Morgunblaðið - 24.06.2022, Page 11

Morgunblaðið - 24.06.2022, Page 11
FRÉTTIR 11Innlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 24. JÚNÍ 2022 OSMANTHUS EAUDE TOILETTE Umvefðu þig blómum Kringlan 4-12 | s. 577-7040 | www.loccitane.is Kvenfélagið Harpa í Tálknafirði heldur upp á 60 ára afmæli sitt á morgun, laugardag. Opið hús verð- ur frá kl. 14-17 í Vindheimum. Öll- um er velkomið að koma, þiggja veitingar og fagna með kvenfélags- konum. Kvenfélagið var stofnað í janúar árið 1962. Lengi höfðu Hörpukonur aðsetur í samkomuhúsinu Dun- haga, eða frá 1969 allt þar til fyrir nokkrum árum. Þar er nú rekið kaffihús, Café Dunhagi. Fyrsti for- maður Hörpu var Steinunn Finn- bogadóttir en formaður í dag er Jóna Sigursveinsdóttir. Hörpukonur fagna 60 ára afmælinu Morgunblaðið/Guðlaugur J. Albertsson Tálknafjörður Samkomuhúsið Dunhagi, þar sem kvenfélagið hafði lengi aðsetur. Dregið var í gær í Happdrætti DAS. Aðalvinningurinn að þessu sinni var 40 milljónir króna á tvöfaldan miða á miðanúmerið 52011. Vinn- ingshafinn reyndist vera 64 ára karlmaður, íbúi á Suðurnesjum. Ekki hafði síðdegis í gær tekist að ná sambandi við þann heppna, samkvæmt upplýsingum frá Sig- urði Ág. Sigurðssyni, forstjóra DAS. Að auki fóru þrír vinningar út, hver að upphæð 150 þúsund krónur. DAS leitar að 64 ára karli á Suðurnesjum Happdrætti Sigurður Ág. Sigurðsson hjá DAS er á höttunum eftir vinningshafanum. Guðni Einarsson gudni@mbl.is Goslokahátíð 2022 í Vestmanna- eyjum hefst fimmtudaginn 30. júní og lýkur sunnudaginn 3. júlí. Boðið verður upp á fjölda viðburða eins og listsýningar, ljósmyndasýningu, bókarkynningu, tónleika og fleira. „Þetta er mikilvæg hátíð en eld- gosið 1973 og allt sem tengist því hefur mikið tilfinningalegt gildi,“ segir Íris Róbertsdóttir bæjarstjóri. Hún segir goslokin vera sannarlega tilefni til hátíðarhalda. „Hátíðin minnir einnig nýjar kyn- slóðir á þennan atburð og hún er orðin fastur liður í árinu og menn- ingu okkar,“ segir Íris. Þegar er byrjað að leggja drög að goslokahátíð 2023 en þá verða liðin 50 ár frá Heimaeyjargosinu og 60 ár frá upphafi Surtseyjargossins. „Við erum í samstarfi við forsætis- ráðuneytið um fund forsætisráð- herra Norðurlandanna og ráðstefnu í samvinnu við Háskóla Íslands og Jarðfræðingafélag Íslands. Einnig við Alþingi sem samþykkti þings- ályktunartillögu um gerð minnis- varða um eldgosið á Heimaey,“ segir Íris. Einnig hefur verið rætt um að- komu forseta Íslands að hátíðar- höldunum. Íris segir að vonandi tak- ist að afhjúpa minnisvarðann á næsta ári. Listamaðurinn Ólafur Elíasson er byrjaður á hugmynda- vinnu vegna verksins. Þéttskipuð dagskrá í ár „Dagskráin er mjög þéttskipuð í ár,“ segir Sigurhanna Friðþórs- dóttir, verkefnastjóri Safnahúss Vestmannaeyja. „Það er orðið mjög eftirsótt að taka þátt í goslokahátíð- inni og listafólk er mikið búið að spyrja um sýningarrými á næsta ári, afmælisárinu.“ Hún segir að nú verði boðið upp á fjölda tónleika og verða þeir fyrstu þegar á fimmtudagskvöld. Tvennir tónleikar verða á föstudagskvöld og bæði á laugardag og sunnudag. Þar verður flutt fjölbreytt tónlist. „Þetta er svolítið hátíð heima- manna og brottfluttra Vestmanna- eyinga. Sumir segja að dagskráin hafi verið miðuð við miðaldra fólk, en ungu hljómsveitirnar hér í Vest- mannaeyjum sækjast eftir að spila á hátíðinni. Einnig er mjög vegleg barnadagskrá í boði Ísfélags Vest- mannaeyja og eins býður Íslands- banki börnunum í bíó svo við reyn- um að höfða til allra aldurshópa,“ segir Sigurhanna. „Einkaaðilar eru í samstarfi við hátíðina. Höllin verður t.d. með tónleika með Bjartmari Guðlaugssyni og Prófasturinn er með rokktónleika sem höfða til yngra fólksins. Á laugardagsmorgun verður boðið upp á gönguferð á Heimaklett með félögunum Pétri Steingrímssyni og Svavari Steingrímssyni, en hann er kominn yfir áttrætt og fer flesta daga á klettinn. Hann segir að nú fari hver að verða síðastur að koma með honum á klettinn! Þeir munu leiðsegja samferðafólkinu, greina frá örnefnum og fleira.“ Fjölbreytt goslokahátíð nálgast - Gosloka í Vestmannaeyjum er minnst 30. júní til 3. júlí - Á næsta ári verða liðin 50 ár frá gosinu í Heimaey og 60 ár frá Surtsey Morgunblaðið/Óskar Pétur Friðriksson Goslokahátíð Fjöldi fólks leggur leið sína til Eyja til að taka þátt í árlegum hátíðarhöldum til að minnast þess þeg- ar eldgosinu í Heimaey lauk árið 1973. Að þessu sinni verður fjöldi viðburða í boði. Myndin var tekin 2019.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.