Morgunblaðið - 20.06.2022, Side 2
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Hellulögn Mennirnir voru að helluleggja.
Maður sem réðst á vinnufélaga sinn
með haka og klaufhamri hefur ver-
ið úrskurðaður í fjögurra vikna
gæsluvarðhald. Rannsókn málsins
miðar ágætlega, að sögn Gríms
Grímssonar, yfirlögregluþjóns mið-
lægrar rannsóknardeildar. Tveir
voru færðir á slysadeild til aðhlynn-
ingar eftir að til átaka kom milli
byggingarverkamannanna á Sel-
tjarnarnesi sem lauk þannig að einn
starfsmaðurinn réðst á annan með
fyrrnefndum verkfærum. Sam-
starfsmenn hans náðu að yfirbuga
árásarmanninn þar til lögreglu bar
að og var hann þá handtekinn. Sá
sem varð fyrir árásinni fékk tölu-
verða höfuðáverka. Atvikið átti sér
stað á ellefta tímanum hinn 17. júní,
í götunni Sæbraut.
Verkamaðurinn á Seltjarnarnesi í fjögurra vikna gæsluvarðhald
2 FRÉTTIR
Innlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 20. JÚNÍ 2022
TENERIFE
FJÖLSKYLDAN SAMAN Í SÓL
INNIFALIÐ Í VERÐI, FLUG, GISTING, INNRITAÐUR FARANGUR OG HANDFARANGUR. BÓKAÐU ÞITT SÆTI Á UU.IS
V
IN
S
Æ
LT
27. JÚNÍ - 05. JÚLÍ
HG TENERIFE SUR 3*
ÍBÚÐ MEÐ 1 SVEFNHERBERGI
VERÐ FRÁ79.900 KR
Á MANN M.V. 2 FULLORÐNA OG 2 BÖRN
VERÐ FRÁ 103.500 KR. Á MANN M.V. 2 FULLORÐNA
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Andrés Magnússon andres@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is
Viðskipti Gísli Freyr Valdórsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Winkel Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf.
Sara Sigurbjörnsdóttir stóð uppi
sem sigurvegari í bæði fjórgangi V1
og fimmgangi F1 meistara á Reykja-
víkurmeistaramóti Fáks í hesta-
íþróttum þetta árið. Hún sigraði í A-
úrslitum í fjórgangi á merinni Flugu
frá Oddhóli með einkunnina 7,667
og fimmgangi á hestinum Flóka frá
Oddhóli með einkunnina 7,5. Mótinu
lauk í gær með öflugum úrslitum í
tölti T1 þar sem Jakob Svavar Sig-
urðsson bar sigur úr býtum á hest-
inum Tuma frá Jarðbrú. Hlutu þeir
8,667 í einkunn.
Hjörtur Bergstað formaður Fáks
segir mótið hafa gengið vel, það sé
ekki síst öflugum sjálfboðaliðum að
þakka. Það eina sem hefði mátt bet-
ur fara var veðrið, en rigning dundi
á prúðbúnum knöpum í úrslitum
gærdagsins. „Við búum samt á Ís-
landi og vitum að það er allra veðra
von.“ Hestakosturinn á mótinu var
afbragðsgóður þetta árið og bestu
tímar ársins í skeiði litu dagsins ljós.
Margir þeir hestar sem tóku þátt í
Reykjavíkurmótinu verða einnig á
Landsmóti hestamanna í sumar.
„Hestarnir eru í svo góðu standi
núna að það er alveg mögulegt að
ýmis met verði slegin á landsmóti.“
Konráð Valur Sveinsson náði besta
tímanum í hundrað metra flugskeiði
á hestinum Kjarki frá Árbæjar-
hjáleigu II, en þeir luku við sprettinn
á 7,22 sekúndum. Elvar Þormarsson
vann gæðingaskeiðið á Fjalladís frá
Fornuströnd.
Efnilegir knapar
Kristófer Darri Sigurðsson sigr-
aði í fimmgangi ungmenna á hest-
inum Ási frá Kirkjubæ með ein-
kunnina 7,095. Signý Sól Snorra-
dóttir hlaut svo efsta sætið í fjór-
gangi ungmenna á hestinum Kol-
beini frá Horni með einkunnina
7,262, en hún vann líka töltið á mer-
inni Þokkadís frá Strandarhjáleigu
með einkunnina 7,5.
Í standi til að
slá met í sumar
- Vel heppnað Reykjavíkurmót að baki
Morgunblaðið/ Óttar
Rigning Veðrið var það eina sem hefði betur mátt fara að mati formannsins.
Tómas Arnar Þorláksson
tomasarnar@mbl.is
„Það kæmi mér á óvart ef einhver
segði að þetta væri nákvæmlega
eins og hann vildi hafa það en aðal-
atriðið er að þarna var margt fólk
sem lagði mikið á sig til að sjá til
þess að þetta verk yrði klárað.“
Þetta segir Guðlaugur Þór Þórðar-
son umhverfis-, orku- og loftslags-
ráðherra um rammaáætlun 3 sem
var samþykkt á þriðjudaginn en
harmar að hafa ekki getað verið
viðstaddur þegar kosið var um mál-
ið á þinginu. Ástæða fjarveru ráð-
herrans var að hann var að júbílera
með Menntaskólanum á Akureyri.
Bendir hann á að atkvæðagreiðslan
hafi upprunalega átt að vera á
fimmtudeginum en ekki miðviku-
degi og sér hafi ekki borist upplýs-
ingar um breytingarnar með næg-
um fyrirvara. Tekur hann þó fram
að þessi mistök séu engum að
kenna og sér þyki þetta verulega
leiðinlegt. Aðspurður segist hann
ekki hafa fengið neina gagnrýni
vegna þessa óheppilega atviks –
mestu gagnrýnina hafi hann fengið
frá sjálfum sér.
Sýni styrk ríkisstjórnarinnar
Að mati Guðlaugs er mikilvægast
af öllu að rammaáætlunin sé tilbúin
og náðst hafi sátt í þessu erfiða og
tímabæra verkefni. Segist Guðlaug-
ur þá vera gífurlega ánægður með
útkomuna og að búið sé að klára
þennan áfanga. Bendir hann á að
níu ár eru frá því að síðasta ramma-
áætlun var samþykkt og fjórir ráð-
herrar hafi komið á undan sér án
þess að sátt hafi náðst um ramma-
áætlun 3 en lögum samkvæmt eigi
að samþykkja nýja rammaáætlun á
fjögurra ára fresti. „Ég man ekki
hversu oft ég heyrði þegar ég fór í
þetta verkefni að þetta væri ekki
hægt,“ segir Guðlaugur hæst-
ánægður með lokið verk.
Segir hann styrk ríkisstjórnar-
innar og þrautseigju hafa gert
gæfumuninn í þessari vinnu. „Þetta
gerðist ekki af sjálfu sér, á bak við
þetta er gífurlega mikil vinna og þá
sérstaklega hjá umhverfis- og sam-
göngunefnd. Þetta sýnir að ef fólk
vill ná niðurstöðu þá eru málamiðl-
anir mikilvægar til að komast að
sátt og klára svona verkefni.“
Hrósar hann í hástert starfi
nefndarformanns, meirihluta
nefndarinnar, stjórnarflokkanna og
formanna meirihlutans. Ítrekar
Guðlaugur að eftir þetta samþykki
á rammaáætlun 3 sé mun líklegra
að Ísland nái að standa við lofts-
lagsmarkmið sín, sem að sínu mati
séu mjög metnaðarfull. „Verkefni
okkar er að sjá til þess að komandi
kynslóðir fái að njóta endur-
nýjanlegu raforkunnar enn frekar
en við höfum gert og við ætlum að
gera þetta með þeim hætti að við
vöndum okkur mjög.“
Málamiðlanir mikilvægar
Spurður hvort þurft hafi að gera
mikið af málamiðlunum til að kom-
ast að sátt um rammaáætlunina
segir Guðlaugur að erfitt sé að
komast að niðurstöðu sem allir
sætti sig við. „Allir sem kynna sér
þessi mál móta sínar eigin skoðanir
og ég held að rammaáætlun sé þess
eðlis að enginn muni segja að þetta
hafi verið nákvæmlega niðurstaðan
sem hann vildi,“ segir Guðlaugur en
bætir við að mikilvægt sé að nálg-
ast mál eins og þetta með þeim
hætti.
Spurður um sína afstöðu gagn-
vart rammaáætluninni segir hann
að fyrir sér hafi verið mikilvægast
af öllu að klára hana til að ná lofts-
lagsmarkmiðunum. „Það er ekkert
leyndarmál að ég hef ekki verið að
festa mig í einstaka þáttum, hvort
sem það er vernd eða nýting, vegna
þess að ég hef litið svo á að mitt
hlutverk sé ekki síst að miðla mál-
um.“
Að sögn Guðlaugs hafa honum
borist mjög jákvæð viðbrögð við því
að rammaáætlunin hafi verið sam-
þykkt og margir séu fyrst og
fremst undrandi á að þetta hafi tek-
ist. Segir Guðlaugur umræðum um
rammaáætlanir ekki lokið því fljót-
lega muni þingið taka fyrir áfanga 4
og 5. „Bæði 4. og 5. áfangi rammans
eru komnir langt á veg og þá sér-
staklega 4. en við vitum ekki ná-
kvæma tímasetningu hvenær það
kemur fyrir þingið,“ segir Guðlaug-
ur en svarar aðspurður að það verði
á þessu kjörtímabili. Spurður hvort
vindorka verði tekin fyrir í áfanga 4
segir Guðlaugur að í stjórnarsátt-
málanum sé samkomulag um að
koma á sérregluverki utan um vind-
orkuna en á meðan það sé ekki
komið verði hún hluti af ramma-
áætlun.
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Dynkur Margir hafa lýst óánægju sinni með að fossinn Dynkur í Þjórsá var
færður úr verndarflokki yfir í biðflokk með nýrri rammaáætlun.
Hið ómögulega reyndist mögulegt
- Ekki hin fullkomna rammaáætlun en sú sem flestir gátu sætt sig við - Harmar það að hafa ekki
verið viðstaddur þegar kosið var um málið - Níu ár og fjórir ráðherrar frá samþykki síðasta ramma