Morgunblaðið - 20.06.2022, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 20.06.2022, Blaðsíða 18
18 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 20. JÚNÍ 2022 ✝ Jóhannes Sig- urjónsson fæddist í Bolung- arvík 16. febrúar 1954. Hann lést á Landspítalanum við Hringbraut 9. júní 2022. Foreldrar hans voru Herdís S. Guðmundsdóttir, f. 3. september 1929, d. 31. jan- úar 2012, og Sigurjón Jó- hannesson, f. 16. apríl 1926, d. 6. ágúst 2019. Systkini Jóhannesar eru Jóhanna, f. 1952, Sigríður, f. 1955, Guðrún, f. 1957, Guðmundur, f. 1962, og Haraldur, f. 1966. Jóhannes kvæntist Sig- steinn Úlfur. 5) Guðrún Sig- ríður. Jóhannes ólst upp á Húsa- vík frá þriggja ára aldri og bjó þar til æviloka að frá- töldum mennta- og háskóla- árum. Hann lauk stúdents- prófi frá Menntaskólanum við Tjörnina 1974 og stund- aði nám í ensku og íslensku við HÍ 1974-1978. Í um fjörutíu ár var Jó- hannes ritstjóri og blaða- maður á Húsavík, fyrst á Víkurblaðinu 1979-1996, síð- an Degi 1997-2001 og loks Skarpi 2002-2020. Eftir Jóhannes hafa komið út þrjú kver af Sönnum þingeyskum lygasögum auk ljóðabókarinnar Æpt var- lega. Þá skrifaði hann nokk- ur leikrit, söngtexta, grein- ar og viðtöl í ýmis tímarit og bækur. Útför Jóhannesar fer fram frá Húsavíkurkirkju í dag, 20. júní 2022, klukkan 11. ríði Kristínu Þór- hallsdóttur árið 1985, þau skildu. Börn þeirra eru: 1) Þórdís Edda. 2) Sigurjón, maki Þuríður Hall- grímsdóttir Við- ar. Synir þeirra eru Þórður Viðar og Hilmar Viðar. Börn Sigríðar og uppeldisbörn Jó- hannesar eru: 3) Kristján Gunnar, maki Jóna Björg Pálmadóttir. Börn þeirra eru Arnar Pálmi, Aníta Rak- el og Kristín Eva. Sonur Arnars Pálma og Maríu Bjartar Wiium er Atlas Máni. 4) Arnar, synir hans eru Tristan Flóki og Þor- Inn ganginn til vinstri og svo áfram, til hægri og að eldgömlu lyftunni. Þannig var þetta síðustu dag- ana og þegar upp var komið í herbergið þar sem þú lást blöstu við allir kranarnir fyrir utan, kranarnir sem byggja upp nýjan spítala þar sem ný lyfta tekur við fyrir aðstandendur framtíðar. Í einum þeirra hrafnslaupur þar sem ungarnir voru við það að fljúga burt til þess að hefja lifið. Sólin skein og ég sá þig fyrir mér á pallinum með kaffibolla og sígó, orðinn fáránlega sól- brúnn á engum tíma, að segja sögur úr mannlífinu eða ræða um pólitík og fótbolta. Þegar við komum svo saman hjá Sigurjóni síðar um daginn var þar þó skýrasta merkið um lífsins gang afastrákarnir þínir yngstu tveir, sem halda ásamt okkur öllum arfleifðinni á loft og tala um afa Jóa. Samband okkar var ætíð gott; við rerum þó alltaf á grunnið á hafsjó samskipta og tilfinninga en hættum okkur ekki mikið á dýpið þar sem erf- iðara er að stjórna bátnum en það gerði ekkert til því miðin voru fengsæl til lokadags. Þolinmæði þín var einstök og það var ótrúlegt hvað ró þín raskaðist lítið gagnvart mér þegar ég tók út eitt erfiðasta unglingaskeið sem um getur í Þingeyjarsýslu. Alltaf pollrólegur og vissir al- veg að vegur lífsins er ekki allt- af beinn og sléttur. Þú gegndir svo mörgum titl- um um ævina; Jói, James, Unit- ed-aðdáandinn, fótboltamaður- inn, Völsungurinn, Húsvíkingurinn, Þingeyingur- inn, pabbinn, eiginmaðurinn, sonurinn, bróðirinn, rithöfund- urinn, blaðamaðurinn, vinurinn, ljósmyndarinn, skáldið, fót- boltaáhugamaðurinn og afinn, sem er titillinn sem mér þótti vænst um. Samband þitt við strákana mína var svo fallegt og Tristan var svo mikill afastrákur. Og ég man alltaf þegar þið komuð úr einni bæjarferðinni og það var þetta frábæra glott á þér þegar þú sagðir að Tristan hefði spurt þig hvort hann mætti eiga Sub- aru-skrjóðinn græna sem hékk saman á lyginni einni þegar hann yrði sautján ára og fengi bílpróf. Bílar og fataval voru ekki þín helstu hugðarefni og elda- mennskan lá heldur ekki vel fyrir þér og þegar mamma fór að heiman skiptust á pylsurnar og Ora-fiskbúðingur á pönnu og poppkornið kólnaði uppi á skáp með aromat til þess að maula um kvöldið. Frá árinu 1979 komst þú að því að gefa út bæjarblaðið og þar liggur svo ómetanleg saga Húsavíkur, Völsungs, HSÞ, at- vinnusaga Húsavíkur og ekki síst mannlífsins í bænum sem þú elskaðir og enginn í heim- inum var stoltari en þú þegar Húsvíkingur náði langt. „Kevin Costner er leiðinlegur leikari“ voru lokaorðin þín, sterkar skoðanir eins og ætíð. Við feðgar eigum eftir að sakna þín svo mikið en við ylj- um okkur við minningarnar og flettum upp í þeim milljónum orða sem eftir þig liggja og skoðum myndirnar og þannig lýsist þú upp í huga okkar fram á okkar lokadag. Það væri við hæfi í lokin að grafa upp ljóð eða fallegan texta eftir þig en ég ætla frekar að vitna í þetta sem þú sagðir upphátt mjög oft eitt árið. „Einu sinni átti ég hest of- urlítið skjóttan, það var sem mér þótti verst þegar pabbi skjótt’ann.“ Hef þetta lokaorð elsku Jó- hannes minn. Og það held ég nú. Þinn Arnar. Jóhannes Sigurjónsson blaða- maður, pistlahöfundur, ljóð- skáld og ýmislegt annað en um- fram allt mannvinur er fallinn frá eftir erfið veikindi. Ævistarf hans var einstaklega merkilegt. Strax í upphafi skrifa hans í Víkurblaðið 1979 var tekið eftir fallegum og liprum texta sem oft var ljóðrænn og grallaraleg- ur. Árið áður hafði hann gefið út ljóðabókina „Æpt varlega“. Göngum í skóginn tínum smára jarðarber og blágresi. Gleymum heiminum stundarkorn og því að stjörnurnar eru ekki lengur stjörnur. Tínum blágresið í blóra við teoríur og tryllitæki. Gleymum heiminum sem fyrst sem oftast ef við þorum ekki að breyta honum. (Göngum í skóginn) „Ég get séð eitthvað kómískt við alla hluti og þarf að halda aftur af mér að skrifa ekki kóm- ískt um allt,“ sagði Jóhannes í viðtali við DV á fyrstu árum Víkurblaðsins. Það má segja að þarna birtist í hnotskurn höf- undareinkenni hans sem blaða- manns. Hann lærði fljótt að tempra þessi kómísku skrif sín enda var honum fullljóst að slíkt var ekki alltaf við hæfi. Þegar honum tókst hvað best upp komust fáir blaðamenn með tærnar þar sem hann hafði hæl- ana. Skrif hans sem pistla- og leiðarahöfundur gáfu kærkomið tilefni til að lita skrifin á þann hátt að jafnvel þeir sem voru ekki þekktir húmoristar gátu brosað að minnsta kosti út í annað. Hann varð víðfrægur af þessum skrifum og fjölmiðlar og flestir sem gáfu út prentað mál nýttu sér gullmola úr skrif- um hans. Jóhannes var um skeið einhver vinsælasti sögu- maður á mannamótum. Þar gat hann dregið stjórn- málamenn og forystumenn í viðskiptalífinu sundur og saman í háði en samt á þennan hárfína hátt að enginn bar skaða af. Þrátt fyrir vinsældir þurfti hann að hafna mörgum. Ekki auðgaðist hann á þessu. Jó- hannes hafði ekki mikinn áhuga á peningum, hafði meiri áhuga á því að aðrir hefðu til hnífs og skeiðar en hann sjálfur. Við Húsvíkingar og Þingey- ingar stöndum í þakkarskuld við Jóhannes Sigurjónsson. Að halda úti í rúmlega 40 ár lifandi og fróðlegum skrifum um sam- félag okkar er varla á færi eins manns. Hann gerði það samt lengstum einn og á þann hátt að einstakt má telja. Atburðasaga Þingeyinga í rúm 40 ár er þarna færð í letur á lifandi og fræðandi hátt. Eftirkomandi sagnfræðingar og allir þeir sem vilja nýta þessi skrif eiga eftir að sækja þarna framúrskarandi fróðleik um liðna tíð. Jóhannes var kvæntur Sigríði Kristínu Þórhallsdóttur. Þau slitu samvistum. Þrátt fyrir það var alltaf kært á milli þeirra. Þau eignuðust saman tvö börn, Þórdísi Eddu og Sigurjón. Fyr- ir átti Sigríður þrjú börn sem urðu því stjúpbörn Jóhannesar. Samskipti við þau voru alltaf með ágætum enda leit Jóhannes á þau sem sín börn. Þau eru Kristján Gunnar, Arnar og Guð- rún Sigríður Þorvarðarbörn. Við kveðjum vin okkar til margra ára og samstarfsmann um tíma og þökkum honum samferðina og óteljandi ánægjustundir. Siggu og börn- um þeirra vottum við samúð okkar. Farnist þér vel á nýjum slóðum. Við gleymum þér ekki. Arnar Björnsson, Þorkell Björnsson. Það er ekki auðhlaupið að því að skrifa minningargrein um Jóhannes Sigurjóns því hún verður óðara meira um mann sjálfan en hann. Það er vegna þess hvernig persóna Jói var og hvernig hann talaði til fólks. Ég er einn af mörgum sem hann klappaði oft á bakið fyrir alls konar smáatriði í amstri lífsins og lét mér líða eins og ég hefði eitthvað til brunns að bera. Ég held að flestir hafi upplifað nærveru hans þannig. Þegar ég var unglingur þurfti hann að til- kynna mér að einn besti vinur minn hefði látist í slysi. Hann gerði það með heimspekilegri nærfærni sem ég held að fáum tvítugum mönnum sé gefin og samtalið reyndist mér dýrmætt. Ég skrifa þessi kveðjuorð til að þakka fyrir hvað hann gerði mér gott í sálinni alla tíð. Orð hans skiptu máli og þau minna okkur á að hrós verður seint of- metið og mætti oftar einkenna háttalag okkar í lífinu. Það þótti öllum vænt um Jóa. Ég var þremur árum yngri en hann og man eftir honum í fótboltanum með Völsungi á unglingsárun- um. Hann var langbestur og talið að hann yrði atvinnumaður í íþróttinni. Það var ógleym- anlegt að horfa á hann með boltann á vellinum því hann hafði meiri tækni en við höfðum séð. En hann helgaði krafta sína ritstörfum og útgáfustarf- semi á Húsavík og eftir hann liggur stórmerkilegt ævistarf. Hann var afburðastílisti og frægur fyrir sinn fágaða húmor. Um tíma fékk ég hann til að skrifa og flytja pistla sem voru sýndir í sjónvarpi og hann gerði það vel eins og annað. Hann var skáldmæltur og hefði skilað stærra verki á því sviði ef hann hefði svo kosið. Það stóð að honum afar gott fólk og hann bar þess merki, það fylgdi hon- um manngæska. Þegar við hitt- umst í síðasta sinn var hann bú- inn að vera mánuðum saman á sjúkrahúsi að fást við erfið veik- indi. Ég færði honum karton af Salem í ógagnsæjum plastpoka og við settum hann til öryggis neðst í fataskápinn á sjúkra- stofunni. Þetta var ekki gáfu- legur gjörningur en okkur var alveg sama um það, enda höfum við ekki eytt mikilli lífsorku í að þykjast vera fullkomnir eða menn án breyskleika. Jóhannes var mjög skemmtilegur maður, vel gefinn og ógleymanlegur. Ég votta öllum aðstandendum hans samúð í þeirra sáru sorg. Bjarni Hafþór Helgason. Kveðja frá skólasystkinum á Húsavík Svo viðkvæmt er lífið sem vordags- ins blóm, er verður að hlíta þeim lögum, að beygja sig undir þann allsherjardóm sem ævina telur í dögum. Við áttum hér saman svo indæla stund sem aldrei mér hverfur úr minni. Og nú ertu gengin á guðanna fund, það geislar af minningu þinni. (Friðrik Steingrímsson frá Gríms- stöðum) Innilegar samúðarkveðjur til fjölskyldunnar. Fyrir hönd árgangs 1954, Helgi Kristjánsson, Júlíus Bessason, Kristín Magnús- dóttir, Sigríður Björg Þórðar- dóttir. Jóhannes Sigurjónsson ✝ Gissur Vignir Kristjánsson fæddist 25. júní 1944 í Hafnarfirði. Síðar á ævinni breytti hann nafni sínu í Gissur Júní Kristjánsson. Hann lést á Landa- kotsspítala 31. maí 2022. Foreldrar hans voru Kristján Steingrímsson bifreiðastjóri í Hafnarfirði, f. 25. sept. 1906, d. 15. okt. 1991, og Sigrún Gissurardóttir húsfreyja í Hafnarfirði, f. 28. mars 1908, d. 28. apríl 1991. Systkini Giss- urar voru Stein- grímur, f. 21. okt. 1926, d. 25. des. 2020, og Margrét Ágústa, f. 3. mars 1934, d. 14. sept. 2000. Maki Gissurar frá 31. des. 1976 var Dóra Laufey Sigurðar- dóttir húsfreyja og símakona, f. 16. des. 1928, d. 1. júní 2017. Þau skildu. Gissur varð stúdent frá MA 1965 og cand. juris frá Há- skóla Íslands 1972. Hann stundaði almenn lögfræðistörf í Hafnarfirði, var síðar fulltrúi hjá bæjarfógetanum í Hafn- arfirði, á Seltjarnarnesi og í Garðabæ og hjá sýslumann- inum í Kjósarsýslu. Síðan rak hann eigin lögmannsstofu í Hafnarfirði og síðar í Reykja- vík. Hann gegndi trúnaðar- störfum fyrir m.a. Varðberg, Alþýðuflokkinn, Knattspyrnu- félagið Hauka og Lionsklúbb Hafnarfjarðar. Einnig var hann formaður framtalsnefnd- ar Hafnarfjarðarbæjar og for- maður barnaverndarnefndar Hafnarfjarðar. Útförin fer fram frá Hafn- arfjarðarkirkju í dag, 20. júní 2022, klukkan 13. Í dag er borinn til grafar gam- all skólabróðir og vinur, Gissur Júní Kristjánsson. Við kynntumst á þroskaskeiði lífsins í Menntaskólanum á Akureyri fyrir rúmum 60 árum. Gissur skar sig nokkuð úr nemendahópnum með ábúðar- miklu fasi og hafði þegar mynd- að sér fastmótaðar skoðanir á stjórnmálum þar sem Alþýðu- flokkurinn og skandinavískur sósíalismi var hin göfuga fyrir- mynd. Þessar skoðanir breyttust ekki á langri ævi en á efri árum kallaði hann sig hægri krata og umbótasinna. Eftir erfiðan barning í menntaskólanum tók hann lög- fræðipróf við Háskóla Íslands með miklum sóma og vann síðan við lögfræðistörf á eigin skrif- stofu. Seint á ævinni greindist hann með ADHD-sjúkdóminn sem hafði fylgt honum alla ævi og valdið miklum truflunum við nám og störf. Fáir hafa þurft að glíma við jafnerfiða og langvinna sjúk- dóma og Gissur. Auk ADHD var hann með sykursýki og erfiðan blóðsjúk- dóm. Draugar þunglyndisins herjuðu miskunnarlaust á hann en hann bugaðist ekki þótt ýmsir broddborgarar hefðu ekki virt hann að verðleikum. Hann var snarpur mann- þekkjari og mundi vel eftir fólki sem hann hafði kynnst á lífsleið- inni. Þekking hans á íslenskri stjórnmálasögu og almennri ætt- fræði var aðdáunarverð. Gissur var afar hjálpsamur og vinur vina sinna. Alltaf var hann reiðubúinn að keyra höfund þessa pistils um borgina vegna bókagerðar og prófarkalesturs. Ófáar voru ferðirnar í Hafnar- fjörðinn til tannviðgerða en þar þekkti hann hvern mann með nafni og ættartölu. Á síðasta ári fór heilsunni að hraka. Eftir málsverð á Aski missti hann meðvitund á götunni og vegfarendur hringdu á sjúkrabíl sem flutti hann á gjörgæsludeild Landspítalans. Eftir rannsókn var hann sendur heim. Mánuði seinna fékk hann aðsvif á heimili sínu og lá bjargarlaus á gólfinu í sól- arhring áður en hjálp barst. Hann var sendur á Borgarspít- alann og seinna til endanlegrar vistar á sjúkradeild Landakots- spítala. Daginn áður en hann dó hringdi hann og sagði óskýrri röddu að sér liði vel og hefði fengið ánægjulega heimsókn um daginn. Ég kveð Gissur með söknuði og þakklæti þótt stundum hafi gefið á bátinn í okkar samskipt- um vegna svörtu drauganna. Ellert Ólafsson. Kveðja frá Knattspyrnufélag- inu Haukum Þegar horft er yfir farinn veg er margt sem kemur upp í hug- ann þegar félaga okkar, Gissurar Vignis, er minnst. Hann var fé- lagsmaður góður, trúr og traust- ur Haukamaður. Sat í stjórn handknattleiksdeildar á árunum 1968 til 1981, formaður 1969, for- maður Félagsráðs Hauka 1986- 89 og sat í aðalstjórn félagsins. Hann var ráðsnjall og úrræða- góður allt til lokadags. Undirritaður minnist ferðar sem farin var 1980 til Færeyja vegna þátttöku í Evrópumóti bikarhafa í handknattleik þar sem Gissur var fararstjóri. Flog- ið var frá Reykjavík í tveimur vélum. Rétt fyrir brottför kemur flugstjórinn aftur í og tilkynnir: „Strákar, vélin er 135 kílóum of þung!“ Stendur þá fararstjórinn upp og segir: „Ég verð eftir.“ Fyrsti maðurinn sem við sáum á hafnarbakkanum þegar við kom- um með ferju til Þórshafnar eftir fyrri leikinn á Tværeyri var Gissur. Góðri ferð lauk með ógleymanlegri ræðu Gissurar í kveðjuveislu sem Færeyingar héldu okkur að loknum síðari leik. Nú í lok ferðar kveðjum við góðan félaga, og þakkar félagið ánægjuleg samskipti og góð störf og sendir ættingjum Giss- urar innilegar samúðarkveðjur. Deyr fé, deyja frændur, deyr sjálfur ið sama; en orðstír deyr aldregi, hveim er sér góðan getur. (Úr Hávamálum) F.h. Knattspyrnufélagsins Hauka, Bjarni Hafsteinn Geirsson. Gissur Vignir Kristjánsson Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, GUÐLAUG JÓNA SIGURÐARDÓTTIR, Lilla í Mellandi, Kirkjuvegi 6, Hvammstanga, lést á HSV Hvammstanga föstudaginn 10. júní. Útförin fer fram frá Hvammstangakirkju þriðjudaginn 21. júní klukkan 14. Baldur Ingvarsson Sigurður Kr. Baldursson Sigríður Sigurðardóttir Inga S. Baldursdóttir Stefán L. Haraldsson barnabörn og barnabarnabörn

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.