Morgunblaðið - 03.06.2022, Side 32
STILLANLEG
HJÓNARÚM
MEÐ BODYPRINT DÝNU
WWW.SVEFNOGHEILSA.IS
Svefn heilsa&
PANDORA
STILLANLEGUR
HÆGINDASTÓLL
VANDAÐAR
SÆNGUROG
KODDAR Í
ÚRVALI
EITT MESTA
ÚRVAL AF
HEILSUDÝNUM
Á LANDINU
ÚRVALAF
VÖNDUÐUM
HEILSURÚMUM
GERIÐ GÆÐA- OG
VERÐSAMANBURÐ
Nýr íslenskur barna- og fjölskyldusöngleikur, byggður á
bók Gunnars Helgasonar, Draumaþjófnum, sem kom út
árið 2019, verður frumsýndur á Stóra sviði Þjóðleikhúss-
ins í mars á næsta leikári. Í bókinni fjallar höfundur um
söguheim rottanna í Hafnarlandi sem þekkja sinn sess í
lífinu. Björk Jakobsdóttir skrifar leikgerð, leikstjórn er í
höndum Stefáns Jónssonar, Ilmur Stefánsdóttir hannar
leikmyndina, Filippía I. Elísdóttir búninga, Þorvaldur
Bjarni Þorvaldsson semur tónlistina í sýningunni og
verður tónlistarstjóri og lýsing er í hönd-
um Björns Bergsteins Guðmundssonar.
„Áhorfendur mega búast við æsispenn-
andi upplifun með litríkum og skemmti-
legum persónum, þar sem tekist er á við
margt sem skiptir okkur svo miklu máli í
dag,“ segir í tilkynningu og minnt á að
söguhetja verksins þurfi að taka á
öllu sínu til að uppgötva hugrekkið
innra með sér, þegar líf hennar
umbreytist á svipstundu.
Draumaþjófurinn settur upp
sem söngleikur í Þjóðleikhúsinu
FÖSTUDAGUR 3. JÚNÍ 154. DAGUR ÁRSINS 2022
Sími: 569 1100
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is
Í lausasölu 776 kr.
Áskrift 8.383 kr. Helgaráskrift 5.230 kr.
PDF á mbl.is 7.430 kr. iPad-áskrift 7.430 kr.
Valur er með tveggja stiga forskot á toppi Bestu deild-
ar kvenna í fótbolta, eftir að hafa náð naumlega jafn-
tefli á heimavelli, 1:1, gegn ÍBV í gær. Ásdís Karen Hall-
dórsdóttir jafnaði metin í uppbótartíma leiksins. » 27
Valskonur náðu naumlega jafntefli
ÍÞRÓTTIR MENNING
Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
Guðmundarlundur í Kópavogi er
mjög vinsælt, um 11 hektara útivist-
arsvæði og þangað koma tugir þús-
unda gesta árlega. „Við erum komin
yfir þolmörk og í raun þyrftum við að
stækka svæðið vegna vinsælda þess,“
segir Kristinn H. Þorsteinsson, fram-
kvæmdastjóri Skógræktarfélags
Kópavogs.
Guðmundur H. Jónsson, þáverandi
forstjóri BYKO, og fjölskylda gáfu
Skógræktarfélagi Kópavogs, gamlan
sumarbústað og skóg í leigulandi í
eign Kópavogs í Stórabási í Vatns-
endahlíð í Vatnsendalandi 1997 og
fékk spildan nafnið Guðmundar-
lundur. Félagið hefur unnið mark-
visst að landgræðslu og skógrækt á
svæðinu, en jafnframt stuðlað að auk-
inni fræðslu um það samfara upp-
byggingu þess með útivist og afþrey-
ingu í huga. Þar eru margir göngu-
stígar, grasflatir, leiksvæði, níu holu
minigolfvöllur, tíu brauta frisbí-
golfvöllur og grillaðstaða á þremur
stöðum auk húsnæðis sem er meðal
annars notað sem fræðslumiðstöð
fyrir börn í grunnskólum Kópavogs.
„Svæðið hefur vaxið og dafnað smám
saman og er eitt allra besta og vin-
sælasta útivistarsvæðið landsins,“
segir Kristinn.
Regluleg aðsókn allt árið
Almenningur nýtir svæðið allt árið.
Kristinn segir það vinsælt fyrir ýmis
mannamót eins og til dæmis fyrir-
tækjasamkomur, fjölskyldudaga, af-
mæli og brúðkaup auk þess sem með-
limir í félagasamtökum séu tíðir
gestir. Daglega í desember fyrir jólin
standi jolasveinar.is fyrir leiksýningu,
þar sem Grýlu, Leppalúða, Skjóðu og
fleiri bregður fyrir í skóginum. „Í
fyrra komu 10.000 gestir í skóginn í
desember, annað eins í maí og þessa
vikuna eru tæplega 5.000 skráðir
gestir,“ segir Kristinn um aðsóknina.
Kristinn bendir á að Guðmundar-
lundur sé í raun hlið inn í Vatnsenda-
heiðina og áfram inn í Heiðmörk.
„Þetta er sannkölluð útivistarperla í
jaðri annarrar slíkrar.“ Grunnskóla-
börn í Kópavogi taki þátt í gróður-
setningu í svonefndum Skólaskógum
á hverju ári, skólakrakkar víðs vegar
að af landinu komi á svæðið sér til
skemmtunar og það iði af lífi og fjöri
árið um kring. „Bikarmót fjallahjól-
reiðamanna í Breiðabliki fer fram í
Vatnsendahlíðinni árlega og stjórn-
endur nota aðstöðuna okkar en þessu
fylgir fjöldi keppenda, starfsmanna
og áhorfenda, svo dæmi um viðburð
sé tekið.“
Skógræktarfélag Kópavogs sér al-
farið um svæðið og segir Kristinn
mikla vinnu aðeins við að halda hlut-
um í horfinu. Stækkunarmöguleikar
séu fyrir hendi. Lundurinn sé í
tengslum við skóg fyrir ofan á Vatns-
endaheiðinni og tvinna megi svæðin
betur saman.
„Gríðarlegur fjöldi leitar í Guð-
mundarlund og Vatnsendaheiðina en
þrátt fyrir það verða margir mjög
hissa þegar þeir koma hingað í fyrsta
skipti, og það kemur þeim á óvart
hvað þetta er skemmtilegt svæði. Það
hefur enda aðeins verið reifað hvort
ekki sé kominn tími til að stækka
Guðmundarlund og efla hann.“
Guðmundarlundur með
tugi þúsunda gesta á ári
- Nær 5.000 skráðir gestir í vikunni - Þörf á stærra svæði
Morgunblaðið/Hákon
Í Guðmundarlundi Kristinn H. Þorsteinsson, framkvæmdastjóri Skógrækt-
arfélags Kópavogs, segir að svæðið iði af lífi allt árið og þyrfti að stækka.
Fjör Nemendur úr Vatnsendaskóla, Salaskóla og Smáraskóla auk annarra
gesta nutu lífsins í Guðmundarlundi í fyrradag.