Morgunblaðið - 20.06.2022, Qupperneq 21
MINNINGAR 21
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 20. JÚNÍ 2022
✝
Gylfi Berg-
mann Heim-
isson fæddist á
Akranesi 8. maí
1975. Hann lést 4.
júní 2022.
Faðir Gylfa er
Heimir Bergmann
Gíslason, f. 31.
október 1939, og
móðir hans var
Erla Björk Stein-
þórsdóttir, f. 14.
maí 1945, d. 8. ágúst 2000.
Stjúpmóðir Gylfa er Svala Þyrí
Steingrímsdóttir, f. 4. sept-
ember 1942.
Börn Gylfa eru Dóróthea
Gylfadóttir, f. 11. september
1998, Darri Bergmann Gylfa-
son, f. 29. apríl 2001, Dísella
Gylfadóttir, f. 26. desember
2010 og Tómas Jökull Berg-
ur. Það er erfitt að lýsa Gylfa í
fáum orðum en hann var með
mjög góða nærveru, góður,
hjálpsamur, fyndinn, góður á
gítarinn, frábær smiður, frá-
bær kokkur, mjög hug-
myndaríkur, og lengi mætti
telja.
Gylfi var frumkvöðull og rak
nokkur fyrirtæki í gegnum
árin. Sem dæmi rak hann leik-
fangaheildverslun og stofnaði
camper-leiguna Campeasy. Síð-
ar sneri hann sér að veitinga-
geiranum og stofnaði The
Gastro Truck.
Hann var að vinna í því að
opna annan veitingastað þegar
hann lést sem átti að opna 1.
júlí.
Gylfi hefur gert svo miklu
meira en það sem talið er upp
hér að ofan og átti eftir að
gera svo mikið. Hann mun allt-
af eiga stóran stað í hjarta
okkar og munum við sakna
hans til æviloka.
Útför Gylfa fer fram frá
Lindakirkju í dag, 20. júní
2022, kl. 13.00.
mann Gylfason, f.
19. september
2019.
Systkini Gylfa
eru Steinar Þór
(látinn), Ólafur
Björn, Vigfús,
Theodóra Björk og
Gísli Kristján.
Einnig átti hann
þrjú stjúpsystkini,
Lilju, Laufeyju og
Markús.
Gylfi fæddist á Akranesi en
flutti snemma til Þorlákshafnar
eftir stutta veru á Hellissandi.
Hann ólst upp í Þorlákshöfn og
var vinmargur. Hann flutti síð-
an til Reykjavíkur 15 ára gam-
all og bjó á höfuðborgarsvæð-
inu eftir það. Gylfi var mikill
athafnamaður, hann var klár,
duglegur, frábær faðir og vin-
Það voru mér og mínum mik-
il sorgartíðindi að heyra að vin-
ur okkar Gylfi Bergmann væri
fallinn frá allt of snemma. Þar
missti Ísland einn af sínum
fyrirmyndarsonum.
Leiðir okkar Gylfa lágu fyrst
saman er hann kom ungur til
liðs við okkur á lager Parkets
og gólfs ehf. Fljótt kom í ljós
að ungi maðurinn sem kom í
hópinn var öflugur starfsmaður
sem við vorum afar heppin að
fá. Gylfi hafði í raun fengið í
guðsgjöf allt það besta sem
einn mann má prýða. Það verð-
ur að játa að margir menn fá
mikið lof fyrir sitt ágæti að
þeim gengnum en svo er ekki
hér, Gylfi hafði mikla mann-
kosti til að bera. Hann var
einkar duglegur, samviskusam-
ur, traustur, sanngjarn og
notalegur samstarfsmaður enda
leið ekki á löngu þar til hann
tók við verslunarstjórastöðu
fyrirtækisins en sem slíkur
þurfti hann að hafa mikinn
dugnað og útsjónarsemi í ört
vaxandi fyrirtæki ásamt því að
hafa hæfileika til að sinna við-
skiptavinum.
Gylfi hafði einnig þá hæfi-
leika að skilja og skynja gott
handbragð enda handlaginn
drengur og eitt þeirra verka
sem honum var falið var að
kryfja til mergjar og skilja
voru gæði góðs íþróttagólfs.
Gylfa tókst það og í samstarfi
við amerískan framleiðanda
voru mörg íþróttagólf lögð sem
fremstu körfuboltalið landsins
leika á hér á landi í dag.
Við vorum einnig heppin að
til Parkets og gólfs ehf. kom til
liðs við okkur Guðmunda eig-
inkona Gylfa á þeim tíma og
seint gleymist það skemmtilega
„andrúmsloft‘‘ sem skapaðist
þá.
Gylfi tók síðan skrefið ásamt
æskufélaga sínum og keyptu
þeir saman eitt stærsta fyrir-
tæki landsins sem seldi leik-
föng á þeim tíma og í einu af
sínum ferðalögum til Danmerk-
ur kom hann til okkar hjóna og
áttum við einkar notalega
kvöldstund saman í Laven.
Gylfi, þín er sárt saknað.
Missir barnanna þinna og ætt-
ingja er mikill og votta ég þeim
samúð mína.
Takk fyrir samstarfið, sam-
fylgdina og far þú í friði kæri
vinur.
Ómar
Friðþjófsson.
Gylfi Bergmann
Heimisson
Ástkær eiginkona mín, móðir, tengdamóðir,
amma, dóttir, systir, mágkona og frænka,
ELÍN JÓHANNA INGÓLFSDÓTTIR
LIVINGSTON,
Orlando, Flórída,
lést fimmtudaginn 9. júní í Orlando eftir
baráttu við krabbamein.
Joe A. Livingston
Birgitta Maus Jim Maus
Davíð A. Livingston Jennifer Livingston
Edward D. Livingston Lauren Livingston
Alexa, Nicole, Hannah, Sydney, Ryley, Tristan, Connor og
Adrienne
Halldóra Jóna Guðmundsdóttir
Arnar Ingólfsson Anna Birna Árnadóttir
Ragnhildur H. Ingólfsdóttir Ólafur Birgisson
Brynja Ingólfsdóttir Jóhann B. Magnússon
Guðmundur Þ. Ingólfsson Karlotta Sigurbjörnsdóttir
og fjölskyldur
Minningarvefur á mbl.is
Minningar og andlát
Á minningar- og andlátsvef mbl.is getur þú lesið minningargreinar,
fengið upplýsingar úr þjónustuskrá auk þess að fá greiðari aðgang
að þeirri þjónustu sem Morgunblaðið
hefur veitt í áratugi þegar andlát ber að höndum.
Andláts-, útfarar- og þakkartilkynningar eru aðgengilegar öllum.
www.mbl.is/andlát
Minningargreinar
Hægt er að lesa minningargreinar,
skrifa minningargrein og æviágrip.
Þjónustuskrá
Listi yfir aðila og fyrirtæki sem aðstoða
þegar andlát ber að höndum.
Gagnlegar upplýsingar
Upplýsingar og gátlisti fyrir
aðstandendur við fráfall ástvina.
Morgunblaðið birtir minningargreinar endurgjaldslaust alla
útgáfudaga.
Óheimilt er að taka efni úr minningargreinum til birtingar í
öðrum miðlum nema að fengnu samþykki.
Skil | Þeir sem vilja senda Morgunblaðinu greinar eru vinsamlega
beðnir að nota innsendikerfi blaðsins. Smellt á Morgunblaðslógóið í
hægra horninu efst og viðeigandi liður, „Senda inn minningargrein,“
valinn úr felliglugganum. Einnig er hægt að slá inn slóðina
www.mbl.is/sendagrein
Minningargreinar
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir, afi og langafi,
SVEINN ÞÓRARINSSON
húsgagnasmíðameistari
frá Viðfirði,
lést föstudaginn 17. júní. Útförin fer fram frá
Norðfjarðarkirkju föstudaginn 1. júlí kl.
14.00.
Útförinni verður streymt frá
Norðfjarðarkirkju.
Guðrún Kristín Sigurðardóttir
Sigurborg J. Sveinsdóttir
Guðríður Anna Sveinsdóttir
Þórarinn Guðni Sveinsson Dagbjört Stefánsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn