Morgunblaðið - 24.06.2022, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 24.06.2022, Blaðsíða 8
8 FRÉTTIR Innlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 24. JÚNÍ 2022 Funahöfði 1 | 110 Reykjavík | Sími 567 4840 | www.bilo.is | bilo@bilo.is Komdu í BÍLÓ! M.BENZ EQC 400 4MATIC POWER 2021 Nýskráður 12/2020 ekinn aðeins 9 Þ.km, rafmagn (408 km drægni), sjálf- skiptur, fjórhjóladrifinn. Hlaðinn aukabúnaði s.s. AMG-line bæði innan og utan. Sjónlínuskjár, 21“ álfelgur, rafdrifin framsæti, skynvæddur hraðastillir, 360° bakkmyndavél. BURMESTER hljómkerfi o.fl. Raðnúmer 254037 0.000 M.BENZ EQB 300 POWER 4MATIC - 2022 Nýskráður 12/2021 ekinn 3þkm, 100% rafmagn með 423 km drægni, 360° Bakkmyndavél, glerþak - 19“ álfelgur og dekk. Alveg hlaðinn búnaði og til afhendingar strax! Raðnúmer 254157 0.000 Þessir síungu strákar eru klárir í að selja bílinn þinn VIÐ ERUM EKKI AÐ FARA NEITT ÞÚ FINNUR OKKUR Á FUNAHÖFÐA EITT Hlökkum til! Indriði Jónsson og Árni Sveinsson M.BENZ EQA 250 POWER AMG Nýskráður 08/2021, ekinn aðeins 8 Þ.km, 19“ álfelgur og dekk, dráttar- krókur, Night pack (Næturpakki), AMG line innan og utan o.fl. Raðnúmer 254155 0.000 Arnar Þór Jónsson skrifar eftir- tektarverða grein í blað gær- dagsins, þar sem hann fer m.a. yf- ir hættur sem ógna nú sjálfsákvörðunarrétti manna og þjóða á margvíslegan hátt: - - - Mannréttindi, sem til skamms tíma þóttu sjálfsögð, svo sem málfrelsi, funda- og ferðafrelsi, eru í raunverulegri hættu. Án lýðræðis- legs umboðs hafa embættismenn og „sérfræðingar“ fest hönd á valdataumum. Án um- ræðu og án viðunandi réttlætingar er verið að umbreyta borgaralegu frelsi í leyfisskyldar athafnir. - - - Hið opinbera seilist sífellt lengra inn á svið einkalífs. Mörk leyfilegrar valdbeitingar verða stöðugt þokukenndari. Við þessar aðstæður er gagnrýni illa séð, því hún ógnar valdinu. Betra er að „treysta sérfræðingunum“ og „fylgja vísindunum“. Viðhorf, sem jafnvel eru byggð á hlut- lægum staðreyndum, eiga á hættu að vera stimpluð sem falsvísindi og upplýsingaóreiða ef þau sam- ræmast ekki því sem stjórnvöld boða. - - - Við stöndum þá frammi fyrir stöðnun og myrkvun, þar sem aðeins eitt viðhorf er leyfilegt. Í þjóðfélagi, þar sem sannleiksleit er í reynd bönnuð, umbreytast há- skólar og fjölmiðlar í skrumskæl- ingu þess sem þeim er ætlað að vera. Hlutlægur sannleikur hverf- ur sjónum. Sannleikurinn tilheyrir þá þeim einum sem fara með skil- greiningarvaldið. - - - Ef menn fara ekki að vakna, mun hið frjálsa samfélag brátt heyra sögunni til. Þá verður of seint að koma því til varnar.“ Arnar Þór Jónsson Tímabær aðvörun STAKSTEINAR Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://mbl.is/mogginn/leidarar/ Guðrún Sigríður Arnalds gsa@mbl.is Dregið hefur úr sölu hraðgreining- arprófa fyrir Covid hér á landi. Það má að miklu leyti rekja til þess að farþegar á leiðinni til Bandaríkjanna hafa frá og með 12. júní síðastliðnum ekki þurft lengur að framvísa nei- kvæðu Covid-prófi. Flest önnur ríki, sem hægt er að ferðast beint til og frá Íslandi, höfðu áður breytt sótt- varnarreglum sínum í þá veru. Þetta staðfestir Ómar Brynjólfs- son, framkvæmdastjóri AVIÖR, sviðs innan Öryggismiðstöðvar- innar, í viðtali við Morgunblaðið. „Auðvitað mátti alltaf búast við þessu á einhverjum tímapunkti, en það er bara eðli málsins í þessum Covid-fræðum að aðstæður geta allt- af breyst,“ segir Ómar. Öryggismiðstöðin, í samstarfi við Sameind rannsóknarstofu, opnaði síðastliðið sumar nokkrar skim- unarstöðvar, víðs vegar um landið. Aðsókn í þær jókst gífurlega í mars þegar sóttvarnalæknir tók ákvörðun um að ekki yrði lengur í boði fyrir al- menning með einkenni að panta PCR-próf, heldur einungis hrað- greiningarpróf. Ómar segir að fáeinar stöðvar verði enn opnar og hægt verði að fara í hraðpróf þótt eftirspurn hafi töluvert minnkað. „Það eru ennþá mörg virk Covid-smit í samfélaginu og auðvitað einhverjir sem nýta ennþá þessa þjónustu,“ bætir Ómar við. Hann segist álíta það ákveðna skyldu þeirra að halda skimunar- stöðvunum opnum. Þá verður enn hægt að fara í skimun á stöðinni í Kringlunni annars vegar og BSÍ hins vegar, þótt hann segi að fram- haldið muni stjórnast að mestu leyti af eftirspurn. Sala hraðgreining- arprófa minnkað - Fáeinar skimunarstöðvar verði opnar Morgunblaðið/Baldur S. Blönda Kórónuveiran Nokkrar skim- unarstöðvar verða enn opnar. Samtök fyrirtækja í sjávarútvegi (SFS) og fyrirtæki innan þeirra vé- banda hafa ákveðið að styrkja þrenn hjálpar- og mannúðarsamtök í Úkraínu um 130 milljónir króna. Upphaflega var tilkynnt um gjöf- ina á ársfundi samtakanna 6. maí sl. en þá lá ekki fyrir hvaða hjálpar- samtök yrðu fyrir valinu. Samtökin sem styrkinn hljóta eru Caritas, UNICEF – Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna og UN Women. Caritas eru hjálparsamtök í Úkra- ínu. Styrkur til þeirra mun einkum fara til útibús samtakanna í borginni Ternopil sem er skammt frá borg- inni Lviv í vesturhluta landsins. UNICEF sinnir börnum og fjöl- skyldum þeirra innan og utan Úkra- ínu, en talið er að allt að 60-70% barna í Úkraínu hafi flúið heimili sín. UN Women sinna neyðaraðstoð og sérstökum þörfum kvenna og jaðarsettra hópa. Eitt verkefna sam- takanna snýr að því að styðja konur sem hafa verið beittar kynferðisof- beldi í stríðinu. Fyrirtækin sem standa að gjöfinni eru Arctic Fish, Brim, Eskja, G. Run, Gjögur, Hraðfrystihúsið Gunn- vör, Huginn, Iceland Pelagic, Ice- land Seafood Int., Ísfélagið, Loðnu- vinnslan, Oddi, Rammi, Samherji, SFS, Síldarvinnslan, Skinney- Þinganes, Vinnslustöðin, Vísir og Þorbjörn. 130 milljónir frá fyrirtækjum SFS - Útgerðarfyrirtæki styrkja þrenn hjálpar- og mannúðarsamtök í Úkraínu AFP/Sergei Chuzavkov Úkraína Börn að leik í rústuðum bæ skammt frá Tsjernigív.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.