Morgunblaðið - 24.06.2022, Side 9
FRÉTTIR 9Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 24. JÚNÍ 2022
Erum með þúsundir vörunúmera
inn á vefverslun okkar brynja.is
Laugavegi 29 | sími 552 4320 | www.brynja.is | verslun@brynja.is
Vandaðir þýskir
póstkassar, hengi-
lásar, hjólalásar
og lyklabox.
MIKIÐ ÚRVAL
Opið
virk
a
dag
a frá 9-18
lau frá 11-1
7
Varma Orka ehf. og Baseload
Power Iceland ehf. hafa fengið
starfsaðstöðu í Verinu, hjá frum-
kvöðla- og þekkingarsetrinu í
Þorlákshöfn, Ölfus Cluster (ÖC).
Páll Marvin Jónsson, fram-
kvæmdastjóri ÖC, og fulltrúar
Varmaorku og Baseload, þeir
Ragnar Sær og Anders Bäckstr-
öm, skrifuðu í vikunni undir sam-
starfssamning um afnot af að-
stöðunni í Verinu.
Varmaorka og Baseload Power
Iceland, í samstarfi við landeig-
endur í Ölfusi, undirbúa nú orku-
öflun á lághitasvæðum í sveitar-
félaginu Ölfusi. Áhersla er á
svæði þar sem jarðhiti er yfir
100°C en Varmaorka hefur náð
góðum árangri með slíkum jarð-
hitavirkjunum, t.d. við Kópsvatn
á Flúðum og Efri-Reyki í Blá-
skógabyggð. Ragnar Sær Ragn-
arsson frá Varmaorku leiðir
þessa vinnu. Að sögn Ragnars
kallar starfsemin í Ölfusi á við-
veru og náið samstarf við land-
eigendur og heimamenn.
„Verkefnin sem eru í undirbún-
ingi falla einkar vel að auðlinda-
stefnu sveitarfélagsins, þar sem
markmiðið er að framleiða orku
úr lágvarma og umframvarma og
nýta til frekari atvinnuuppbygg-
ingar í Ölfusi. Hin gríðarlega
mikla atvinnuuppbygging sem á
sér stað innan sveitarfélagsins,
m.a. í landeldi á laxi, ylrækt og
jarðefnaiðnaði, kallar á mikla
orku. Ljóst er að orkuþörfin mun
vaxa enn frekar næstu árin,“ seg-
ir í tilkynningu frá Ölfus Cluster.
Ölfus Fulltrúar Ölfus Cluster, Varmaorku og Baseload ásamt Elliða Vign-
issyni, sveitarstjóra í Ölfusi, þegar samningar voru undirritaðir.
Undirbúa orkuöfl-
un á lághitasvæði
- Tvö fyrirtæki koma í Ölfus Cluster
Veronika Steinunn Magnúsdóttir
veronika@mbl.is
Knattspyrnufélag Reykjavíkur og Knattspyrnufélagið
Valur hafa fengið styrk frá Knattspyrnusambandi Evr-
ópu (UEFA) upp á 30.000 evrur eða sem nemur 4,3 millj-
ónum króna til þess að hjálpa flóttafólki að aðlagast
íþróttasamfélaginu í Miðborg, Hlíðum og Vesturbæ.
Þessir fornu erkifjendur vinna saman að verkefninu þar
sem Þjónustumiðstöð Vesturbæjar, Miðborgar og Hlíða
nær yfir svæði beggja.
Pálmi Rafn Pálmason, íþróttastjóri KR, segir að-
spurður að rígur milli félaganna sé settur til hliðar í mál-
um sem þessum: „Rígur er algjörlega settur til hliðar
þegar svona á við. Við vinnum þetta í sameiningu og ger-
um þetta fyrir þennan hóp, sem er mikilvægt að aðstoða
eins vel og við getum,“ segir hann.
Þjónustumiðstöðin eigi þá einnig stóran þátt í verkefn-
inu og sé stór ástæða fyrir því að félögin hafi fengið styrk
fyrir verkefnið, sem ber yfirskriftina Velkomin í hverfið.
Skiptir engu hvaðan gott kemur
Gunnar Örn Arnarson, íþróttafulltrúi Vals, tekur í
sama streng. „Erkifjendur og ekki erkifjendur. Það
skiptir ekki máli hvaðan gott kemur. Markmiðið er að
þetta verði iðkendum til hagsbóta og samfélaginu í heild
sinni. Það skiptir ekki máli hvaðan gott kemur, það
skiptir máli að þetta takist vel upp,“ segir hann. Þjón-
ustumiðstöðin tengdi Val og KR saman. „Valur hefur í
svolítinn tíma verið í samstarfi við þjónustumiðstöðina í
samskonar verkefnum, þar sem við erum að reyna að
efla þátttöku flóttafólks og hælisleitenda,“ segir hann.
Hælisleitendum verður þá hjálpað við að komast inn í
skráningar- og upplýsingakerfi félaganna og verður þá
mögulega ráðinn starfsmaður sem sér um að halda utan
um mál þessi. Þá verður íþróttastarf innan félaganna
kynnt betur fyrir hælisleitendum en einnig gæti verið
þörf á túlkaþjónustu sem yrði þá veitt, þar sem félögin
hafa ekki túlka á sínum snærum.
„Þetta er náttúrulega mjög þarft. Bæði félög finna fyr-
ir því að við erum að fá iðkendur af erlendu bergi brotna
sem eru í þessari stöðu. Það er erfiðara fyrir það fólk að
fóta sig hjá okkur og í samfélaginu. Þá getur þessi brú á
milli félaganna og þjónustumiðstöðvarinnar verið mikil-
væg,“ segir Gunnar.
Aðildarsamböndum UEFA býðst að sækja um styrk í
sérstakan sjóð vegna knattspyrnutengdra verkefna sem
tengjast flóttafólki og hælisleitendum. Með sjóðnum,
sem settur var á laggirnar árið 2017, eru knattspyrnu-
sambönd Evrópu hvött til að starfa með knattspyrnu-
félögum, samtökum eða öðrum aðilum sem starfa að mál-
efnum flóttamanna og hælisleitenda í sínum löndum og
stofna til knattspyrnutengdra verkefna sem styðja við
aðlögun þeirra.
Rígurinn settur til
hliðar fyrir málstaðinn
- KR og Valur fá styrk til þess að aðstoða flóttafólk við að
aðlagast samfélaginu - Knattspyrnutengd verkefni
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Stórveldin Valur og KR leggja ríginn til hliðar og vinna
saman við að hjálpa flóttafólki við aðlögun í hverfunum.