Morgunblaðið - 03.06.2022, Síða 29
MENNING 29
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 3. JÚNÍ 2022
Nánari upplýsingar um sýningartíma á sambio.is
TRYGGÐU ÞÉR
MIÐA INNÁ
“Top Gun: Maverick is outstanding.”
“Breathtaking”
“It’s the BEST MOVIE OF THE YEAR!”
“Might be the best movie in 10 years.”
“Top Gun: Maverick is fantastic.” “Best Action Sequel Of All Time”
“What going to the movies is all about”
“You must see this one in the theater.”
“a must see!”
U S A TO D AY
72%
Empire Rolling StoneLA Times
STÓRKOSTLEG NÝ FJÖLSKYLDUMYND
ÚR TÖFRAHEIMI HARRY POTTER.SÝND MEÐ ÍSLENSKU TALI
BENEDICT
CUMBERBATCH
ELIZABETH
OLSEN
chiwetel
ejiofor
BENEDICT
WONG
xochitl
gomez
MICHAEL
STÜHLBARG
RACHEL
MCadams
96%
Empire
The Playlist BBC The sun
Total FilmRogerEbert.com
Nýræktarstyrkir Miðstöðvar
íslenskra bókmennta voru afhentir í
gær í 15. sinn í Gunnarshúsi og hlutu
þá þrír efnilegir rithöfundar sem fá
hver um sig hálfa milljón króna í
styrk fyrir verk sín. Guðmundur
Magnússon hlaut styrk fyrir ljóða-
bókina Talandi steinar; Nína Ólafs-
dóttir fyrir skáldsöguna Þú sem ert
á jörðu og Örvar Smárason fyrir
smásagnasafnið Svefngríman.
Samkvæmt upplýsingum frá Mið-
stöðinni eru Nýræktarstyrkir veittir
árlega fyrir skáldverk höfunda sem
eru að stíga sín fyrstu skref á ritvell-
inum, óháð aldri, og til að hvetja þá
til frekari dáða á þeirri braut. Átt er
við skáldverk í víðri merkingu; sög-
ur, ljóð, leikrit og fleira. Nýræktar-
styrkir hafa verið veittir frá árinu
2008; tveir til fimm styrkir í hvert
sinn og valið er úr innsendum hand-
ritum, en alls bárust 60 handrit í ár.
Frá upphafi hafa rúmlega sjötíu höf-
undar hlotið viðurkenninguna fyrir
afar fjölbreytt verk, en meðal þeirra
eru Fríða Ísberg, Sverrir Norland,
Benný Sif Ísleifsdóttir, Hildur
Knútsdóttir og Dagur Hjartarson.
Að vali styrkhafa standa bók-
menntaráðgjafar Miðstöðvarinnar,
með samþykki stjórnar. Ráðgjafar í
ár voru Hanna Steinunn Þorleifs-
dóttir og Ingi Björn Guðnason.
Næmni, nánd og húmor
Í umsögn þeirra um ljóðabók Guð-
mundar segir: „Talandi steinar er
ljóðabálkur þar sem lýst er á áhrifa-
ríkan hátt dvöl ljóðmælanda á geð-
deild og viðureign hans við sálarang-
ist og söknuð. Höfundur yrkir af
næmni og skilningi á viðfangsefninu
og dregur upp sannfærandi mynd af
ljóðmælanda og samferðafólki hans
á deildinni. Myndmál bókarinnar er
lágstemmt en sterkt og býr yfir
breytilegum endurtekningum sem
ljá verkinu ljóðræna dýpt. Þetta
heildstæða verk býr yfir framvindu
um leið og hvert ljóð stendur sjálf-
stætt sem sjónhending inn í tilveru
þeirra sem glíma við geðsjúkdóma.“
Um skáldsögu Nínu segir: „Þú
sem ert á jörðu lýsir á næman og
grípandi hátt ægivaldi náttúrunnar
á heimskautaslóðum, þar sem mann-
eskjan ein má sín lítils. Höfundur
skapar áþreifanlega nánd við óvægin
náttúruöflin, teiknar upp harða lífs-
baráttu í ísköldu vetrarríki og elur á
óvissu um nánustu framtíð. Sögu-
hetjan er ein til frásagnar og er hug-
arheimur hennar dreginn skýrum
dráttum. Frásögnin er hljómfögur
og myndræn, orðfærið ríkt og nátt-
úrulýsingar ógnvænlegar.“
Um smásagnasafn Örvars segir:
„Svefngríman hefur að geyma átta
sögur sem dansa á mörkum hvers-
dagslegra frásagna og furðusagna.
Höfundur hefur gott vald á smá-
sagnaforminu, vinnur markvisst
með afmörkuð sögusvið og samspil
persónanna við ólík rými. Hann hef-
ur næmt auga fyrir smáatriðum sem
vega þó þungt í heildarmynd hverr-
ar sögu fyrir sig. Sögurnar eru
harmrænar og sársaukafullar en um
leið hafa þær húmorískan undirtón.“
Samkvæmt upplýsingum frá Mið-
stöð íslenskra bókmennta er Guð-
mundur fæddur og uppalinn í Garð-
inum á Suðurnesjum. Hann er
menntaður kvikmyndagerðarmaður
sem hefur unnið að gerð heim-
ildamynda og vinnur nú að sinni
fyrstu kvikmynd í fullri lengd. Hann
hefur birt smásögur í tímaritinu
Stínu og gert útgáfusamning við
Bjart um útgáfu ljóðabókarinnar
Talandi steinar.
Nína er fædd í Reykjavík og lauk
B.Sc.-prófi í líffræði frá HÍ og M.Sc.-
prófi frá Háskólanum á Hólum með
áherslu á vatnavistfræði. „Nína er
umhverfissinni og ötul útivistarkona
og náttúran birtist sem burðarás í
starfi, námi og áhugamálum,“ eins
og segir í tilkynningu.
Örvar er ljóðskáld, rithöfundur,
tónlistarmaður og tónskáld. „Hann
er menntaður í handritaskrifum frá
kvikmyndaskólanum FAMU í Prag,
og er með BA-gráðu frá HÍ í kvik-
myndafræði og útskrifaðist úr
meistaranámi í ritlist vorið 2021.
Örvar er þekktur fyrir verk sín í tón-
listarheiminum en hann er stofnandi
hljómsveitarinnar múm og með-
limur FM Belfast frá upphafi.“
Ljóðabók, skáldsaga og
smásagnasafn styrkt
- Nýræktarstyrkir Miðstöðvar íslenskra bókmennta veittir
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Gunnarshús Þau Nína, Örvar og Guðmundur hlutu nýræktarstyrki í gær.
Í tilefni af því að 250 ár eru liðin frá
Íslandsleiðangri Sir Josephs Banks
verður í dag, föstudag, kl. 15 opnuð
sýning í Þjóðarbókhlöðu um Banks
og leiðangurinn, sem var fyrsti breski
vísindaleiðangurinn til Íslands.
Í kynningu á sýningunni kemur
fram að Joseph Banks var enskur
náttúrufræðingur og landkönnuður
með brennandi áhuga á grasafræði.
„Hann var vellauðugur landeigandi
og af þingmönnum kominn. Hann
nam við helstu menntasetur Eng-
lands: Harrow, Eton og Christ
Church í Oxford. Hann skrifaðist á
við um 3.000 manns, m.a. nokkra
Íslendinga. Nú er unnið að útgáfu
bréfasafns hans, en alls hafa um
20.000 bréf varðveist. Banks var alla
tíð handgenginn bresku ríkisstjórn-
inni og Georg konungi III, sat í
trúnaðarráði konungs og varð sér-
fræðingur bresku ríkisstjórnarinnar í
málefnum Íslands. Hann var gerður
að barónet 1781 og var um ævina
kjörinn til setu í 72 vísindafélögum
víða um heim. Hann var merkis-
maður á sinni tíð, fyrsti Íslandsvin-
urinn, verndari Íslands á stríðstímum
og bjargvættur,“ segir í sýningar-
skrá. Þar er jafnframt rakið hvert til-
efni Íslandsheimsóknar hans var.
Við opnunina í dag flytja stutt
ávörp Ingibjörg Steinunn Sverris-
dóttir landsbókavörður, Jón Atli
Benediktsson rektor Háskóla
Íslands, Anna Agnarsdóttir prófessor
emeritus, og Sumarliði Ísleifsson
lektor. Því næst opnar Lilja Alfreðs-
dóttir, menningar- og viðskiptaráð-
herra, sýninguna. Sýningin er sam-
starfsverkefni Landsbókasafns
Íslands – Háskólabókasafns og
Menningar- og viðskiptaráðuneytis,
Sagnfræðistofnunar Háskóla Íslands,
Háskóla Íslands, Náttúruminjasafns
Íslands og British Library.
Íslandsleiðangur Sir
Josephs Banks 1772
Ungur Sir Joseph Banks um þrítugt
1733. Stuttu eftir heimkomuna frá
Íslandi sat hann fyrir hjá portrett-
málaranum Sir Joshua Reynolds.
List á tímum
loftslagsvár er
yfirskrift mál-
þings sem
Listahátíð í
Reykjavík efnir
til í Klúbbi
Listahátíðar í
Iðnó í dag,
föstudag, kl. 14.
„Málþingið er
haldið í tengslum við stórsýning-
una Sun & Sea í Hafnarhúsi. Í lok
þess er gestum er boðið að fylgj-
ast með lokaæfingu verksins. Í
samstarfi við Malmö Konsthall,
tónlistarhátíðina Borealis í
Bergen og sviðslistahátíðina CPH
Stage í Kaupmannahöfn er áleitn-
um spurningum um ábyrgð og
hlutverk listarinnar á þessum við-
sjárverðu tímum
varpað fram og
breiðum hópi
boðið að borð-
inu,“ segir í til-
kynningu.
Gestir í pall-
borði verða
Vaiva Grainyté
frá Sun & Sea,
Arnbjörg María
Daníelsen, leikstjóri og listrænn
stjórnandi hjá Norræna húsinu;
Helga Ögmundardóttir lektor við
félagsfræði-, mannfræði- og þjóð-
fræðideild HÍ og Rúrí, mynd-
listarkona. Umræðustjóri er
Guðni Tómasson, dagskrárgerð-
armaður hjá RÚV. Málþingið fer
fram á ensku og er aðgangur
ókeypis.
List á tímum loftslagsvár til umræðu
Rúrí Guðni Tómasson