Morgunblaðið - 20.06.2022, Síða 1
M Á N U D A G U R 2 0. J Ú N Í 2 0 2 2
.Stofnað 1913 . 142. tölublað . 110. árgangur .
FARSÆLD
BARNA FYRIR
BRJÓSTI
FYRSTI BORG-
ARSTJÓRINN
ÚR ÚTHVERFI
VALSKONUR Á
TOPPNUM YFIR
EVRÓPUMÓTIÐ
DAGUR 50 ÁRA 24 BESTA DEILDIN 26ÁRELÍA EYDÍS 11
„Grundvöllurinn fyrir bitcoin er al-
gjörlega jafn sterkur og áður. Auð-
vitað er leiðinlegt að það sé mikill
sársauki á mörkuðum, en það á ekki
bara við rafmyntamarkað.“ Þetta
segir Kjartan Ragnars, stjórnar-
maður og regluvörður hjá Mynt-
kaupum. Rafmyntamarkaðurinn,
líkt og aðrir eignamarkaðir, hefur
lækkað mikið undanfarið misseri og
bitcoin, stærsta rafmyntin að mark-
aðsvirði, hefur lækkað um rúm 50%
það sem af er ári.
„Ég segi nú samt að fyrir þá sem
halda sér greiðslufærum í gegnum
svona, þá eru auðvitað mikil tæki-
færi sem myndast við svona að-
stæður.“ Aðspurður segir Ragnar
að Íslendingar séu meira að kaupa
en selja bitcoin en auðvitað eru
margir á hliðarlínunni sem vilja sjá
hvernig rætist úr þessu ástandi.
„Maður verður að skoða það í
samhengi við þessa fjármálakreppu
sem er að skella á
um allan heim.
Fólk þarf að
borga reikningana
sína og það er
sama hvort þú átt
bitcoin, Rolex-úr
eða hlutabréf,“
segir Ragnar og
bætir því við að
jafnvel séu fast-
eignir ekki ónæmar fyrir lækkun-
um.
„Leiðin sem virkar langbest,
hvort sem það eru hlutabréf eða
bitcoin, er að finna þá eignaflokka
sem þú trúir á og halda í langan
tíma, jafnvel meira en tíu ár. Kaupa
jafnt og þétt þangað til þú ert orð-
inn sáttur,“ segir hann og bætir við:
„Tímaramminn hjá fólki verður oft
svo rosalega þröngur. Bitcoin snýst
einmitt um að hugsa hlutina til fjög-
urra, fimm ára plús.“ » 6
Tækifæri mynd-
ast á markaði
- Bitcoin lækkað um 70% frá toppnum
Kjartan Ragnars
Magnea Gná Jóhannsdóttir, varaforseti borg-
arstjórnar og yngsti borgarfulltrúi Reykja-
víkur frá upphafi, lagði blómsveig á leiði
Bríetar Bjarnhéðinsdóttur við hátíðlega at-
höfn í Hólavallakirkjugarði í gærmorgun í
tilefni af baráttudegi íslenskra kvenna. Er
þetta í tíunda sinn sem lagður er blómsveigur
á leiði Bríetar í tilefni dagsins en hún var
rún Björnsdóttir, Katrín Magnússon og Þór-
unn Jónassen buðu fram Kvennalistann.
Kvennalistinn fékk flest atkvæði og þær kom-
ust allar í bæjarstjórn.
stofnandi Kvenréttindafélags Íslands og
fyrsti formaður félagsins. Jafnframt var hún
kosin bæjarfulltrúi í bæjarstjórnarkosn-
ingum í Reykjavík árið 1908 þegar hún, Guð-
Morgunblaðið/Óttar Geirsson
Yngsti borgarfulltrúinn lagði blóm á leiði fyrsta kvenkyns fulltrúans
Karítas Ríkharðsdóttir
karitas@mbl.is
Fjöldi tilhæfulausra bakreikninga
fyrir „komum“ sjúklinga, sem skráð-
ir eru hjá einkareknum heilsu-
gæslum, í blóðprufu á heilsugæslu
hins opinbera hlaupa líklega á tugum
þúsunda. Þetta segir Ragnar Freyr
Ingvarsson, formaður Læknafélags
Reykjavíkur, í samtali við Morgun-
blaðið.
Hann segir að kjósi sjúklingur á
einkarekinni stöð að fara í blóðprufu
á heilsugæslustöð hins opinbera, þar
sem starfsmenn Landspítalans ann-
ast blóðtöku en ekki hjúkrunarfræð-
ingur eða læknir á vegum heilsu-
gæslunnar, skráist það sem koma á
heilsugæsluna.
Það segir Ragnar ekki í samræmi
við veitta þjónustu, enda komi
starfsfólk heilsugæslunnar ekki að
henni.
Vegna skráningarinnar sem
Ragnar telur tilhæfulausa fær
heilsugæslan sem sjúklingurinn er
skráður á bakreikning samkvæmt
greiðslukerfi heilsugæslanna og
heilsugæslunni þar sem blóðprufan
er tekin greitt sérstaklega.
Ragnar segir að læknar hjá einka-
reknum heilsugæslum hafi nýlega
vakið máls á þessu við Sjúkratrygg-
ingar Íslands en ekki fengið nein við-
brögð.
Telur hann að ef málunum væri
öfugt háttað yrði einkarekin stöð
lögsótt fyrir fjárdrátt enda um til-
hæfulausa reikninga að ræða.
„Heilsugæslan skráir ranglega til
sín komur þegar annar aðili vinnur
vinnuna og tekur til sín gjöldin sem
falla til við komuna og refsar við það
einkaaðila sem er í heiðarlegum
rekstri,“ segir Ragnar.
Heilsugæslan á höfuðborgar-
svæðinu, sem er rekin af hinu opin-
bera, og Landspítalinn hafa auk þess
í sjö ár haft sín á milli sérstakan
samning um gjaldtöku vegna blóð-
prufa. Árið 2017 gerði Samkeppnis-
eftirlitið alvarlegar athugasemdir
við samninginn þar sem sömu kjör
stóðu einkareknum heilsugæslum
ekki til boða.
Horft fram hjá tilhæfu-
lausum reikningum
- Fjöldi rangra færslna hleypur líklega á tugum þúsunda
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Sýnataka Starfsfólk Heilsugæsl-
unnar annast ekki blóðsýnatöku.