að Rússar hefðu nú um 80% hennar á valdi sínu. Harðir götubardagar geisuðu enn í borginni, og hafa Úkraínumenn sent aukið herlið til að reyna að afstýra falli hennar. Munu Rússar hafa náð nær öllu Lúhansk-héraði á sitt vald þegar og ef borgin fellur, og þykir líklegt að þeir muni reyna enn að fara yfir Sí- verksí Donets-ána, sem hefur aftrað þeim frá að sækja í Donetsk-héraði. Á morgun, laugardag, verða hundrað dagar liðnir frá upphafi inn- rásarinnar, en endalok styrjaldar- innar eru enn ekki í sjónmáli. Volo- dimír Selenskí Úkraínuforseti sagði í gær að Rússar réðu nú yfir um fimmtungi landsins, en hann ávarp- aði þá Evrópuþingið í Strassborg. Sagði Selenskí að það landsvæði sem Rússar hefðu náð á sitt vald eft- ir innrásirnar 2014 og 2015 næmi nú nærri 125.000 ferkílómetrum, en það væri svæði sem væri mun stærra en Belgía, Holland og Lúxemborg til samans. Patríarkinn ekki á svartan lista Evrópusambandið ákvað í gær að nýjustu refsiaðgerðir sínar myndu ekki ná til Kírills, patríarka rúss- nesku rétttrúnaðarkirkjunnar, en hann hefur verið sakaður um að vera handbendi Vladimírs Pútíns Rúss- landsforseta og beita embætti sínu í þágu rússneskra stjórnvalda. Var ákvörðunin um að taka hann af svörtum lista Evrópusambandsins tekin vegna mótmæla frá Ungverj- um, sem einnig höfðu sett sig upp á móti frekari refsiaðgerðum í sam- bandi við kaup á olíu frá Rússlandi, en olíubannið var samþykkt seint á mánudagskvöld. Alexander Novak, aðstoðarfor- sætisráðherra Rússlands, varaði við því í gær að olíubannið myndi fyrst og fremst bitna á evrópskum neyt- endum og að brátt yrði mögulega „mikill skortur“ á olíu í Evrópusam- bandinu. Gefa dróna til Litháens Tyrkneski vopnaframleiðandinn Baykar Defence lýsti því yfir í gær að hann myndi gefa Litháen ókeypis Bayraktar-dróna, eftir að þjóðar- söfnun Litháa hafði skilað rúmlega fimm milljónum evra til að kaupa drónann og gefa Úkraínumönnum. „Litháíska þjóðin hefur með mikilli sæmd safnað nægu fé til að kaupa Bayraktar TB2-dróna fyrir Úkra- ínu,“ sagði í yfirlýsingu Baykar á Twitter. Kom þar ennfremur fram að fyrirtækið hefði gefið drónann og óskað eftir því að fjármunirnir sem söfnuðust yrðu settir í mannúðarað- stoð við Úkraínumenn. Varnarmálaráðuneyti Litháens lýsti því yfir að það væri þakklátt fyrir ákvörðun fyrirtækisins og tyrk- neskra stjórnvalda að heimila gjöf- ina, og að Litháen myndi nú tryggja að dróninn færi með fullum vígbún- aði beint til Úkraínumanna, en Bay- raktar TB2-dróninn hefur reynst einkar vel sem skriðdrekabani á víg- vellinum í Úkraínu. Berjast til þrautar um borgina - Rússar ráða nú yfir um fimmtungi af allri Úkraínu - Kírill tekinn af svörtum lista Evrópusambands- ins að beiðni Ungverja - Olíubannið mun bitna verst á neytendum - Söfnuðu fyrir Bayraktar-dróna AFP/Aris Messinis Stríð Reykur rís yfir Severodonetsk þar sem harðir bardagar geisa. Múgur og margmenni kom sam- an í miðborg Lundúna í gær til þess að fagna því að í ár eru 70 ár liðin frá því að Elísabet 2. Bretadrottning tók við völdum. Hátíðahöldin hófust í gær með glæsilegri her- og flugsýningu við breiðstrætið The Mall, sem liggur frá Trafalgar-torgi að Buckingham-höll. Tóku lífvarðasveitir drottning- arinnar þátt í hersýningunni eins og vera ber með sínar frægu bjarnarskinnshúfur á höfði, sem meðlimir lífvarðasveitanna hafa borið frá árinu 1815. Veðrið lék við mannfjöldann og er búist við að milljónir manna vítt og breitt um Bretland muni taka þátt í hátíðahöldum af einhverju tagi vegna tímamót- anna, en þeim lýkur á sunnudag- inn. Mikið um dýrðir í Lundúnum AFP/Yui Mok

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.