Morgunblaðið - 20.06.2022, Blaðsíða 28

Morgunblaðið - 20.06.2022, Blaðsíða 28
28 MENNING MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 20. JÚNÍ 2022 Þín upplifun skiptir okkur máli Kringlan ... alltaf næg bílastæði Borðabókanir á www.finnssonbistro.is eða info@finnssonbistro.is Við tökum vel á móti þér Fjölbreyttur og spennandi matseðill þar sem allir finna eitthvað við sitt hæfi Skoðið matseðilinn á finnssonbistro.is Vestmannaeyjar, 14. apríl 1942 Heimaklettur er fallegur, hugs- aði Sigurjón Jónsson skipstjóri með sér á meðan skonnortan Arc- tic marraði við Bæjarbryggjuna. Skýjahula hafði skriðið niður klettanna og sveipaði Heimaklett dulúð og mikilfengleika. Þessi ferð frá Reykjavík til Eyja hafði sóst illa og tekið á fimmta dag. Þeir höfðu lent í suð- vestan brælu við Garðskaga og miðseglið rifnað. Því höfðu þeir þurft að fara aft- ur norður fyrir Reykjanesið og í var við Útskála, á meðan bóman á miðseglinu var löguð. Þeir höfðu komið kvöldið áður til Eyja en urðu að liggja fyr- ir akkeri fyrir utan höfnina yfir nótt. Það var ekki fyrr en með morgninum að þeir gátu lagst að. Nú var að draga að hádegi. Hafið var úfið og hvíttoppa öld- ur fyrir utan höfnina. Það var grátt yfir þó veður hefði lægt. Sig- urjón stóð við brúna og virti fyrir sér mannlífið á bryggjunni. Magaónot skyggðu á ró Sigurjóns. Þetta var einhver andskotans herpingur sem gerði honum erfitt fyrir en myndi eflaust lagast þeg- ar hann gæti deyft það með áfengi í Bretlandi. Annað sem olli Sigur- jóni hugarangri var að hann var að horast, fötin voru laus á honum og hann hafði verið lystarlítill. Álagið og spennan síðustu vikur höfðu verið mikil og sennilega var það skýringin á þessu öllu. Það var vonandi að baki, að minnsta kosti í bili. Sigurjón horfði á nafnana Guðna Thorlacius, fyrsta stýrimann, og Guðna Ingvarsson skipskokk, þar sem þeir stóðu á þilfarinu við skipssíðuna. Arctic var komið til Eyja til að taka farm af freðfiski til Fleetwood á Englandi og Guðni Thorlacius er að gera ráðstafanir vegna þess. Á meðan spjallar Guðni Ingvarsson við nokkra heimamenn sem eru á bryggjunni. Hann er héðan úr eyjunni og á hér frændfólk og vini. Annar stýri- maður, Eyvi, er að græja lestina með hásetunum af myndarskap. Eyvi er alltaf jafn glæsilegur, hann ber sig betur en aðrir menn og snyrtimennska er honum í blóð borin. Þetta er góð áhöfn og valinn maður í hverju rúmi. Kyrrðin er rofin þegar tveir bandarískir hertrukkar koma æð- andi að og bremsa hastarlega við Bæjarbryggjuna. Hópur hermanna með stálhjálma og alvæpni stökkva úr trukkunum og hlaupa niður bryggjuna. Hrollur fer um Sigurjón þegar hann sér hermenn- ina nálgast landganginn að Arctic. Íslendingarnir víkja til hliðar undrandi yfir þessum bægsla- gangi. Landgangurinn glamrar og hristist þegar hermennirnir þjóta upp í herklossunum, dreifa sér um þilfarið og ota vopnum sínum að áhöfninni. Guðni Thorlacius stígur fram og heimtar að vita hvað gangi eiginlega á en næsti her- maður rekur hlaupið af riffli í and- lit hans þannig að Guðni hrökklast aftur. Unglingspilturinn í herbún- ingnum nötrar af stressi og er með fingur á gikknum. Aðeins smá tog vísifingurs og ævi Guðna væri á enda. Bandarískur liðsforingi kallar yfir skipið að þeir séu allir handteknir og hermennirnir smala áhöfninni á þilfarið. Óvissa og skelfing grípur um þá flesta. Hvað vilja þessir hermenn hér á Arctic? Hræðslutilfinning grípur líka um sig hjá Sigurjóni, en af annari ástæðu. Getur verið að þeir séu hér vegna þess sem hann hefur gert? Þess sem þeir gerðu? Það getur ekki verið að þeir viti það. Reykjavík, 17. apríl 1942 Marel Magnússon varð fyrst var við hertrukkinn og hermennina áð- ur en barið var á dyrnar á Berg- staðastræti 50a. Einhver hleypti þeim inn og stuttu síðar voru her- mennirnir komnir niður í kjall- arann og heimtuðu að Marel kæmi með þeim. Marel var strax tekinn höndum og Guðbjörg Pálsdóttir kona hans greip utan um Ernu dóttur þeirra sem var níu ára. Án þess að hann hefði hugmynd um ástæðuna leiddu hermennirnir Marel út úr íbúðinni. Marel horfði til baka á konu sína og dóttur, hvað yrði um þær? Tveir hermenn urðu eftir við íbúðina og stóðu vörð. Skammt frá Bergstaðastræti, á Haðarstíg 8, fór önnur svipuð handtaka fram. Hallgrímur Dal- berg bjó þar með móður sinni og ömmu. Hann heyrði að einhver bankaði og síðan kom amma áhyggjufull inn til hans og sagði að það væru komnir hermenn. Hann fór til þeirra og var strax tilkynnt að hann væri handtekinn. Þeir fluttu hann út í hertrukk. Hann var að læra lögfræði og von- aði að þessi heimsókn her- mannanna myndi ekki skaða möguleika hans í framtíðinni. Ekki óraði hann fyrir því sem í vændum var. Fangelsi setuliðsins við Kirkju- sand var vesæll staður. Á berangri stóð braggaþyrping bak við háa stauragirðingu úr gaddavír. Þar var kalt og hrátt yfir að líta og ekkert sem gladdi augað. Marel kom fyrstur og var leiddur inn í bragga þar sem var lítil skrifstofa. Inni var kalt og dimmt. Breskur liðsforingi sat við borð og tveir hermenn stóðu vörð. Marel hafði enn enga hugmynd um hvers vegna hann var kominn á þennan guðsvolaða stað. Hann kunni held- ur enga ensku og yfirheyrslan byrjaði fremur vandræðalega uns þeir sóttu túlk sem gat þýtt sam- ræðurnar. Þegar það var frágeng- ið byrjaði liðsforinginn: „Hafið þér tekið á móti pakka frá hr. Jónssyni?“ „Já, hann bað mig að geyma tvo poka fyrir sig.“ Nú fór ónota- tilfinning um Marel. Hvað hafði gamli maðurinn komið honum út í? Hann hafði ávallt haft Sigurjón í miklum metum. Gamli maðurinn var traustur og góður drengur. Marel hafði haldið að þetta væri bara smá smyglvarningur sem Sigurjón vildi geyma. Af hverju hafði herinn áhuga á þessu? „Hvað er í þessu pokum?“ hélt liðsforinginn áfram. „Ég veit það ekki, ég hef ekkert kíkt í þá.“ „Hvar eru þeir?“ „Í hólfi undir stiganum, framan við íbúðina mína.“ „Og þér hafið ekki kíkt í pok- ana?“ „Nei, alls ekki.“ „Hvað áttuð þér að gera með það sem var í þeim?“ „Ég veit ekki hvað er í þeim, Sigurjón bað mig bara að geyma fyrir sig tvo poka.“ „Og ef einhver biður þig að geyma tvo poka þá bara gerið þér það?“ „Ég þekki hann, hann er giftur Ingibjörgu systur minni, Sigurjón er góður maður.“ „Eruð þér vissir um það?“ „Það eina sem ég veit er að Sig- urjón bað mig fyrir tvo poka og seinna komu Haraldur sonur hans og Haukur Andrésson til okkar með pokana. Ég var ekki heima og en Guðbjörg tók á móti þeim og sagði þeim að setja þá undir stigann og kom hvergi nálægt þessu.“ „Í pokunum er þýskt senditæki. Hvað segið þér um það.“ Nú rann kalt vatn milli skinns og hörunds á Marel. Hvað var maðurinn að segja? Voru fjar- skiptatæki í pokunum? Það gat ekki verið, hann þekkti Sigurjón. Hann hafði siglt með honum. Sig- urjón hafði ekkert saman við Þjóðverja að sælda, hann var bara venjulegur íslenskur sjómaður. Marel neitaði áfram að hafa vitað hvað var í pokanum og gaf liðsfor- ingjanum nákvæmar leiðbeiningar um hvar mætti finna þá. Hermenn voru sendir til að sækja þá og Marel var fluttur í fangaklefa. Þegar Marel var orðinn einn í klefanum braut hann heilann um hvað í ósköpunum Sigurjón hafði komið honum út í? Hvaða afleið- ingar átti lítill vinargreiði eftir að hafa? Svo helltist yfir hann örvænting þegar hann hugsaði til Guðbjargar og Ernu sem nú voru einar í óvissu. Marel hafði hætt á sjó til að geta verið meira með fjölskyldu sinni og nú hafði hann ekki hugmynd um hvenær hann sæi þær aftur. Grátt yfir skonnortunni Arctic Bókarkafli Örlaga- skipið Arctic heitir bók eftir G. Jökul Gíslason og segir frá skonnort- unni Arctic og úlfa- kreppu áhafnarinnar í hryllingi seinni heims- styrjaldarinnar. Skonnortan Arctic var í eigu Fiskimálanefndar frá hausti 1939 þar til hún fórst við sunnanvert Snæfellsnes í mars 1943. Marel Magnússon Sigurjón Jónsson

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.