Morgunblaðið - 20.06.2022, Blaðsíða 24
24 DÆGRADVÖL
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 20. JÚNÍ 2022
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl ,
Hrútur Komdu smá fjöri í félagslíf þitt.
Fáðu þér göngutúr og láttu hreina loftið
feykja öllum leiðindum burt. Nú væri gott
að losa sig við gamalt dót.
20. apríl - 20. maí +
Naut Farðu þér hægt því tíminn vinnur
með þér og ryður öllum hindrunum úr
vegi. Þér verður samt lítið úr verki í
kvöld.
21. maí - 20. júní 6
Tvíburar Forðastu öll óþarfa útgjöld. Þú
verður að halda fast um budduna og vera
varkár í fjármálum. Þú ert á villigötum í
ástamálunum.
21. júní - 22. júlí 4
Krabbi Það eru ýmis smáatriði sem þú
verður að koma í lag til þess að ná því
takmarki sem þú hefur sett þér. Notaðu
kvöldið fyrir í dekur.
23. júlí - 22. ágúst Z
Ljón Þú ættir að gera sparnaðaráætlun
til að tryggja framtíð þína. Brettu upp
ermarnar og hættu ekki fyrr en borðið er
hreint.
23. ágúst - 22. sept. l
Meyja Þú veltir fyrir þér lífinu og tilver-
unni þessa dagana. Einkalíf þitt er í
blóma og þér finnst allt stefna í rétta átt.
23. sept. - 22. okt. k
Vog Ótti þinn við að rugga bátnum hefur
leitt til þess að sambandið hefur strandað
á skeri. Styrkur þinn kemur vel í ljós þeg-
ar á móti blæs.
23. okt. - 21. nóv. j
Sporðdreki Þín bíða svo mörg verkefni
að það er ljóst að þú ræður ekki við þau
öll, biddu um aðstoð. Farðu í göngutúr, í
sund eða út að dansa þegar áhyggjurnar
læðast að.
22. nóv. - 21. des. h
Bogmaður Hugsaðu þig tvisvar um áður
en þú segir hluti sem þú munt sjá eftir.
Þú færð mörg prik fyrir góða hugmynd.
22. des. - 19. janúar @
Steingeit Taktu andmæli annarra ekki of
nærri þér og dragðu andann djúpt.
Leggðu spilin á borðið, það er best úr því
sem komið er.
20. jan. - 18. febr. ?
Vatnsberi Þú veist hvað þarf til þess að
ná markmiðunum sem þú settir þér.
Gerðu þér dagamun með vinum því það
veitir þér gleði.
19. feb. - 20. mars =
Fiskar Þú hefur mikla löngun til að
ferðast og skoða heiminn. Gerðu áætlun
og láttu draumana rætast.
Hann tók sæti í borgarstjórn
2002 fyrir hönd Reykjavíkurlist-
ans og hefur gegnt ýmsum trún-
aðarstörfum því tengdu. „Ég varð
borgarstjóri í hundrað daga 2007-
2008 og hef setið í því embætti
að vinna við dagskrárgerð á Ríkis-
útvarpinu, Rás 1, á háskóla-
árunum. Dagur tók svo meistara-
gráðu í alþjóðamannréttindalögum
frá Háskólanum í Lundi að loknu
læknaprófi.
D
agur Bergþóruson
Eggertsson fæddist
19. júní 1972 í Ósló.
Hann varð því fimm-
tugur í gær. „Ég er
námsmannabarn. Foreldrar mínir
voru ógiftir, þannig að þegar að
fæðingunni kom átti pabbi ekki að
fá að vera viðstaddur. Mamma
hélt nú ekki, hysjaði upp um sig
og fór til að fæða á öðrum spítala.
Þar fékk pabbi að vera með. Þeg-
ar að útskrift kom var ekki við
það komandi að ég yrði skráður
Eggertsson, aftur vegna þess að
þau voru ekki í hjónabandi.
Mamma gaf sig ekki og fékk því
loks framgengt að ég var skráður
Bergþóruson eftir henni, en ekki
Jónsdóttir sem var hennar eft-
irnafn. Hef ég borið nafn bæði
mömmu og pabba stoltur síðan.“
Dagur segir að mikill töggur sé í
móður sinni, Bergþóru, og hann
hafi erft keppnisskapið frá henni.
„Keppnisskap getur smitast út í
ákveðna seiglu sem jaðrar við
þrjósku, og það að gefast ekki
upp.“
Dagur er alinn upp í Árbænum
og gekk í Árbæjarskóla alla sína
grunnskólagöngu. Hann er fyrsti
borgarstjórinn í sögu Reykjavíkur
sem er alinn upp í úthverfi og var
í fyrsta Íslandsmeistarahópi Fylk-
is í 4. flokki árið 1986. Dagur er
menntaður læknir og hefur auk
þess verið viðloðandi stjórnmál í
rúmlega tvo áratugi. Hann segir
foreldra sína þó ekki hafa haft
neinar fyrirframákveðnar hug-
myndir um hvað hann ætti að fást
við þegar hann fullorðnaðist. „Eig-
inlega þvert á móti. Ég er kominn
af óflokksbundnu raunvísindafólki.
Ég held það hafi engum í fjöl-
skyldunni dottið í hug að fara í
stjórnmál. Maður fékk stuðning til
alls en valdi sína leið sjálfur.“
Dagur tók stúdentspróf frá
Menntaskólanum í Reykjavík og
lærði læknisfræði í Háskóla Ís-
lands, ásamt því að gegna for-
mennsku í Stúdentaráði skólans.
Hann skrifaði ævisögu Steingríms
Hermannssonar, fv. forsætisráð-
herra, í þremur bindum, ásamt því
óslitið frá 2014. Ég gaf út bókina
Nýja Reykjavík, umbreytingar í
ungri borg árið 2021.“
Áhugamál Dags eru margvísleg.
„Ég hef fyrst og fremst áhuga á
fólki og þar með talið sögum, bók-
Dagur B. Eggertsson borgarstjóri – 50 ára
Fjölskyldan Dagur, Arna, börnin og kötturinn Mummi á heimili sínu á Óðinsgötunni.
Erfði keppnisskapið frá móður sinni
Hjónin Dagur B. Eggertsson og Arna Dögg Einars-
dóttir á brúðkaupsdaginn 22. september 2001.
Borgarstjórinn Dagur lagðist yfir Laxness á mennta-
skólaárunum og gat ekki lesið neitt annað árum saman.
50 ÁRA Jakob fæddist á Akureyri en
býr til skiptis á fæðingarstaðnum og í
Reykjavík. Hann er hljóðmaður og for-
maður Félags tæknifólks. „Ég hafði
áhuga á félagsstörfum en þau urðu
smátt og smátt að vinnunni svo ég vinn
í rauninni við áhugamálið.“
FJÖLSKYLDA Eiginkona Jakobs er
Svanfríður Ingjaldsdóttir, f. 16.6. 1975,
grunnskólakennari. Börn þeirra eru
Tryggvi Páll, f. 2003, og Sigrún Inga, f.
2009. Foreldrar Jakobs eru Tryggvi
Jakobsson, f. 1950, landfræðingur,
jarðfræðingur og kennslufræðingur, og Svanhildur Jóhannesdóttir, f. 1950,
fyrrverandi skrifstofustjóri og leikkona.
Jakob Tryggvason
Til hamingju með daginn
Kópavogur Alexandra Thea Fernánd-
ez fæddist 28. september 2021 í
Reykjavík. Hún vó 3.768 g og var 51
cm löng. Foreldrar hennar eru Heiðar
Örn Fernández og Jóhanna Sigríður
Gunnarsdóttir.
Nýr borgari
Hanskar á lager!
Stærðir:
• S
• M
• L
• XL
Verð kr. 1.477
100 stk í pakka.
Kemi | Tunguhálsi 10 | Sími 415 4000 | www.kemi.is