Morgunblaðið - 10.06.2022, Blaðsíða 22
22 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 10. JÚNÍ 2022
Smáauglýsingar
Sumarhús
Sumarhús – Gestahús –
Breytingar
.Framleiðum stórglæsileg sumarhús
í ýmsum stærðum.
.Tökum að okkur stækkun og
breytingar á eldri húsum.
.Smíðum gestahús – margar
útfærslur.
.Sjáum um almennt viðhald á
sumarhúsum og sólpöllum.
.Setjum niður heita potta og
smíðum palla og skjólveggi.
Áratugareynsla –
endilega kynnið ykkur málið.
Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn,
sími 892-3742 og 483-3693,
www.tresmidjan.is
Bílar
Club Car Tempo 2020
Bíll í toppstandi og nýinnfluttur.
Nýir 8V rafgeymar og allur yfirfarinn.
Kr. 1.480.000
Hægt að fá myndir sendar í
tölvupósti.
Sími 8971928 / hb@a7.is
Atvinnuauglýsingar
Blaðberar
Morgunblaðið óskar eftir
blaðberum í
Keflavík
Upplýsingar veitir Guðbjörg
í síma 773 5164
Raðauglýsingar
Raðauglýsingar
Fundir/Mannfagnaðir
AÐALFUNDUR
Félags lykilmanna – FLM
Aðalfundur Félags lykilmanna – FLM verður
haldinn mánudaginn 20. júní nk., kl. 17:00
að Suðurlandsbraut 4a (4.hæð), Reykjavík.
Dagskrá:
Hefðbundin aðalfundarstörf.
Stjórn Félags lykilmanna
Nauðungarsala
Uppboð
Einnig birt á www.naudungarsolur.is.
Framhald uppboðs á eftirfarandi eignum verður háð á þeim
sjálfum, sem hér segir
Úr landi Sólvalla, Mosfellsbær, fnr. 233-1717, þingl. eig. Sólvellir
Heilsuklasi ehf., gerðarbeiðandi Mosfellsbær, þriðjudaginn 14. júní
nk. kl. 10:00.
Helgafell I spilda 7, Mosfellsbær, fnr. 233-0808, þingl. eig. Efstaland
1 ehf., gerðarbeiðandi Mosfellsbær, þriðjudaginn 14. júní nk. kl.
11:00.
Sýslumaðurinn á höfuðborgarsvæðinu
9. júní 2022
Félagsstarf eldri borgara
Aflagrandi 40 Opin vinnustofa kl.9:00-12:30, nóg pláss - Frosti og
vinnuskólahópur með aðsetur í húsinu milli 9:00-12:30 - Morgun-
stund, heitt á könnunni milli 9:00-11:00 - Bollywood fyrir byrjendur
60+ kl.10:00-11:00, nýtt 8 vikna námskeið að byrja, kostar 11.000 -
Bingó kl.13:30, spjaldið kostar 250 kr. - Kaffi kl.14:30-15:20 - Nánari
upplýsingar í síma 411-2702 - Allir velkomnir
Árskógar 4 Kaffispjall kl. 11. Hádegismatur kl. 11.30-12.30. Kaffisala
kl. 14:45-15.30. Heitt á könnunni. Allir velkomnir. Sími: 411-2600
Félagsmiðstöðin Hæðargarði 31 Kaffisopi og spjall kl. 8:30-11:00.
Opin Listasmiðja kl. 9:00-12:00. Hádegismatur kl. 11:30-12:30.
Bíósýning kvikmyndahóps Hæðargarðs kl. 13:00. Opin Listasmiðja kl.
13:00-15:45. Síðdegiskaffi kl. 14:30-15:30.
Garðabær 9.00 Pool-hópur í Jónshúsi. 10.00 gönguhópur frá
Jónshúsi. 13.00-15.00 félagsvist í Jónshúsi (síðasta skipti).
Gerðuberg Opin vinnustofa í Búkollulaut frá kl. 8:30, heitt á
könnunni. Gönguhópur (leikfimi og ganga) frá kl. 10:00. Prjónakaffi frá
kl. 10:00 -12:00. Allir velkomnir.
Hvassaleiti 56-58 Morgunkaffi og spjall frá 8:30-10:30. Handavinna
- opin vinnustofa frá kl. 10:00. Bridge kl. 13:00. Bíósýning kl. 13:15.
Hádegismatur kl. 11:30-12:30, panta þarf fyrir hádegi deginum áður.
Samfélagshúsið Vitatorgi Heitt á könnunni - Föstudagshópur í
handverksstofu 10:30-11:30 - Opin handverksstofa 13:00-16:00 &
síðan er vöfflukaffið á sínum stað. Allar nánari upplýsingar í síma
411-9450. Allir hjartanlega velkomnir til okkar :)
Seltjarnarnes Kaffi í króknum kl. 9:00. Í dag förum við í stuttan
göngutúr um nágrennið. Hittumst í salnum á Skólabraut kl 13:00.
Skráning hafin í ferðina í Hellisgerði þann 21. júní. Skráningablöð
liggja frammi á Skólabraut og Eiðismýri, einnig má skrá sig í síma
6626633. Síðustu forvöð að skrá sig í sumarferðina á Langjökul sem
farin verður næstkomandi fimmtudag 16. júní.
Aðalfundur
Félags Skipstjórnarmanna verður haldinn
í dag, föstudaginn 10. júní 2022 á Grand
Hótel í Hvammi, 1. hæð kl. 14.00.
Dagskrá
1. Kosning fundarstjóra og ritara.
2. Skýrsla stjórnar.
3. Endurskoðaðir reikningar félagsins og sjóða
þess lagðir fram og bornir undir atkvæði.
4. Kjör fulltrúa félagsins í stjórnir, ráð og nefndir.
5. Ákvörðun stjórnarlauna.
6. Kjaramál.
7. Önnur mál.
ATH. Fundurinn verður einnig fjarfundur, félags-
menn munu fá upplýsingar í tölvupósti.
Stjórnin.
Tilkynningar
alltaf - alstaðar
mbl.is
✝
Sigvaldi Gunn-
arsson fæddist í
Hólsseli á Hóls-
fjöllum 5. janúar
1928. Hann lést á
sjúkrahúsinu á
Húsavík 30. maí
2022.
Hann var sonur
Gunnars Runólfs-
sonar og Klöru
Tryggvadóttur en
uppeldisfaðir hans
var Ísak Sigurgeirsson sem
Sigvaldi giftist Lilju Jón-
asdóttur frá Hrauni í Öxnadal á
sumardaginn fyrsta 20. júní 1950.
Þau eignuðust fjögur börn. 1)
Klara, f. 1951, gift Bolla Eiðssyni.
Börn þeirra eru Ella Lilja, Guð-
ríður, Eiðunn, Ragnhildur Berta,
Sigrún og Ísak Örn. Klara og Bolli
eiga 14 barnabörn og sex barna-
barnabörn. 2) Heiðar, f. 1953, gift-
ur Margréti Þórhallsdóttur. Dæt-
ur þeirra eru Rebekka og Sif.
Börn Heiðars með Kristínu Fjeld-
sted eru Sigvaldi, Heimir og Lilja
Dögg. Heiðar og Margrét eiga
átta barnabörn. 3) Elínborg, f.
1955, gift Þorvaldi Yngvasyni.
Börn þeirra eru Heiðar Smári og
Hugrún Ásdís. Elínborg og Þor-
valdur eiga þrjú barnabörn. 4)
Sigríður Kristín, f. 1959, sambýlis-
maður Einar Jónasson. Börn
þeirra eru Jónas Hreiðar, Krist-
jana Lilja, Sigvaldi Þór og Ásrún
Ósk. Sigríður og Einar eiga sex
barnabörn og eitt barna-
barnabarn.
Sigvaldi ólst upp frá fjögurra
ára aldri í Kelduhverfi og byggði
þar, ásamt Lilju konu sinni, nýbýlið
Lyngás. Þar voru þau bændur í 30
ár eða þar til þau fluttu til Húsavík-
ur árið 1980. Á Húsavík vann Sig-
valdi aðallega við fiskvinnslu og al-
menn verkamannastörf. Söngur
var hans líf og yndi og söng hann
lengi með Karlakórnum Hreim og
síðustu árin með kór eldri borgara
á Húsavík.
Útför Sigvalda fer fram frá
Húsavíkurkirkju í dag, 10. júní
2022, kl. 14.
reyndist honum sem
besti faðir. Klara og
Ísak bjuggu lengst af
á Undirvegg í Keldu-
hverfi. Systkini hans
frá föður eru: Krist-
björg, Sigfinnur,
Hreinn, Jóna, Gunn-
hildur og Pálmi.
Systkini frá móð-
ur: Hallgrímur (lést á
fyrsta ári), Sigurgeir,
Tryggvi, Sigurbjörg
og Kristrún.
Nú er komið að leiðarlokum hjá
tengdaföður mínum Sigvalda
Gunnarssyni. Ótal minningar
streyma fram en fyrst og fremst
þakklæti. Sigvaldi var mikill sögu-
maður, með góða frásagnargáfu og
skemmti okkur oft með hnyttnum
frásögnum og látbragði og að sitja
með honum á góðri stundu gleymd-
ist hvað tímanum leið. Hann var
flinkur penni og eru til frábærlega
vel skrifaðar sögur og minningar
eftir hann. Hann var fjölhæfur
maður, skemmtilegur persónuleiki
og mikill húmoristi. Söngur var
hans líf og yndi og söng hann meðal
annars í tveimur kórum, Karla-
kórnum Hreimi og Kór eldri borg-
ara á Húsavík. Sonur hans minnist
þess þegar pabbi hans sat undir
stýri á vélunum í heyskap, þá söng
hann svo hátt að það heyrðist
meira í honum en vélinni. Tengda-
foreldrar mínir Sigvaldi og Lilja
voru samhent og dugleg hjón, ein-
staklega gestrisin og góð heim að
sækja. Þau voru mikil náttúrubörn
og var gaman að ferðast með þeim.
Í bílferðum fór ekkert framhjá
þeim og var alltaf mikil umræða
um það sem fyrir augu okkar bar.
Sumarið 2021 fórum við fjölskyld-
an með þau á æskuslóðir Lilju að
Hrauni í Öxnadal og áttum þar
yndislegan dag og nutum skemmti-
legra frásagna þeirra gömlu
hjónanna. Frá þessum degi eigum
við ómetanlegar minningar. Sig-
valdi var langt á undan sinni samtíð
með margt, hann fylgdist vel með
öllu sem var um að vera í sínum
stóra hópi afkomenda. Öll erum við
stolt af seiglunni og samvinnunni
hjá þeim hjónum sem á sínum full-
orðinsárum hafa staðið þétt saman
og stutt hvort annað. Ást og kær-
leikur til síðustu stundar.
Þinn lífsins vegur víst á enda er
viðkvæm stund og okkur setur hljóða.
Í sumarlandinu nú skemmtir þér
samfylgd þína þökkum ljúfa og góða.
(Sigríður Hörn Lárusdóttir)
Elsku Lilja, Klara, Heiðar, Ella
og Sigga, mína dýpstu samúð.
Guð blessi minningu tengdaföð-
ur míns, Sigvalda Gunnarssonar.
Margrét G.
Þórhallsdóttir.
Elsku afi minn. Nú hefur þú
kvatt okkur og sakna ég þín mikið.
Mínar bestu stundir voru hjá ykk-
ur ömmu í stofunni að hlusta á þig
segja sögur og hlæja. Þú varst svo
mikill sögumaður að það var unun
að hlusta á þig. Einnig mun ég
aldrei gleyma þegar við flugum
saman til Reykjavíkur þar sem þú
varst að fara til læknis. Þú spurðir
hvort ég væri flughrædd og svaraði
ég því að sjálfsögðu neitandi. Ætl-
aði nú alls ekki að láta þig vita að ég
væri hreinlega að skíta á mig af
hræðslu, þar sem ég var þarna til
að aðstoða þig. En þú greinilega
fannst að mér var ekki sama þar
sem þú tókst í höndina mína og
hélst í hana alla flugferðina. Þér
var mikið í mun að öllum liði vel og
varst alltaf að spyrja hvernig ég
hefði það og aðrir í fjölskyldunni.
Einnig varstu vanur að hringja og
athuga með mig, þau fáu skipti sem
liðu meira en 3-4 dagar að við hitt-
umst.
Elsku afi minn, ég trúi því að þú
sért á góðum stað og haldir áfram
að segja sögur. Við munum hugsa
vel um ömmu Lilju og ylja okkur
við dásamlegar minningar af þér.
Þangað til við hittumst aftur.
Ég elska þig.
Þín
Kristjana Lilja.
Elsku hjartans afi, nú er komið
að kveðjustund. Þó alltaf sé sárt að
kveðja er gott að láta hugann reika,
rifja upp góða tíma og ylja okkur við
yndislegar minningar um þig. Sög-
urnar um gamla tíma sem þú sagðir
okkur og allar gæðastundirnar með
þér og ömmu eru okkur ofarlega í
huga. Einnig góðvild þín, þinn ein-
staki húmor og það hversu barn-
góður þú varst. Við höfum fengið að
njóta þess ásamt börnum okkar og
mökum. Þrátt fyrir að afkomenda-
hópurinn hafi verið orðinn stór
sýndir þú okkur áhuga og öllum
okkar verkum. Við munum kraft-
mikinn og duglegan mann sem hélt
reisn allt til síðasta dags. Við viljum
kveðja þig með þessari vísu eftir
Heimi sem okkur finnst eiga vel við.
Sigvaldi afi var okkur mjög kær.
Brosið og hlýjan sem hann gaf okkur
alltaf til augnanna náði.
Faðmlag og kossar
í hvert sinn sem við hittumst.
Gleði og væntumþykju hann sýndi.
Stutt var í leik og glens
en aldrei meinsemd
né neikvæðni heyrðum.
Öllum okkar verkum
stórum og smáum
hann áhuga sýndi.
Alltaf var skjól
stilla og ró.
Stutt í hláturinn bjarta.
Megi sólin alltaf skína.
Megi berin í mónum aldrei klárast.
Megi heiðarkyrrðin aldrei spillast.
Megi gullroði dalalæðunnar alltaf glóa
í sumarlandinu bjarta.
(Heimir Heiðarsson)
Það er með söknuði og þakklæti
sem við kveðjum þig í dag, elsku afi.
Við erum viss um að það var vel tek-
ið á móti þér hinum megin.
Takk fyrir allt.
Sigvaldi, Heimir, Lilja, Re-
bekka og Sif Heiðarsbörn.
Sigvaldi bróðir minn er látinn á
95. aldursári. Það er hár aldur en
samt er maður aldrei viðbúinn
brottförinni og kveðjustundinni.
Söknuðurinn er sár hjá okkur öllum
í innsta hring en jafnframt gleði og
þakklæti fyrir að hafa fengið að
verða samferða þessum einstaka
öðlingi svo lengi.
Mamma var til heimilis í Hólsseli
á Fjöllum þegar hún eignaðist
Valda tæplega tvítug að aldri en
flutti með hjónum þaðan, Kristjáni
og Sigríði, að Þórunnarseli í Keldu-
hverfi þegar hann var á 5. ári: „Ég
átti lítið sem ekkert af veraldlegum
verðmætum en ég átti þennan ynd-
islegan dreng og það var mikið ríki-
dæmi“ sagði móðir Klara þegar hún
minntist þessara tíma.
Valdi var sex ára þegar mamma
og pabbi giftu sig og fóru að búa á
Hóli og 16 ára fluttist hann með
þeim og þremur yngri systkinum að
Undirvegg árið 1944. Tveimur ár-
um seinna fæddist ég, örverpið. Ég
hef alltaf notið þess að heyra sögur
frá frumbýlingsárunum á Undir-
vegg. Býlið var afskekkt en fjöl-
skyldan samrýnd og sjálfri sér nóg
um flesta hluti, bæði í veraldlegum
og andlegum efnum. Baðstofu-
menningin blómstraði í gamla
bænum. Tryggvi bróðir orðaði
þetta svona í ljóði:
Frá þeim litla og lága bæ
ljúfar myndir geymum.
Sögur voru sagðar æ
þeim seint við börnin gleymum.
Frásagnirnar fengu blæ
úr framandi duldum heimum.
Fljótlega hleypti ungi maðurinn
heimdraganum og afdrifarík var för
hans að Engimýri í Öxnadal 1948 er
hann réð sig í kaupamennsku sum-
arlangt. Á næsta bæ, Hrauni, var
heimasætan Lilja, gullfalleg og
snaggaraleg stelpa. Þau fundu hvort
annað og framtíðin var ráðin. Árið
1951 hófu þau búskap á Lyngási í
Kelduhverfi, nýbýli sem þau höfðu
reist frá grunni. Þar eignuðust þau
sín fjögur mannvænlegu börn. Á
milli Undirveggjar og Lyngáss er
aðeins tæpur klukkustundargangur.
Oft var skoppað eftir götuslóðanum
á ská yfir móinn og ávallt mikill sam-
gangur. Síðar áttu yngri bræðurnir
eftir að hefja búskap á býlum hvor
sínum megin við Lyngás og jókst þá
enn samneyti og samstarf á milli
fjölskyldnanna.
Þegar fram liðu stundir flutti
elsta dóttirin til Svíþjóðar með fjöl-
skyldu sína en hin þrjú settust að á
Húsavík. Þangað fluttu Valdi og
Lilja er þau brugðu búi í Lyngási ár-
ið 1980. Skömmu síðar fluttu þangað
einnig foreldrar mínir, Klara og
Ísak, og áttu þar góð og gjöful sín
seinustu 20 ár. Það var dýrmætt fyr-
ir þau að eiga þar fyrir ástvini sem
tóku þeim opnum örmum.
Valdi var gæddur góðum gáfum
og hæfileikum. Hann var sagnamað-
ur af Guðs náð og einhver mesti
húmoristi sem ég hef þekkt til.
Þegar góð saga var í bígerð mátti
greina smá viprur á efri vör og þá
gátum við hin farið að hlakka veru-
lega til. Hann var vel pennafær og
góður stílisti eins og sjá má af frá-
sögnum sem birst hafa eftir hann
m.a. í Árbók Þingeyinga. Valda gat
hitnað vel í hamsi ef honum mis-
bauð en ríkari þættir í skapgerð
hans voru þó glaðværð, jákvæðni,
hjálpsemi, umhyggja og hjarta-
hlýja.
Komið er að leiðarlokum. Nú
getum við eftirlifandi systkini ekki
lengur sagt „við þurfum að spyrja
Valda að þessu“ eins og svo oft hef-
ur komið upp í samræðum okkar á
milli. Við þyrftum þá alltént að fara
til hans í sumarlandið til að leita
svara og við vildum helst bíða að-
eins með það. Í staðinn getum við
ornað okkur við ríkulegar og ynd-
islegar minningar.
Hvíl í friði hjartkæri bróðir og
vinur.
Við Elli vottum Lilju, börnunum
og þeirra fjölskyldum okkar
dýpstu samúð.
Kristrún
Ísaksdóttir.
Sigvaldi
Gunnarsson