Morgunblaðið - 20.06.2022, Síða 6

Morgunblaðið - 20.06.2022, Síða 6
DAGMÁL Gísli Freyr Valdórsson gislifreyr@mbl.is Íslensk stjórnvöld hafa mögulega gengið of langt í lagasetningu sem hefur það markmið að takmarka er- lent eignarhald á jörðum, því lögin ná jafnframt yfir fasteignakaup er- lendra aðila sem koma hingað og starfa til skemmri eða lengri tíma. Þetta kemur fram í nýjum þætti Dagmála, sem sýndur er á mbl.is í dag, þar sem þær Lilja Dögg Al- freðsdóttir viðskipta- og menningar- ráðherra og Svanhildur Hólm Vals- dóttir framkvæmdastjóri Viðskipta- ráðs fjalla um niðurstöður árlegrar samkeppnisúttektar IMD-viðskipta- háskólans í Sviss á samkeppnishæfni ríkja sem birt var í síðustu viku. Ís- land bætir stöðu sína og færist upp um fimm sæti, úr 21. í 16. sæti. Ís- lendingar reka þó lestina í saman- burði við hin norrænu löndin, þar sem Danmörk er fremst meðal þjóða en hin öll á topp-tíu-lista yfir sam- keppnishæfni. Ísland skorar þó lágt í úttektinni þegar horft er til erlendra fjárfest- inga og alþjóðaviðskipta. Í þættinum er meðal annars rætt um erlent eignarhald á jörðum og fasteignum þar sem Svanhildur Hólm gagnrýnir það hversu langt stjórnvöld hafa gengið og segir þversagnakennt að stjórnvöld skuli tala um mikilvægi þess að laða að erlenda sérfræðinga til landsins en þeim sé meinað að kaupa sér íbúð án samþykkis ráð- herra. Lilja Dögg svarar því til að það hafi ekki verið tilgangur laganna og það þurfi að endurskoða, en hún telji aftur á móti rétt að takmarka möguleika erlendra aðila á því að eignast jarðir hér á landi. Hún segir þó í þættinum að hún telji að erlend- ir aðilar geti átt þess kost að leigja land til 99 ára, og þannig fjárfest á landinu, byggt upp þjónustu á borð við hótel og fleira. Í þættinum er jafnframt rætt um það hvort stjórnkerfið í heild, þ.e. stjórnmálamenn og embættismenn, sé meðvitað um mikilvægi þess að efla samkeppnishæfni Íslands, þá liði sem Ísland mælist vel í og aðra þar sem Ísland getur bætt sig og margt fleira. Svanhildur Hólm Valsdóttir framkvæmdastjóri Viðskiptaráðs og Lilja Dögg Alfreðsdóttir viðskipta- og menningarráðherra eru gestir Dagmála í dag. Margt hægt að gera betur - Vilja efla samkeppnishæfni Íslands 6 FRÉTTIR Innlent MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 20. JÚNÍ 2022 Logi Sigurðarson logis@mbl.is Fjárfestar hafa vart séð til sólar undanfarin misseri á alþjóðafjár- málamörkuðum, og markaðurinn sem hefur farið hvað verst út úr nú- verandi lækkunum er rafmynta- markaðurinn. Bitcoin, stærsta raf- myntin að markaðsvirði, hefur fallið um 60% það sem af er ári og um 72% frá hæstu hæðum. Kjartan Ragnars, stjórnar- maður og regluvörður hjá Mynt- kaupum, segir í samtali við Morg- unblaðið að þetta sé í raun ekkert nýtt ef maður lítur til baka og skoð- ar þrettán ára sögu bitcoin, það sem er öðruvísi í þetta skipti er að bitco- in hefur aldrei farið í gegn um al- þjóðlega fjármálakreppu líkt og út- lit er fyrir að skelli á í bráðri framtíð. Tækifæri í svona aðstæðum „Grundvöllurinn fyrir bitcoin er algjörlega jafn sterkur og áður. Auðvitað er leiðinlegt að það sé mikill sársauki á mörkuðum, en það á ekki bara við rafmyntamark- aðinn,“ segir Ragnar og tekur sem dæmi stóru tæknifyrirtækin í Bandaríkjunum sem hafa mörg hver lækkað um 50-80% á hluta- bréfamarkaði. „Ég segi nú samt að fyrir þá sem halda sér greiðslufær- um í gegnum svona, þá eru auðvitað mikil tækifæri sem myndast í svona aðstæðum.“ Aðspurður segir Ragnar að Íslendingar séu meira að kaupa en selja bitcoin en margir sitji nú á hliðarlínunni og vilji sjá hvernig muni rætast úr þessu ástandi. „Maður verður að skoða það í samhengi við þessa fjármálakreppu sem er að skella á um allan heim. Fólk þarf að borga reikningana sína og það er sama hvort þú átt bitcoin, Rolex-úr eða hlutabréf,“ segir Ragnar og bætir því við að jafnvel séu fasteignir ekki ónæmar fyrir lækkunum. Rafmyntin terraluna fór á dög- unum niður í núll og þurrkaði út tæpa 5.400 milljarða en markaðs- virði hennar var um tíma 41 millj- arður bandaríkjadala. Inntur eftir því hvort slíkt dragi ekki úr trú- verðugleika rafmyntamarkaðarins segir Ragnar fólk misskilja muninn á bitcoin og öðrum rafmyntum. Það sé í raun ekki hægt að bera þær saman. „Hingað til þá sér maður bara að eina sem er algjörlega sannreynt að virki og virki áhættu- laust er bitcoin. Það hefur aldrei tekist að ráðast með árangursríkum hætti á bitcoin í þrettán ára sögu þess,“ segir Ragnar. Ósjálfbærir vextir Rafmyntakauphöllin Celsius, sem Íslendingar hafa til dæmis stundað viðskipti við, lokaði fyrir allar úttektir viðskiptavina eftir að höllin lenti í greiðsluörðugleikum eftir lækkanir á rafmyntamarkaði. Spurður hvort slíkt gæti komið fyr- ir viðskiptavini Myntkaupa þvertek- ur Ragnar fyrir það og segir allar eignir fyrirtækisins öruggar. Eðl- ismunur sé á starfsemi þeirra og rafmyntakauphalla líkt og Celsius sem braska með eignir notenda. „Í grunninn var þetta þannig að þeir voru að veðsetja eignir viðskiptavin- anna til þess að fá meiri vexti en þeir buðu viðskiptavinunum,“ segir hann og nefnir að vextirnir hjá Cel- sius hafi verið gríðarlega háir, allt að 15%. Tekjumódel Myntkaupa byggist á gjaldi sem tekið er við kaup og sölu. Auðvelt að fá himinhá lán Eitt af því sem hefur einkennt rafmyntamarkaðinn, og í raun alla eignamarkaði síðustu tvö ár, er mikil skuldsetning og greiður að- gangur að lánsfé. Rafmyntamark- aðurinn hefur þó líklega verið öfga- kenndari í þessum efnum og auðvelt hefur verið að nálgast hundraðfalda gírun hjá sumum rafmynta- kauphöllum. „Það er klikkað að þú getur sett milljón á Binance [stærsta raf- myntakauphöll heims] og tekið 100 milljón króna stöðu í bitcoin. Ef það kemur eitt prósent dýfa þá taparðu milljóninni, en að sama skapi get- urðu grætt 10 milljónir ef bitcoin hækkar um 10%. Það eina sem ég ætla að segja er að ég hvet engan til að snerta það. Ég hef snert það sjálfur og fólk í kringum mig. Töl- fræðin er ekki að 90% tapa á þessu, hún er ef til vill hærri. Leiðin sem virkar langbest, hvort sem það eru hlutabréf eða bitcoin, er að finna þá eignaflokka sem þú trúir á og halda í langan tíma, jafnvel meira en tíu ár. Kaupa jafnt og þétt þangað til þú ert orð- inn sáttur,“ segir hann og bætir við: „Tímaramminn hjá fólki verður oft svo rosalega þröngur. Bitcoin snýst einmitt um að hugsa hlutina til fjög- urra, fimm ára plús.“ Miklar lækkanir á rafmyntamarkaði - „Grundvöllurinn fyrir bitcoin er algjörlega jafn sterkur og áður“ - 5.400 milljarðar þurrkuðust út - Rafmyntakauphöll lokaði fyrir úttektir vegna greiðsluörðugleika - Snýst um að horfa til lengri tíma Sveiflur Óvissuástand vegna verðbólgu, vaxtahækkana og innrásar Rússa veldur áhyggjum. Miklar lækkanir hafa sést á flestum eignamörkuðum. Kjartan Ragnars Starfsemi er aftur hafin í húsnæði meðferðar- og stúlknaheimilisins á Laugalandi í Eyjafirði en starfsemin mun fara fram undir öðru nafni. Þetta staðfestir forstjóri Barna- og fjölskyldustofu, Ólöf Ásta Farest- veit. Eins og fyrr hefur verið greint frá var meðferðarheimilinu á Lauga- landi lokað í fyrra eftir að rekstrar- aðili heimilisins, sem var einka- fyrirtæki, ákvað að hætta starfsem- inni. Lokuninni var í kjölfarið mótmælt af aðstandendum og fyrr- verandi skjólstæðingum Laugalands á vefsíðu undir nafninu Laugaland bjargaði mér þar sem var safnað frá- sögnum og undirskriftum. Að sögn Ólafar mun Barna- og fjölskyldustofa núna reka heimilið og ríkisstarfsmenn ráðnir þar til vinnu. Þannig verður fagleg starf- semi tryggð á Laugalandi að mati Ólafar. Verður þjónustan á heimilinu í boði fyrir stúlkur og kynsegin og sérstök áhersla á lögð áfallameðferð. „Stúlkur sem hafa verið í neyslu eru oft með langa áfallasögu,“ segir Ólöf. Mun húsnæðið því þjóna mjög svip- uðu hlutverki og það gerði áður en því var lokað að sögn Ólafar. Segir Ólöf að starfsemi sé nú þeg- ar hafin og þrjár stelpur njóti nú þjónustu þar, en heimilið verði form- lega opnað 27. júní þar sem nýtt nafn þess verður kynnt. Í lokin segir Ólöf að gríðarleg vinna sé að baki en hún sé hæstánægð með að undirbúningn- um sé lokið svo að hægt sé að veita mikilvæga þjónustu. Meðferðarheimilið á Laugalandi enduropnað - Barna- og fjölskyldustofa opnar húsið undir nýju nafni Ljósmynd/Barnaverndarstofa Laugaland Meðferðarheimilinu var lokað fyrir rúmu ári en starfsemi er hafin þar á ný eftir mótmæli fyrrverandi aðstandenda og skjólstæðinga. 754 nemendur brautskráðust frá Háskólanum í Reykja- vík við hátíðlega athöfn í Eldborgarsalnum í Hörpu á laugardaginn. Aldrei hafa fleiri nemendur verið braut- skráðir frá skólanum. Í ræðum sviðsforseta samfélags- og tæknisviðs, Bryndísar Bjarkar Ásgeirsdóttur og Gísla Hjálmtýssonar, í fjarveru rektors, Ragnhildar Helgadóttur, kom meðal annars fram að kjarna- hlutverk Háskólans í Reykjavík væri að skapa og miðla þekkingu til að undirbúa samfélagið fyrir framtíðina. Alls útskrifuðust 63 með diplómu, 473 úr grunnnámi, 218 úr meistaranámi og fjórir með doktorspróf. Í út- skriftarhópnum voru 361 kona og 393 karlar. Flestir luku námi frá verkfræðideild háskólans að þessu sinni, eða 180 nemendur, þar af 67 með meistaragráðu. Metfjöldi útskrifaðist úr HR - 754 nemendur brottskráðir við hátíðlega athöfn í Hörpu Ljósmynd/HR Útskrift Nemendur Háskólans í Reykjavík hlýða á ávörp Bryndísar Bjarkar Ásgeirsdóttur og Gísla Hjálmtýssonar.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.