Morgunblaðið - 03.06.2022, Side 25

Morgunblaðið - 03.06.2022, Side 25
reiðar stundaðar hérlendis og er- lendis og hjólin ávallt tekin með í fellihýsaútilegurnar, fluguveiðin er stunduð mun sjaldnar og núorðið er það aðeins einn veiðitúr á sumri, svigskíðin á veturna og nú erum við að stíga okkar fyrstu spor á göngu- skíðum og vorum á námskeiði í Austurríki fyrr á þessu ári. Þá hefur vinahópurinn okkar hvatt okkur í golfið og við höfum tekið gott nám- skeið og höfum farið fyrsta 18 holu hringinn með hópnum. Næsta mál á dagskrá er að skrá sig í golfklúbb.“ Fjölskylda Eiginmaður Margrétar er Hannes Guðmundsson, f. 21.3. 1962, raf- magnsverkfræðingur og sviðsstjóri hjá Verkís hf. „Við höfum verið bú- sett í Laugarásnum í 25 ár og kunn- um afar vel við okkur þar.“ For- eldrar Hannesar: Guðmundur E. Hannesson, f. 12.9. 1933, d. 17.1. 1975, verkstjóri hjá RARIK, og Sól- veig Halblaub, f. 21.9. 1939, sjúkra- liði. Þau voru búsett í Reykjavík og voru gift. Börn: 1) Hildur Rut Halblaub, f. 13.8. 1984, listfræðingur, búsett í Reykjavík; 2) Haukur Hannesson, f. 13.11. 1989, iðnaðarverkfræðingur, eiginkona hans er Stefanía Erla Óskarsdóttir, f. 12.7. 1989, markaðs- fræðingur. Búsett í Reykjavík. Þeirra börn eru Hrafntinna Alba, f. 20.8. 2014 og Birnir Theodór, f. 27.11. 2018; 3) Jón Ágúst, f. 5.5. 1995, hugbúnaðarverkfræðingur og er í masternámi í Kaupmannahöfn. Systkini Margrétar eru Jón Haukur, f. 5.8. 1952; 2) Brandur, f. 14.1. 1961, rafmagnsverkfræðingur búsettur í Búkarest; Ólafur Þór, f. 10.3. 1964, héraðssaksóknari búsett- ur á Akranesi, og Kristín, f. 24.5. 1966, myndlistarmaður og ljósmynd- ari, búsett í Reykjavík. Foreldrar Margrétar. Haukur Haraldsson, f. 13.5. 1931, d. 28.1. 2014, deildarstjóri hjá Trygginga- stofnun ríkisins, og Auður Jóns- dóttir, f. 12.11. 1930, húsmóðir og fv. fulltrúi hjá Tryggingastofnun ríkis- ins. Þau voru gift og búsett í Reykja- vík. Margrét Hauksdóttir Ástríður Jónasdóttir húsmóðir í Höskuldsey Páll Guðmundsson bóndi í Höskuldsey á Breiðafirði Kristín Pálsdóttir húsmóðir og saumakona í Elliðaey og Stykkishólmi Jón Breiðfjörð Níelsson vitavörður í Elliðaey á Breiðafirði Auður Jónsdóttir húsmóðir og fv. fulltrúi í Reykjavík Dagbjört H. Jónsdóttir húsmóðir á Sellátrum Níels Breiðfjörð Jónsson bóndi á Sellátrum í Breiðafirði Jóhanna Jóhannsdóttir húsmóðir í Reykjavík Brandur Jónsson verkamaður í Reykjavík Margrét Brandsdóttir húsmóðir í Reykjavík Haraldur Guðmundsson ráðherra, alþingismaður og sendiherra, bjó í Reykjavík Rebekka Jónsdóttir húsmóðir á Ísafirði, dóttir Jóns Sigurðssonar alþm. á Gautlöndum Guðmundur Guðmundsson prestur í Gufudal og ritstjóri á Ísafirði Ætt Margrétar Hauksdóttur Haukur Haraldsson deildarstjóri í Reykjavík DÆGRADVÖL 25 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 3. JÚNÍ 2022 Faxafeni 14 108 Reykjavík www.z.is Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim Unger „JÆJA, ÞÁ ER ÞETTA KOMIÐ. HVAÐ ERU 160 KÍLÓ DEILT MEÐ TVEIMUR?“ Hermann Ferdinand Hrólfur hræðilegi Grettir ... það þegar hann horfir á þig dáleiddur. ER GOTT AÐ VERA HÆTT AÐ VINNA? MUNIÐ ÞAÐ, GOTT FÓLK … ÞAÐ ERU TVÆR HLIÐAR Á HVERJU MÁLI! HEYRÐIRÐU ÞAÐ, HELGA! JÁ… ÞAÐ ER SANNLEIKURINNOG SVO ÞÍN HLIÐ! „FRÁBÆRT, ÞÚ FANNST ÞAÐ. VIÐ SKULUM ÞÁ BYRJA.“ HJÓNABANDS- RÁÐGJÖF HJÓNABANDS- RÁÐGJÖF Hinn snjalli ljóðaþýðandi Helgi Hálfdánarson segir í for- mála bókar sinnar „Japönsk ljóð frá liðnum öldum“ að „tanka“ sé eftirlætis-ljóðform Japana. 31 at- kvæði skipast reglulega í 5 ljóð- línur, 5, 7, 5, 7 og 7 atkvæði í línu. Í tönku er hvorki rím né háttföst hrynjandi, enda áherslu- munur atkvæða mjög lítill í mál- inu sjálfu, áferð þess er jöfn. Þetta er fyrsta tankan sem ég lærði og er eftir Ísúmí Síkibú landstjórafrú, – Hárið: Ég lá endilöng, og svart hár mitt var úfið, mér stóð á sama, ég gat einungis hugsað um hann sem hafði ýft það. Helgi segir að japanska stakan sé öðru fremur náttúruljóð og spyr hvað sé unaði náttúrunnar nærtækara en ljóð: Hvar er sá maður, sem heyrir söng náttgalans meðal blómanna, eða sér frosk hjá vatni, og ekki fer að yrkja? Og hingað heim á Boðnarmjöð. „Allra meina bót“ segir Guð- mundur Arnfinnsson: Morgunkaffið léttir lund, linar straff og kvíðann, einnig snafs í morgunmund mér vel skaffar líðan. Á mánudag skrifaði Ingólfur Ómar Ármannsson „Nú fer að styttast í að rigni“: Glóey varma gefur mér gróður skrælir allan. Hitabrækjan búin er að brenna á mér skallann. Sama dag orti Guðmundur um veðrið og kallar Umskipti: Grúfði yfir þokan þétt, þakti jarðarbólin, alveg hefur henni létt, í heiði skín nú sólin. Enn yrkir Guðmundur og enn kallar hann stökuna Umskipti: Streymir regn úr geimsins gátt, gráta dimmu skýin. Við Mývatn er af mýi fátt, en mörg eru þar býin. Þórunn Hafstein grípur boltann á lofti og kallar „Í gær og í dag“: Þokan læddist þung sem blý, þungt var yfir Vogi. Sést þó núna sólin hlý og sumars himinbogi. En svo: Aftur fyrir sortnar sól, sumarljóminn allur burt. Þoka vefur byggð og ból, birtan kvödd með pí og kurt. Halldór Blöndal halldorblondal@simnet.is Vísnahorn Tönkur og ferskeytlur

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.