Morgunblaðið - 24.06.2022, Page 12

Morgunblaðið - 24.06.2022, Page 12
12 FRÉTTIR Viðskipti | Atvinnulíf MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 24. JÚNÍ 2022 Ljósmyndir Rutar og Silju Skipholti 31 | 105 Reykjavík | Sími 568 0150 | www.rut.is | Opið alla virka daga kl. 10-17 Passamyndir Tímapantanir í síma 568 0150 eða á rut@rut.is Förum eftir öllum sóttvarnartilmælum Hagnaður Kaupfélags Skagfirð- inga (KS) nam í fyrra 5,4 millj- örðum króna og jókst um rúma 2,4 milljarða króna á milli ára. Tekjur félagsins námu um 43,9 milljörðum króna og jukust um 2,9 milljarða á milli ára, en rekstrarkostnaður nam 35,8 milljörðum króna og jókst um 1,4 milljarða á milli ára. Þetta kemur fram í ársreikningi félagsins fyrir árið 2021. Stærsti tekjuliður KS kemur af rekstri Kaupfélagsins, um 15,7 milljarðar, en tekjur félagsins af útgerð og fiskvinnslu námu um 11,8 mill- jörðum. Þá námu tekjur af rekstri annarra félaga í samstæðunni um 13,6 milljörðum króna. Rekstrarhagnaður fyrir fjár- magnsliði nam 6,1 milljarði króna og jókst um 1,6 milljarða króna á milli ára. Eigið fé KS var í árslok síðasta árs um 47,9 milljarðar króna og handbært fé frá rekstri nam 5,8 milljörðum króna. Við lok árs námu langtímaskuldir félagsins tæpum 13 milljörðum króna. Fram kemur í ársreikningi KS að störfum innan félagsins hefur fækkað. Á síðasta ári störfuðu að meðaltali 935 manns hjá félaginu en 970 árið áður. gislifreyr@mbl.is Morgunblaðið/Björn Jóhann Uppgjör Tekjur KS af útgerð námu tæpum 12 milljörðum á síðasta ári. Auknar tekjur og góð afkoma hjá KS bæði ríki treysti á flutningastarfsemi og þannig mætti áfram telja. Af þeim ástæðum sé meðal annars hægðar- leikur að heimfæra þá reynslu sem norsk fjármálafyrirtæki hafa af grænum fjárfestingum á íslensk fyrirtæki, sem taka að hans sögn sjálfbærnimál mjög alvarlega í starf- semi sinni. „Íslendingar eru framarlega á svo mörgum sviðum, meðal annars í sjávarútvegi og nýtingu orkuauð- linda þar sem sífellt fleiri horfa til grænna lausna og fjárfestinga í þeim,“ segir Ripman. „Grænar fjárfestingar snúast ekki um einhverjar fallegar hugmyndir um að bjarga jörðinni í ófyrirsjáan- legri framtíð, heldur um að fjárfesta í raunverulegum lausnum. Út um all- an heim eru að verða til lausnir sem fela í sér miklar framfarir, lausnir sem gefa okkur færi á að reka fyrir- tæki með sjálfbærari hætti en áður og með minna kolefnisspori og það er því mikill fengur að því að taka þátt í þeim fjárfestingum. Þess vegna getum við haldið því fram að fyrirtæki sem bjóða upp á eða fjár- festa í raunhæfum lausnum muni lifa til lengri tíma og skapa bæði hlut- höfum og öðrum hagaðilum aukin verðmæti til framtíðar.“ Ripman segir að fjármálafyrir- tæki hafi verkfæri sem hægt sé að beita með jákvæðum hætti, meðal ananrs með því að sniðganga fjár- festingar í óumhverfisvænum iðnaði, sem muni væntanlega fyrr en síðar lognast út af. „Það er því ekki mikil framtíð í þeim fjárfestingum,“ segir Ripman. Framtíðin liggi í grænum fjárfestingum - Yfirmaður hjá Storebrand segir grænar fjárfestingar snúast um raunverulegar lausnir - Margt líkt með tækifærum íslenskra og norskra fjármálafyrirtækja - Hægt að sneiða hjá ósjálfbærum fjárfestingum Morgunblaðið/Hákon Sjálfbærni Philip Ripman hóf störf hjá Storebrand árið 2006. BAKSVIÐ Gísli Freyr Valdórsson gislifreyr@mbl.is Þau fyrirtæki sem einblína á sjálf- bærni og bjóða upp á raunhæfar lausnir eru þau fyrirtæki sem munu lifa til lengri tíma. Þetta segir Philip Ripman, fram- kvæmdastjóri hjá Storebrand Global Solutions, í samtali við Morgunblað- ið. Ripman var nýlega staddur hér á landi og átti þá samtal við íslenska lífeyrissjóði og fjármálafyrirtæki um grænar fjárfestingar og fleira sem snýr að sjálfbærnimálum í fjármála- kerfinu. Hann segir að Íslendingar og Norðmenn eigi margt sameigin- legt, í báðum löndum sé öflugur sjáv- arútvegur, mikið af orkuauðlindum, Logi Sigurðarson logis@mbl.is Eftirvænting lá í loftinu í höfuð- stöðvum Alvotech í Vatnsmýrinni meðan viðstaddir biðu eftir því að Róbert Wessman, stofnandi og stjórnarformaður lyfjafyrirtækisins, hringdi kauphallarbjöllunni og lok- aði fyrir viðskipti með bréf í höllinni. Blaðamaður var á staðnum og tók bæði Róbert og Magnús Harðarson, forstjóra Kauphallarinnar, tali þeg- ar fagnaðarlátunum var lokið. Bréf félagsins voru tekin, í fyrsta skipti, til viðskipta á First North- markaðnum í gær. Félagið var skráð í Nasdaq-kauphöllina í New York í síðustu viku og hefur gengi bréfanna flökt mikið á þeim tíma. Þess varð ekki vart á fyrsta viðskiptadegi bréf- anna hérlendis en gengið hækkaði aðeins um 32 krónur í viðskiptum sem námu 83 milljónum króna. Gengi bréfanna í lok dags var 1.332 krónur. Fyrirtækið er verðmetið á rúma 250 milljarða og er því næst- stærsta félagið í Kauphöllinni. Hluthafalistinn ekki birtur Róbert sagði í samtali við blaða- mann Morgunblaðsins þetta vera stóran áfanga en lífið héldi áfram og mikilvægt væri að hafa hugann við áframhaldandi vöxt. Fyrsta lyf fyrir- tækisins er komið á markað í Kan- ada og Evrópu og átta önnur í þró- un. Aðspurður sagði Róbert fyrirtækið áætla að skila hagnaði á síðari hluta næsta árs og það hafi nóg fjármagn til þess að fara í gegn- um þá ársfjórðunga þar sem fyrir- tækið muni skila tapi. Inntur eftir því hvort lífeyrissjóðir hefðu tekið þátt í 175 milljóna dollara fjármögn- un sem fyrirtækið réðst í fyrir ára- mót svaraði Róbert því neitandi en 80 milljónir dollara af þeirri fjár- mögnun komu frá Íslandi. Hann bætti því við að í raun hefði hann verið að kynna lífeyrissjóðunum fyrirtækið síðustu vikur. Hluthafa- listi fyrirtækisins hefur ekki verið birtur og er að sögn forsvarsmanna félagsins trúnaðarmál að svo stöddu. Magnús Harðarson sagði skráningu Alvotech vera ánægjulega. Aðspurð- ur sagði Magnús að skráning fyrir- tækisins í Kauphöllina myndi hjálpa íslenskum fjárfestum að venjast verðmati sem byggist meira á vænt- ingum frekar en hagnaði eins og tíðkast í Bandaríkjunum. Alvotech skráð á markað Morgunblaðið/Árni Sæberg Nýsköpun Lyfjafyrirtækið Alvotech var skráð á First North-vaxtamarkaðinn í gær við mikinn fögnuð viðstaddra. Netflix stefnir að því að auka tekjur sínar með því að selja auglýsingar og mæta þannig fækkun áskrifta að streymisveitunni. Félagið er meðal annars í viðræðum við Alphabet, sem er í eigu Google, og Comcast, sem er í eigu NBC Universal, um mögulegt samstarf um auglýsinga- sölu. Í fyrsta sinn í áratug hefur áskrifendum Netflix fækkað. Ted Sarandos, forstjóri Netflix, sagði við fjölmiðla vestanhafs í gær að ekki stæði til að bæta auglýs- ingum inn í streymisþjónustuna í núverandi mynd, heldur væri horft til þess að bjóða upp á ólíkar áskriftarleiðir, meðal annars ódýr- ari leið með auglýsingum. Netflix er þó ekki eina félagið sem horfir til þess að breyta tekjuleiðum sín- um, því Disney+ hefur einnig horft til þess að bæta auglýsingum inn í sína veitu, þó ekki hafi verið kynnt með hvaða hætti það yrði gert. Netflix horfir til auglýsingasölu - Áskrifendum veitunnar hefur fækkað 24. júní 2022 Gengi Kaup Sala Mið Dollari 131.83 Sterlingspund 161.5 Kanadadalur 101.54 Dönsk króna 18.646 Norsk króna 13.204 Sænsk króna 13.001 Svissn. franki 136.61 Japanskt jen 0.9692 SDR 175.83 Evra 138.7 Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 171.2901

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.