Morgunblaðið - 03.06.2022, Page 24
Eygló Gunnþórsdóttir á 70 ára afmæli
í dag. Innilega til hamingju með dag-
inn, elsku mamma okkar. Þú gefur
lífinu svo sannarlega lit.
Hrefna Sif Gunnarsdóttir
Ásdís Rán Gunnarsdóttir
Gunnþór Ægir Gunnarsson
Vignir Þór Gunnarsson
Börkur Eiríksson
Joan Corsame
70 ára
24 DÆGRADVÖL
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 3. JÚNÍ 2022
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl ,
Hrútur Þú hefur skuldbundið þig til stórra
hluta og ættir nú að segja stopp við fleiri
verkefnum. Þú ert með góð spil á hendi,
ekki klúðra því.
20. apríl - 20. maí +
Naut Nú er rétti tíminn til að hrinda í
framkvæmd þeim áætlunum sem þú hefur
svo lengi unnið að. Þér finnst þú heppn-
asta manneskja undir sólinni.
21. maí - 20. júní 6
Tvíburar Margir fá snilldar-skyndi-
hugmyndir, en þú ert ein/n af þeim sem
kunna að láta þær rætast. Fáðu vini þína til
liðs við þig.
21. júní - 22. júlí 4
Krabbi Eitthvað sem þú vildir gera fyrir 5
árum en gast ekki, er aftur uppi á ten-
ingnum. Fylgdu straumnum, það borgar
sig stundum.
23. júlí - 22. ágúst Z
Ljón Einhver kemur þér til aðstoðar án
þess að þú hafir óskað eftir því. Einhverjar
óvæntar uppákomur verða seinni part
dags.
23. ágúst - 22. sept. l
Meyja Að hika er sama og tapa og þú þarft
ekki frekari undirbúning. Ekki troða öðrum
um tær.
23. sept. - 22. okt. k
Vog Það er ástæðulaust að fyllast sektar-
kennd út af þeim hlutum sem ekki er á
þínu valdi að breyta. Stundum er gott að
telja upp að tíu áður en maður segir eitt-
hvað.
23. okt. - 21. nóv. j
Sporðdreki Gættu þess að gera ekki of
miklar kröfur til annarra. Nú er rétti tíminn
til að stefna félögunum saman til fundar
og leggja á ráðin.
22. nóv. - 21. des. h
Bogmaður Þess er krafist að þú sinnir
málefnum sem tengjast fjölskyldunni.
Vatnaskil verða í vissu máli í þessum mán-
uði.
22. des. - 19. janúar @
Steingeit Þótt það sé ágætt að hafa nóg
að gera verður þú að varast að taka að þér
of mörg verkefni í einu. Hafðu varann á
gagnvart tunguliprum sölumönnum.
20. jan. - 18. febr. ?
Vatnsberi Hafir þú ekki gaman af hlut-
unum skaltu láta þá vera. Ekki setja öll
eggin í sömu körfuna.
19. feb. - 20. mars =
Fiskar Það er ekki nauðsynlegt að aðrir
séu þér sammála í öllum atriðum. Þú færð
mörg prik fyrir góða hugmynd.
ingar höfnuðu EES-samningnum í
þjóðaratkvæðagreiðslu þar í landi.
Síðustu tvö árin í ráðuneytinu
vann ég með málefni sýslumanna,
Neyðarlínunnar og að verkefni fjög-
urra ráðuneyta um Landskrá fast-
eigna, sem fól í sér að sameina
helstu skrár um fasteignir í landinu,
fasteignaskrá Fasteignamats ríkis-
ins og þinglýsingabækur sýslu-
manna. Landskrá fasteigna, sem síð-
ar fékk heitið fasteignaskrá, er
leiddar til lykta í ráðuneytinu, en
ekki fyrir dómstólum eins og nú. Ég
fékk sex mánaða leyfi og vann hjá
EFTA Secretariat í Genf 1992-1993
og þar var unnið að undirbúningi
innleiðingar EES-samningsins, m.a.
að skipulagi EFTA Suveillance
Authority (ESA) og EFTA-
dómstólsins, sem upphaflega átti
hvort tveggja að vera staðsett í
Genf. Það var því verulegur skellur í
desember 1992 þegar Svisslend-
M
argrét Hauksdóttir
fæddist 3. júní 1962
á Fæðingarheim-
ilinu í Reykjavík.
Hún bjó í Meðal-
holtinu til sjö ára aldurs, síðan tvö ár
á Hávallagötu og þaðan flutti fjöl-
skyldan í nýbyggt einbýlishús, sem
foreldrar hennar byggðu, í Austur-
gerði í Reykjavík.
„Á sumrin dvöldum við systkinin
ásamt móður minni í Stykkishólmi
hjá móðurömmu minni. Faðir minn
sinnti sínu starfi í bænum og kom oft
um helgar í Hólminn. Í Stykkishólmi
á sumrin var undursamlegt að vera
og var spennandi heimur.“
Margrét var fyrstu tvö árin í Ís-
aksskóla, síðan í Öldugötuskóla
(gamli Stýrimannaskólinn), Breiða-
gerðisskóla og Réttarholtsskóla.
Hún lauk stúdentsprófi frá Mennta-
skólanum við Sund og var þar virk í
félagslífinu. „Ég var í stjórn nem-
endafélagsins og var gjaldkeri og
yfir skemmtanasviði, sem fól í sér að
skipuleggja og sjá um nemenda-
böllin og tónleika. Þar fékk ég mikil-
væga reynslu í rekstri, bókhaldi og
markaðssetningu með því að semja
við skemmtistaði, hljómsveitir, aug-
lýsa viðburðina og tryggja að þeir
skiluðu hagnaði, standa skil á op-
inberum gjöldum, þ.e. skemmt-
anaskatti og stefgjöldum.“ Eftir
fyrsta ár í MS fór Margrét sem
skiptinemi á vegum AFS til Kali-
forníu í Bandaríkjunum í eitt ár.
Að loknu stúdentsprófi lagði
Margrét stund á nám í lögfræði og
lauk cand. juris-prófi 1989. „Um það
leyti sem tvö eldri börnin mín voru í
háskólanámi þá fór ég í MBA-nám
hjá Háskóla Íslands og lauk því
2010.“ Margrét var í sumarstarfi
sem flugfreyja tvö sumur þegar hún
var í lagadeildinni.
Sem laganemi var Margrét í
sumarstarfi í dóms- og kirkju-
málaráðuneyti og hóf störf þar strax
að loknu laganámi. „Þar var mitt
æskuheimili sem lögfræðingur og
þar hlaut ég góða undirstöðu í
stjórnsýslunni. Ég vann mest með
sifjamál, þ.e. skilnaðarmál, um-
gengnismál, meðlagsmál, ættleiðing-
armál og forsjárdeilur sem voru þá
sameiginleg skrá um fasteignir,
þinglýsingar fasteigna, mat fast-
eigna, lögheimili, staðföng og af-
mörkun fasteigna á landupplýsinga-
grunni. Ég fylgdi verkefninu um
Landskrá fasteigna til Fasteigna-
mats ríkisins árið 2000 og varð að-
stoðarforstjóri árið 2002 og síðan
forstjóri árið 2013.
Margir áhugaverðir málaflokkar
hafa verið innan stofnunarinnar,
sem nú er Þjóðskrá Íslands, eftir
sameiningu við Þjóðskrá árið 2010
sem þá var undir dóms- og kirkju-
málaráðuneytinu. Skráin, þjóðskrá,
er skrá yfir einstaklinga sem búsett-
ir eru hér á landi og eru allar breyt-
ingar á stöðu hvers einstaklings, lög-
heimilisbreytingar o.fl. þar skráðar
frá vöggu til grafar. Málaflokkur Ís-
land.is var undir Þjóðskrá Íslands
á árunum 2011-2019 og þá komst á
gott samspil við innleiðingu raf-
rænnar stjórnsýslu þjóðskrár og
fasteignaskrár auk innleiðingar og
útbreiðslu á Mínar síður, rafræns
pósthólfs, Íslykilsins og rafrænnar
auðkenningagáttar.
Nú eru kaflaskil hjá Þjóðskrá Ís-
lands og hjá mér sem forstjóra
stofnunarinnar. Innviðaráðherra
hefur ákveðið að flytja fasteignaskrá
frá Þjóðskrá til Húsnæðis- og mann-
virkjastofnunar. Ég óska þess að
málaflokki fasteignaskrár verði til
framdráttar að fá áhuga og athygli
ráðherra. Ég hef beðist lausnar frá
embætti forstjóra frá 31. júlí og mun
taka við og leiða nýtt framþróunar-
verkefni í Stjórnarráðinu að loknu
sumarleyfi. “
Margrét var í stjórn Stéttarfélags
háskólamenntaðra starfsmanna
Stjórnarráðsins 1993-2000, formað-
ur í stjórn MBA-félags Háskóla Ís-
lands Alumni 2012-2015, sat í stjórn
Félags forstöðumanna ríkisstofnana
frá 2018 og formaður félagsins frá
2019 til 2021.
Áhugamál Margrétar eru mörg og
tengjast mikið hreyfingu og sam-
verustundum með fjölskyldunni og
vinum. „Við hjónin eru algjörlega
samstiga og stundum áhugamálin
saman. Við förum ávallt í 3ja til 5
daga fjallgöngu á hverju sumri og
oft með allt á bakinu. Þá eru hjól-
Margrét Hauksdóttir, forstjóri Þjóðskrár Íslands – 60 ára
Börnin og tengdadóttir Frá vinstri: Jón Ágúst, Hildur Rut, Stefanía og
Haukur í sextugsafmæli Hannesar í mars 2022.
Alls konar tímamót
Hjónin Hannes og Margrét við
Grænahrygg í júlí 2021.
Með barnabörnunum Alba, Margrét
og Birnir í garðinum heima í vor.
Við
Hækk
um
nni
í gleð
i
Indriði Úlfsson á 90 ára afmæli í
dag. Hann fæddist á Héðinshöfða á
Tjörnesi og ólst þar upp. Indriði var
skólastjóri Oddeyrarskóla á Akureyri
í 30 ár. Hann var ritstjóri tímaritsins
Heimilis og skóli um tíma, hefur
skrifað 21 barnabók og safnað
barnaleikritum eftir íslenska höf-
unda, sem gefin verða til skólasafns-
ins á Akureyri. Hann hefur skrifað
framhaldsleikrit fyrir börn í útvarp-
inu og barnaleikrit sem sýnd hafa
verið í sjónvarpinu. Leikfélag Akur-
eyrar setti enn fremur leikrit á svið
eftir Indriða.
Eiginkona Indriða er Helga Þórólfs-
dóttir og eru þau búsett á Akureyri á
veturna en á Héðinshöfða á sumrin.
Þau eignuðust tvö börn.
Árnað heilla
90 ára
Ljósmynd/Rúnar Þór
Til hamingju með daginn