Morgunblaðið - 03.06.2022, Qupperneq 28
28 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 3. JÚNÍ 2022
VIÐTAL
Kristín Heiða Kristinsdóttir
khk@mbl.is
„Að stefna saman reynsluboltum og
þeim sem eru að taka fyrstu skrefin í
heimildamyndagerð hér á Íslandi,
hefur alltaf verið markmið Skjald-
borgar. Hátíðin ber jafna virðingu
fyrir hinu smáa, stóra, skrýtna og
fokdýra,“ segir Karna Sigurðar-
dóttir, einn af skipuleggjendum
Skjaldborgar, há-
tíðar íslenskra
heimildamynda
sem haldin verður
um hvítasunnu-
helgina á Pat-
reksfirði, 3.-6.
júní.
„Myndirnar í
ár koma úr fjöl-
mörgum áttum.
Meðal annars frá
fólki sem hefur
verið lengi í kvikmyndagerð en þarna
eru líka mörg ný andlit, sem er ein-
mitt svo skemmtilegt við Skjaldborg.
Til dæmis sýnum við mynd eftir
nemanda úr Kvikmyndaskólanum,
önnur mynd er eftir nemanda sem
hefur verið í breskum kvikmynda-
skóla og einnig er mynd eftir nema
úr Háskóla Íslands þar sem kenndur
er grunnur í heimildamyndagerð,“
segir Karna. Hún bætir við að þrem-
ur myndum, sem voru frumsýndar í
fyrra, hafi verið boðið að taka þátt
núna í keppninni, vegna þeirra sér-
stöku aðstæðna að hátíðinni var af-
lýst í fyrra vegna Covid.
„Annars er ævinlega frumsýn-
ingarkrafa á hátíðinni. Margir börð-
ust við að ljúka við gerð sinna mynda
á Covid-tímum og í fyrra var eina
skiptið sem hátíðin hefur ekki verið
haldin síðan hún var fyrst haldin árið
2007. Skjaldborgarhátíðin er í hópi
elstu kvikmyndahátíða landsins og
þetta er í fimmtánda sinn sem hún er
haldin. Hún er mjög mikilvægur
vettvangur fyrir heimildarmyndahöf-
unda.“
Örmyndir eftir flóttafólk
Þrettán myndir verða sýndar núna
auk þess sem verk í vinnslu verða
kynnt. Eins og ævinlega eru myndir
á hátíðinni fjölbreyttar og fjalla um
ólík málefni.
„Fólk kemur oft inn í heimildar-
myndagerð úr ólíkum áttum og úr
öllum stéttum. Fyrir vikið eru efn-
istökin fjölbreytt. Þarna er mynd um
tengsl þjóðarinnar við sundlaugar og
sundlaugamenningu, mynd um
hljómsveitina Moses Hightower,
mynd sem fjallar um hvernig lista-
menn mættu Covid, mynd um börn
kvótakerfisins og mynd um konu
með fötlun og samband hennar við
hendur sínar og fjölskyldu. Svo fátt
eitt sé nefnt. Í sérdagskránni erum
við m.a. með örmyndir eftir flóttafólk
og innflytjendur sem búa á Ísafirði
og segja frá sínum hversdagsleika,
enda er mjög mikilvægt að sögur séu
sagðar frá fjölbreyttum sjónarhorn-
um. Okkur finnst skemmtilegt að sjá
að hátíðin í ár ljær afar fjölbreyttum
hópum rödd.“
Ástarsaga tveggja kvenna
Heiðursgestur hátíðarinnar í ár er
Magnus Gertten, margverðlaunaður
heimildarmyndagerðarmaður frá
Svíþjóð. Hann
hlaut Teddy-verð-
launin á Berlinale
fyrir heimildar-
myndina Nelly &
Nadine en hún
verður opnunar-
mynd Skjald-
borgar.
„Við erum
ótrúlegt stolt af
því að fá þessa
mynd sem opnunarmynd. Þetta er
ástarsaga tveggja kvenna sem felldu
hugi saman á aðfangadag árið 1944 í
Ravensbruck-útrýmingarbúðunum.
Þrátt fyrir aðskilnað síðustu mánuði
seinni heimsstyrjaldarinnar náðu
þær saman á ný og vörðu ævikvöld-
inu saman. Í verkinu afhjúpar dótt-
urdóttir Nellyar hina ótrúlegu og
ósögðu sögu ástkvennanna sem nær
yfir heimshöfin og samfélagsleg
norm þess tíma. Einnig sýnum við
mynd Magnusar Gerttens, Every
Face has a Name, en hún byggist á
dýrmætu sögulegu efni. Leikstjórinn
fór í rannsóknarferðalag í gegnum
gamalt heimildaefni sem var tekið
upp árið 1945 þegar hátt í tvö þúsund
manns stigu á land í Malmö í nýfund-
ið frelsi eftir dvöl í útrýmingarbúðum
nasista. Í verkinu leggur Magnus
Gertten upp í þá vegferð að finna
fólkið á myndunum, ljá þeim rödd og
tengja við persónu nafnlausra and-
lita,“ segir Karna og bætir við að
myndin kallist á við flóttamanna-
vanda nútímans.
Ari Eldjárn og filmurnar
Karna segir að Skjaldborg sé
uppskeruhátíð heimildarmyndahöf-
unda á Íslandi. Hluti af hátíðinni sé
þó einnig að sinna ákveðnu
fræðsluhlutverki með því að skapa
aðstæður til samtals.
„Þetta árið eru aðrir dagskrárliðir
í brennidepli sérlega veglegir. Í
tengslum við hátíðina verða heima-
myndadagar og sýnt verður valið
efni frá heimafólki á Vestfjörðum um
helgina. Þá býðst fólki að koma með
efni úr fórum sínum, hvort sem er á
filmum, vídeóspólum eða á stafrænu
formi. Oft er þetta eitthvað sem fólk
hefur ekki skoðað lengi og þessi
heimilismyndbönd gefa okkur dýr-
mæta sýn á veruleikann og hvers-
daginn. Við verðum með heimamyn-
dabingó þar sem spilað verður upp úr
þessu heimagerða myndefni Vest-
firðinga,“ segir Karna. Hún bætir við
að Björg Sveinbjörnsdóttir, frá
Hversdagssafninu á Ísafirði, muni
gefa áhorfendum innsýn í hljóðin úr
eldhúsi ömmu sinnar.
„Ari Eldjárn ætlar að fylgja áhorf-
endum gegnum myndefni frá fjöl-
skyldu sinni en hann hefur sankað að
sér alls konar efni úr þeim ranni,
enda er hann sérlega áhugasamur
um filmur, gamlar myndavélar,
varpa og og tæknina sem fylgir því.
Kvikmyndasafn Íslands verður með
sérdagskrárlið þar sem sýnt verður
áður óbirt efni frá þessu svæði, Vest-
fjörðum. Við vinnum út frá því að há-
tíðin er á Patreksfirði. Staðsetningin
er hluti af hátíðinni og við viljum að
dagskráin endurspegli hversu
dásamlegt er að vera í sumarnóttinni
á þessum stað. Oddi fiskvinnsla á
Patreksfirði skaffar hráefni í plokk-
fiskveislu sem kvenfélagið reiðir
fram fyrir hátíðargesti. Heimabakað
rúgbrauð verður þar á borðum og
ætíð skapast mjög góð stemning í
þessari veislu, þar sem gestir
hátíðarinnar og heimamenn koma
saman. Eftir síðasta dagskrárlið í
bíóinu á sunnudeginum er mikill há-
punktur þegar skrúðganga fer frá
Skjaldborgarbíói að félagsheimilinu,
þar sem verður verðlaunaafhending,
bæði dómnefndarverðlaun og áhorf-
endaverðlaun. Síðan verður kongó-
dans og hin árlega limbókeppni. Há-
tíðin endar á sveitaballi, þar sem hin
vestfirska hljómsveit Celebes frá
Suðureyri við Súgandafjörð heldur
uppi stuðinu. Skjaldborg er mikil
stemningshátíð, heimildarmynda-
gerð er ástríðufag og einstakt fyrir
fólk að safnast saman í fjörð eins og
Patreksfjörð með kollegum og
heimafólki. Á þessari hátíð er ein-
staklega hlý og falleg stemning og
mikill samtakamáttur, enda verður
oft til samstarf og verkefni á hátíð-
inni sjálfri. Dæmi þar um er heimild-
armyndin Hækkum rána, sem verð-
ur einmitt sýnd núna í fullri lengd en
hún kom fyrst á Skjaldborg sem
stuttmynd.“
Nánar á: skjaldborg.is, facebook:
skjaldborg.hatid.islenskra.heimilda-
mynda, instagram.com/skjald-
borg_heimildamyndahatid
Okkar sýn Á Skjaldborgarhátíðinni verða sýndar örmyndir eftir flóttafólk og innflytjendur sem búa á Ísafirði og
segja þeir þar frá sínum hversdagsleika. Í aftari röð f.v.: Nina Ivanova, Abdullrahmwan Albdaiwi, Abdullah Alb-
daiwi, Yuliia Voloshchenko, Kateryna Ozhyhova. Fyrir framan eru Ayah Albdaiwi, Ruaa Albdiwi.
Verðlaunamynd Úr Nelly & Nadine, opnunarmynd Skjaldborgar í ár.
Staðsetningin hluti af hátíðinni
- Heimildarmyndahátíðin Skjaldborg verður haldin á Patreksfirði 3.-6. júní - Þrettán myndir
sýndar og verk í vinnslu verða kynnt - Með elstu kvikmyndahátíðum landsins og haldin í 15. sinn
Magnus Gertten
Karna
Sigurðardóttir
Þorvaldur Jónsson opnar sýning-
una Hundurinn er til staðar í
NORR11 á Hverfisgötu í dag, föstu-
dag, kl. 16. Rauður þráður sýning-
arinnar er hundur að skíta, skv. til-
kynningu. Þar segir að verk
Þorvaldar séu eins konar sögusvið
þar sem ýmsar atburðarásir eigi sér
stað.
„Til að mynda má í þeim sjá nakið
fólk í hringdansi, bófa sem er búinn
að týna þýfinu sínu og málara sem
stigið hafa í málningu og spora allt
út eftir sig. Rauði þráður sýning-
arinnar er þó hundar að skíta,“ seg-
ir í tilkynningu og titill sýningarinnar sagður vísun í verkið
„The Artist Is Present“ þar sem höfundurinn, Marina Abramo-
vic, sat gegnt gestum sýningarinnar og starði í augun á þeim.
„Á sama hátt er eitthvað mjög einlægt við að horfa í augun á
kúkandi hundi, hann algerlega berskjaldaður og óvarinn,“ seg-
ir í tilkynningunni. Augnablik sem vert sé að fanga.
Hundurinn er til staðar í NORR11
Sýnir Þorvaldur Jónsson.
Silva Þórðardóttir söngkona og
Steingrímur Teague, píanóleikari
og söngvari, fagna vínylútgáfu
standardaplötunnar More Than
You Know með tónleikum í Mengi
á morgun, 4. júní, kl. 20.30.
„Tvær raddir, wurlitzerhljóm-
borð og dempaður ómur af píanói í
næsta herbergi. Þetta er uppleggið
á plötunni More Than You Know
sem kemur út á vínyl nú í júní og
inniheldur sex gamla jazzstand-
arda og einn nýlegan,“ segir í til-
kynningu og að markmiðið hafi
verið að láta á það reyna hvort
hægt væri að framreiða þessi lög á einhvern svipsterkan máta
þannig að ekki fari á milli mála um hvaða plötu sé að ræða.
Niðurstaðan skyldi vera plata sem hljómaði í senn framandi
og kunnugleg. „Til þess að allt verði með veglegasta móti á
útgáfutónleikunum slæst Daníel Friðrik Böðvarsson í hópinn
á hljóðgervil og gítar,“ segir í tilkynningu.
Plötuútgáfu fagnað í Mengi
Syngur Silva Þórðardóttir.
Enska söngkonan Kate Bush á
óvænta endurkomu á lista Spotify
yfir mest spiluðu lögin í Bretlandi
og situr lag hennar, „Running Up
That Hill“ frá árinu 1985, nú í
toppsæti þess lagalista. Þessar ný-
tilkomnu vinsældir lagsins má
rekja til nýjustu og fjórðu þátta-
raðar Stranger Things á Netflix
þar sem lagið gegnir mikilvægu
hlutverki og er leikið margoft.
Þættirnir hafa slegið met Netflix
hvað varðar áhorf yfir fyrstu helgi
í sýningum, þ.e. af þeim sem eru á
ensku.
Lag Bush hefur einnig farið sem eldur í sinu um samfélags-
miðla, að því er fram kemur í frétt á vef BBC, nánar tiltekið
TikTok og Twitter. Þá er það fjórða mest streymda lagið á
heimsvísu á Spotify og í efsta sæti lagalista iTunes frá Apple.
Lagið er nú orðið vinsælasta lag Bush frá upphafi, sé litið til
fjölda streyma á því.
Lag Bush slær í gegn á ný
Vinsæl Bush ung að árum.