Morgunblaðið - 24.06.2022, Page 2

Morgunblaðið - 24.06.2022, Page 2
2 FRÉTTIR Innlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 24. JÚNÍ 2022 Flug sprettur VERONA báðar leiðir 26. júní - 03. júlí frá39.900 kr. TENERIFE báðar leiðir 27. júní - 05. júlí frá49.900 kr. ALMERÍA báðar leiðir 27. júní - 07. júlí frá39.900 kr. ALICANTE aðra leið 28. júní frá19.900 kr. MALLORCA báðar leiðir 29. júní - 06. júlí frá39.900 kr. MALAGA báðar leiðir 30. júní - 11. júlí frá39.900 kr. FLEIRI FLUG Í BOÐI TIL ÍTALÍU Á ÓTRÚLEGU VERÐI ! ÚTSALA!SÍÐUSTUSÆTIN Í JÚNÍ VERÐIÐ L ÆKKAR E N BENSÍN IÐ HÆKK AR! info@plusferdir.is www.plusferdir.is Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Andrés Magnússon andres@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is Viðskipti Gísli Freyr Valdórsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Winkel Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf. Guðrún Sigríður Arnalds Veronika Steinunn Magnúsdóttir Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadótt- ir utanríkisráðherra segir að ófriður og illdeilur milli Rússlands og um- heimsins séu vitaskuld áhyggjuefni fyrir öll ríki í okkar heimshluta. Hins vegar sé ljóst að ógnin sé mun nær- tækari fyrir mörg önnur vina- og bandalagsríki heldur en okkur. Þetta segir Þórdís í svari við fyrir- spurnum Morgunblaðsins vegna hót- ana Rússa síðustu daga gegn Litháen vegna ákvörðunar stjórnvalda þar um að loka fyrir vöruflutninga með lest- um til Kalíníngrad. Hafa Rússar með- al annars hótað því að grípa til að- gerða gegn Litháum sem muni hafa „verulega neikvæð áhrif á íbúa Lithá- en“ ef þeir dragi ekki ákvörðun sína til baka, auk þess sem rætt hefur ver- ið í rússnesku dúmunni að draga til baka viðurkenningu Rússa á sjálf- stæði Eystrasaltsríkjanna. Spurð um viðbrögð Íslands við þessum hótunum segir Þórdís að Ís- land sé stolt af vináttu sinni við Eystrasaltsríkin þrjú og standi við bak þeirra. Þá hafi komið fram að Litháen sé eingöngu að framfylgja þvingunaraðgerðum ESB, sem hafi mikil áhrif á Rússa. „Ljóst er að stríðsrekstur Rússa hefur gríðarlegar afleiðingar fyrir stóran hluta heimsbyggðarinnar, einkum vegna þess að uppskeru Úkraínu er í raun haldið í gíslingu og hún kemst ekki á markað. Þessi staða er mikið áhyggjuefni fyrir heims- byggðina en bitnar einkum á svæðum þar sem neyð var fyrir,“ segir Þórdís Kolbrún. Innrás talin ólíkleg Baldur Þórhallsson, prófessor í stjórnmálafræði, segir í samtali við Morgunblaðið að það sé ólíklegt að Rússar séu með þessu að hóta að ráð- ast inn í landið, enda er það NATO- ríki. „Það er líklegra að þeir reyni ein- hverjar netárásir og árásir á fjar- skiptakerfið. En ég myndi ekki útiloka einhver takmörkuð skemmd- arverk,“ segir hann og nefnir mögu- legar árásir á opinberar byggingar. Baldur segir að það skipti máli að staðbundnar varnir í Eystrasalts- löndunum séu það öflugar að Rúss- land ráðist aldrei til atlögu. „Þessi ríki eru það lítil að það er auðvelt að fara með herafla í gegnum þau. Það er mikilvægt fyrir þessi ríki að koma í veg fyrir að ráðist verði til atlögu,“ segir hann. Litháen sé að fylgja eftir refsiaðgerðum Evrópusambandsins en að vísu hafi Eystrasaltsríkin verið fremst í flokki þegar kemur að hörð- um refsingum gagnvart Rússum. Þau ganga lengst í að beita hörku og það er líka það sem ráðamenn í Kreml eru að bregðast við. Baldur nefnir að með hótunum sín- um séu rússnesk stjórnvöld að gera það sama og þau hafa ítrekað gert í aðdraganda og eftir innrás í Úkraínu. „Það er að hóta NATO og aðildarríkj- um þess öllu illu ef eitthvað er gert sem rússneskum stjórnvöldum finnst þrengja að þeim. Hótanir hafa verið um viðbrögð ef NATO myndi lýsa yfir flugbanni yfir Úkraínu eða einstök NATO-ríki kæmu meira að hernaðin- um í Úkraínu,“ segir hann. Þá hafi hótanir um beitingu kjarn- orkuvopna verið tíðar síðan Rússar réðust inn í Úkraínu. Vegna þessa hefur NATO farið varlega í að styggja rússnesk stjórnvöld að sögn Baldurs. „Það sem er orðið alvarlegt í samskiptum ráðamanna í Kreml við ráðamenn í Vesturlöndum er það að rússnesk stjórnvöld eru mun óút- reiknanlegri í dag heldur en sovésk stjórnvöld voru á sínum tíma.“ Rúss- um hafi því tekist vel að nýta fæling- armáttinn sér í hag. Ógnin nærtækari fyrir önnur ríki - Slæmt að Rússar hóti Litháum - Óútreiknanlegri en áður AFP/Anatolii Stepanov Ógn Rússar eru sífellt óútreiknanlegri í samskiptum sínum við nágrannaríki. Þóra Birna Ingvarsdóttir thorab@mbl.is Stífar hæfniskröfur fyrir embætti dómara við Mannréttindadómstól Evrópu og löng embættistíð geta haft áhrif á fjölda þeirra sem sækj- ast eftir embættinu, segir Gunnar Þór Pétursson, prófessor við laga- deild Háskólans í Reykjavík. „Þú þarft að uppfylla sömu hæfn- iskröfur og gerðar eru til dómara við Hæstarétt hér heima, svo þarftu að hafa góða þekkingu á alþjóðalögum, sérstaklega Mannréttindasáttmála Evrópu. Loks þarftu að hafa full- komið vald á annaðhvort ensku eða frönsku, auk þess að hafa vinnu- hæfni í því tungumáli sem þú ert síðri í.“ Oddný Mjöll Arnardóttir, Jónas Þór Guðmundsson og Stefán Geir Þórisson voru tilnefnd fyrir embætti dómara við Mannréttindadómstól Evrópu. Ísland þarf að tilnefna þrjá umsækjendur og einungis þrír sóttu um, bæði í ár og árið 2013. Að lokn- um viðtölum í Strassborg drógu þeir Jónas Þór og Stefán Geir umsóknir sínar til baka. Gunnar tekur undir orð Davíðs Þórs Björgvinssonar, fyrrverandi dómara Íslands við MDE, um að það kunni að hafa áhrif þegar það spyrst út að öflugur umsækjandi á borð við Oddnýju Mjöll sækist eftir embætt- inu. Hann vekur þó einnig athygli á að þó að einstaklingur uppfylli kröfurn- ar sem þarf til að eiga möguleika á embættinu, sé ekki sjálfgefið að fólk hafi áhuga á eða aðstöðu til að flytja til Strassborgar í níu ár enda sé það langur tími fyrir tímabundið starf. Stífar hæfnis- kröfur hafi áhrif - Tveir drógu um- sókn til baka um emb- ætti dómara við MDE Ljósmynd/Háskólinn í Reykjavík Dómarar Gunnar Þór, prófessor við lagadeild Háskólans í Reykjavík. Guðrún Sigríður Arnalds gsa@mbl.is „Við hófum starfsemi í miðjum heimsfaraldri og fórum mjög rólega af stað en starfsemin síðastliðið ár hefur gengið von- um framar,“ seg- ir Birgir Jónsson, forstjóri Play, en í dag er liðið eitt ár frá fyrstu flug- ferð félagsins. Jómfrúarferðin var til London 24. júní árið 2021 en nú hafa fleiri en 320.000 manns flogið með félag- inu. Birgir segir að allt stefni í enn meiri vöxt í sumar. „Hins vegar var aldrei gert ráð fyrir hagnaði fyrstu mánuðina, en við sjáum fram á að skila rekstrarhagnaði, sem er auð- vitað afrek.“ Ásættanleg nýting á sætum Hann segir að flugfélagið sé nú komið með mjög ásættanlegar nýt- ingartölur miðað við flugfélög um allan heim. Þótt hækkun á olíuverði hafi sett strik í reikninginn, þá gangi vel að ná þeim markmiðum sem fé- lagið hefur sett sér. „Eitt markmið sem við viljum ná eru 15 flugvélar í notkun fyrir árið 2025. Það er allt í kortunum þar sem það gengur vel að bæta við okkur vélum.“ Annað markmið Play var að ná einingakostnaði sínum niður fyrir fjögur sent fyrir hvern farinn kíló- metra. Birgir greinir frá því að stutt sé í land hvað það varðar. „Við erum stoltust af því að vera með besta verðið á markaðinum, en það er auðvitað bara hægt með því að lækka kostnaðinn,“ segir Birgir. Langstærsti hluti farþega Play eru erlendir ferðamenn sem ferðast til Íslands. Bandarískum ferða- mönnum fjölgaði mikið á tímum heimsfaraldursins, þar sem Ísland var eitt af fáum löndum sem þá voru opin ferðamönnum. Birgir segir marga vanmeta þá breytingu sem orðið hafi hjá Play á stuttum tíma. Félagið fljúgi ekki lengur bara með Íslendinga til sólar- landa, heldur fljúgi Play einnig með fjöldann allan af ferðamönnum víðs vegar frá. Segist hann vera bjart- sýnn á framtíð flugfélagsins. Jómfrúarvélin Ár er liðið frá fyrstu flugferð flugfélagsins Play. Miklar breytingar á stuttum tíma - Ár liðið í dag frá fyrsta flugi Play Birgir Jónsson

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.